Morgunblaðið - 21.12.2002, Síða 16
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
16 LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Fyrirtæki og stofnanir.
Sjáum um pökkun og útsendingar
- magnafsláttur.
Dalvegi 2, Kópavogi, Sími 564 2000
Við hliðina á vínbúðinni
Gjafaumbúðir
fyrir vínflöskur.
Öskjur, pokar,
bögglarósir og
borðar.
ERLENT
KENNARI í Donetsk í Úkraínu hell-
ir köldu vatni yfir einn af nem-
endum sínum í snjónum fyrir utan
leikfimisalinn í gær, félagar hans
bíða spenntir. Hitastigið var mínus
tíu gráður á Celcius. Margra alda
hefð er fyrir ísköldum böðum í land-
inu en þau eru talin bæta heilsuna.
Reuters
Meiriháttar! Brrr!
BANDARÍSKI þingmaðurinn
Trent Lott tilkynnti í gær að hann
myndi segja af sér sem leiðtogi
repúblikana í öldungadeildinni.
Ástæða afsagnarinnar er sú harða
gagnrýni sem Lott hefur sætt und-
anfarið vegna ummæla er hann lét
falla og túlkuð hafa verið sem kyn-
þáttahatur. Lott ætlar að sitja
áfram á þingi. George W. Bush for-
seti kvaðst í gær „virða“ afsögn
Lotts.
Í hófi, sem haldið var fyrir
nokkru til heiðurs öldungadeildar-
þingmanninum Strom Thurmond
100 ára, sagði Lott, að hann hefði
kosið Thurmond í forsetakosning-
unum 1948 og að ef aðrir hefðu far-
ið að hans dæmi, „hefðum við ekki
búið við öll þessi
vandræði síðan“.
Eitt helsta
stefnumál Thur-
monds á þessum
tíma var aðskiln-
aður kynþátt-
anna.
Lott hefur
margsinnis beð-
ist afsökunar á
ummælunum en það virðist litlu
hafa breytt fyrir hann.
Bush forseti átaldi Lott og um-
mæli hans harðlega fyrir nokkrum
dögum án þess að segja neitt um
hugsanlega afsögn hans en ljóst
var, að forsetinn ætlaði ekki að
koma Lott til hjálpar á neinn hátt.
Lott segir af sér
Trent Lott
FARÞEGUM í millilandaflugi Flug-
leiða fækkaði um 8,5% í nóvember,
miðað við sama tíma í fyrra. Þó fjölg-
aði farþegum til og frá Íslandi, eða
um 6,6%. Farþegum sem millilentu í
Keflavík á leið sinni yfir Atlantshafið
fækkaði um tæplega 30%.
Í fréttatilkynningu frá Flugleiðum
segir að líkt og á undanförnum mán-
uðum hafi samsetning farþegahóps-
ins verið hagkvæmari en á síðasta
ári. Eitt af meginmarkmiðum í
rekstri félagsins á þessu ári sé að
draga úr hlutfalli farþega sem séu á
leið yfir hafið en auka hlutfall þeirra
sem ferðist til og frá Íslandi.
„Í nóvember voru farþegar á leið-
um til og frá Íslandi 68% af heild-
arfjölda farþega. Í nóvember í fyrra
var þetta hlutfall 59%. Fyrstu ellefu
mánuði ársins voru farþegar á leið-
um til og frá landinu 61% en á sama
tímabili í fyrra var þetta hlutfall
52%.
Farþegum til og
frá Íslandi fjölgaði
Farþegum sem áttu erindi til Ís-
lands eða frá Íslandi fjölgaði um
6,6% í nóvember, en þeim sem fljúga
yfir Norður-Atlantshafið um Ísland í
vélum Flugleiða fækkaði um 29,8%.
Farþegum í millilandaflugi Flug-
leiða fækkaði í heild um 8,5% í nóv-
ember í samanburði við sama mánuð
á síðasta ári. Þeir voru 65.833 nú en
voru 71.946 í nóvember 2001. Far-
þegum á almennu farrými fækkaði
um 10,1% en á viðskiptafarrými
fjölgaði farþegum um 9,9%.
Í nóvember minnkaði sætafram-
boð Flugleiða um 7,6% og salan um
11,8%, sem leiddi til þess að sætanýt-
ing var í mánuðinum 2,8 prósentu-
stigum lakari en í nóvember 2001.
