Morgunblaðið - 21.12.2002, Síða 8
FRÉTTIR
8 LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Þú ert nú algjör jóli, auðvitað bið ég þá að freta ekki á okkar vélar.
Rjúpnastofninn í lægð
Ekki víst að
botni sé náð
LÆGÐ í íslenskarjúpnastofninumhefur mjög verið til
umræðu og skiptast lands-
menn í nokkrar fylkingar
varðandi hvort eitthvað
megi til bragðs taka til að
hjálpa stofninum að rétta
við. Ólafur Karl Nielsen
líffræðingur hefur um ára-
bil fylgst grannt með
stöðu rjúpnastofnisns.
– Er botninum náð?
„Nei, ekki er það nú
endilega. Athugaðu að til
dæmis hefur núverandi
fækkunarskeið á Norð-
austurlandi aðeins varað í
fjögur ár. Eftir toppinn
1986 fækkaði jafnt og þétt
í átta ár.“
– Er þetta stærsta dýfa
sem þú hefur séð?
„Ég tel rjúpur á Norðuraust-
urlandi og hef gert frá árinu 1981.
Þetta er í sjálfu sér ekki langur
tími á mælikvarða rjúpnasveifl-
unar, en að jafnaði líða um tíu ár
á milli toppa. Þannig að sjálfur
hef ég aðeins upplifað tvær lægð-
ir. En rjúpnafjöldinn á talning-
arsvæðum mínum á liðnu vori var
sá lægsti sem verið hefur.“
– Hvernig var þetta á árum áð-
ur?
„Menn vita með vissu að topp-
arnir á árum áður voru miklu
hærri. Það var t.d. mjög góður
toppur árið 1956 og ef ég miða við
mitt talningarsvæði á Norðaust-
urlandi, þá erum við að tala um
fjórum sinnum stærri toppa held-
ur en þann síðasta sem var árið
1998. Annar toppur árið 1966 var
helmingi minni eða rúmlega það
heldur en 1956. Síðan kom gat í
talningarnar, en aftur erum við
með topp árið 1986 sem var svip-
aður og 1966 eða heldur minni.
Varðandi lægðirnar, þá eru taln-
ingargögn takmörkuð. Af þeim
sem til eru, benda sum til þess að
lægðir hafi verið dýpri, en aðrar
til svipaðra lægða og nú sést. Það
er óumdeilt að fyrri hluta síðustu
aldar var hér miklu meira af
rjúpu. Á þeim tíma voru menn að
skjóta hátt í 300 þúsund rjúpur til
útflutnings með þeirri takmörk-
uðu sóknargetu sem þá var og
lakari byssum og skotfærum
heldur en nú tíðkast.“
– Sumir skotveiðimenn tala um
að mikið sé af rjúpu, hvernig ber
að túlka það?
„Þrjú orð koma upp í höfuðið,
ofskynjanir, blekkingar, raup!“
– Er hætta á að rjúpan deyi út?
„Sá ótti er óþarfur, við útrým-
um rjúpunni ekki svo auðveld-
lega. Hitt er svo annað mál að það
er hægt að halda stofninum niðri
með ofveiði.“
Hefði verið heppilegra að
banna rjúpnaveiðar á þessu ári?
„Menn ákváðu að fara aðrar
leiðir og ekki meira um það að
segja.“
– Telur þú að sölubann muni
stöðva veiðar magnveiðimanna?
„Ég tel að þær nái kannski
ekki að stöðva magnveiðimenn-
ina, en þær geta veru-
lega heft umsvif
þeirra.“
– Er sannað eða
ósannað að skotveið-
arnar hafi áhrif á
stofnsveiflurnar?
„Það er fráleitt sannað, en það
er möguleiki á því að þær hafi
neikvæð áhrif. Þegar stofninn er
á leið niður þá er um að ræða
náttúrulega sveiflu þar sem
áhrifavaldarnir eru á fullu og það
stoppar ekkert þann feril. Þegar
botninum er náð dregur sjálf-
krafa úr virkni þessara áhrifa-
valda sem aftur veldur því að
stofninn fær svigrúm til að taka
við sér á ný. Það er kannski á
þessum tímapunkti sem skotveið-
ar geta haft þau áhrif að stofninn
fær ekki nægilegt svigrúm til að
nýta sér tækifærið sem hefur
myndast til stækkunar. Vaxtar-
geta rjúpnastofnsins er gríðarleg,
fuglinn verður kynþroska eins árs
og í sveiflunum á árum áður var
um 50% stækkun á einu ári. Núna
erum við að sjá aðeins 20% aukn-
ingu þótt glugginn til stækkunar
sé jafnstór og áður.“
– Hefurðu séð teikn á lofti sem
benda til að rjúpnastofninn fari
að rétta við?
„Einu merki aukningar á milli
áranna 2001 og 2002 voru á Norð-
austurlandi, nánar tiltekið í Þist-
ilfirði og á Melrakkasléttu.“
– Hvað með kenningar um að
minnkandi hafís, sem dragi úr
flugi rjúpna milli Íslands og
Grænlands, friðun refa á Vest-
fjörðum og stóraukin skógrækt
hafi áhrif á viðkomu rjúpunnar og
skekki bæði veiðitölur og tíu ára
innlendu sveifluna?
