Morgunblaðið - 21.12.2002, Qupperneq 53
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2002 53
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Vélfræðingur
Vélfræðing vantar sem vélstjóra á fiskiskip frá
Fáskrúðsfirði. Búseta í þorpinu mjög æskileg.
Allar nánari upplýsingar í síma 893 3009.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Aðalfundur
Aðalfundur Vélstjórafélags Íslands verður hald-
inn laugardaginn 28. desember kl. 14.00 í Kiw-
anishúsinu, Engjateigi 11, Reykjavík.
Fundardagskrá samkvæmt lögum félagsins.
Vélstjórar á farskipum
Fundur um kjaramál farmanna verður haldinn
föstudaginn 27. desember kl. 11:00.
Fundarstaður: Borgartún 18, 3. hæð.
Vélstjórar á fiskiskipum
Fundur um kjaramál fiskimanna verður haldinn
föstudaginn 27. desember kl. 15:00.
Fundarstaður: Borgartún 18, 3. hæð
Vélstjórafélag Íslands.
NAUÐUNGARSALA
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni sjálfri
sem hér segir:
Arnardrangur, sumarhús, Skaftárhreppi, þingl. eig. Ólafur Logi Jón-
asson, gerðarbeiðandi Búnaðarbanki Íslands hf., föstudaginn
27. desember 2002 kl. 13.00.
Sýslumaðurinn í Vík,
19. desember 2002.
TIL SÖLU
Verðhrun á silkivörum
Lagersala á silkivörum þ.e. silkináttföt, silki-
náttkjólar, silkisloppar, silkibolir, silkitreflar,
silkislæður. Frábært verð.
Opið laugardag 21.12. og sunnudag 22.12.
frá kl. 13.00—17.00.
Toja, Skógarhjalla 19, bílskúr,
200 Kópavogur, sími 898 5111.
Lagersala
Í dag, laugardaginn 21. desember, og sunnu-
daginn 22. desember verðum við með opið
frá kl. 13.00 til kl. 16.00 síðdegis. Ódýrustu
leikföngin. Bílar, risaeðlur, með hljóðum,
dúkkur, gæsaveiðitækið vinsæla, tölvustýrðir
jeppar og fjórhjól, stórar vatnsbyssur, mikið
úrval leikfanga í skóinn. Vorum að fá gott úrval
af nýjum leikföngum fyrir 3ja mánaða til 5 ára.
Ódýrar kaffivélar og brauðristar. Veiðarfæri:
Stangir, hjól, veiðikassar, flugulínur, vatteraðir
gallar. Verkfærakassar á lækkuðu verði.
Gervijólatré á góðu verði. Hleðslubatterí og
fleira.
Lítið við, því nú er tækifæri til þess að gera góð
kaup og kaupa ódýrar jólagjafir og ýmsar vörur
á góðu verði. Kredit- og debit kortaþjónusta.
I. Guðmundsson ehf.,
Skipholti 25,
105 Reykjavík.
TILKYNNINGAR
Gvendur dúllari
Fallegar jólagjafir - með sál
Silfurkertastjakar, silfurkaffi- og
tesett, silfurstaup og bakki, út-
skorin vegghilla, útskorinn bóka-
skápur, 12—14 manna borðstofu-
borð, Íslandskort anno 1650, mál-
verk, myndir, veggteppi, plattar
og að sjálfsögðu mikið úrval
góðra bóka til að gefa og njóta
um jólin. M.a. Ferðafélag Íslands
'28-'80 frump. m/k í glæsibandi,
Ísl. sjávarhættir, tölusett glæsi-
band, Laxness, Strandamenn,
Bergsætt og fleira og fleira.
Opið 12-22 til jóla.
Gvendur dúllari - góður í gjöfum
Fornbókaverslun með meiru
Klapparstíg 35
Sími 511 1925
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
Áramót í Básum 30/12—2/1.
Skemmtileg og fjölbreytt dag-
skrá að hætti Útivistar, göngu-
ferðir, kvöldvökur, flugeldar og
áramótabrenna. Ferð fyrir hresst
fólk sem á það sameiginlegt að
hafa áhuga á útiveru og að vilja
skemmta sér saman í faðmi fjalla
og jökla. Fararstjórar eru Berg-
þóra Bergsdóttir og Reynir Þór
Sigurðsson. Verð 12.100/13.500
kr.
