Morgunblaðið - 10.01.2003, Page 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 2003 11
VEL á annað hundrað fulltrúa
mætti á fyrsta samningafund Evr-
ópusambandsins og EFTA-
ríkjanna, Íslands, Noregs og
Liechtenstein, í Brussel í gær
vegna stækkunar Evrópska efna-
hagssvæðisins. Kjartan Jóhanns-
son, aðalsamningamaður Íslands,
sagði í samtali við Morgunblaðið að
fátt hafi komið á óvart á fundinum.
Fulltrúar framkvæmdastjórnar
ESB lögðu fram kröfu um að fram-
lög EFTA-ríkjanna í þróunarsjóði
ESB 38-földuðust frá því sem nú
er. Það svarar til að Íslendingar
greiði 3,8 milljarða króna í sjóðina
árlega. Kjartan segir þetta svim-
andi háar og algerlega óraunhæfar
tölur
Hann segist hafa bent á að ef
opnað væri fyrir fjárfestingar í
sjávarútvegi Íslendinga væri verið
að mismuna fjárfestum þar sem ís-
lenskir fjárfestar hefðu ekki að-
gang að styrkjum eða sporslum
sem fylgja sameiginlegri fiskveiði-
stefnu ESB. Krafan um fjárfest-
ingu í sjávarútvegi Íslendinga væri
því um leið krafa um að Ísland
gerðist aðili að sameiginlegri fisk-
veiðistefnu ESB sem ekki komi til
greina.
EFTA-ríkin taki þátt í
kostnaði vegna stækkunar
Chris Patten, sem fer með utan-
ríkismál í framkvæmdastjórn Evr-
ópusambandsins, lagði áherslu á að
Ísland, Noregur og Liechtenstein
taki þátt í kostnaði vegna stækk-
unar sambandsins: „Við verðum að
veita aðildarríkjunum nýju fjár-
hagsaðstoð svo þau geti lagað sig
að hinum frjálsa markaði, það er
forsenda fyrir þeim gríðarmiklu
tækifærum sem skapast við tilurð
stærri innri markaðar ESB. Það er
ekki nema eðlileg krafa að öll ríkin,
sem njóta góðs af hinum innra
markaði, taki þátt í þessum kostn-
aði. Þar með talið Ísland, Liechten-
stein og Noregur,“ sagði Chris
Patten.
Norska fréttastofan NTB hefur
eftir Bjørn T. Grydeland, sendi-
herra Noregs hjá Evrópusamband-
inu, að á fundinum hafi Percy
Westerlund, sem fer fyrir samn-
inganefnd ESB, lagt fram kröfur
um að Noregur, Ísland og Liech-
tenstein greiði samtals 2,7 millj-
arða evra, eða um 225 milljarða ís-
lenskra króna, á þriggja ára
tímabili. Þar af greiði Norðmenn
um 95%. Ekki hefur þá verið tekið
tillit til þess hve mikið ríkin fá til
baka frá ESB.
Athygli vakti hversu mikla
áherslu umsóknarlöndin lögðu á að
sitja fundinn. Sendi hvert þeirra á
bilinu fimm til tíu fulltrúa og tóku
öll löndin til máls á fundinum. Þá
sátu fundinn, auk fulltrúa fram-
kvæmdastjórnar ESB og EFTA-
ríkjanna þriggja, fulltrúar frá all-
mörgum aðildarlöndum ESB. Ell-
efu samningamenn sátu fundinn af
hálfu Íslands en um tvöfalt fleiri af
hálfu Norðmanna.
Kunnuglegar kröfur settar
fram af hálfu ESB
Kjartan segir að framkvæmda-
stjórn ESB hafi opnað umræðuna
með því setja fram kunnuglegar
kröfur, sem fjallað hafi verið um í
fjölmiðlum, s.s. miklar fjárkröfur á
hendur EFTA-ríkjanna þriggja,
tregðu að því er varðar fríverslun
með fisk og hugsanlega einhverjar
kröfur um fjárfestingar í sjávar-
útvegi Noregs og Íslands. Þá hafi
verið lögð áhersla á aðlögunartími
fyrir hin nýju lönd sem ganga í
ESB verði í takt við það sem þegar
er búið að semja um.
