Morgunblaðið - 21.12.2002, Side 84
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
– leiðandi í lausnum
Skeifunni 17AcoTæknival Sími 550 4000 Fax 550 4001
FÖRUNEYTI hringsins, fyrsti hluti
Hringadróttinssögu, hefur selst í 10
þúsund eintökum á mynddiski hér á
landi að sögn Magnúsar Gunn-
arssonar hjá dreifingaraðila mynd-
arinnar Myndformi. Diskurinn hef-
ur komið út í tveimur útgáfum á
árinu og er sérstök viðhafnar-
útgáfa af diskinum sem kostar
4.999 kr. fullu verði út úr búð nú
söluhæsti mynddiskur landsins,
samkvæmt nýjum mynddiska-
sölulista sem birtist í Morgun-
blaðinu í fyrsta sinn í dag.
Þykir salan á mynddiskinum
vitnisburður um hversu mjög sala
mynddiska hefur aukist að undan-
förnu og tala framleiðendur um að í
ár séu haldin mynddiskajól.
Hringadrótt-
inssaga
vinsælust
Jól/80
„ÞAÐ er kraftaverk að við skulum vera á lífi,“ segir
Anna María Friðriksdóttir, sem fær að fara í jólafrí á
morgun eftir að hafa verið á sjúkrahúsi undanfarnar
þrjár vikur í kjölfar umferðarslyss, en bifreið hennar
lenti á hvolfi úti í Hólmsá við Suðurlandsveg í lok
nóvember.
Anna María var ásamt börnum sínum, Jónu Guð-
rúnu, Árna Rúnari og Júlíu Björk Baldursbörnum, á
leið til Reykjavíkur, þegar slysið varð. „Ég var nær
drukknuð,“ segir Anna María. „Jóna Guðrún lyfti
höfðinu á mér upp úr vatninu í bílnum og hélt því
þannig. Það bjargaði mér.“ Jóna Guðrún segir að það
hafi verið erfitt. „Ég sat frammí en komst ekki út af
því að mamma var fyrir mér. Þegar ég sá að hún var
ofan í vatninu reyndi ég að lyfta henni en það var erf-
itt því flíspeysan hennar var full af vatni og þess
vegna svo þung.“ Árni Rúnar segist hafa farið svipað
að með litlu systur. „Ég bjargaði henni.“ Vegfarend-
ur björguðu fólkinu út úr bifreiðinni og í kjölfarið
bar að óeinkennisklædda lögreglumenn, en þeir gátu
veitt aðstoð þar til slökkviliðsmenn komu og tóku við
lífgunaraðgerðum á Önnu Maríu og Júlíu Björk.
Morgunblaðið/Júlíus
Fjölskyldan á Landspítala – háskólasjúkrahúsi við Hringbraut í gær, en hún fær að vera saman heima um
jólin. Frá vinstri: Jóna Guðrún, Anna María Friðriksdóttir, Júlía Björk, Árni Rúnar og Baldur Rúnarsson.
„Kraftaverk að við
skulum vera á lífi“
Eldri börnin/6
ÍSLANDSBANKI, Landsbanki Íslands, Seltjarn-
arnesbær og Reykjanesbær hafa í sameiningu
stofnað fasteignafélag, Eignarhaldsfélagið Fast-
eign hf., sem sjá mun um rekstur og viðhald fast-
eigna bankanna og verulegan hluta af eignum
sveitarfélaganna. Verðmæti þeirra eigna sem
renna til félagsins nemur um fjórtán milljörðum
króna en hlutafé félagsins er 2,1 milljarður. Hver
aðili á fjórðung hlutafjár og einn mann í stjórn fé-
lagsins.
Áform eru uppi um að fleiri opinberir aðilar
muni koma að félaginu og eru bundnar vonir við að
umsvif þess vaxi hratt á næstunni og að það verði
jafnvel skráð á hlutabréfamarkað þegar fram í
sækir. Ragnar Atli Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri félagsins, segir hugmyndina vera að stofna
traust og öflugt fasteignafélag um fasteignir lána-
stofnana, ríkis og sveitarfélaga. Hann segir ekki
skipta máli hvert eðli eignanna er og þannig muni
félagið t.d. sjá um rekstur og viðhald skrifstofu-
húsnæðis, íþróttamannvirkja og skóla jöfnum
höndum.
