Morgunblaðið - 10.01.2003, Side 9

Morgunblaðið - 10.01.2003, Side 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 2003 9 REKSTRARLEIGA á bílum til ein- staklinga hófst í haust en er þegar orðin nokkuð útbreidd víða erlendis. Viðhorf fólks til bílaeignar hefur smám saman verið að breytast, þ.e að frekar sé um að ræða nauðsyn- legan kostnað en ekki fjárfestingu. Einna algengast er að fólk taki bíl á rekstrarleigu í tvö ár. Óneitanlega vakna spurningar um hvort hag- stæðara sé að fá bíl á rekstrarleigu eða kaupa hann á lánum. Runólfur Ólafsson hjá Félagi ís- lenskra bifreiðaeigenda (FÍB) segir að FÍB hafi borið saman annars vegar fjármögnun með bílaláni, fjár- mögnun með rekstrarleigu og svo að greiða fyrir bíl með eigin fé. „Miðað við þær vaxtaforsendur sem voru síðasta haust, þegar rekstrarleiga til einstaklinga kom til sögunnar, kom rekstrarleiga betur út en kaup með bílalánum miðað við heildartil- kostnað af heildardæminu. En auð- vitað eru annmarkar á þessu, þetta er takmarkaður fjöldi bíla og þeir hafa verið í eigu fyrirtækja eða bíla- leiga og það er ekki tekið tillit til þess.“ Vissir annmarkar á rekstrarleigu Runólfur segir að að gefnum for- sendum sé svo sem auðvelt að reikna út krónur og aura en fleiri hluti geti þurft að skoða, t.d. sé tak- markað úrval af bílum. „Það er í sjálfu sér ekkert nema gott eitt um það að segja að eiga þennan kost að taka bíl á rekstrarleigu. Það er líka af sem áður var að menn líti á öku- tæki sem fjárfestingu, þetta er ein- faldlega nytjahlutur og menn eru því að kaupa ákveðin afnot og menn eru ekki bundnir af því að þurfa að eiga bílinn. En auðvitað erum við í vaxtaumhverfi neyslulána sem er umtalsvert dýrara en við þekkjum í nágrannalöndunum.“ Runólfur segir að einnig hafi ver- ið reiknaður út kostnaður hjá manni sem keypti bíl og ætti fyrir honum. „Þá tökum við einnig mið af ákveðnum vaxtafórnarkostnaði við það fé sem bundið er í bílnum. En eftir sem áður kom sá kostur eðli- lega langbest út. Það liggur við að rekstrarleiga hafi verið mitt á milli þessara tveggja kosta, þ.e. að kaupa á lánum eða eiga fyrir bílnum. En ég tek fram að þetta var aðeins frum- athugun hjá okkur, það er margt sem getur breyst á skömmum tíma, og við hyggjumst skoða þetta betur aftur innan tíðar. Leiga betri en kaup á lánum LÖGREGLAN í Reykjavík hefur sent frá sér tilkynningu vegna máls konu sem leitað var að hér á landi um áramótin en reyndist síðan hafa farið til Kaupmannahafnar í árslok. Segir í tilkynningunni að lögregl- an í Reykjavík hafi óskað aðstoðar lögreglunnar á Keflavíkurflugvelli vegna hvarfsins þann 30. desember og óskað eftir að athugað yrði hvort Guðrún Björg Svanbjörnsdóttir hefði farið úr landinu þann dag. Þau mistök hafi verið gerð að óska ekki eftir athugun á því hvort Guðrún hefði farið úr landi fyrir þann tíma, en síðar kom í ljós að hún fór úr landi þann 29. desember. Tekið er fram í tilkynningunni, til að forðast misskilning, að skjót úr- lausn lögreglunnar á Keflavíkurflug- velli hafi að öllu leyti verið í sam- ræmi við verkbeiðni lögreglunnar í Reykjavík. Mistök í verk- beiðni við leit að konu Bankastræti 14, sími 552 1555 Útsala Hefurðu prufað nýju buxurnar frá Engjateigi 5, sími 581 2141. Opið virka daga frá kl. 10.00–18.00, laugardaga frá kl. 10.00–15.00. Útsala Gallabuxur á útsölu Eddufelli 2 Bæjarlind 6 s. 557 1730 s. 554 7030. Opið mán.—fös. frá kl. 10—18, lau. 10—15. Laugavegi 84, sími 551 0756 Útsala • Útsala Vantar þig tösku? 30% afsl. af töskum 50% afsl. af útsöluvörum Laugavegi 58 — Smáralind, sími 551 3311 — 528 8800 Laugavegur Gríptu tækifærið! Nýtt kortatímabil Smáralind Laugavegi 4, sími 551 4473 - www.lifstykkjabudin.is Póstsendum Útsala www.oo.is BARNAVÖRUVERSLUN ÚTSALA 30—70% AFSL. Á BARNAFÖTUM Útsala aldarinnar í fullum gangi Allt að 70% afsláttur Stórar stærðir Nýtt kortatímabil Opið frákl. 11-18lau. frá kl. 10.30til 16

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.