Morgunblaðið - 21.12.2002, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 21.12.2002, Qupperneq 35
LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2002 35 LISTIR ÁRSHÁTÍÐ Grunnskóla Ólafsvíkur fór fyrir nokkru í Félagsheimilinu á Klifi. Setið var í hverju sæti og þurftu jafnvel einhverjir að standa. Að venju var hver bekkur með sitt atriði og mátti varla á milli sjá hvaða atriði var frumlegast, þarna mátti sjá frumsamda leikþætti, tón- listaratriði ýmiss konar, frum- samda dansa og línudans auk dans- spora sem fengin voru að láni frá söngflokk sem kennir sig við tóm- atsósu. Greinilegt er að nemendur og kennarar hafa lagt mikla vinnu í undirbúning árshátíðarinnar og gaman að sjá hve börnin voru óhrædd að koma fram fyrir framan allan þennan fjölda áheyrenda, ef til vill steig þarna á svið eitthvað af kvikmyndastjörnum framtíð- arinnar. Síðastur á svið var „11. bekkur“ en það eru kennarar og starfsfólk skólans, þau fluttu lag með frum- sömdum texta sem fjallaði um hvaða hlutverki hver og einn gegn- ir í skólanum. Morgunblaðið/AlfonsNemendur dönsuðu hinn vinsæla línudans á árshátíð grunnskólans. Árshátíð grunnskólans Ólafsvík ÞAÐ er komin hefð hjá stéttarfélög- unum í Þingeyjarsýslum að bjóða gestum og gangandi í jólakaffi einn laugardag á aðventunni. Það gerðu þau á dögunum og er það vinsælt meðal Húsvíkinga sem og annara Þingeyinga að þiggja þetta boð. Um 400 manns þáðu boðið að þessu sinni og komu í sal stéttar- félaganna á Húsavík. Þar gerðu gestir stærðar tertu frá Heimabak- aríi góð skil með kaffinu, ásamt reyndar fleira góðgæti sem boðið var upp á. Þá var í gangi tveggja tíma tónlistardagskrá þar sem fram komu m.a. nemendur úr Tónlistarskóla Húsavíkur og Samkór Húsavíkur tók lagið. Þeir rauðklæddu þ.e.a.s. jólasveinarnir áttu leið hjá, litu inn og tóku m.a. lagið með börnunum. Starfsfólk á skrifstofu stéttar- félaganna var að vonum ánægt með daginn og sérstaklega þann fjölda gesta sem sá sér fært að þiggja boðið og eins alla þá sem spiluðu og eða sungu fyrir gestina. Jólakaffi stéttarfélag- anna vel sótt Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Meðal þeirra nemenda sem spiluðu voru þessi fjögur sem komu fram ásamt kennara sínum, Margréti Sverrisdóttur. Húsavík AUSTUR-Hérað hefur gert viðamik- inn samning við Skyggni hf. um end- urskoðun upplýsingatæknimála sveit- arfélagsins. Er þar átt við hýsingu og rekstur tölvukerfa og leigu á miðlæg- um búnaði fyrir Austur-Hérað og stofnanir þar. Þá verður allur tölvu- og hugbúnaður sömuleiðis endurnýj- aður. Efnt var til kynningarfundar um samninginn og kom þar m.a. fram að öryggi mun aukast mjög í gagna- vinnslu og meiri hagkvæmni nást í rekstri tölvu- og hugbúnaðar. Betur verður hægt að mæta auknum kröf- um um reikningsskil og nútímalega upplýsingaskyldu og skjalavistun verður markvissari, sem aftur leiðir af sér skilvirkari afgreiðslu mála og aukna þjónustu við íbúa sveitarfé- lagsins. Einnig mun þessi endurnýjun öll bæta mjög vinnuaðstöðu starfs- manna og bæjarfulltrúa sveitarfé- lagsins. Skyggnir ehf. verður í samstarfi við Tölvusmiðjuna ehf. á Egilsstöðum um þjónustu á tölvubúnaði sveitarfé- lagsins. Hýsing búnaðar verður í sér- stökum tölvusal Tölvusmiðjunnar og tengjast bæjarskrifstofa, allar skóla- stofnanir, félagsmiðstöð, íþróttamið- stöð, Vilhjálmsvöllur og áhaldahús sveitarfélagsins við hann. Þá felur samningurinn við Skyggni í sér int- ernetþjónustu, vistun á vefsvæði, flutning á tölvupósti og rekstur innra- netsbúnaðar. Sveitarfélagið mun svo í framhaldinu endurnýja tölvur sínar og jaðarbúnað og láta uppfæra m.a. netkerfi og allan stýribúnað. Kostnaður vegna samningsins við Skyggni fæst ekki gefinn upp. Austur-Hérað endurnýj- ar upplýsingatæknina Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Eiríkur Bj. Björgvinsson, bæjarstjóri Austur-Héraðs, og Svavar G. Svav- arsson, framkvæmdastjóri Skyggnis hf., kynna nýjan samning um endur- nýjun upplýsingatæknimála sveitarfélagsins. Egilsstaðir SLAGVERKSHÓPURINN Benda stendur fyrir áttundu og síðustu tónleikum 15:15 syrpunnar á Nýja sviði Borgarleikhússins kl. 22 í kvöld, undir yfirskriftinni „Næturtónleikar á