Morgunblaðið - 14.01.2003, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 12. TBL. 91. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 2003 mbl.is
Á sviðinu
í Noregi
Leikarinn Þórir Sæmundsson
haslar sér völl ytra Listir 23
Ólöf María Jónsdóttir í atvinnu-
golf í Bandaríkjunum Íþróttir 1
Fiðrildin
á filmu
Þekktur framleiðandi kvikmyndar
Slóð fiðrildanna Fólk 46
VILHELM Þorsteinsson EA, fjölveiðiskip Samherja,
kemur til Grindavíkur um hádegisbil í dag með full-
fermi af loðnu, alls um 2.600 tonn. Skipið var á veið-
um fyrir austan land, um 90 sjómílur austur af
Glettinganesi. Að sögn Arngríms Brynjólfssonar
skipstjóra gekk veiðin vel, þótt ekki hafi orðið vart
við mikið af loðnu á svæðinu. „Veiðin var á svip-
uðum slóðum og á sama tíma í fyrra en þó heldur
norðar.“ Um 15 nóta- og togskip voru á svæðinu
þegar mest var síðustu daga og var afli þeirra mis-
jafn.
54.000 tonn
Loðnuaflinn frá áramótum er nú orðinn um
54.000 tonn og hafa veiðarnar gengið mjög vel í
góðu veðri. Tilkynnt var um 18.500 tonna afla til
Samtaka fiskvinnslustöðva frá föstudegi til mánu-
dags. Loðnunni er landað víða um landið, allt frá
Akranesi í suðvestri og austur og norður um til
Siglufjarðar. Mestu af loðnu hefur verið landað hjá
SR-mjöli á Seyðisfirði, 10.500 tonnum og 9.500
tonnum hjá Síldarvinnslunni í Neskaupstað.
Loðnuveiðin gengur vel í góðu veðri fyrir austan land
Skipverjar taka trollið á miðunum austur af Vopnafirði í gær. Á myndinni eru Unnsteinn Sigurgeirsson,
Trausti Hákonarson, Guðmundur Fr. Sigurðsson, Örn Guðmundsson og Brynjar Jacobsen.
Með fullfermi
til Grindavíkur
Glettinganesgrunni. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Kristján
Loðna í stríðum straumum: Trausti Hákonarson
stendur við skiljuna um borð í Vilhelm Þorsteins-
syni EA. Niðri á dekki eru þeir Gunnar Gunnarsson
og Örn Guðmundsson að gera klárt fyrir næsta hol.
HALLDÓR
Ásgrímsson
utanríkisráð-
herra segist
ekki hafa
neina ástæðu
til að ætla að
samningar
náist við Evr-
ópusambandið um aðlögun EES-
samningsins að stækkun sam-
bandsins á tilsettum tíma í apríl.
Halldór segir að fyrsti samninga-
fundur ESB og EFTA-ríkjanna í
síðustu viku hafi staðfest að samn-
ingarnir verði mjög erfiðir.
„Evrópusambandið hefur ekki
dregið úr kröfum sínum og það
liggur jafnframt fyrir að það er
ekki verið að bjóða þessum ríkjum
[EFTA-ríkjunum] meiri aðgang að
samvinnunni á nokkurn hátt held-
ur fyrst og fremst krefja um meiri
greiðslur án þess að neitt nýtt
komi í staðinn. Að því er varðar að-
gang að mörkuðum hefur ekkert
nýtt komið fram,“ segir Halldór.
Hann segir Ísland ekki eiga ann-
an kost en að halda áfram að vinna
að málinu á grundvelli samningsins
um Evrópska efnahagssvæðið.
„Það er engin leið að segja til um
niðurstöðuna. Það er stefnt að því
að ljúka samningum í apríl en ég
hef enga ástæðu til að ætla að það
muni takast.“
Vont ef staðfesting frestast
Stefnt er að því að breytingin á
samningnum um Evrópska efna-
hagssvæðið verði staðfest á þjóð-
þingum ESB-ríkjanna samhliða
fjölgun aðildarríkja. Aðspurður
hvaða áhrif tafir á samningavið-
ræðunum myndu hafa á það ferli
sagði utanríkisráðherra að vissu-
lega gæti það haft slæm áhrif.
„Upphafspunktur samningavið-
ræðna er hins vegar með þeim
hætti að það er lítil ástæða til
bjartsýni. Tafir gætu aftur á móti
skapað mikla erfiðleika varðandi
staðfestingu og það er líka vondur
kostur.“
„Engin ástæða“ til að ætla
að semjist um EES í apríl
Utanríkisráðherra er svartsýnn
á gang viðræðna við ESB
Má ekki rugla/10
Halldór Ásgrímsson
KARLMAÐUR, sem talinn er elsta fót-
boltabullan í Bretlandi, var í gær dæmdur
til fimm ára fangelsisvistar fyrir að hafa
hvatt til óeirða á leikvangi Lundúnaliðsins
Millwall 2. maí í fyrra þegar liðið mætti
Birmingham. Breskar fótboltabullur eru
venjulega menn á tvítugs- og þrítugsaldri
en Everest er hins vegar 56 ára gamall.
