Morgunblaðið - 21.12.2002, Page 18
ERLENT
18 LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
TONY Blair, forsætisráðherra Bretlands, færði
breskum hermönnum þau skilaboð í gær að
þeir þyrftu að vera viðbúnir stríði í Írak ef
Saddam Hussein Íraksforseti yrði ekki við
kröfu Sameinuðu þjóðanna um að afvopnast.
Breska dagblaðið The Times sagði að Bretar
myndu óska eftir því að öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna heimilaði hernað í Írak með nýrri
ályktun í lok janúar ef vopnaeftirlit samtak-
anna leiddi í ljós að Írakar hefðu gerst brotleg-
ir við síðustu ályktun öryggisráðsins. Hans
Blix, formaður vopnaeftirlitsnefndar SÞ, sagði
að Bandaríkjamenn og Bretar hefðu ekki enn
veitt nefndinni nægar upplýsingar um þá staði
þar sem þeir teldu að gereyðingarvopn Íraka
væru falin.
„Mikilvægast er núna að hefja nauðsynlegan
undirbúning og byggja upp hernaðarmátt á
svæðinu,“ sagði Blair í útvarpi breska hersins.
„Sem stendur vitum við ekki hvort eftirlits-
mennirnir afhjúpi brotin eða ekki,“ bætti hann
við og skírskotaði til yfirlýsinga Breta og
Bandaríkjamanna í fyrradag um að Írakar
hefðu gerst sekir um „skýlaust brot“ á afvopn-
unarskilmálum öryggisráðsins.
Blair sagði að Írakar myndu ekki verða við
kröfum öryggisráðsins nema það heimilaði
hernað. „Stundum er besta leiðin til að komast
hjá stríði að búa sig undir stríð ef það er nauð-
synlegt.“
Telja að öryggisráðið
heimili hernað
The Times sagði að breska stjórnin vildi að
öryggisráðið samþykkti nýja ályktun í lok jan-
úar og heimilaði hernaðaraðgerðir til að af-
vopna Íraka. Stjórnin væri vongóð um að sam-
staða næðist um ályktunina og Banda-
ríkjastjórn hefði fallist á þessi áform svo fremi
sem hún teldi að ályktunin yrði samþykkt.
Heimildarmenn The Times sögðu að kín-
verskir og rússneskir embættismenn hefðu
sagt í einkasamtölum að þeir myndu styðja
ályktunina. Frakkar, sem eiga einnig fastafull-
trúa í öryggisráðinu, hafa alltaf krafist ann-
arrar ályktunar áður en látið yrði til skarar
skríða gegn Írökum.
Búist er við að George W. Bush Bandaríkja-
forseti tilkynni að óskað verði eftir heimild til
hernaðar í Írak þegar hann flytur stefnuræðu
sína 28. janúar. Daginn áður á Blix að afhenda
öryggisráðinu ýtarlega skýrslu um vopnaeft-
irlitið í Írak.
Blair sagði í viðtali við breska blaðið The
Guardian að aðildarríki öryggisráðsins myndu
meta hversu alvarleg brot Íraka væru en ekki
vopnaeftirlitsnefndin sem myndi aðeins skýra
frá staðreyndum málsins.
The Daily Telegraph sagði að breska varn-
armálaráðuneytið hefði þegar leigt þrjú skip til
að flytja hergögn og hygðist leigja fjögur skip
til viðbótar frá 15. janúar. Að sögn blaðsins er
franska varnarmálaráðuneytið einnig að búa
sig undir að leigja skip til hergagnaflutninga og
bendir það til þess franska stjórnin sé líkleg til
að styðja hernað gegn stjórn Saddams.
Jean-Pierre Raffarin, forsætisráðherra
Frakklands, sagði þó í gær að öryggisráðið ætti
að gera allt sem það gæti til að komast hjá
stríði í Írak og líta ætti á hernað sem neyð-
arúrræði.
