Morgunblaðið - 10.01.2003, Síða 25

Morgunblaðið - 10.01.2003, Síða 25
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 2003 25 Í UMRÆÐUM og greinarskrifum pólitískra andstæðinga Ingibjargar Sólrúnar og Samfylkingarinnar und- anfarinn hálfan mánuð eða svo hefur mikið borið á vangaveltum um það hversu hún hafi svikið, metið stöðuna skakkt og málað sig út í horn. Hver á fætur öðrum birtast þeir, gjarnan drýldnir eða sigri hrósandi á svip, og útlista mistök hennar og afleiki. „Hún er lúser! Hún er lúser!“ sagði síðast Pétur þingmaður Blöndal í spjall- þætti á Stöð 2 á þrettándanum,og aldrei þessu vant virtist hann heldur glaður í bragði – kannski fann hann loks sem stjórnmálamaður til ein- hverrar samkenndar með borgar- stjóranum. Í þessu sambandi er rétt að rifja upp nokkrar staðreyndir. Á Alþingi Ingibjörg Sólrún hóf sinn pólitíska feril fyrir tæpum tveimur áratugum sem borgarfulltrúi í Reykjavík. Nokkrum árum síðar var hún svo kos- in á Alþingi, og sem þingmaður vakti hún strax mikla athygli fyrir rökfestu, mælsku og hæfileika til að setja sig inn í mál – bæði meðal samherja, and- stæðinga og alls áhugafólks um póli- tík. Menn þóttust sjá að þarna væri kominn fram á sjónarsviðið stjórn- málamaður í stóru broti: pólitíkus með alvöru leiðtogahæfileika. Svona þykist fólk stundum greina í fari byrj- enda á stjórnmálasviðinu; það gerist ekki oft hér á landi, helst mætti kannski rifja upp það þegar Davíð Oddsson eða Ólafur Ragnar Gríms- son komu fyrst fram á sjónarsviðið. Í það minnsta er öruggt mál að hefði hún haldið áfram á Alþingi og í landsmálapólitík væri hún fyrir löngu komin í forystu þeirrar hreyfingar sem varð til með sameiningu þriggja eða fjögurra lítilla stjórnmálaafla sem mynduðu Samfylkinguna. Í borgarstjórn Víkur nú sögunni að sveitarstjórn- armálum. En á þeim tíma, fyrir um það bil áratug, var ástandið þannig í borgarstjórn Reykjavíkur að þar ráf- uðu um í þoku áhrifa- og valdaleysis borgarfulltrúar þriggja eða fjögurra miðju- og vinstriflokka, og höfðu gert næstum samfleytt í hálfa öld! Að vera í borgarstjórn fyrir minnihlutaflokk- ana þótti raunar fremur lítið eftir- sóknarverð staða; Sjálfstæðismenn höfðu öll völd, þeir þurftu ekkert að hafa hina með í ráðum og gerðu það sjaldnast; hin síðari ár sáust þeir helst þegar Davíð borgarstjóri hafði þá með eins og einhverjar grínfígúrur, hann vantaði einhvern til að geta beint bröndurum sínum að – svona svipað og hljómsveitarstjórar í amer- ískum spjallþáttum eru hafðir sem skotmark fyrir gamansemi stjórn- endanna. Og þótt ýmist væri reynt, jafnvel bræddir saman einhverjir samflotslistar þá gerði það minna gagn en ekkert, uns það rann upp fyr- ir mönnum að þeir yrðu að tefla fram einhverjum alvöru stjórnmálaskör- ungi gegn frægum og vinsælum borg- arstjórum Sjálfstæðismanna. Og hann fannst á Alþingi – þangað sóttu forystumenn Framsóknarflokksins og vinstriflokkanna Ingibjörgu Sól- rúnu og fólu henni að leiða þá út úr valdaleysinu. Sigurför Allir vita hvernig fór. Hún tók bar- áttusætið árið 1994. Og aftur 1998. Og enn einu sinni síðasta vor, 2002 – og þá fór fylgi Sjálfstæðismanna í sögu- legt lágmark og í raun formlega bundinn endi á valdaeinokun þeirra í borginni. Þriðja kjörtímabilið í röð geta Framsóknar- og vinstrimenn beitt sínum áhrifum, hrint stefnu sinna flokka í framkvæmd, ráðið ein- hverju. Og hvernig unnust þessir sigrar? Með því að Reykjavíkurlistinn keyrði stöðugt á vinsældum Ingibjargar Sól- rúnar, og æ meir eftir því sem leið á kosningabarátturnar eða dró saman með listunum, og mættu ýmsir sem nú tala um hana sem svikara og virð- ast halda að hún hefði aldrei náð völd- um nema í þeirra umboði, rifja upp áróðurstækni, auglýsingar og vegg- spjöld R-listans, þó ekki væri nema frá því síðasta vor: allt var keyrt á persónu og vinsældum borgarstjór- ans. Hinsvegar átti það líka