Hún var 58,5% í nóvember í ár en
61,4% á síðasta ári.
Farþegum í innanlandsflugi Flug-
félags Íslands, dótturfyrirtækis
Flugleiða, fjölgaði í nóvember um
15,4%, úr 19.144 farþegum í fyrra í
21.886 í ár, og sætanýting félagsins
jókst um 3,3 prósentustig.
Flugleiðir drógu framboð í heild
saman um 15,3% á fyrstu ellefu mán-
uðum 2002 en farþegum til og frá Ís-
landi hefur fjölgað um 2,1%. Fækk-
unin hefur öll orðið meðal farþega á
leiðum yfir Norður-Atlantshafið með
viðkomu á Íslandi eða um 27,9%. Í
heild fækkaði farþegum í millilanda-
flugi Flugleiða á fyrstu ellefu mán-
uðum ársins úr rúmlega 1,288 millj-
ónum í fyrra í tæplega 1,132
milljónir í ár eða um 12,2%.
Sætanýting batnar aðeins
Sætanýting hefur í heild batnað
um 0,6%. Sætanýting hjá Flugfélagi
Íslands hefur batnað um 5,9 pró-
sentustig fyrstu ellefu mánuði árs-
ins. Hjá Flugleiðum-Frakt voru
flutningar í nóvember 4,8% minni en
á fyrra ári og fyrstu ellefu mánuðina
er þessi samdráttur 13,1%,“ segir í
tilkynningu frá Flugleiðum.
++++,++,
+
+
++" ++++,++,
+ +"
-./0-..
-120.34
50 0
50 0
-660776
//80378
!"
#
$
%
&
+++,
+!+ +9
+++,
+!+ (
9
108110763
.-0//3
104360212
.20237
#'%
+++ +:
!
+++ *+:
!
(
203820187
/067.0467
(
204460--3
/01/-08-6
Farþegum
fækkaði
í nóvember
● BAUGUR Group hf. hefur selt Ís-
landsbanka hf. eigin hlutabréf að
nafnverði 7.783.314 krónur. Ís-
landsbanki afhenti Baugi í staðinn
hlutabréf í Lyfju hf. að nafnverði
796.552 krónur. Eigin bréf Baugs
Group eftir viðskiptin nema
8.930.568 krónum að nafnverði.
Lokaverð hlutabréfa í Baugi Group
í Kauphöll Íslands í gær var 10,70.
Miðað við það hafa viðskiptin numið
um 83 milljónum króna. Eigendur
Lyfju eru Baugur Group, Ingi Guð-
jónsson og Róbert Melax. Þeir Ingi og
Róbert stofnuðu fyrirtækið árið
1996. Sama ár stofnaði Jóhannes
Jónsson í Bónus fyrirtækið Lyfjabúðir
ehf. ásamt Guðmundi Reykjalín, við-
skiptafræðingi, og þremur lyfjafræð-
ingum. Lyfja og Lyfjabúðir samein-
uðust í desember 2000 undir
merkjum Lyfju. Eftir sameininguna
átti Baugur 55% hlutafjár í samein-
uðu félagi og þeir Ingi og Róbert 45%.
Baugur selur eigin
bréf og kaupir í Lyfju
● BAUGUR-ID hefur fest kaup á
2,95% hlut í bresku verslunarkeðj-
unni Somerfield, sem á og rekur mat-
vöruverslanir undir nöfnum Somer-
field og Kwik Save. Fyrir á Baugur-ID
um 19% hlut í bresku verslunarkeðj-
unni Big Food og um 8% hlut í bresku
verslunarkeðjunni House of Fraser. Í
tilkynningu frá Baugi-ID kemur fram
að kaupin séu í samræmi við þá
stefnumótun félagsins að fjárfesta í
arðbærum verslunarfyrirtækjum.
Somerfield er skráð í kauphöllinni í
London og er markaðverð þess ná-
lægt 50 milljörðum króna. Verðmæti
hlutar Baugs er samkvæmt því um
11⁄2 milljarður króna. Verslanir Som-
erfield eru 1.300 og hjá fyrirtækinu
starfa yfir 59 þúsund manns. Hagn-
aður fyrirtækisins á síðasta fjárhags-
ári nam 28,8 milljónum punda, sem
svarar til um 3,8 milljarða íslenskra
króna miðað við gengi gærdagsins.
