Morgunblaðið - 21.12.2002, Side 46
NEYTENDUR
46 LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
E
r ég stuðningsmaður
hryðjuverka? Þess-
arar spurningar
neyddist ég til að
spyrja sjálfan mig
eftir að hafa lesið grein eftir Pét-
ur Gunnarsson rithöfund í
Fréttablaðinu, en í greininni seg-
ir Pétur: „Kárahnjúkavirkjun er
hryðjuverk í náttúru Íslands.“
Ég hef alla tíð stutt Kára-
hnjúkavirkjun og hef talið að þeg-
ar á allt væri litið væri verið að
stíga framfaraskref með bygg-
ingu virkjunar og álvers á Aust-
urlandi. Getur verið að ég hafi að
óathuguðu máli gerst stuðnings-
maður hryðju-
verka. Eru
þeir sem
standa að
þessari fram-
kvæmd, þ.e.
Landsvirkjun
og ráðherrar í ríkisstjórn Íslands,
þá ekki hryðjuverkamenn?
Kárahnjúkavirkjun er ekki
fyrsta vatnsaflsvirkjunin sem
ráðgert hefur verið að byggja á
Íslandi og því má álykta sem svo
að þetta sé ekki fyrsta „hryðju-
verkið“ sem framið hafi verið í
náttúru Íslands. Var framið
hryðjuverk þegar Þórisvatn var
búið til? Er Blöndulón talandi
vitnisburður um hryðjuverk?
Íslendingar hafa vissulega gert
mistök við byggingu vatnsafls-
virkjana. Steingrímsstöð í Soginu
hafði óumdeilanlega slæm áhrif á
lífríki Þingvallavatns og fáum
blandast hugur um að virkjun í
Elliðaánum hefur haft neikvæð
áhrif á laxagengd í ánum. Mér
finnst þó allt of sterkt að tala um
hryðjuverk í því sambandi.
Andstæðingar stórra vatnsafls-
virkjana hafa bent á að miklu
skynsamlegra sé að byggja litlar
rennslisvirkjanir eða gufuafls-
virkjanir. Þær séu mun umhverf-
isvænni og skemmi umhverfið
minna. Þær rennslisvirkjanir sem
helst hafa verið í umræðunni hafa
þó engu að síður mætt mikilli
andstöðu. Hörð mótmæli hafa
komið fram við áformum um
byggingu Villinganesvirkjunar og
rennslisvirkjana í neðri hluta
Þjórsár. Mikil andstaða er einnig
við áform Rafmagnsveitu ríkisins
við að reisa gufuaflsvirkjun í
Grændal og raunar hafnaði
Skipulagsstofnun virkjuninni.
Það eru kannski ekki margir sem
átta sig á því að gufuaflsvirkjun-
um fylgir einn stór ókostur. Þeim
fylgir mikil mengun. Upp með
gufunni kemur gífurlegt magn af
gróðurhúsalofttegundum sem fer
út í andrúmsloftið.
Þetta er eitt af því sem ræður
afstöðu minni til Kárahnjúka-
virkjunar. Ég sé ekki að aðrir
virkjanakostir séu miklu betri þó
að ég viðurkenni að með Kára-
hnjúkavirkjun sé verið að vinna
tjón á náttúrunni. Það tjón felst
fyrst og fremst í því að verið er að
fara inn á tiltölulega ósnert
svæði.
Það má hins vegar spyrja hvort
við þurfum yfirleitt nokkuð á
þessari virkjun að halda. Þarf
nokkuð að byggja álver á Austur-
landi? Íslendingar eru rík þjóð og
ég efast ekki um að andstæðingar
álvers og virkjunar, sem flestir
búa á höfuðborgarsvæðinu, koma
til með að hafa það ágætt þó að ál-
verið verði ekki byggt.
Það er aftur á móti óumdeilt að
álverið kemur til með að hafa
gríðarlega mikla þýðingu fyrir
Austurland og ég hef alla tíð haft
mikla samúð með málstað Aust-
firðinga og hagsmunabaráttu
þeirra. Mestu skiptir þó í mínum
huga að með álverinu í Reyð-
arfirði og stækkun álversins á
Grundartanga aukast útflutn-
ingstekjur Íslendinga af vinnslu
áls úr 26 milljörðum í 75 milljarða
árið 2010. Þessi aukning er tals-
vert meiri en allar tekjur sem Ís-
lendingar hafa af ferðaþjónustu í
dag. Samt virðast sumir þeirrar
skoðunar að svæðið fyrir norðan
Vatnajökul geti skapað ferða-
þjónustunni meiri tekjur í fram-
tíðinni en álverið.
Það eru örugglega til þeir
menn sem telja að við getum vel
verið án þeirra peninga sem ál-
verið skapar. Árangur fyrirtækja
eins og OZ og deCODE hefur
hins vegar gert mig svartsýnan á
að við getum hafnað þessum
tekjum.
