Morgunblaðið - 21.12.2002, Side 71
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2002 71
FYRIR nokkrum áratugum var
undirrituð stödd á Pradasafninu í
Madrid. Þar hékk uppi á vegg mynd
af gnægtarhorn-
inu. Úr því flóðu
lystisemdir lífs-
ins. Hversvegna
kemur þessi
hugsun upp
svona sterk? Því
skal reynt að
svara hér eftir
bestu getu. Það
er stigið svo frek-
lega á rétt aldraðra og öryrkja. Rétt-
lætiskennd fólks er freklega misboð-
ið. Það er nóg til af lífsins gæðum í
þessu landi. Það er ekki nokkur
ástæða að líða misvitrum stjórn-
málamönnum það að skammta öðr-
um svo naumt að það sé varla nema
til hnífs og skeiðar eða illa það. Einn
stjórnmálamaður var spurður að því
í sjónvarpi hvort hann gæti lifað af
þeim tekjum sem öryrkjar hefðu?
Hann kvað nei við og bætti við: Ekki
eftir hans lifistíl. Þarna er sannleik-
urinn í hnotskurn! Það sem höfðingj-
arnir hafast að hinir halda sér leyfist
það! Svona siðir tíðkast ekki í öðrum
löndum. Það fer ekki fram hjá
nokkrum hugsandi manni hvernig
landið liggur. Sú sjón hefur lengi
blasað við, að það búa hér í þessu
landi tvær stéttir. Hástétt sem ekki
veit aura sinna tal og lágstétt. Mið-
stéttin er horfin. Þegar málsvari lág-
stéttanna frú Jóhanna Sigurðardótt-
ir alþingismaður mætti Pétri
Blöndal alþingismanni í Íslandi í bít-
ið í vetur fór Pétur hamförum að
sannfæra Jóhönnu um að jaðar-
skattar yrðu að hækka. Jóhanna
sagði að þetta væri bara bull. Magn-
þrungið augnatillit hennar var raf-
magnað. Í því fólst hirting svo um
munaði. Pétur er doktor í stærð-
fræði. Hann veit manna best að það
fer eftir hverju menn stilla upp í
jöfnu hvað menn fá út. Réttlætis-
kennd manna er misboðið.
Svo er það ein meinsemdin, sem
blasir við. Þeim sem taka að sér ein-
hverja vinnu til að rétta við fjárhag-
inn (öryrkjar) er refsað með því að
taka desemberuppbótina af þeim.
Þessa líka hungurlús! Hafa menn
virkilega enga þekkingu á hvað það
kostar að lifa í þessu landi? Fáfræðin
er svo ríkjandi hér á landi eða hvað?
Eða er það eitthvað annað sem kem-
ur óþægilega við einhverja? Eitt-
hvað sem hefur verið sópað undir
sóplista? Menn eru svo seinir að rísa
upp og svara fyrir sig. Til þess þarf
kjark og þor! Menn veigra sér við að
skrifa í blöðin. Það gerir eflaust fá-
mennið. En nauðsyn brýtur lög!
Menn verða bara að þora að standa
undir eigin skrifum. Annars breytist
ekki neitt, staðan verður sú sama,
status quo. Persónuafsláttur verður
að hækka. Lægstu mannsæmandi
laun ættu enga skatta að bera. Sím-
inn sem er nauðsynlegur hverjum
manni, hann er öryggistæki. Menn
fóðra þá hækkun með einhverju
heimtaugagjaldi, sem eflaust er þeg-
ar búið að taka. Menn og konur hafa
ritað greinar um þessa misbeitingu.
Nú síðast er bréf frá Arnóri Péturs-
yni skrifað af réttsýni og mann-
gæsku. Hann er formaður Sjálfs-
bjargar. Það skal þakkað hér.
Á þessum vettvangi er því hér
með komið á framfæri til aldraðra og
öryrkja að bjóða fram til alþingis-
kosninga. Ólafur Ólafsson fyrrum
landlæknir sagði það í sjónvarps-
þætti, að aldraðir hefðu fundið spít-
ala, og glotti við tönn. Þar er á ferð-
inni maður sem veit hvar skórinn
kreppir að. Að það séu 39.000 manns
sem fengu bréf frá Tryggingastofn-
un Ríkisins með fyrirspurn um
tekjur maka. Það gleymdist bara hjá
þessari stofnun að sumir eru maka-
lausir (einyrkjar). Ragnar Aðal-
steinsson hrl. gat ekki orða bundist
um innihald þessa bréfs. Þessar upp-
lýsingar hljóta að liggja fyrir. Skatt-
framtöl manna eru gleggstu dæmin!