Aðspurður segir Kjartan ekkert
hafa komið sér á óvart í kröfugerð
ESB; tölur sambandsins um fjár-
kröfur hafi verið uppi í háloftunum
og algerlega óraunhæfar: „Ég vil
satt að segja ekki gera mjög mikið
með þær vegna þess að ég tel þær
vera gersamlega óraunhæfar. Við
erum ósammála þeirri nálgun sem
ESB notar, þ.e. að leggja okkur að
jöfnu við aðildarríkin og eins hitt
að blanda saman málefnum sem
eru óskyld að okkar dómi.“
Tekist að koma sjónarmiðum
EFTA-landanna á framfæri
Norðmenn sem fara með for-
mennsku í EFTA fluttu sameig-
inlega yfirlýsingu landanna þriggja
og síðan talaði hvert þeirra og
skýrði sín eigin sjónarmið.
Kjartan segir að bent hafi verið
á að ESB virtist stundum vilja
meðhöndla EFTA-ríkin eins og
þau væru aðilar en stundum ekki.
„Við bentum t.d. á stálmálið svo-
kallaða sem gott dæmi um að við
værum ekki hluti af innri mark-
aðinum með þeim hætti að leggja
mætti að jöfnu við aðild. Eins
mættu menn ekki gleyma því að
enda þótt við værum að fá viðbót-
armarkað fyrir austan þá væru þau
lönd líka að fá aðild að mörkuðum
okkar.“
Kjartan segist einnig hafa minnt
ESB á að það væri ekkert sam-
ræmi í því að ætlast til þess að fá
að fjárfesta í sjávarútvegi okkar á
meðan við værum ekki aðilar að
sameiginlegri fiskveiðistefnu ESB;
með því væri verið að mismuna
mönnum þar sem fjárfestar innan
ESB hafi aðgang að alls konar
sporslum og styrkjum en íslenskir
fjárfestar aftur á móti ekki. Ef
ESB ætlaði sér að hafi uppi kröfur
um fjárfestingar væri sambandið
jafnframt að fara fram á að Íslend-
ingar gerðust aðilar að fiskveiði-
stefnu þess sem ekki kæmi til
greina.
„Ég held að það hafi tekist bæri-
lega að koma sjónarmiðum EFTA-
landanna og Íslands á framfæri á
þessum fyrsta fundi. Og þótt um-
sóknarlöndin hafi auðvitað mikinn
áhuga á peningum þá sýndist mér
vera heldur dempaðri í þeim efnum
en framkvæmdastjórnin.“
Kjartan segist að lokum hafa
lagt áherslu á það væri stigsmunur
á því að ganga frá samningum
varðandi aðlögunartíma og annað
þess háttar sem menn eigi ekki von
á að verði mikið vandamál og hins
vegar þess að semja um peninga-
mál. „Við yrðum að leggja áherslu
á fyrri þáttin fyrst og svo mætti sjá
hvernig okkur gengi með fjármál-
in.“
Fulltrúar allra umsóknarlandanna mættu á fyrsta samningafund EFTA og ESB í Brussel
Mismunun ef opnað
er fyrir fjárfestingu
í sjávarútvegi
VÍSINDAMENN Íslenskrar erfða-
greiningar hafa skilgreint ákveðinn
breytileika í erfðavísi sem veldur
verulega aukinni hættu á beinþynn-
ingu, ÍE og Roche Diagnostics
greindu frá þessu í gær. Beinþynn-
ing er alvarlegt heilbrigðisvandamál
hjá fólki sem komið er yfir fimmtugt,
sérstaklega hjá konum. Íslensk
erfðagreining hlýtur áfangagreiðslu
frá Roche Diagnostics fyrir þessar
niðurstöður.