Sumir segja að það sé ekkert
vit að byggja Kárahnjúkavirkjun
því að milljarða tap verði af
henni. Að sjálfsögðu eigum við
ekki að byggja mannvirki sem
vitað er fyrirfram að skilar ekki
hagnaði. Það er erfitt fyrir mann
sem er einungis með stúdentspróf
í stærðfræði að mótmæla rökum
hámenntaðra manna sem halda
því fram að tap sé af virkjuninni.
Samt hefur mér alltaf fundist
ótrúlegt að stjórnendur Lands-
virkjunar, sem hafa vel menntaða
reikningsmenn í vinnu, fari út í að
byggja virkjun sem þeir vita að
skili tapi. Og jafnvel þó að þeir
séu svo ósvífnir að gera það, þá
hef ég alltaf treyst því að erlendir
bankamenn sem koma til með að
lána peninga til framkvæmda
muni stöðva þetta feigðarflan.
Bankarnir munu gera sína sjálf-
stæðu útreikninga áður en þeir
lána hundruð milljarða í þetta
verkefni. Ef þeir komast að þeirri
niðurstöðu að tuga milljarða tap
sé af verkefninu trúi ég ekki öðru
en að þeir muni neita að lána til
framkvæmda. Ef bankarnir telja
einhvern vafa leika á um arðsem-
ina og að áhætta af verkefninu sé
mikil munu þeir væntanlega gera
kröfu um hærri vexti og þar með
hlýtur það að draga úr líkum á að
af framkvæmdum verði.
Ég vil því leyfa mér að trúa því
að stjórnendur Landsvirkjunar
og ráðamenn þjóðarinnar fari
ekki út í það glapræði að byggja
virkjun sem þeir vita fyrirfram að
verður rekin með milljarða tapi.
Og ef þjóðin er svo ólánsöm að
eiga slíka forystumenn treysti ég
því að erlendir bankamenn hafi
vit fyrir þeim. Það er auk þess
útilokað að erlendir bankar láni fé
til framkvæmda beinlínis á þeirri
forsendu að þeir verði að láta
reyna á ábyrgð eigenda Lands-
virkjunar.
Vörn
„hryðju-
verkamanns“
„Kárahnjúkavirkjun er hryðjuverk
í náttúru Íslands.“ […] Var framið
hryðjuverk þegar Þórisvatn var
búið til? Er Blöndulón talandi vitn-
isburður um hryðjuverk?
VIÐHORF
Eftir Egil
Ólafsson
egol@mbl.is
Á ÞORLÁKSMESSU gæða marg-
ir landsmenn sér á kæstri skötu
og eflaust taka einhverjir for-
skot á sæluna nú um helgina.
Fisksölum ber saman um að
skötusalan hafi farið vel af stað
undanfarna daga og þeir eru
ekki frá því að með ári hverju
séu æ fleiri að komast upp á lag-
ið með skötubragðið.
Verðið er svipað og í fyrra, al-
gengt verð er 800 til 1.000 krón-
ur fyrir kæsta skötu og um 600
krónur fyrir kílóið af tindasköt-
unni. Í Bónusi hefur skötuverðið
lækkað frá því í fyrra, kostar
núna 599 krónur en var á 699
krónur.
Út á svalir, elskan
Það eru ekki allir hrifnir af
skötulyktinni og mörg dæmi eru
um að skötuunnendum sé skipað
að fara út á svalir með prím-
usinn eða út í garð og sjóða ljúf-
metið þar.
Enn aðrir fara á veitingahús
og láta matreiðslumeistarana sjá
um eldamennskuna þennan dag.
Þeir sem elda fiskinn heima
hafa ýmis ráð á takteinum til að
losna við lyktina. Þeir strá kan-
ildufti á eldavélarhelluna þegar
búið er að sjóða skötuna og
slökkva á hellunni, þeir sjóða
hangikjöt strax á eftir eða
kveikja á mörgum kertum með-
an soðningin stendur yfir. Enn
aðrir brenna greni eða væta klút
í ediki og leggja yfir skötupott-
inn þegar suðan kemur upp. Þá
hafa sumir fisksalar selt lykt-
areyðandi efni.
Kallar fram tár og svita
Helgi Helgason hjá fiskverslun
Hafliða Baldurssonar býst við að
þar á bæ selji þeir skötu í um
25.000 máltíðir. Skötusalan fór
vel af stað en Helgi segir að um
helgina verði salan örugglega
mest.
„Við erum að selja kæsta
tindabikkju og saltaða og kæsta
skötu.“ Hann segir að munurinn
á tindabikkju og skötu sé sá að
tindabikkjan sé smáskata en lítill
sem enginn bragðmunur sé á
þessum tegundum. Tindabikkjan
sé þó fíngerðari en sú stóra.
Hann segir að boðið sé upp á
miðlungskæsta og vel kæsta
skötu hjá fiskbúð Hafliða og
bætir við að velji fólk hina síð-
arnefndu þá nái hún fram tárum
og svita og losi fólk við kvef og
magakveisur.
Hann segir að íbúar á suðvest-
urhorni landsins vilji þó fremur
miðlungskæsta skötu. Vestfirð-
ingar eru sér kapítuli segir hann
því þeir sækjast eftir henni mjög
vel kæstri og kóróna máltíðina
með hnoðmör á meðan Reykvík-
ingar kjósa hamsatólg.