Dómarinn, Philip Statman, sagði við
dómsuppkvaðninguna að Everest ætti sér
engar málsbætur. „Þú ert elstur þeirra
sem voru handteknir. Þú hefur aldrei sýnt
neina iðrun. Þú hefur orðið fjölskyldu
þinni til skammar, sem og fótboltaliðinu
sem þú þykist styðja,“ sagði Statman en
Everest vann um tíma sem vallarstarfs-
maður hjá Millwall.
Everest var einnig bannað að sækja leiki
í ensku knattspyrnunni næstu átta árin.
Elsta fótbolta-
bullan í grjótið
London. AFP.
TONY Blair, forsætisráðherra Bretlands,
lagði á blaðamannafundi í gær áherslu á
mikilvægi þess að Sameinuðu þjóðirnar
tækju þátt í að setja Saddam Hussein
Íraksforseta stólinn fyrir dyrnar. En þrátt
fyrir mikinn þrýsting í Verkamannaflokki
ráðherrans gekk hann ekki svo langt að
segja að árás kæmi einvörðungu til mála ef
SÞ samþykktu aðgerðina.
„Hvað sem gerist mun Saddam verða af-
vopnaður,“ sagði ráðherrann. „Við erum al-
gerlega staðráðnir í að sjá til þess.“ Blair
sagði jafnframt að þeir sem legðu fram til-
lögu um ályktun þar sem árás væri sam-
þykkt myndu ekki láta það stöðva sig ef
eitthvert ríki, þrátt fyrir sannanir um brot
Íraka, „kæmi fram með óskynsamlegar eða
einhliða hömlur á aðgerðir“.
Ari Fleischer, talsmaður George W. Bush
Bandaríkjaforseta, sagði í gær að forsetinn
hefði ekki enn ákveðið nákvæma tímasetn-
ingu árásar ef til hennar kæmi. Forsetinn
teldi sem fyrr mikilvægt að eftirlitsmenn-
irnir lykju verki sínu og fengju til þess næg-
an tíma.
Blair hvik-
ar hvergi
London, Washington. AP, AFP.
Vopnaleitin/15
FIMM menn sækjast nú eftir því að verða
forsetaefni demókrata í Bandaríkjunum árið
2004. Joseph I. Lieberman, varaforsetaefni
Al Gore árið 2000, gaf kost á sér í gær.
„Ég er reiðubúinn til að lýsa því yfir að ég
gef kost á mér í embætti forseta Bandaríkj-
anna og ég ætla að sigra,“ sagði Lieberman á
fundi í gamla framhaldsskólanum sínum í
Stamford í Connecticut-ríki. Hann var árum
saman öldungadeildarþingmaður fyrir ríkið.
Lieberman fram
Reuters
Stamford í Connecticut. AFP.
Yrði/16
♦ ♦ ♦
BANDARÍSKA álfyrirtækið Alcoa,
sem stofnað hefur Fjarðaál sf. til að
reisa álver í Reyðarfirði, útilokar
ekki frekari fjárfestingar hér á
landi, einkum í tengdum iðnaði og
þjónustugreinum þegar álverið tek-
ur til starfa árið 2007. Þetta kemur
m.a. fram í viðtali við talsmann Al-
coa, Jake Siewert, sem staddur er
hér á landi til viðræðna við ýmsa að-
ila.
Siewert segir að álver Fjarðaáls
verði hið fullkomnasta og umhverf-
isvænsta sem Alcoa hafi reist til
þessa, og í raun fyrsta álverið sem
fyrirtækið hafi reist frá grunni í ein
20 ár. Það geti einnig orðið hið dýr-
asta sem Alcoa hafi reist, en reiknað
er með 1,1 milljarðs dollara bygging-
arkostnaði, eða tæpum 90 milljörð-
um króna. Siewert segir ennfremur
ljóst að Alcoa muni eiga talsverð við-
skipti við verktaka og þjónustufyr-
irtæki á Austfjörðum og víðar.
Borgarstjóri hittir Alcoa-menn
Jake Siewert mun ásamt fleiri
fulltrúum Alcoa m.a. hitta Ingi-
björgu Sólrúnu Gísladóttur borgar-
stjóra í dag, sem og Þórólf Árnason,
verðandi borgarstjóra. Borgarstjórn
tekur ákvörðun á fundi sínum á
fimmtudag um ábyrgðir á láni
Landsvirkjunar vegna Kárahnjúka-
virkjunar, sem ætlað er að selja ál-
veri Alcoa raforku.
„Við höfum verið að fylgjast með
fréttum um borgarstjórnina og vilj-
um fá að kynnast sjónarmiðum
borgarstjóra. Líkt og á öðrum fund-
um sem við eigum munum við fara
fram á stuðning við okkar áform. Við
viljum að verkefnið nái fram að
ganga eins hratt og mögulegt er. Al-
coa hefur tekið sína ákvörðun í mál-
inu en eftir er að taka ýmsar ákvarð-
anir hér á landi, sem við viljum afla
okkur upplýsinga um,“ segir Sie-
wert.
Alcoa úti-
lokar ekki
frekari fjár-
festingar
Gæti orðið/26–27
♦ ♦ ♦
Draumur
rætist