að blasa við flestu hugsandi fólki að þessu samfloti undir hennar forystu hlyti senn að linna. Ætti hún til dæmis að bjóða sig fram til borgarstjóra að þremur árum liðnum? Gefa kost á sér enn eitt kjör- tímabil í sama embætti, bjóða sig fram til að sitja í allt að sextán ár? Slík slímuseta í sama embættinu getur varla talist heppileg, hvorki fyrir kjósendur né viðkomandi stjórnmála- mann. Að auki er það almennt viðhorf meðal alls þorra almennings í landinu að þörf sé á kröftum borgarstjórans í landsmálapólitík. Og í ljósi alls þessa hefði mátt ætla að samstarfsmennirn- ir í borgarstjórn sýndu þá stór- mennsku að umbera hugmyndir hennar um að fara að fikra sig í átt til landsmálanna með því að stefna á varaþingmennsku næstu árin, á með- an hún lyki ferli sínum sem borgar- stjóri. En það gerðu þeir ekki sem kunnugt er, og óþarft að ég velji þeim einkunn fyrir vikið; það gerir fólk sjálft. Næstu mánuðir Þá er komið að þætti hennar eigin flokks, Samfylkingarinnar. Ég held að allur þorri kjósenda og stuðnings- manna flokksins hafi talið það afar mikilsvert að nýta styrk og vinsældir borgarstjórans í næstu kosningum – þótt ekki væri nema til að reyna að af- stýra því að sama klíkan nái öllum völdum í landsmálunum, fjórða kjör- tímabilið í röð! Enda hefur verið alveg sama hvern maður hittir úr röðum vinstrimanna; allir hafa sagt: Við verðum að fá Ingibjörgu Sólrúnu í slaginn. Og til að mæta slíkum óskum steig formaðurinn svo fram, vafalaust í umboði flokksforystunnar, og bauð henni sæti á framboðslista. Borgarstjórinn svaraði þessu kalli flokksforystunnar og ákvað að taka slaginn, jafnvel þótt það kostaði hana embætti sitt og starf. Og nú stendur upp á Samfylkinguna að nýta hennar krafta til fulls. Og það er engin ástæða til að ætla annað en að for- maðurinn og hans nánustu samverka- menn muni sýna þá herkænsku að setja hana framar en á varamanna- bekk eins og málin hafa þróast, því að það sem máli skiptir er að vinna þann- ig sigur í kosningunum í vor að afger- andi breyting verði á landslagi ís- lenskra stjórnvalda. Eftir Einar Kárason „… allir hafa sagt: Við verðum að fá Ingibjörgu Sólrúnu í slaginn.“ Höfundur er rithöfundur. Stöðumat og herkænska Í MORGUNBLAÐINU 6. janúar sl. svarar Jón Steinar Gunnlaugsson Morgunblaðsgrein minni frá 3. jan- úar. Margar athugasemdir þyrfti að gera við svargrein Jóns, en tvær verða látnar nægja. 1. Jón Steinar les úr grein minni að ég telji málsókn Magnúsar Haf- steinssonar fréttamanns gegn sjáv- arútvegsráðherra hafa verið tilefn- islausa. Þetta er rangt. Í grein minni kemur fram skilyrt afstaða í þessa veru: ef kenning Jóns Steinars um merkingu orða ráðherrans væri rétt þá hefði ekkert tilefni verið til máls- sóknar. Jón Steinar má ekki vitna til þessarar skilyrtu afstöðu eins og hún væri óskilyrt. Þetta er því mikilvæg- ara sem grein mín dregur mjög í efa sannindi forsendunnar í skilyrðis- setningunni þe. sannindi kenningar Jóns Steinars. 2. Jón Steinar lætur sem dóms- málið hafi snúist um sérvitringslega orðnotkun ráðherrans, hvort ráð- herrann megi kalla það sviðsetningu þegar frétt er kvikmynduð. Þetta er rangt. Í útvarpsviðtalinu umdeilda gerði ráðherrann atlögu að starfs- heiðri fréttamannsins. Þetta blasir við hverjum þeim sem hlustar á við- talið og leggur venjulega merkingu í algeng íslensk orð og leggur hvers- dagslegan skilning í samhengi orð- ræðunnar. Hafi ráðherrann ekki ætl- að orðum sínum þá merkingu, sem venjulegur hlustandi leggur óhjá- kvæmilega í þau, þá bar honum að sjálfsögðu að skýra frá því opinber- lega sem fyrst og koma þannig í veg fyrir óþarfa sárindi og tjón. Að lokum: Hingað til hefur Árni Mathiesen ekkert gert til að stað- festa orðskýringar Jóns Steinars. Kannski má skilja skrif Jóns Stein- ars þannig: ef ráðherrann hefur talið brottkastsfréttina tilefni til að gera atlögu að starfsheiðri