Beinþynning lýsir sér í því að
styrkur beina minnkar, þau verða
stökk og brothætt og sjúklingum er
hætt við beinbrotum. Samkvæmt
samningi fyrirtækjanna um þróun
og markaðssetningu á erfðafræði-
legum greiningarprófum vinna fyr-
irtækin nú að frekari rannsóknum á
þessum og öðrum breytileika í erfða-
vísinum með það að markmiði að
smíða próf til að greina einstaklinga
sem eru í hættu á að fá sjúkdóminn.
Slíkt rpróf gæti orðið mikilvægur lið-
ur í forvörnum gegn sjúkdómnum og
beinbrotum af völdum hans.
Lýðerfðafræðilegar rannsóknir
Íslenskrar erfðagreiningar á bein-
þynningu hafa leitt í ljós sjö erfða-
mörk af flokki einbasa breytileika (e.
SNP) innan erfðavísis á litningi 20
sem orsaka margfalt aukna hættu á
beinþynningu. Þessi breytileiki
stuðlar að minnkuðum beinmassa á
seinni stigum ævinnar og beinbrot-
um sem eru alvarleg og algeng af-
leiðing sjúkdómsins.
Þúsund manns í rannsókn
Einangrun erfðavísisins sem um
ræðir fór fram með lýðerfðafræði-
legum rannsóknum með þátttöku
1.000 einstaklinga, sjúklinga og ætt-
ingja þeirra í 139 íslenskum fjöl-
skyldum. Erfðavísirinn var síðan
raðgreindur og þau afbrigði hans
sem tengjast sjúkdómnum skil-
greind. Unnið er að frekari rann-
sóknum utan Íslands til að staðfesta
að þau erfðamörk sem höfðu sterk-
ustu tengslin við beinþynningu á Ís-
landi tengist aukinni hættu á bein-
þynningu um allan heim. Íslensk
erfðagreining áætlar að birta grein í
erlendu vísindatímariti þar sem
kortlagningu og einangrun erfðavís-
isins er lýst, að því er fram kemur í
frétt frá ÍE.
Unnt að sjá beinþynningu fyrir
„Þessar niðurstöður eru gott
dæmi um það hvernig niðurstöður
erfðafræðirannsókna okkar gætu
bætt heilsugæslu í nánustu framtíð.
Þróun greiningarprófs sem byggist
á þessum niðurstöðum gerir læknum
kleift að veita sjúklingum sínum
upplýsingar um hvort þeir séu í
hættu á að fá beinþynningu síðar á
ævinni og veita þeim ráðgjöf um fyr-
irbyggjandi aðgerðir sem minnka
líkurnar á því að þeir fái sjúkdóminn.
Við erum nú að vinna með Roche að
þróun slíks greiningarprófs. Hjá Ís-
lenskri erfðagreiningu erum við
einnig að vinna að þróun nýrra lyfja
sem beint er að lyfjamarki sem teng-
ist sama erfðavísi,“ segir Kári Stef-
ánsson, forstjóri Íslenskrar erfða-
greiningar.
Skilgreina mikilvægan
erfðafræðilegan áhættu-
þátt beinþynningar
REKTOR Konunglega tæknihá-
skólans í Stokkhólmi, dr. Anders
Flodström, er í heimsókn hér á
landi í tilefni af því að skólinn hefur
gefið Háskóla Íslands tæki sem not-
að er í eðlisfræðirannsóknum.
„Ef við keyptum samsvarandi
tækjabúnað þyrftum við að greiða
um 60 milljónir króna,“ segir
Sveinn Ólafsson, sérfræðingur á
eðlisfræðistofu Raunvísindastofn-
unar Háskólans. Álíka tæki hafi
mest verið notuð til rannsókna á
hálfleiðurum undanfarin tíu til tutt-
ugu ár. Nú sé það meðal annars
notað í þróun hálfleiðara til fjar-
skipta. „Þetta er grunnur að ljós-
leiðaratækninni.“
Sveinn segir að notkun tækisins
auki mikið möguleika á grunnrann-
sóknum og þróun í eðlisfræði
„Hingað til höfum við fengið sýni
að utan. Núna getum við farið
meira í rannsóknir sem eru nær því
sem er í gangi í dag og gerir okkur
gjaldgengari í samstarf við erlenda
háskóla.“ Þetta séu því spennandi
tímar fyrir rannsóknarfólk og falli
vel að öðrum rannsóknum sem eru í
gangi í eðlisfræði í Háskólanum.
