Morgunblaðið - 14.01.2003, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 14.01.2003, Blaðsíða 15
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 2003 15 MOHAMED ElBaradei, yfirmaður Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinn- ar (IAEA), sagði í gær að eftirlits- menn Sameinuðu þjóðanna þyrftu nokkra mánuði í viðbót til að ljúka vopnaleitinni í Írak. Fyrr um daginn var haft eftir talsmanni stofnunar- innar að „trúverðug vopnaleit“ í Írak myndi taka um það bil ár. Richard Perle, háttsettur ráðgjafi Bandaríkjastjórnar í varnarmálum, segir hins vegar að eftirlitsmenn Sameinuðu þjóðanna hafi „enga möguleika“ á að finna meint gereyð- ingarvopn Íraka vegna þess að þau séu falin og stríð sé óhjákvæmilegt láti þeir þau ekki af hendi. Fréttavefur BBC hafði í gær eftir talsmanni kjarnorkumálastofnunar- innar, Mark Gwozdecky, að ElBar- adei og Hanx Blix, formaður vopna- eftirlitsnefndar Sameinuðu þjóð- anna, hefðu lengi verið þeirrar skoðunar að vopnaleitin tæki marga mánuði. „Við teljum að við þurfum um það bil ár til að ljúka trúverðugri rann- sókn,“ var haft eftir Gwozdecky. „Þetta er mjög stórt land og rann- saka þarf margar byggingar.“ Gwozdecky sagði að í mörgum til- vikum þyrftu eftirlitsmennirnir að rannsaka byggingarnar nokkrum sinnum til að ganga úr skugga um hvort þær séu notaðar til að fram- leiða gereyðingarvopn. Hann kvaðst hins vegar vera vongóður um að eft- irlitsmenn IAEA gætu upplýst hvort Írakar hefðu þróað kjarna- vopn. „Er það ekki þess virði að bíða til að hægt verði að tryggja varanlega og friðsamlega lausn á vanda- málinu?“ Gert er ráð fyrir því að ElBaradei og Blix afhendi öryggisráði Samein- uðu þjóðanna skýrslu 27. þessa mán- aðar um árangurinn af vopnaleit IAEA og eftirlitsnefndarinnar frá því að hún hófst fyrir tveimur mán- uðum. ElBaradei kvaðst í gær ekki líta svo á að rannsókninni myndi ljúka 27. janúar og sagði að eftirlitsmenn- irnir þyrftu að halda henni áfram í „nokkra mánuði“ til viðbótar. „Vita ekki hvar þeir eiga að leita“ Richard Perle, formaður stefnu- mótunarnefndar bandaríska varnar- málaráðuneytisins, kvaðst hins veg- ar telja að eftirlitsmennirnir hefðu enga möguleika á að finna meint kjarna-, efna- og sýklavopn Íraka nema þeir vissu nákvæmlega hvar þeir ættu að leita. „Þeir hafa farið aftur á staði sem þeir hafa þegar skoðað vegna þess að þeir vita ekki hvar þeir eiga að leita annars stað- ar.“ Perle sagði að Írakar ættu ger- eyðingarvopn en hefðu falið þau. Stríð væri óhjákvæmilegt ef þeir létu ekki vopnin af hendi og Banda- ríkjastjórn væri tilbúin að hefja hernað án stuðnings annarra ríkja ef þörf krefði. „Mér sýnist að annaðhvort af- hendi Saddam vopnin á síðustu stundu eða að hernaður hefjist,“ hafði BBC eftir Perle. Bandaríkjastjórn fyrirskipaði á föstudag að 62.000 hermenn til við- bótar yrðu sendir á Persaflóasvæðið á næstu vikum. Gert er ráð fyrir því að yfir 150.000 bandarískir hermenn verði á svæðinu um miðjan næsta mánuð. Bandarískar og breskar herþotur vörpuðu í gær sprengjum á hern- aðarmannvirki nærri borginni Basra í Norður-Írak en þessar aðgerðir voru að