Morgunblaðið - 21.12.2002, Blaðsíða 31
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2002 31
Hverfisgötu 6, Reykjavík, sími 562 2862
Gleðileg jól
Galakjólar
Laugavegi 53
Mörkinni 3, sími 588 0640
Glæsilegar
jólagjafir
Skarphéðinn Pétursson, einn eigenda loðdýrabúsins Dýrholts
Ekki tilbúinn að gefast upp
Morgunblaðið/Kristján
Skarphéðinn Pétursson og Zophanías Jónmundsson, tveir af eigendum minkabúsins í Dýrholti, við brunarústirnar.
„ÞAÐ ER virkilega erfitt að sjá
þetta fara svona, maður hefur lagt
sig allan fram í ræktuninni og
þetta voru góð dýr,“ sagði Skarp-
héðinn Pétursson einn eigenda loð-
dýrabúsins Dýrholts í Svarfaðardal
en tæplega 900 minkar drápust
þar í eldsvoða snemma á fimmtu-
dagsmorgun.
Húsið samanstóð af tveimur
skálum með tengibyggingu á milli,
en eldurinn kom upp þar. Tengi-
byggingin brann til grunna og tæki
sem þar voru inni gjöreyðilögðust.
Tæplega 900 dýr sem voru í hús-
inu drápust, en Skarphéðinn fann
tvær læður á lífi í rústunum og var
hleri á búri þeirra opin, þannig að
svo virðist sem þær hafi sloppið út.
Í öðrum skálanum voru 480 dýr og
sluppu þau öll.
Skinnaverkun stóð yfir hjá Dýr-
holti og urðu 630 fullverkuð skinn
eldinum að bráð. Skarphéðinn
sagði það umtalsvert tjón, en gera
megi ráð fyrir að um 1,5 milljónir
króna hefðu fengist fyrir skinnin á
markaði. Verið er að skoða hvort
unnt verði að nýta skinn af 4–500
dýrum sem köfnuðu, „það er að
minnsta kosti tilraunarinnar virði“,
sagði Skarphéðinn og bjóst við að
skinnin yrðu unnin á Sauðárkróki.
Um 4.000 skinn voru í gámi utan
við húsið og verður þeim einnig
komið í verkun.
Eldsins varð vart skömmu eftir
kl. fimm að morgni fimmtudags og
sagðist Skarphéðinn hafa vaknað
um það leyti en hann fann greini-
lega reykjarlykt. Hann býr að
Hrísum, örfáum kílómetrum norð-
an við Dýrholt. „Ég gekk um allt
húsið og leitaði og þá kannaði ég
hvort allt væri í lagi með frysti-
kistuna, en það var svo hringt í
mig skömmu síðar og mér sögð
tíðindin,“ sagði Skarphéðinn. Ná-
granni varð eldsins fyrst vart, en
hann býr á móti Dýrholti og sá
eldtungur stíga upp frá húsinu er
honum varð litið út um gluggann.
Slökkvistarf gekk erfiðlega til að
byrja með vegna vatnsskorts, en
tankbílar voru sendir á vettvang
frá Ólafsfirði og Akureyri. Skarp-
héðinn sagði að engum björgunar-
aðgerðum hefði verið viðkomið.
„Ég kom fyrstur á staðinn um 20
mínútur yfir 5 og hélt ég gæti
kannski bjargað tækjunum út, en
það var aldrei möguleiki,“ sagði
Skarphéðinn. Öll gögn varðandi
ræktunina voru í tölvu sem brann
og sagði Skarphéðinn það ómet-
anlegt tjón, því mikið rækt-
unarstarf hafi verið unnið á búinu
síðustu ár. Hann hóf loðdýrabú-
skap fyrst árið 1982, en hætti í
nokkur ár og byrjaði að nýju um
áramótin 1996 og 97.
„Maður er ekkert farinn að
hugsa um framhaldið, það er best
að sjá hvað kemur út úr matinu.
Ég er ekki tilbúinn að gefast upp,
ég er ekki þekktur fyrir það, en
það á eftir að koma í ljós hvort
maður ræður við að byggja þetta
upp að nýju. Það eru allir tilbúnir
að leggja manni lið, ég finn það,“
sagði Skarphéðinn.
HARÐUR árekstur varð á gatna-
mótum Þingvallastrætis og Mýr-
arvegar skömmu eftir kl. 14 í
gærdag. Bifreið var ekið vestur
Þingvallastræti og inn á gatna-
mótin gegn rauðu ljósi að sögn
varðstjóra lögreglunnar á Ak-
ureyri. Lenti bifreiðin á öðrum
bíl og kastaðist svo á umferðar-
vita. Engin slys urðu á fólki. Bíl-
arnir eru mikið skemmdir og
voru fjarlægðir af vettvangi með
kranabíl.
Ekið var á hross um kl. 8 í
gærmorgun á þjóðveginum ofan
við Svalbarðsstönd. Hrossið var
aflífað og bíllinn skemmdist mik-
ið.