Hann segir hálfleiðararannsóknir
orðnar mikilvægari en áður og það
líti út að auðveldara verði að búa til
og þróa örtækni. Tilkoma tækisins
bæti því stöðu Íslands á sviði ör-
tækni.
Undirrituðu samstarfssamning
Í febrúar á síðasta ári var sam-
starfssamningur á milli Háskóla Ís-
lands og Konunglega tækniháskól-
ans, KTH, undirritaður. Sveinn
segir að við það tækifæri hafi And-
ers Flodström skoðað aðstöðu vís-
indamanna sem starfa við eðl-
isfræðirannsóknir í Háskólanum.
Hann hafi séð möguleika á að
stofna til samstarfs við HÍ og eðl-
isfræðideildin í KTH myndi færa
skólanum tæki og koma þeim í
starfhæft ástand. Einnig er stefnt
að því að einn doktorsnemi starfi að
rannsóknum í báðum skólunum.
Sveinn segir að tækin séu þegar
komin til landsins og vinna hafin
við að setja þau upp.
Dr. Flodström mun sitja ráð-
stefnu um hátæknikjarna á Íslandi
sem hefst í dag í Norræna húsinu.
Þar mun hann m.a. ræðaum sam-
starf háskólanna og hefst ráð-
stefnan klukkan 13.
Konunglegi tækniháskólinn í Svíþjóð
gefur HÍ rannsóknartæki
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Anders Flodström, rektor Konunglega tækniháskólans í Stokkhólmi, Haf-
liði P. Gíslason, prófessor við HÍ, og Sveinn Ólafsson, sérfræðingur á Raun-
vísindastofnun, við tækið sem Háskólanum var fært að gjöf.
Bætir stöðu Íslands
á sviði örtækni
JÓN Kristjánsson, heilbrigðisráð-
herra hefur í samráði við Landspít-
ala – háskólasjúkrahús (LSH)
ákveðið að breyta rekstrarformi
sjúkrahúsapóteks spítalans.
Með breytingunni verður sá hluti
rekstrarins sem telst til samkeppn-
isrekstrar skilinn frá öðrum rekstri.
„Þessi hluti rekstrarins verður
áfram rekinn sem hlutafélag, eða
hann boðinn út. Að öðru leyti verður
sjúkrahúsapótekið rekið sem hluti af
almennri starfsemi sjúkrahússins og
nú sem hefðbundið sjúkrahúsapó-
tek,“ segir í fréttatilkynningu frá
heilbrigðisráðuneytinu.
Hafa stjórn Sjúkrahúsapóteksins
ehf. og LSH ákveðið að skipa tíma-
bundna starfsnefnd til að vinna að
breytingunni, sem á að vera komin
að fullu til framkvæmda 1. júní nk.
Nefnd geri tillögu um hvað
megi færa til einkaaðila
Verkefni nefndarinnar er m.a. að
undirbúa aðgerðir vegna breytinga á
hlutafélaginu, gera tillögu um hvaða
hluta núverandi rekstrar megi færa
til einkaaðila og gera tillögu um
hvernig skipa skuli lyfjamálum í
starfsemi LSH með hliðsjón af nú-
verandi skipun þeirra mála.
Breytingar á sjúkrahúsapóteki LSH
Samkeppnisrekstur skilinn
frá annarri starfsemi
STARFSMAÐUR leikskóla í
Reykjavík sem var tímabundið
við störf þar, hefur verið
kærður fyrir kynferðisofbeldi
gegn fjögurra ára barni og er
lögreglan í Reykjavík að ljúka
rannsókn á málinu.
Málið var kært í desember
síðastliðnum. Að lokinni lög-
reglurannsókn málsins verður
tekin ákvörðun um hvort það
verður tekið til ákærumeð-
ferðar með opinberri máls-
höfðun.
Kærður
fyrir kyn-
ferðisofbeldi
gegn barni