Morgunblaðið - 14.01.2003, Blaðsíða 41
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 2003 41
HUGRÆKTARNÁMSKEIÐ
GUÐSPEKIFÉLAGSINS
hefst fimmtudaginn 16. janúar nk. kl. 20.30 í húsa-
kynnum félagsins í Ingólfsstræti 22.
Námskeiðið verður vikulega á sama tíma í þrettán skipti
frá janúar til apríl 2003 og er í umsjá Jóns L. Arnalds (3),
Önnu S. Bjarnadóttur (2), Sigurðar Boga Stefánssonar
(2), Birgis Bjarnasonar (2), Jóns Ellerts Benediktssonar
(2), og Bjarna Björgvinssonar (2),
Fjallað verður um mikilvæga þætti hugræktar, hugleiðing-
ar og jóga.
Námskeiðið er öllum opið og fer skráning fram við upphaf
þess. Námskeiðið er ókeypis fyrir félagsmenn en kostar
í heild kr. 2.700 fyrir utanfélagsmenn.
Upplýsingar í síma 694 2532. www.gudspekifelagid.is
Aðeins það besta
fyrir andlit þitt
Estée Lauder andlitsmeðferðin miðar öll að því að veita þér slökun og
dekra við þig - allt frá vandvirkri hreinsun húðarinnar að yndislega
róandi nuddinu.
Nútímaleg húðumhirða okkar vinnur gegn vandamálum sem stafa af
þurri húð eða feitri, hrukkum, slælegri blóðrás, þreytulegri húð og
öðru sem hrjáir húðina. Öll er meðferðin umvafin ljúfri munúð og
slökun.
Veittu þér andlitsmeðferð eins og þær gerast bestar og sjáðu hvað
svolítið dekur gerir húðinni gott.
Það kostar aðeins kr. 2.500.
Hringdu og pantaðu tíma.
Síminn er 552 4045.
Snyrtiklefi
www.lyfja.is
Laugavegi, sími 552 4045.
Stefnuþing, þorrablót og opn-
unarhátíð verður hjá Samfylking-
unni í Suðurkjördæmi laugardaginn
18. janúar í menningar- og listahús-
inu Hólmaröst á Stokkseyri. Kl. 15
er stefnuþing flokksins og kl. 18 er
opnunarhátíðin og sýning á lista-
verkinu Brennið þið vitar eftir lista-
manninn Elfar Guðna við tónsmíðar
Páls Ísólfssonar. Á eftir verður hús-
ið skoðað undir leiðsögn Björns Inga
Björnssonar. Þorrablótið hefst kl.
19. Miðaverð á þorrablótið er 2.000
kr. Láta þarf vita í síðasta lagi á
fimmtudaginn 16. janúar á net-
fangið: bgs@samfylking. Allir
stuðningsmenn flokksins velkomnir.
STJÓRNMÁL
Málstofa um stöðu smáríkja í Evr-
ópusambandinu og áhrif þeirra á
ákvarðanatöku í stofnunum sam-
bandsins verður haldin á morgun,
miðvikudaginn 15. janúar, kl. 12.15–
13.30, í hátíðasal Háskóla Íslands í
aðalbyggingu skólans. Málshefjendur
verða Stefán Már Stefánsson pró-
fessor við lagadeild HÍ og Baldur
Þórhallsson dósent í stjórnmálafræði
við félagsvísindadeild HÍ. Fund-
arstjóri er Björg Thorarensen, pró-
fessor við lagadeild HÍ.
Á málstofunni verður fjallað um
hverjir yrðu möguleikar Íslands til að
hafa áhrif á ákvarðanatöku sem varð-
ar hagsmuni þess hjá stofnunum
ESB ef það gengi í sambandið miðað
við stöðu smærri ríkja í sambandinu í
dag og hver yrðu helstu vandamál í
því sambandi. Einnig verður tekist á
við spurninguna hvort áhrif og hags-
munir Íslands verði betur tryggðir
með ESB-aðild og framsali fullveldis
til stofnana sambandsins heldur en
með núverandi aðild að samningnum
um Evrópska efnahagssvæðið. Að
loknum erindum málshefjenda verða
fyrirspurnir og umræður. Málstofan
er opin öllum sem áhuga hafa á efn-
inu.
Náttúrufræðistofnun verður með
opin fræðsluerindi, sem verða á
dagskrá fram til vors. Erindin eru að
jafnaði annan hvern miðvikudag og
eru haldin í sal Möguleikhússins á
Hlemmi. Þau hefjast kl. 12.15. Fyrsta
erindið er á dagskrá á morgun, 15.
janúar, en þá fjallar Sigurður H.