vetrarsól- stöðum“. Flytjendur verða þeir Steef van Oosterhout, Pétur Grétarsson, Eggert Pálsson og Snorri Sigfús Birgisson ásamt gestum. Á efnisskrá eru þrjú tónverk: „Rain Tree“ fyrir þrjá slagverks- leikara og „Litany“ fyrir píanó eftir japanska tónskáldið Toru Takemitsu (1930–1996) og „Dream Sequence (Images II)“ eftir Bandaríkjamanninn George Grumb (1929). Aðgangur að tónleikunum verður ókeypis og segir Pétur Grétarsson Bendu-meðlimur að hugmyndin með tónleikunum sé að veita fólki nokkurs konar and- lega næringu í miðju skammdegi og jólastressi og stendur til að skapa miðnæturstemmningu á tónleikunum sem hefjast eftir að verslanir loka. Tónleikarnir eru jafnframt hluti af árstíð- arbundnum tónleikum sem Benda mun standa fyrir með sex mán- aða millibili. „Við höfum lengi gengið með það í maganum að flytja miðsumartónlist Georges Grumb og höfum áætlað slíka tónleika 21. júní. En það er líka til næturtónlist eftir Grumb og fannst okkur hún eiga betur við vetrarmánuðina. Þess vegna höldum við tónleikana seint um kvöld á stysta degi ársins. Þetta verður því eiginlega mjög langur upptaktur að tónleikunum sem við ætlum að vera með í sumar,“ segir Pétur. Verkið sem flutt verður eftir Grumb nefnist „Dream Seq- uence“ og leika þeir Sigurður Halldórsson og Zbigniew Dubik með Benduslagverksleikurum á selló og fiðlu. Í verkinu verður einnig leikið á kristalsglös. „Með verkinu eftir Grumb ætlum við að flytja verk eftir Japanann Toru Takemitsu en tónlist þessara tveggja tónskálda fer mjög vel saman. Takemitsu er eins og Grumb mikill snillingur í að fara með þögnina. Verkin hans passa líka mjög vel inn í grunn- hugmyndina, verkið „Rain Tree“ kallast skemmtilega á við veð- urfarið þessa dagana og titill síð- ara verkefnsins, „Dream Seq- uence“, lýsir e.t.v. þeim friðsæla anda sem verður á tónleikunum. Ef fólk er að upplifa eitthvað jólastress geta tónleikarnir orðið mjög gott tækifæri til þess að fá andlegt nudd og núllstilla sig dá- lítið fyrir jólin,“ segir Pétur. Næturtónleikar á vetr- arsólstöðum hefjast sem fyrr seg- ir kl. 22 í Borgarleikhúsinu í kvöld og er aðgangur ókeypis. Morgunblaðið/Sverrir Slagverkshópurinn Benda stendur ásamt gestum fyrir kyrrlátum nætur- tónleikum á Nýja sviði Borgarleikhússins í kvöld. Þeir hefjast kl. 22. Andlegt nudd í jólastressi miðju „FÓLK og fjöll“ – Óður til öræfa nefnist sólstöðuhátíð sem hópur listamanna stendur fyrir á Austurvelli í dag. Há- tíðin hefst kl. 17 og stendur fram eftir kvöldi. Fram koma rithöfundar, tónlistarmenn, fræðimenn, leikarar, ljós- myndarar, myndlistarmenn og fleiri sem leggja dagskránni lið. Listamenn sýna myndbönd og ljósmyndir af náttúruperl- um hálendisins, lýsa upp Aust- urvöll. Blíðfinnur kemur í heim- sókn, trúðar skemmta og „Grýla“ kynnir atriðin að sín- um hætti. Myndlistarmenn tjalda á elsta tjaldstæði borg- arinnar og myndbandasýning- ar verða í gluggum við Lauga- veginn frá Hlemmi niður á Austurvöll. Hópur listamanna flytur „óð til öræfanna“ 2 Jazz gítarar nefnist ný geisla- plata þar sem Jón Páll og Ólafur Gaukur leika ís- lensk og erlend lög sem margir kannast við, þar á meðal nokkur al- kunn þjóðlög s.s. Sofðu unga ástin mín, Hani, krummi, hundur, svín, Ó blessuð vertu sumarsól, Litrík og ljós- hærð, Krummi krunkar úti. Einnig eru á plötunni lögin Tondeleyó, Einskonar blús, greensleeves, Fly me to the Moon og Stardust. Ólafur Gaukur hefur starfað í ára- tugi sem tónlistarmaður. Hljómplötur þær sem hann hefur átt einhvern eða verulegan þátt í eru á annað hundrað. Hann hefur einnig fengist mikið við kennslu og rekur gítarskóla sem hef- ur starfað í um 30 ár í Reykjavík. Jón Páll hóf feril sinn sem jassleik- ari árið 1955. Starfaði við djass og dansmúsík fram til 1964 m.a. með KK sextettinum og eigin hljóm- sveitum. Hann starfaði sem hljóð- færaleikari og kennari í Svíþjóð og bjó um árabil í Los Angeles. Hann kom heim árið 2000 og starfar nú sem kennari og hljóðfæraleikari. Útgefandi er Tónaljóð en Edda sér um dreifingu. Upptökur fóru fram árið 2002. Útsetningar voru í höndum Ólafs Gauks en Gunnar Smári ann- aðist hljóðblöndun. Djass
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.