Þrettándaferð Jeppadeildar í
Bása 4.—5. jan.
Þrettándagleði jeppamanna á
einum fallegasta stað á Íslandi
og þó víðar væri leitað. Léttar
göngur, kvöldvaka, blysför og
álfabrenna. Byrjað er að bóka í
þessa vinsælu ferð.
Verð 2.300/2.800 kr. á mann. ATVINNA
mbl.is
Ég hef þekkt Steina
mág minn í rúmlega
fjörutíu ár. Endur-
minningarnar eru eins
og stiklur og ég staldra við þá elstu,
þegar ég sá hann í fyrsta sinn.
Hnellinn átta ára strák með ljóst
liðað hár, alveg að springa úr lífsgleði
og fjöri þegar hann hentist í fangið á
mér og faðmaði mig að sér. Að vísu
þekkti hann mig ekkert en það skipti
ekki máli. Við vorum stödd í eldhús-
inu heima í Snekkjuvogi og allir sem
þar komu voru vinir eða frændur.
Á næstu stiklu birtist fermingar-
dagurinn hans. Þann dag átti Steini,
hann stjórnaði gleðskapnum, sagði
STEINGRÍMUR
FRIÐFINNSSON
✝ SteingrímurFriðfinnsson
fæddist í Reykjavík
10. febrúar 1952.
Hann andaðist á
Landspítalanum –
háskólasjúkrahúsi
hinn 13. desember
síðastliðinn og var
útför hans gerð frá
Langholtskirkju 20.
desember.
brandara, hermdi eftir
þekktum persónum í
þjóðlífinu, sem honum
fórst prýðilega, spilaði
á gítar og söng með
gestunum. Sú veisla
gleymist tæplega þeim
sem voru svo heppnir
að vera boðið.
Næst stingur hann
upp kollinum norður í
Mývatnssveit á sól-
björtum sumardegi og
er þá kominn á þrítugs-
aldurinn. Hann bjó á
Akureyri hjá Lillu syst-
ur sinni sem var honum
eins og önnur móðir. Þaðan var stutt
að fara til að heimsækja okkur hjón-
in. Hann kom með rútunni og ég tók
á móti honum á planinu. Ég gleymi
ekki hrifningu amerískrar konu sem
hann hafði setið hjá og rabbað við alla
leiðina. Ekki veit ég hvar Steini lærði
ensku en hann átti mjög auðvelt með
að bjarga sér á því tungumáli og ég
man hve konan kvaddi hann með
miklum kærleikum.
Svo fluttum við öll suður og ein jól-
in heimsóttum við Kristínu systur
mína á Akranesi og lentum á jóla-
balli. Þar var gengið í kringum
jólatré og jólasveinninn að sjálfsögðu
mættur. Steini tók hann að sér og
saman léku þeir við hvern sinn fing-
ur. Barnið í Steina naut sín til fulls og
víst er að hann gerði ekki minni
lukku en jólasveinninn. Á eftir fórum
við heim til systur minnar. Þá varð
Steini allt í einu fullorðinn aftur,
kveikti sér í vindli, sneri sér að Krist-
ínu og spurði: Áttu ekki koníakstár?
Konur löðuðust auðveldlega að
Steina enda var hann glaðlyndur og
hið mesta ljúfmenni. En hann átti
líka sínar erfiðu stundir og þegar
sorgin bankaði upp á var hún sár. Þó
var jafnan stutt í brosið og vafalaust
átti glaðlyndið sinn stóra þátt í að
fleyta honum yfir þá erfiðleika sem á
köflum steðjuðu að.
Í mínum augum var Steini alltaf
ungur. Samt varð hann fimmtugur á
liðnum vetri. Þá var slegið upp veislu
sem fór nærri því að jafnast á við
fermingarveisluna forðum tíð. Það
var sungið og spilað og Steini tók dú-
etta með ýmsum vinum og ættingj-
um. Þeirra tímamóta er gott að minn-
ast nú þegar hann er horfinn.