Magnússon um þungmálmamælingar
í mosum og loftmengun. Nánari upp-
lýsingar er að finna í viðhengi og á
heimasíðu stofnunarinnar: www.ni.is
Á MORGUN
Námskeið fyrir skógarbændur
verður haldið laugardaginn 18. jan-
úar í grunnnámskeið í skógrækt fyr-
ir skógarbændur á Suðurlandi í
húsakynnum Garðyrkjuskóla rík-
isins, Reykjum í Ölfusi. Um er að
ræða samstarfsverkefni skólans og
Suðurlandsskóga.
Námskeiðið stendur frá kl. 10 til 16.
Leiðbeinendur verða starfsmenn
Suðurlandsskóga, þau Björn B.
Jónsson, Hallur Björgvinsson og
Harpa Dís Harðardóttir ásamt
Böðvari Guðmundssyni, skógrækt-
arráðunauti Skógræktar ríkisins á
Suðurlandi. Á námskeiðinu verður
m.a. fjallað um grundvallaratriði og
skipulag bændaskógræktar, skilyrði
fyrir þátttöku, undirbúning slíkrar
ræktunar, skipulag og áætlanagerð,
ólíkar ræktunaráherslur m.t.t.
ólíkra búskaparhátta, notkun gróð-
urkorta, landslagsformun, plöntu-
framleiðslu, plöntuval, ræktunar-
aðferðir, íbætur/umhirðu, eftirlit og
ráðgjöf. Skráning og nánari upplýs-
ingar fást á skrifstofu Garðyrkju-
skólans eða á heimasíðu hans, www.
reykir.is.
Garðyrkjuskólinn stendur fyrir
námskeiðinu „Tré og runnar – fróð-
leikur og þekking“ sem haldið verð-
ur í húsakynnum skólans föstudag-
inn 24. janúar kl. 9–16. Námskeiðið
er hugsað fyrir ófaglært starfsfólk
garðyrkju- og umhverfisdeilda og
aðra, sem áhuga hafa á viðfangsefn-
inu. Leiðbeinandi verður Kristinn H.
Þorsteinsson, garðyrkjustjóri Orku-
veitu Reykjavíkur og stundakennari
við Garðyrkjuskólann. Farið verður
yfir öll helstu atriði varðandi þekk-
ingu á trjám og runnum og með-
höndlun á einstökum tegundum með
tilliti til notkunar. Skráning og nán-
ari upplýsingar fást á skrifstofu
skólans eða á heimasíðu hans,
www.reykir.is.
Á NÆSTUNNI
STJÓRNENDASKÓLI Háskólans í
Reykjavík og Fræðslumiðstöð
sparisjóðanna hafa þróað sérstakt
nám á háskólastigi fyrir starfsmenn
sparisjóðanna sem kallað er Spar-
nám. Sparnám er viðskiptanám á
háskólastigi og er sérsniðið fyrir
þarfir sparisjóðanna og er meg-
ináherslan á fjármál, markaðs-
fræði, stjórnun og starfsmanna-
stjórnun. Námið tekur yfir tvær
annir og er samtals 150 klst. Nýver-
ið útskrifuðust 24 starfsmenn úr
Sparnámi.
Útskriftarnemar ásamt fulltrúum Fræðslumiðstöðvar sparisjóðanna og
Háskólans í Reykjavík.
Sparnám
RÆÐISMANNSDEILD sendi-
ráðs Bandaríkjanna verður lok-
uð vegna byggingaframkvæmda
frá 3. til 18. febrúar næstkom-
andi.
Þeim sem eiga erindi við
deildina vegna áritana, útgáfu
bandarískra vegabréfa eða ann-
arra mála er vinsamlega bent á
að þessa daga verða einungis af-
greidd mál í sérstökum neyðar-
tilvikum. Þar af leiðandi verða
allar umsóknir um áritanir og
vegabréf sem æskilegt er að séu
afgreiddar fyrir 24. febrúar nk.
að berast sendiráðinu í síðasta
lagi mánudaginn 27. janúar.
Frekari upplýsingar um lok-
unina má finna á vefslóð sendi-
ráðsins www.usa.is, segir í frétt
frá sendiráðinu.
Bandaríska
sendiráðið
Ræðismanns-
deild lokuð
3.–18. febrúar