Það liggur frumvarp fyrir Alþingi
um að kanna gerviskilnaði. Það er
tilkomið vegna þess að fólk hefur
gerst lögbrjótar til að missa ekki fót-
festuna í lífinu. Það er ekki verið að
mæla þessu bót, síður en svo. Það er
hart vegið að fólki sem leiðist út í
svona hluti. Tæplega fjörutíu þús-
und manns geta valdið byltingu í al-
þingiskosningum. Þetta fólk á líka
aðstandendur, það skyldi maður
halda. Það er ekki nokkur þörf á því
að líða þetta óréttlæti lengur. Það er
bara tímaskekkja, svo einfalt er það.
Það vilja allir eldast með reisn. Það
er lögmál lífsins. Svo er það ekki líð-
andi að öryrkjar séu vændir um leti
og ómennsku. Maður líttu þér nær.
Það vill enginn missa heilsuna. Það
er heimska að væna menn um slíkt.
Það virðist hafa farið fyrir ofan garð
hjá hinu opinbera, að einyrkjar bera
þyngstu byrðarnar í þessu þjóð-
félagi. Enda ekki verið að hugsa um
fólkið, sem slíkt, heldur fyrirtækin,
sem raka saman gróða. Það er af
hinu góða, skattlagning á að vera í
samræmi við það. Það þarf að brjóta
upp þetta munstur. Það verður eigi
gert nema með breiðri samstöðu.
Það er deginum ljósara. Til að fram-
kvæma hlutina er vilji allt sem þarf.
Vænti þess að menn láti nú hendur
standa fram úr ermum. Menn
skyldu vera þess minnugir, að kosn-
ingar eru unnar í sjónvarpi og blöð-
um. Tæplega fjörutíu þúsund manns
geta lyft Grettistaki. Þess er þörf,
sem aldrei fyrr.
SIGRÚN HALLDÓRSDÓTTIR,
rithöfundur, Erluhólum 3.
Gnægtarhornið
Frá Sigrúnu Halldórsdóttur
MIKIÐ er ánægjulegt að vera loks-
ins kominn með læknismenntaðan
samherja gegn nikótíninu. Ég vil
þakka Guðmundi
Karli Snæbjörns-
syni lækni sér-
staklega fyrir
það hugrekki að
stíga fram gegn
lyfjafyrirtækjun-
um og ítreka það
sem ég hef verið
að segja í mörg
ár, í raun frá
árinu 1997 þegar ég byrjaði fyrst
að hjálpa fólki að hætta að reykja,
og margir höfðu þá sagt á undan
mér. Nikótínið er ekki vandamálið.
Ef fólk vill virkilega hætta að
reykja þarf góðan undirbúning og
viðhorfsbreytingu. Síðan á einfald-
lega að nota viljann til að umbreyta
fíkninni. Ég veit það vegna þess að
ég notaði þessa aðferð sjálfur og
hef kennt fjölmörgum öðrum að
gera slíkt hið sama. Engin önnur
lyfjameðferð fengi stuðning yfir-
valda miðað við þann litla árangur
sem er af notkun nikótínlyfja. Þeir
sem nota nikótínlyf eru vissulega
betur staddir en þeir sem reykja en
sannleikurinn er sá að þeir eru enn
fíklar. Ef fólk vill virkilega losna
undan fíkninni bjóðast margar leið-
ir en það þarf hugrekki til að leita
sér hjálpar. Því miður er það svo
að nikótíniðnaðurinn er fjársterkur
og greinar mínar í blöðunum hafa
yfirleitt drukknað í auglýsingum
lyfjafyrirtækjanna. Ég vona að
upphróp Guðmundar Karls verði til
þess að fólk hugsi sig tvisvar um.
Þetta snýst nefnilega um valið milli
þess að taka upp nýja fíkn (og
nikótínlyf hafa vissulega aukaverk-
anir) eða nýjan lífsstíl. Hvort velur
þú?
GUÐJÓN BERGMANN,
jógakennari og rithöfundur.
Nikótínið er ekki
vandamálið
Frá Guðjóni Bergmann
FRÉTTIR
SAMNINGUR um Menntagátt, vef
með menntatengdu efni, námskrám
og leitarvél, milli mennta-
málráðherra og fyrirtækisins Hug-
ar hf. hefur verið undirritaður.
Verkið var boðið út og Hugur hf.
var eitt þriggja fyrirtækja sem áttu
tilboð.
Samningurinn er til þriggja ára
og tekur hann til smíði, hýsingar og
reksturs Menntagáttar. Gert er ráð
fyrir að fyrsti áfangi gáttarinnar
verði opnaður á ráðstefnu um upp-
lýsingatækni í skólastarfi sem hald-
in verður á Akureyri 28. febrúar nk.