Morgunblaðið/Rúnar Antonsson
Harður árekstur
FORMENN sjö stéttarfélaga á
Eyjafjarðarsvæðinu hafa sent bæjar-
stjóranum á Akureyri bréf þar sem
félögin skora á bæjarstjórn Akureyr-
ar að skjóta sér ekki undan þeirri
ábyrgð sem á henni hvílir að taka þátt
í að tryggja lága verðbólgu og stöðugt
efnahagslíf á Íslandi.
Í bréfinu kemur einnig fram að
heyrst hafi af boðuðum hækkunum
hjá ríki og fyrirtækjum, hækkanir
sem séu langt umfram hækkun
neysluvísitölu. Í þennan hóp hafi
sveitarfélög nú verið að skipa sér. Nái
þessar hækkanir fram að ganga er
hætta á að sú mikla vinna sem lögð
var í að ná niður verðbólgunni fyrr á
árinu, sé unnin fyrir gíg. Akureyrar-
bær boðar hækkanir á ýmsum þjón-
ustugjöldum um allt að 8%, sem er
allverulega meira en t.d. neysluvísi-
tala hefur hækkað, segir einnig í bréf-
inu.
Formennirnir telja það líka alvar-
legt að þessar boðuðu hækkanir skuli
leggjast þyngst á foreldra barna í
leikskólum og grunnskólum. Þessi
hópur á hvað erfiðast uppdráttar og
því þar ekki um „breiðu bökin“ að
ræða. Í vaxandi atvinnuleysi er það
skylda sveitarfélaga að stilla hækk-
unum sínum í hóf, þannig að menn
geti staðið af sér tekjusamdráttinn
sem af því leiðir. Formennirnir von-
ast til þess að bæjarstjórn Akureyrar
vilji áfram vera í samvinnu við þá sem
vilja að verðbólgan sé sem minnst og
skattleggi ekki þegna sína meira en
almennar hækkanir gefa tilefni til.
Bæjar- og sveitarstjórnum á Eyja-
fjarðarsvæðinu var sent samskonar
erindi en undir það skrifa Björn Snæ-
björnsson, formaður Einingar-Iðju,
Hákon Hákonarson, formaður Fé-
lags málmiðnarmanna, Helgi Jóns-
son, formaður Rafvirkjafélags Norð-
urlands, Eggert Jónsson, formaður
Verkstjórafélags Akureyrar og ná-
grennis, Guðmundur Ómar Guð-
mundsson, formaður Félags bygg-
ingamanna Eyjafirði, Páll H.
Jónsson, formaður Félags verslunar-
og skrifstofufólks Akureyri, og Kon-
ráð Alfreðsson, formaður Sjómanna-
félags Eyjafjarðar.
Hækkun þjónustu-
gjalda á Akureyri
Boðaðar
hækkanir
leggjast
þyngst á
barnafólk
MARKÚSARGUÐSPJALL
er komið út á tveimur geisla-
diskum í flutningi Aðalsteins
Bergdal leikara.
Aðalsteinn flutti Markús-
arguðspjall á leiksviði árið
1998 í tilefni af 30 ára leikaf-
mæli sínu og hefur síðan bor-
ist fjöldi fyrirspurna um
hvort ekki væri við hæfi að
gefa það út á geisladiski. „Ég
hugleiddi málið og ákvað svo
að láta slag standa,“ segir
Aðalsteinn, sem telur að þessi
útgáfa geti orðið upphafið að
því að gefa alla Biblíuna út á
hljóðbók. Hann segir að disk-
urinn gæti reynst ungmenn-
um t.d. í framhaldsskólum
mesta þarfaþing, því oft
skorti þau þekkingu á guð-
spjöllunum, hvaðan hugtök
sem þau vinni með í bók-
menntum og tilvitnanir í þau
komi. Þá sé ekki úr vegi að
byrja fyrr, leyfa börnum allt
niður í leikskólaaldur að
hlusta á guðspjallið. „Ég
hugsa að mynd barnanna af
lífinu og tilverunni myndi
breytast til hins betra, sið-
ferði hins vestræna heims er
byggt upp af guðspjöllunum,
þó að við höfum hrokkið svo-
lítið af leið varðandi suma
hluti,“ segir Aðalsteinn.
Hann bendir einnig á að sí-
fellt fleiri eigi í erfiðleikum
með að lesa og því ætti útgáfa
af þessu tagi að koma sér vel.
Engu skipti heldur hvort fólk
sé trúað eður ei, allir ættu að
geta hlustað og notið.
Undir leiklestrinum er leik-
in hugljúf tónlist Friðriks
Karlssonar gítarleikara. Guð-
spjallið tekur tvo tíma í flutn-
ingi. Það verður til sölu eink-
um í blómaverslunum, m.a.
Blómabúð Akureyrar í miðbæ
og Glerártorgi og þá má nálg-
ast það með því að skrifa í
netfangið skralli@mi.is eða
hafa samband við Aðalstein.
Markúsar-
guðspjall
á geisla-
diskum