Framtíðin í sérhæfingu og hagræðingu
Jónmundur Guðmarsson, bæjarstjóri á Sel-
tjarnarnesi, segir að til viðbótar við hin almennu
hagkvæmnisrök sem búi að baki viðskiptahug-
myndinni sé það einkum tvennt sem sveitarfélögin
hafi í huga. „Í fyrsta lagi ber okkur samkvæmt
nýjum reikningsskilavenjum að stofna til fast-
eignafélaga sem reka fasteignir sveitarfélaganna
og leigja þær síðan bæjarsjóði. Í annan stað gefur
einhvern veginn augaleið að framtíðin í slíkum
rekstri hlýtur að vera sú að leita fyrst sérhæfingar
og að lokum hagræðingar.“
Bjarni Ármannsson, forstjóri Íslandsbanka,
segir að menn hafi séð bæði sveitarfélög og ríki
stuðla að því að setja málin í þann farveg að þeir
sem hæfastir séu til þess að framkvæma verkin á
sem ódýrastan og hagkvæmastan hátt sjái um
þau. Það sé miklu frekar hlutverk hins opinbera að
sjá til þess að verkin verði framkvæmd. „Þannig
lítum við einnig á þetta. Við viljum gera það sem
við gerum best, þ.e. veita fjármálaþjónustu, en
teljum okkur aftur á móti ekki vera sérfræðinga í
fasteignarekstri.“
Fasteignir fyrir um 14
milljarða í nýju félagi
Eignir/10
EF við erum skotin í þeirri hugmynd
að Snorri sé höfundur Egils sögu
Skallagrímssonar, þá verðum við að
viðurkenna að hann skrifaði ekki þá
Egils sögu sem við lesum í útgáfum í
dag,“ segir Guðrún Nordal í grein
sem birtist í Lesbók. Hún telur því að
ekki sé hægt að líta svo á að Snorri sé
höfundur Egils sögu eins og hún birt-
ist í nýútkomnu Ritsafni Snorra
Sturlusonar.
Guðrún bendir á að handrit Egils
sögu sýni að sagan breytist í meðför-
um nýrra kynslóða og því sé erfitt að
draga upp mynd af þeirri Eglu sem
fyrst varð til á fyrri helmingi þrett-
ándu aldar. Guðrún segist þó ekki í
nokkrum vafa um að sagan hafi orðið
til á Vesturlandi, meðal afkomenda
Mýramanna, og meðal Sturlunga.
Telur Snorra ekki
höfund útgefinnar Eglu
Lesbók/8
STÆRSTA fyrir-
tæki Íslands gæti
verið í burðarliðn-
um, verði af samein-
ingu SH og SÍF.
Stjórnir fyrirtækj-
anna hafa lýst áhuga
sínum á formlegum
samningaviðræðum.
Munu þær hefjast í
upphafi næsta árs. Sameinað fyrirtæki yrði
með um 120 milljarða króna veltu. Talið er
að sparnaður í rekstri vegna sameiningar-
innar gæti numið a.m. k. hálfum milljarði.
Töluvert er síðan umræðan um samein-
ingu félaganna hófst og að undanförnu hafa
óformlegar viðræður átt sér stað. Í gær
sendi stjórn SÍF svo frá sér ályktun þar sem
hún lýsti áhuga sínum á viðræðum og talið
var nauðsynlegt að úr því yrði skorið sem
fyrst hvort vilji væri fyrir sameiningu eða
ekki. Stjórn SH sagðist tilbúin til viðræðna.
„Það hefur verið sannfæring mín að félög-
in eigi að sameinast. Það yrði styrkur fyrir
þetta félag og eigendur þess og ekki síður
fyrir þá framleiðendur sem félögin kaupa af-
urðir af. Ég fagna því innilega að þeir hjá
SÍF skuli nú taka undir þessar hugmyndir
mínar. Þetta er fyrsta skrefið og það er mikil
vinna framundan,“ segir Róbert Guðfinns-
son, formaður stjórnar SH.
„Ég hef fulla ástæðu til þess að ætla að
það komi til sameiningar nema menn reki sig
á einhver þau ljón í veginum, sem menn sjá
ekki fyrir sér í dag. Þetta hefur verið lengi í
umræðunni og við höfum ekki hnotið um
neina þá annmarka sem væru það alvarlegir
að við teldum sameiningu ólíklega. Ella hefð-
um við ekki farið af stað,“ segir Friðrik Páls-
son, formaður stjórnar SÍF.
Full ástæða/14
+ #(
6"#( #(
<"# #(
-
KJHLH
IM
JLM
JJJ
0
#- (
Ræða sam-
einingu
SH og SÍF
TVEIR fólksbílar skullu saman við
brúna yfir Jökulsá á Fjöllum um
kvöldmatarleytið í gær. Að sögn lög-
reglunnar á Húsavík urðu engin
meiðsl á fólki en það miklar
skemmdir á bílunum að draga þurfti
þá brott með kranabifreið.
Um er að ræða einbreiða bogabrú
og aðkoma að henni getur verið
varasöm. Stórslys hafa þó verið fátíð
á þessum slóðum, að sögn lögreglu,
en árekstrar nokkrir í gegnum tíð-
ina.
Bílvelta í Langadal
Fólksbíll valt við bæinn Geita-
skarð í Langadal í Austur-Húna-
vatnssýslu um níuleytið í gærkvöldi.
Að sögn lögreglunnar á Blönduósi
sakaði ekki þær tvær stúlkur sem
voru í bílnum og varð það þeim til
happs að bíllinn lenti utan vegar í
dýi. Lögreglan sagði lúmska hálku
hafa myndast á þjóðveginum, en
mikil umferð var um Húnaþing fram
á kvöld.
Árekstur
við brúna
yfir Jökulsá
á Fjöllum
♦ ♦ ♦