The Washington Post hafði eftir embætt-
ismönnum í Pentagon að allt að 50.000 banda-
rískir hermenn kynnu að verða sendir á Persa-
flóasvæðið í byrjun janúar. Fyrir eru þar um
50.000 bandarískir hermenn.
Embættismennirnir sögðu að Bandaríkja-
menn hefðu flutt þangað hergögn í um það bil
mánuð svo að lítið bæri á. Þeir teldu að Bush
gæti hafið hernað í Írak í lok janúar eða byrjun
febrúar.
Timothy Garden, varnarmálasérfræðingur
við Konunglegu alþjóðamálastofnunina í Lond-
on, sagði hins vegar að ekki væri líklegt að
stríð hæfist í Írak fyrr en í lok febrúar þar sem
það tæki Breta og Bandaríkjamenn margar
vikur að flytja nægan herafla á svæðið.
Vonast eftir leyniþjónustugögnum
Hans Blix sagði í viðtali við BBC að eftirlits-
nefndin hefði ekki enn fengið nægar upplýs-
ingar frá Bandaríkjamönnum og Bretum um
vopnaeign Íraka. „Við höfum fengið mikið af
samantektum um hvaða vopn þeir telji að Írak-
ar eigi, en við þurfum upplýsingar um staðina
þar sem þau eru geymd.“
Þegar Blix var spurður hvort nefndin hefði
fengið gögn frá leyniþjónustum Bandaríkjanna
og Bretlands svaraði hann: „Ekki mjög mörg,
enn sem komið er. Ég vona að við fáum þau nú
þegar starfsemi okkar er komin á skrið. Þeir
geta hlerað símtöl, hafa njósnara, gervihnetti
og fleira. Þeir búa því yfir upplýsingum sem við
höfum ekki.“
Blix sagði á fundi öryggisráðsins í fyrradag
að í 12.000 síðna skýrslu Íraka um vopnaeign
þeirra væri lítið sem styddi fullyrðingar þeirra
um að þeir hefðu horfið frá kjarnorkuáætlun
sinni og eytt efna- og sýklavopnum.
Blair segir hermönnum
að vera viðbúnir stríði
Bretar hyggjast óska eft-
ir heimild öryggisráðs SÞ
til hernaðar í lok janúar
Reuters
Íraskir vegfarendur ganga framhjá stórri mynd
af Saddam Hussein forseta eftir að hafa sótt
bænastund í mosku í Bagdad í gær.
London. AFP, AP.
INDVERJAR eru komnir í jólaskapið og varning-
urinn flæðir út af bekkjum og borðum á mörkuðum
og í verslunum. Í bæjum og borgum lífga skreyting-
arnar upp á og ekki vantar kappklædda jólasvein-
ana. Kemur þetta jólahald sumum dálítið spánskt
fyrir sjónir því að af rúmlega milljarði landsmanna
eru aðeins 2,4% kristin. Á Norður-Indlandi er jóla-
dagur kallaður „Bada Din“ eða „Stóri dagur“.
AP
Indverjar komnir í jólaskap
DÓMARI í New York í
Bandaríkjunum varð á
fimmtudag við beiðni sak-
sóknara um að fella úr gildi
dóma yfir fimm svörtum
mönnum sem sakfelldir voru
fyrir að hafa nauðgað konu og
barið til óbóta í Central Park
árið 1989. Er þetta gert á
grundvelli þess að önnur
játning liggur nú fyrir í mál-
inu og hefur rannsókn á
DNA-erfðaefni í sýnum sem
fundust á vettvangi glæpsins
staðfest að þar er hinn eig-
inlegi sökudólgur á ferðinni.
Mennirnir fimm, sem voru
táningar er þeir voru hneppt-
ir í fangelsi, hafa allir afplán-
að dóma sem voru á bilinu 5–
13 ár.