Baugur kaupir 2,95% í
breskri verslunarkeðju
● FASTEIGNAFÉLAGIÐ Stoðir hf. hef-
ur keypt 3,4% af hlutafé Baugs Group
hf. fyrir um 900 milljónir króna. Stoðir
gerðu síðastliðinn mánudag tilboð í
7% hlutafjár í Baugi. Var tilboðið með
þeim hætti að hverjum hluthafa
bauðst að selja 7% af hlut sínum til
Stoða. Þar sem 48% hluthafa tóku til-
boðinu eignuðust Stoðir 3,4% hluta-
fjárins. Í tilkynningu sem Stoðir sendu
frá sér á mánudag kom fram að félag-
ið stefndi að því að eignast 7% hlut í
Baugi. Jónas Þorvaldsson fram-
kvæmdastjóri Stoða segir að engin
ákvörðun liggi fyrir um framhaldið,
þ.e. hvort Stoðir muni halda kaupum
áfram og þá með hvaða hætti.
Stoðir kaupa
3,4% í Baugi
● BÚNAÐARBANKI Íslands hefur
ákveðið að lækka vexti óverðtryggðra
útlána um 0,50 prósentustig. Lækk-
un innlánsvaxta verður á bilinu 0–0,5
prósentustig, mismunandi eftir ein-
stökum innlánsformum bankans.
Þessar breytingar á vaxtakjörum Bún-
aðarbankans eru í kjölfar ákvörðunar
bankastjórnar Seðlabankans nýverið
um lækkun stýrivaxta um 0,50 pró-
sentustig. Breytingarnar taka gildi í
dag.
Búnaðarbankinn hefur einnig
ákveðið að lækka verðtryggð útlána-
kjör um 0,3 prósentustig. Kjör verð-
tryggðra innlánsreikninga lækka með
sambærilegum hætti.
Sparisjóðirnir hafa ákveðið að
lækka vexti óverðtryggðra útlána í dag
um 0,50–0,60 prósentustig. Lækkun
óverðtryggðra innlánsvaxta verður á
bilinu 0–0,50 prósentustig, mismun-
andi eftir innlánsformum. Einnig hafa
Sparisjóðirnir ákveðið að lækka vexti
verðtryggðra útlána um 0,05 pró-
sentustig. Vextir verðtryggðra innlána
lækka samsvarandi. Vextir lífeyr-
issparnaðarreiknings Sparisjóðsins,
reglubundinna áskriftarreikninga og
orlofsreikninga verða óbreyttir.
Búnaðarbanki
og sparisjóðir
lækka vexti
HELSTU verðbréfafyrirtæki í
Bandaríkjunum hafa samþykkt
að greiða nær milljarð dollara, um
80 milljarða króna, í sekt til að
binda enda á rannsókn á því hvort
þau hafi ráðlagt fjárfestum að
kaupa varasöm bréf og hyglað
sumum viðskiptamönnum með
óeðlilegum hætti, að sögn dag-
blaðsins The New York Times í
gær. Verðbréfafyrirtækin eru
sögð hafa gætt hagsmuna stórfyr-
irtækja fremur en almennra fjár-
festa.
Viðræður hafa staðið um þessi
mál í fimm mánuði milli fyrirtækj-
anna, en meðal þeirra eru Morgan
Stanley og Goldman Sachs, og
fjármálaeftirlitsins bandaríska.
Er tilefnið ekki síst verðhrun
bréfa í mörgum stórfyrirtækjum
undanfarin ár, fjármálahneyksli
og stór gjaldþrot.
Hluta sektarfjárins verður var-
ið til þess næstu fimm árin að
kaupa niðurstöður rannsókna
óháðra verðbréfasérfræðinga og
verður upplýsingunum síðan
dreift til fjárfesta. Einnig er
markmiðið að vernda sérfræðinga
í greiningu hlutabréfa fyrir þrýst-
ingi ráðamanna í verðbréfafyrir-
tækjum. Þeir eru stundum sagðir
þvinga greiningardeildir sínar til
að fegra um of sum bréf til að
þóknast aðilum sem endurgjalda
greiðann með því að kaupa þjón-
ustu hjá fjárfestingalánadeild
verðbréfafyrirtækisins í staðinn,
að sögn fréttavefjar BBC.
Sekt vegna
vondra ráða
til fjárfesta