Á Menntagáttinni verður boðið
upp á margvíslega þjónustu sem
kemur til móts við þarfir nemenda,
kennara, skóla, foreldra og annarra
sem tengjast menntun, segir í frétt
frá menntamálaráðuneytinu. Þá
verða einnig veittar upplýsingar
um styrki og nýsköpunarverkefni
og opnaðir möguleikar fyrir til-
raunir og prófanir vegna nýrra
lausna sem stuðlað gætu að ný-
breytni í skólastarfi svo eitthvað sé
nefnt. Mun ráðuneytið á næstu mán-
uðum og árum leita samstarfs við
fyrirtæki og stofnanir um uppbygg-
ingu fjölbreyttrar þjónustu á
Menntagáttinni.
Samið um
Mennta-
gátt
Tómas Ingi Olrich menntamála-
ráðherra og Páll Freysteinsson,
framkvæmdastjóri Hugar hf., inn-
sigla samninginn með handabandi.
Morgunblaðið/Árni Torfason
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá Náttúru-
verndarsamtökum Íslands:
„Vegna skrifa stjórnarformanns
Landsvirkjunar í Morgunblaðinu í
dag (19. desember) er rétt að gera at-
hugasemd við þau orð hans um að
þrátt fyrir að lengi hafi verið talað um
tap á virkjunum safni Landsvirkjun
eigin fé. Það hefur Landsvirkjun gert
í krafti einokunarstöðu á íslenskum
markaði. Fyrirtækið hefur getað
jafnað út tap á t.d. Blönduvirkjun
með hærra verði til almennings-
veitna.
Í skýrslu sem unnin var fyrir iðn-
aðarráðherra árið 1996, Framtíðar-
skipan orkumála, kemur fram að verð
Landsvirkjunar til almenningsraf-
veitna sé þá 46% hærra en kostnaðar-
verð frá nýjum virkjunum (langtíma-
jaðarkostnaður), þ.e.a.s. það verð
sem ríkja myndi á samkeppnismark-
aði (og verð til almenningsveitna hef-
ur sáralítið breyst frá 1996). Með öðr-
um orðum, Landsvirkjun hefur
hingað til getað velt tapi af slæmum
fjárfestingum yfir á almenning.
Einnig er rétt að minna á að
Landsvirkjun greiðir hvorki tekju- né
eignaskatt, nýtur ríkisábyrgða á lán-
um og þar af leiðandi mun lægri vaxta
en ella, auk þess sem fyrirtækið
greiðir ekki fyrir það tjón sem það
veldur á náttúru landsins með um-
svifum sínum.“
Athugasemd
frá Náttúruverndar-
samtökum Íslands
ÍSLENSKAR friðarhreyfingar
standa að blysför niður Lauga-
veginn á Þorláksmessu. Safnast
verður saman kl. 17.30 á
Hlemmi og lagt af stað klukkan
18. Kristín Helga Gunnarsdóttir
rithöfundur flytur ávarp Sam-
starfshóps friðarhreyfinga.
Fundarstjóri verður Katrín
Jakobsdóttir háskólanemi.
Þetta er 23. árið sem friðar-
ganga er farin á Þorláksmessu.
Friðarhreyfingarnar munu selja
kyndla á Hlemmi og á leiðinni,
segir í frétt frá Samstarfshópi
friðarhreyfinga.
Friðarganga
á Þorláks-
messu
SIGURVEGARAR SMS-leiksins í
nóvember eru fimmtán og sextán
ára, þeir Birgir Ólafur Guðlaugsson
og Páll Ágúst Hallsson. Aðalvinning-
urinn er stafræn fjögurra milljóna
pixla SONY DCS-P9 myndavél en
það var BT músin sem afhenti þeim
myndavélina að viðstöddum fulltrú-
um BT og SmartAds.
Við sama tækifæri voru Gunnari
Ragnarssyni framkvæmdastjóra
Styrktarfélags krabbameinssjúkra
barna færðar 150 þúsund krónur að
gjöf frá BT og SmartAds.
Frá afhendingu verðlaunanna og gjafafjárins, f.v.: Gunnar Ragnarsson,
framkvæmdastjóri Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna, Guðjón Elm-
ar Guðjónsson frá BT, Halldór Sanne frá SmartAds, BT-músin, Páll Ágúst
Hallsson og Birgir Ólafur Guðlaugsson, sigurvegararnir í SMS-leiknum.
Sigurvegarar
í SMS-leik
Góðir skór
Skóbúðin
Miðbæ Háaleitisbraut 58-60 Sími 553 2300
Ráðgjöf á fimmtud. kl. 15-18 og laugard. kl. 11-15.
DILBERT
mbl.is
FRÉTTIR
mbl.is