Annar maður sekur
Dómarinn sagði að senni-
legt hlyti að teljast að ef játn-
ing Matias Reyes, sem situr
nú í fangelsi vegna nauðgana
og morðs, hefði legið fyrir,
sem og niðurstaða DNA-
rannsóknarinnar, hefðu fimm-
menningarnir aldrei verið
sakfelldir. Því myndi hann
verða við beiðni saksóknara
og fyrirskipa ný réttarhöld í
málinu.
Fjórir af mönnunum fimm
játuðu á sínum tíma að hafa
nauðgað ungri konu, sem var
á ferð um Central Park, og
barið hana til óbóta. Seinna
drógu þeir játningu sína hins
vegar til baka og verjendur
þeirra segja lögregluna hafa
þvingað þá til að játa. Saka
þeir lögregluna í New York
jafnframt um að hafa beint
sérstaklega sjónum sínum að
fimmmenningunum sökum
hörundslitar þeirra.
Gamlir
dómar
ógiltir
New York. AFP.
CARLA Del Ponte, aðalsóknari við
stríðsglæpadómstól Sameinuðu
þjóðanna í Hollandi, krafðist þess
af stjórnvöldum í
Júgóslavíu í gær
að þau framseldu
Milan Milutino-
vic um leið og
fimm ára kjör-
tímabili hans
sem forseti Serb-
íu lýkur eftir
tvær vikur. Mil-
utinovic hefur
verið ákærður
fyrir stríðsglæpi vegna aðgerða
serbneskra hersveita í Kosovo
1998–1999.
Del Ponte sagði júgóslavnesk
stjórnvöld engan veginn hafa sýnt
stríðsglæpadómstólnum þann sam-
starfsvilja sem vænst væri, en farið
hefur verið fram á að yfirvöld í
Belgrað framselji ákærða glæpa-
menn og láti af hendi gögn, sem
kynnu að koma að notum í rétt-
arhöldum yfir mönnum eins og
Slobodan Milosevic, fyrrverandi
forseta Júgóslavíu.
Stjórnvöld í Júgóslavíu hafa sagt
að Milutinovic njóti sem forseti
Serbíu, annars af lýðveldunum sem
saman mynda Júgóslavíu, friðhelgi.
Sagði Zoran Zivkovic, innanríkis-
ráðherra Júgóslavíu, í gær að hann
tryði því að Milutinovic myndi gefa
sig fram við dómstólinn er hann
léti af embætti.
Krefst
framsals
Milutinovic
Haag. AP.
Milan Milutinovic
DÓMARI í New York í
Bandaríkjunum hefur dæmt
mann, sem fleygði hundi unn-
ustu sinnar út af 23. hæð í húsi
þar í borg, í tólf ára fangelsi
fyrir grimmd gegn dýrum og
ýmislegt annað, sem tengdist
ofbeldi hans gegn konunni.
John Jefferson, sem er 43
ára, hafði lýst sig sekan vegna
ákæra um rán, innbrot og of-
beldi gegn dýrum. Kom fram í
dómsorðinu að tvö af tólf ár-
unum, sem Jefferson fær að
dúsa í fangelsi, tengist síðast-
nefndu ákærunni. „Ég hef allt-
af átt gæludýr,“ sagði dóm-
arinn, James Yates. „Ég varð
alveg eins hneykslaður og hver
annar þegar ég las um þetta
afbrot.“
Dómari úrskurðaði enn-
fremur að Jefferson mætti
ekki koma nálægt fyrrverandi
unnustu sinni, Eugeniu Miller,
næstu 17 árin.
Fleygt út af 23. hæð
Jefferson fleygði 16 ára
gömlum hundi Miller út af
svölunum á 23. hæð eftir rifr-
ildi þeirra 26. maí sl. Hund-
urinn lenti á gangstéttinni
fyrir neðan og drapst sam-
stundis. Jefferson hótaði Mill-
er einnig með hnífi og neitaði
lengi vel að láta hana lausa.
Jefferson hafði brotist inn í
íbúðina en samband þeirra
Miller var um það bil að
flosna upp.
Hlaut tólf
ár fyrir
hundsdráp
New York. AP.