Andlátið kom óvænt. Steini var
harður af sér og kvartaði ekki yfir
smámunum. Vafalaust var hann bú-
inn að vera veikari en okkur sam-
ferðafólkið grunaði, en bar sig alltaf
svo vel að menn áttuðu sig ekki á að
hverju fór.
Nú er hann horfinn en eftir sitja
minningar sem vekja bros og ylja
okkur í svörtu skammdeginu.
Ég trúi að hann sé kominn til for-
eldranna, Báru frænku og annarra
ástvina sem á undan eru gengnir og
það verði glatt á hjalla þegar þau
halda jólin með englunum uppi hjá
Guði.
Iðunn Steinsdóttir.
Elsku amma, nú ert
þú farin þá ferð sem
okkur öllum er áskap-
að að fara, fyrr eða
síðar. Eftir situr
söknuður, sorg, en fyrst og fremst
hlýtt þakklæti til þín fyrir að hafa
verið það sem þú varst. Þú varst
hreint ævintýri, alltaf svo glöð og
til í sprell.
Einu sinni sagðir þú að ef þú
hefðir verið uppi á öðrum tíma þá
hefðirðu viljað vera sjóræningi.
Nú, þegar við stöldrum við og leið-
um hugann til þín, elsku amma, þá
standa upp úr alls konar grams-
ferðir sem við systurnar fengum
að fara í skápana þína. Ekkert
lumaði á jafn miklum fjársjóði og
skáparnir þínir. Þetta var það eft-
irsóknarverðasta þegar við komum
í heimsókn til þín. Hver gramsferð
hófst á því að éta sig í gegnum
gamlar konfektbirgðir frá síðustu
jólum sem þú hafðir steingleymt
okkur til mikillar ánægju. Eftir
það var allra hluta von. Eftir því
sem við komumst dýpra inn í skáp-
ÞÓRDÍS GUNN-
LAUGSDÓTTIR
✝ Þórdís Gunn-laugsdóttir
fæddist á Reynihól-
um í Miðfirði 8. jan-
úar 1914. Hún lést í
Víðinesi 10. desem-
ber síðastliðinn og
var útför hennar
gerð frá Áskirkju 18.
desember.
inn varst þú orðin svo
forvitin af öllu þessu
glingri sem okkur
tókst að rífa fram í
dagsljósið að ekki leið
á löngu þar til við vor-
um allar þrjár, Edda
systir, ég og þú, elsku
amma, komnar á fjóra
fætur, hálfar inn í
skáp að gramsa. Þú
varst svo hugmynda-
rík. Okkur þykir svo
vænt um allt spjallið
sem við áttum saman
um tilgang lífsins,
dauðann og ljósið.
Endalaust gátum við talað um það
og það var alltaf eitt sem ein-
kenndi allar þínar skoðanir, en það
var vonin, enginn hlutur var von-
laus, það var alltaf til lausn, ein-
hvers staðar, bara að finna hana.
Alltaf héldum við heimleiðis eftir
þessar heimsóknir til þín með
fullan hausinn af sögum og mik-
ilvæga minnispunkta fyrir framtíð-
ina. Þér tókst á svo skemmtilegan
hátt að blása lífi í hlutina. Hvort
sem þeir voru tilgangslausir eða
ekki...
Við efumst ekki um á þessari
stundu, að þú hafir í nógu að snú-
ast, svo við fyllum bara andartakið
af kveðjum og minningum um þig
og okkur, amma mín. Þakkir fyrir
allt og allt.
Hildur Aðalbjörg
Ingadóttir,
Edda Eir Ingadóttir.
Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti, netfangið er minning@mbl.is, svar er
sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist. Ef greinin er á disklingi þarf útprentun að
fylgja. Nauðsynlegt er að símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnusími og heimasími)
fylgi með. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær
berist innan hins tiltekna frests. Nánari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern látinn ein-
stakling birtist formáli og ein aðalgrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar
skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17
dálksentimetrar). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Einnig er
hægt að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 línur, og votta virðingu án þess að
það sé gert með langri grein. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki
stuttnefni undir greinunum.