„Grænlenskar rjúpur koma
sannanlega til Íslands en það er
ekkert sem bendir til þess að
þetta sé í stórum stíl. Varðandi
skógræktina, hef ég ákveðnar
skoðanir, en ég tel varla við hæfi
núna við upphaf jólahelgarinnar
að ergja geð alþýðu sem og vina
minna hjá skógræktinni með því
að viðra þær hér á þessum vett-
vangi. Hvað refinn
varðar þá eru þessar
breytingar á rjúpn-
astofninum að byrja
eftir stóra toppinn
1958. Á þeim tíma var
refastofninn í sögulegu lágmarki
og byrjaði ekki að klifra upp aftur
fyrr en eftir 1980 og seinni árin
hefur verið mikið af ref. Ég er
ekki að segja að refurinn sé ekki
áhrifavaldur í þessu sambandi og
það er enginn einn þáttur sem
veldur þessum breytingum. Hins
vegar er auðvelt að finna blóra-
böggul í refnum þegar betra væri
að hver og einn liti í eigin barm.“
Ólafur K. Nielsen
Ólafur Karl Nielsen er fæddur
í Reykjavík 21. nóvember 1954.
Stúdent frá Verslunarskóla Ís-
lands 1975 og BS í líffræði við
Háskóla Íslands 1978. Doktor í
vistfræði frá Cornell-háskóla í
New York árið 1986. Var
starfsmaður við Háskóla Íslands
á árunum 1986–92, Veiði-
stjóraembættið 1993 og
Náttúrufræðistofnun frá árinu
1994. Ólafur hefur um árabil ver-
ið einn helsti vísindamaður Ís-
lands á sviði rjúpnarannsókna.
Hann á þrjú börn, Ólaf, Sólveigu
og Maríu.
Topparnir á ár-
um áður voru
miklu hærri
Í AÐEINS örfáum fyrirtækjum þar
sem eiturefni eru notuð reyndust
starfsmenn hafa tilskilin leyfi til
notkunar efnanna. Þetta kemur
fram í könnun sem eiturefnasvið
Hollustuverndar gerði síðastliðið
sumar. Reyndust allar verslanir
sem selja eiturefni selja vöru sína til
leyfislausra einstaklinga, sem er
brot á söluleyfi. Umsvifamestu selj-
endurnir reyndust hafa leyfi til sölu
eiturefnanna og voru varnaðar-
merkingar almennt í lagi hjá þeim
sem höfðu söluleyfi en yfirleitt ekki
hjá öðrum.
Sala og notkun eiturefna í fyr-
irtækjum var athuguð í könnuninni
sem og hvort seljendur eiturefna
hefðu tilskilin leyfi til að selja og
flytja inn eiturefni. Þá var kannað
hvort notendur hefðu sérstök leyfi
til að kaupa og nota eiturefni en
samkvæmt lögum eru viðskipti með
eiturefni og notkun þeirra leyfis-
skyld. Segir í fréttatilkynningu að
Hollustuvernd hafi ákveðið að
kanna þetta þar sem handhöfum
leyfa hafi fækkað mikið á undan-
förnum árum en það sama eigi ekki
við um notkunina.
Sala og
notkun eit-
urs reyndust
í ólestri
SNJÓRUÐNINGUR á gangstígum
hefur ekki verið óalgeng sjón í
Reykjavík á þessum tíma árs en
nú bregður svo við að enginn er
snjórinn og aðstæður allar reynd-
ar eins og þær bestar gerast að
sumarlagi. Það hentar hellulagn-
ingarmönnum ágætlega og hafa
þeir náð að sinna verki sínu við
Fríkirkjuveg án þess að hafa
áhyggjur af snjókomu eða snjó-
ruðningstækjum.
Morgunblaðið/Jim Smart
Hellulagning við
Fríkirkjuveg
Mannabreyt-
ingar í sam-
gönguráðuneyti
HALLDÓR S. Kristjánsson, stað-
gengill ráðuneytisstjóra samgöngu-
ráðuneytis, hefur verið settur ráðu-
neytisstjóri í samgönguráðuneytinu
frá og með 1. janúar nk. til allt að sex
mánaða en Jón Birgir Jónsson ráðu-
neytisstjóri hefur fengið leyfi frá
störfum til sama tíma. Ragnhildur
Hjaltadóttir skrifstofustjóri mun á
sama tímabili gegna stöðu staðgeng-
ils ráðuneytisstjóra.
Þá hefur Unnur Gunnarsdóttir
lögfræðingur verið sett skrifstofu-
stjóri á skrifstofu ráðherra og ferða-
mála og Ólafur Hilmar Sverrisson
viðskiptafræðingur verið settur
skrifstofustjóri á skrifstofu fjármála
og póstmála.
♦ ♦ ♦