fréttamanns- ins, þá er Jón Steinar ekki sammála ráðherranum. Meðan engin staðfest- ing fæst á langsóttum orðskýringum lögmannsins hlýtur almenningur, og kannski lögmaðurinn sjálfur, að halda áfram að undrast hvers vegna ráðherrann beindi spjótum að frétta- manninum, sem tók að sér að vera boðberi slæmra en almæltra tíðinda um veiðar á Íslandsmiðum. Skyldi það hafa skipt máli að viðkomandi fréttamaður hafði á öðrum vettvangi gagnrýnt núgildandi kvótakerfi? Mega vinir kerfisins einir tala upp- hátt um galla þess? Starfsheiður varinn fyrir dómi Eftir Jónas Ólafsson Höfundur er kerfisfræðingur. „Jón Steinar lætur sem dómsmálið hafi snúist um sérvitr- ingslega orðnotkun.“ MIKILL kraftur hefur verið í uppbyggingu stúdentagarða Fé- lagsstofnunar stúdenta á allra síð- ustu árum. 78 í einstaklingsíbúðir voru teknar í notkun á árunum 1998 og 1999 og nú í haust voru fyrstu 30 íbúðir nýs stúdentagarðs við Eggertsgötu 24 tilbúnar. Voru það fyrstu 30 íbúðirnar af 124 en áætlað er að afhenda þær síðustu í september á þessu ári. Auk þess opnaði Garðabær 24 námsmanna- íbúðir í samstarfi við Félagsstofnun sem er í samræmi við stefnu Stúd- entaráðs um að bjóða námsmönn- um ódýrar íbúðir í öðrum sveit- arfélögum. Önnur nágranna- sveitarfélög Reykjavíkur hafa einnig skoðað þann möguleika að reisa slíkar íbúðir fyrir stúdenta með sama rekstrarfyrirkomulagi. Er hér um hreina viðbót að ræða og kemur ekki niður á frekari upp- byggingu stúdentagarða í eigu Fé- lagsstofnunar. Þegar hinum nýja stúdentagarði á Eggersgötu 24 er lokið eru blikur á lofti varðandi áframhaldandi upp- byggingu stúdentagarða Félags- stofnunar. Land, sem Félagsstofn- un, hefur til umráða á Háskólalóðinni, er fullnýtt og hafa því forsvarsmenn Stúdentaráðs og Félagsstofnunar leitað að heppileg- um lóðum í nágrenni Háskólans. Hafa þeir fengið augastað á svo- kölluðum Barónsreit við Hverfis- götu til að reisa þar stúdentagarð. Bygging stúdentagarðs í miðborg Reykjavíkur er framsækin hug- mynd og binda stúdentar miklar vonir við að af þeirri framkvæmd verði. Því voru mikil gleðitíðindi þegar borgarstjóri skrifaði undir viljayfirlýsingu, í síðustu sveitar- stjórnarkosningum, um að lóðin yrði notuð undir stúdentagarð. Þó að skýr vilji hafi komið fram um að byggja stúdentagarð í miðbænum var ljóst að Reykjavíkurborg þyrfti að leysa mörg tæknileg atriði áður en Félagsstofnun gæti hafið bygg- ingu garðs. T.d. er nauðsynlegt að leysa bílastæðavandamál sem fylgja byggingum í miðbænum. Nokkrar viðræður hafa farið fram um málið en nú er svo komið að fulltrúar stúdenta eru orðnir langeygir eftir raunhæfum úrlausnum til að af byggingu garðsins geti orðið. Mjög hastar á að þessi mál fari að skýrast enda húsnæðisvandi margra stúdenta mikill. Í upphafi þessa skólaárs voru t.a.m. 600 stúd- entar á biðlistum hjá Stúdentagörð- um Félagsstofnunar og útlit er fyr- ir að sá listi lengist á næstu árum samfara fjölgun nemenda við H.Í. Stúdentar H.Í. treysta á að vilja- yfirlýsing fráfarandi borgarstjóra standi og bygging stúdentagarðs í hjarta borgarinnar verði að veru- leika. Nýr og glæsilegur stúdenta- garður, á þessum stað, myndi án efa treysta miðborgina og veita mótvægi gagnvart umræðu um hnignandi miðborg. Í þessu máli fara því hagsmunir borgarinnar og stúdenta saman þar sem miðbærinn yrði gæddur meira lífi jafnframt því sem bætt yrði úr húsnæðisvanda fjölmargra stúdenta. Ályktun þessa efnis var samþykkt í hagsmuna- nefnd Stúdentaráðs á dögunum enda hafa stúdentar tekið þessum hugmyndum fagnandi. Stúdenta- garður í miðbænum er skemmti- legur valmöguleiki sem ráðamenn ættu að stuðla að í hvívetna. Stúdentagarðar í miðbænum Eftir Guðjón Ármannsson Höfundur er formaður hagsmunanefndar SHÍ. „Stúdentar HÍ treysta á að vilja- yfirlýsing fráfarandi borgarstjóra standi.“ AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.