sögn framkvæmdar sökum þess að herskipum Vesturveldanna á Persaflóa stafaði ógn af flug- skeytapöllum, sem þarna voru. Aðeins 13% Breta hlynnt hernaði án samþykkis SÞ Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, kvaðst í gær vera sann- færður um að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna myndi samþykkja hernað í Írak ef landið reyndist hafa brotið gegn ályktun ráðsins um afvopnun. Bandaríkjamenn og Bretar áskildu sér þó rétt til að láta til skarar skríða ef reynt yrði að hindra sam- komulag innan ráðsins um að heim- ila valdbeitingu. Mikil andstaða er innan breska Verkamannaflokksins við hugsan- legan hernað í Írak og Blair hefur verið gagnrýndur fyrir fylgispekt við stefnu George W. Bush Banda- ríkjaforseta í Íraksmálinu. Samkvæmt skoðanakönnun, sem gerð var fyrir breska sjónvarpið ITV, eru 58% Breta ekki sannfærð um að heimsbyggðinni stafi hætta af meintum gereyðingarvopnum Íraka. 61% aðspurðra sögðust þó telja að tengsl væru á milli Íraka og hryðju- verkasamtakanna al-Qaeda. Ef marka má könnunina eru að- eins 13% Breta hlynnt því að breski herinn taki þátt í hugsanlegum hernaði í Írak láti Bandaríkjamenn til skarar skríða án samþykkis ör- yggisráðs Sameinuðu þjóðanna. 53% sögðust hins vegar myndu styðja þátttöku Breta í hernaðinum ef ör- yggisráðið heimilaði valdbeitingu. Tæpur þriðjungur Breta er and- vígur hernaði í Írak, hvort sem ör- yggisráðið samþykkir hann eða ekki. Vopnaleitin í Írak sögð taka nokkra mánuði Ráðgjafi Banda- ríkjastjórnar segir „enga möguleika“ á að eftirlitsmennirnir finni vopnin Nikósíu, Bagdad. AFP. Reuters Breska flugmóðurskipið Ark Royal á siglingu í Skotlandi en það er nú á leið til Persaflóa, þar sem því verður beitt ef til hernaðarátaka kemur. Richard Perle Mohamed ElBaradei NÁÐST hefur samkomulag milli stjórnarflokkanna á Græn- landi, Siumut og IA eða Inuit Ataqatigiit, að halda samstarf- inu áfram. Varð Siumut að vinna það til að reka Jens Lyberth ráðuneytisstjóra en hann hneykslaði marga um jólin er hann lét særingamann reka illa anda út úr stjórnarráðsbygging- unum í Nuuk. Í síðustu viku virtist sem sam- starf flokkanna væri búið og IA átti þá í viðræðum um nýja stjórn við borgaraflokkinn At- assut. Um helgina náðu hins vegar stjórnarflokkarnir saman aftur. Hans Enoksen, leiðtogi Siumut, féllst þá á þá kröfu Jos- efs Motzfeldts, leiðtoga IA, að Lyberth og tveir aðrir Siumut- menn, sem skipaðir höfðu verið í góð embætti, yrðu látnir fara. Milosevic veikur DÓMARAR við stríðsglæpa- dómstól Sameinuðu þjóðanna í Haag í Hollandi úrskurðuðu í gær að læknar skyldu gera frekari rann- sóknir á Slobodan Milosevic, fyrrverandi forseta Júgóslavíu, en fresta varð réttar- höldunum yfir Milosevic í gær vegna krankleika hans. Áður hefur þurft að gera hlé á rétt- arhöldunum vegna heilsuleysis Milosevic, en í fyrra sögðu læknar hann hafa háan blóð- þrýsting og að hætta væri á að hann fengi hjartaáfall. Trufla bylgj- ur fuglana? BRESKIR vísindamenn telja að rafsegulbylgjur frá farsíma- stöðvum geti átt þátt í því að gráspörvum hefur fækkað um 75% í London síðustu sjö árin en illa hefur