En svo eru þeir sem ekki
borða skötu og fara samt í boð á
Þorláksmessu þar sem hún er á
borðum. „Þessi boð hafa færst í
vöxt og þá býður fólk oft upp á
saltfisk með skötunni fyrir þá
sem ekki þora. En mér hefur
fundist skötuát á Þorláksmessu
færast í vöxt. Ég held að þeir
sem borða saltfisk í þessum boð-
um á Þorláksmessu taki kannski
einn bita af skötu og falla þar
með fyrir henni. Þó lyktin kunni
að þykja slæm er bragðið hreint
yndislegt.“ Helgi segir að lokum
að skatan sé best með nýsoðnum
kartöflum, rúgbrauði og smjöri.
Afgreiðslufólkið
kvartar aðeins
Bónus hóf sölu á kæstri skötu í
fyrra, enda framkvæmdastjór-
inn, Guðmundur Martreinsson,
skötumaður eins og hann orðar
það.
„Salan gekk mjög vel í fyrra
og í ár bauðst okkur kæst skata
á góðu verði. Við getum því
lækkað kílóverðið um hundrað
krónur í ár, seljum það á 599
krónur í stað 699 króna. Við er-
um á hinn bóginn ekki með
tindabikkju.“
Kvarta engir undan ilminum í
Bónusi þessa dagana?
„Ekki viðskiptavinirnir, en
einstaka starfsmaður hefur látið
í sér heyra.“
Saltfiskur fyrir þá
sem ekki þora
Ásgeir Baldursson hjá fiskbúð-
inni Vör segir viðskiptavini fisk-
búðarinnar sækja frekar í með-
alkæsta skötu en þó séu
Vestfirðingarnir alltaf á hött-
unum eftir vel kæstri skötu. Þeir
bjóða einnig þurrkaða kæsta
skötu og kæsta tindaskötu.
Hann er sjálfur Vestfirðingur
og kýs að hafa sína skötu vel
kæsta. „Margir sem eru með boð
á Þorláksmessu blanda þessu
saman, bjóða upp á allar teg-
undir svo gestirnir geti prófað
sig áfram. Með þessu er svo bor-
in fram hamsatólg og hnoðmör,
rúgbrauð með smjöri og nýjar
kartöflur.“
Skötustappan úr afgöngum
Þorkell Diego hjá fiskbúðinni
Vegamótum segir að fisksalar
leggi æ meiri áherslu á að bjóða
skötu með fjölbreyttum vinnslu-
aðferðum. Hjá honum stendur
viðskiptavinum til boða að fá
kæsta og þurrkaða skötu, kæsta
tindabikkju, kæsta og nætursalt-
aða skötu eða kæsta, saltaða og
útvatnaða skötu.
Og hvernig eru svo herleg-
heitin matreidd?
„Skatan er soðin í ósöltuðu
vatni uns hún er laus frá brjósk-
inu og venjulega tekur það
nokkrar mínútur en suðutíminn
veltur á þykkt bitanna.
Ef fólki líkar ekki hnoðmör þá
getur það haft með henni tólg og
einhverjir kjósa bráðið smjör.“
Kanntu að búa til skötu-
stöppu?
„Þá eru afgangarnir af skötu
stappaðir saman eða settir í
hrærivél með heitum hnoðmör.
Margir setja með í stöppuna
soðnar kartöflur og síðan er
stappan sett í jólakökukmót og
látin harðna. Stappan er svo
borðuð fram að áramótum, not-
uð sem álegg jafnvel eða borðuð
með laufabrauði.“
Ilmurinn úr eldhúsinu er svo lokkandi, er svo lokkandi
Æ fleiri eru að komast upp
á lagið með skötubragðið
Morgunblaðið/Golli
Þorkell Diego hjá fiskbúðinni Vegamótum býður upp á kæsta og þurrkaða
skötu, kæsta og nætursaltaða og kæsta, saltaða og útvatnaða skötu.
Skötuát á Þorláks-
messu virðist færast í
vöxt með hverju ári
segir Guðbjörg R.
Guðmundsdóttir og
einn fisksalinn taldi
henni trú um að skat-
an væri bráðhollur
herramannsmatur,
sérstaklega fyrir þá
sem eru með kvef eða
magakveisu. Verðið er
svipað og í fyrra.
BEISIK ehf. hefur gefið út marg-
miðlunardiskinn Leikur að elda.
Diskinum er dreift í DVD-umbúðum
og honum fylgja plöstuð spjöld með
uppskriftum. Benedikt Jónsson leið-
ir notendur í gegnum 10 hátíðaupp-
skriftir, t.d. hamborgarhrygg, rauð-
vínssósu, brúnaðar kartöflur og
daim-rjómaís.
Leikur að elda fæst í öllum versl-
unum Hagkaupa og kostar 999 krón-
ur sem er tilboðsverð fyrir þessi jól.
Diskurinn fæst einnig á Hagkaup.is
Upplýsingar og sýnishorn er að
finna á slóðinni www.beisik.is/leik-
uradelda.
NÝTT
Leikur að elda