gengið að finna skýr- ingu á því. Rosie Cleary, sem stýrir rannsókn á fuglastofnin- um, segir í viðtali við The Guardian að fækkunin hafi orðið samtímis því sem farsímanetið þandist út. Kannanir hafa sýnt að bylgjurnar hafa slæm áhrif á tímgun og geta því verið orsök- in, að sögn Cleary. Rafsegul- bylgjur hafa slæm áhrif á heilsu ýmissa lítilla spendýra og geta skaðað getu fugla til að rata. Danskir prest- ar fluttir út SVÍAR reyna nú að lokka at- vinnulausa Dani úr prestastétt til starfa hinum megin Eyrar- sunds en í Svíþjóð er skortur á prestum. Þetta gera þeir m.a. með því að halda fyrirlestra í Danmörku og bjóða dönskum prestum í rútuferðir til Svíþjóð- ar. Danska prestafélagið er ánægt með þessa þróun enda var í nóvember sl. tíundi hver prestur þar atvinnulaus, eða alls 157. Helmingur þeirra var innan við fertugt. Í Þýskalandi er einnig prestaskortur og Berl- ingske Tidende segir því hugs- anlegt, að útrás danskra presta nái þangað líka. STUTT Sama stjórn í Grænlandi Slobodan Milosevic BRESKA lögreglan hefur handtekið sex manns til viðbótar vegna gruns um hryðjuverkastarfsemi eftir að banvænt eitur, rísín, fannst í íbúð í London í vikunni sem leið, að sögn breskra fjölmiðla í gær. Sérsveit lögreglunnar um varnir gegn hryðjuverkum handtók fimm karlmenn og konu í Bournemouth á suðurströnd Englands á sunnudag. Bresk yfirvöld sögðu aðeins að sex- menningarnir hefðu verið handtekn- ir vegna „yfirstandandi rannsóknar“ og staðfestu ekki að handtökurnar tengdust rísín-málinu. Talsmaður lögreglunnar sagði að lögreglumenn og sérfræðingar frá London hefðu rannsakað tvær íbúðir í Bournemouth en ekki fundið nein grunsamleg efni. Sjö menn voru handteknir í Lond- on í vikunni sem leið eftir að rísín fannst í íbúð í borginni. Fjórir mann- anna, allir ættaðir frá Norður-Afr- íku, komu fyrir dómara í gær og voru ákærðir fyrir að hafa tekið þátt í þró- un eða framleiðslu efnavopna og að hafa átt „hluti til að fremja eða und- irbúa hryðjuverk“. Mennirnir fjórir – Samir Feddag, 26 ára Alsírbúi, átján ára bróðir hans, Mouloud Feddag, Mustapha Taleb, 33 ára, og sautján ára ung- lingur sem ekki má nafngreina af lagalegum ástæðum vegna aldurs hans – voru dæmdir í gæsluvarðhald þar til þeir koma aftur fyrir rétt á föstudaginn kemur. Fimmti maðurinn var ákærður fyrir falsanir en hinir mennirnir tveir voru handteknir fyrir að hafa dvalið í Bretlandi án landvistarleyfis. Baráttan gegn hryðjuverkum Fleiri handtök- ur í Bretlandi London. AP. LUCIA Gentile, ekkja Leopoldos Galtieris, fyrrverandi stjórn- arherra í Argentínu, kveður eig- inmann sinn hinstu kveðju í gær en Galtieri lést á sunnudag, 76 ára að aldri. Með henni á myndinni er Julio Galtieri, sonur hennar (t.h.), og Ric- ardo Brinzoni, yfirmaður argent- ínska heraflans (t.v.), en útför Galt- ieris fór fram í Buenos Aires í gær. Galtieri var einn leiðtoga hers- höfingjastjórnarinnar, sem fór með völdin í Argentínu á árunum 1976– 1983, og það var hann sem gaf út skipunina um innrás Argentínuhers í Falklandseyjar árið 1982. Reuters Galtieri kvaddur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.