Morgunblaðið - 14.01.2003, Qupperneq 2
FRÉTTIR
2 ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Verð á mann frá 19.800 kr.
þegar bókað er á www.icelandair.is
www.icelandair.is
Netsmellur - alltaf ódýrast á Netinu
Flugsæti á broslegu verði
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
IC
E
19
89
0
01
/2
00
3
SVARTSÝNN Á VIÐRÆÐUR
Halldór Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra er svartsýnn á gang við-
ræðna við Evrópusambandið um að-
lögun EES-samningsins að stækkun
ESB og telur ástæðulaust að halda
að samningar náist fyrir tilsettan
tíma í apríl. Segir hann ESB ekkert
hafa dregið úr kröfum sínum um
aukin framlög í þróunarsjóði.
Blair hótar Saddam
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, sagði í gær að séð yrði til
þess að Saddam Hussein Íraks-
forseti afsalaði sé gereyðingar-
vopnum sínum. Margir liðsmenn
Verkamannaflokksins vilja gera að
skilyrði fyrir þátttöku Breta í árás á
Írak að Sameinuðu þjóðirnar sam-
þykki hana en Blair tók ekki undir
það sjónarmið.
Frekari fjárfesting 2007?
Jake Siewert, talsmaður Alcoa,
sem hyggst reisa álverksmiðju á
Reyðarfirði, útilokar ekki frekari
fjárfestingar hér á landi eftir að ál-
verið tekur til starfa árið 2007. Segir
hann Alcoa munu eiga talsverð við-
skipti við verktaka og þjónustufyr-
irtæki á Austfjörðum og víðar.
Flugumferð minnkar
Flugumferð um íslenska flug-
stjórnarsvæðið var 9% minni í fyrra
en árið 2001. Mikil aukning varð
samt í nóvember, 26%, borið saman
við nóvember 2001. Talsmaður Flug-
málastjórnar segir margt benda til
þess að umferðin fari nú að aukast á
ný.
Yardbirds til Íslands
Breska hljómsveitin The Yard-
birds heldur tónleika í Reykjavík 20.
mars. Sveitin var upphaflega stofn-
uð 1963 og endurreist 1992. Gítar-
leikararnir Eric Clapton, Jeff Beck
og Jimmy Page störfuðu allir með
Yardbirds á sínum tíma.
Offitan dýr fyrir kerfið
Kostnaður heilbrigðiskerfisins
vegna offitu hefur margfaldast en
meðferðarúrræði eru fá hér á landi.
Fólk er farið að borða meira og
hreyfa sig minna. Eina ráðið gegn
vandanum er breyting á lífsstíl, að
sögn sérfræðinga sem taka þátt í
fundum Læknadaga.
Þriðjudagur
14. janúar 2003
Prentsmiðja
Morgunblaðsins blað C
Stjórnbúnaður
fyrir
varmaskipta
Kaupþing býður þér persónulega ráðgjöf um skipulag
lífeyrissparnaðar. Bankinn hefur í vörslu sinni fjölbreytt
úrval lífeyris- og séreignarsjóða. Kaupþing er því sann-
kallaður stórmarkaður í lífeyrismálum. Þar færð þú allt
á einum stað: viðbótarlífeyrissparnað, fjölbreyttar fjár-
festingarleiðir, sérfræðiráðgjöf og persónulega þjónustu.
Hafðu samband í síma 515 1500 eða komdu við í Ármúla 13
og kynntu þér víðtæka þjónustu okkar á sviði lífeyris-
mála. Einnig getur þú fengið ráðgjafa heim þegar þér
hentar.
Stórmarkaður
í lífeyrismálum
–fyrir þína hönd
Þúsundir fasteigna af öllum stærðum og öllum gerðum alls staðar á landinu
Góðsala
ífyrra
Rætt við
Guðrúnu
Árnadóttur 26
Meiralíf
ígarðinn
Sveigjanleg
hitaveiturör
Fóðurstaður
fyrir
fuglana 37
Athyglisverð
skýrsla á vegum
Orkuveitunnar 42
! "#
$!
"#
%&'()*
%&'
(
)*
!
"#
$# %&&"
,$-#."#
$!.**$
/0$12*
345"/ *
'0*0.6* *
7*12*
&$!8*
!
9#*:
$!9#*:
# *$-*
9#*:
$!9#*:
;
'
'$<( !$!*#
=$*.)0!$(>>>0*
=! .?*@;;A )
)
)
)
!+
"+
#$
()
.?@A *+
%
*
,
-
*
.
,%
.#$+$
%,/-
%
%"/&
../0
;;
1! 2
! # -#
.%# %&&"
7$!*"#
%!
$!!*
! " %!%
% ;
# #
ÞAÐ vekur ávallt athygli, þegar
þekkt húsnæði í miðborg Reykjavík-
ur kemur í sölu eða leigu. Hjá fast-
eignasölunni fasteign.is er nú til
leigu stærsti hluti Hressingarskál-
ans í Austurstræti 20. Þetta hús-
næði var áður í eigu KFUM & K, en
skipti nýlega um eigendur. Nýir eig-
endur eru eignarhaldsfélagið Sund.
Um er að ræða 460 ferm. húsnæði
á götuhæð. Húsnæðið skiptist í þrjá
veitingasali, það er tvo aðalsali og
einn minni, sem er salur til einka-
samkvæma. Auk þess fylgir vel búið
eldhús og snyrtingar. Garðurinn bak
við húsið tengist veitingasölum
hússins, en hann er mjög fallegur
með timburveröndum og góðri að-
stöðu.
Búið er að endurnýja m.a. allt raf-
magn, ofna og lagnir, glugga, gler
ásamt öllum innviðum o.fl.
„Nýir eigendur þessa sögufræga
og fallega húss óska nú eftir leigu-
tökum,“ segir Ólafur B. Blöndal hjá
fasteign.is. „Óskað er eftir tilboði í
leiguverð, en húsnæðið er laust til
afhendingar um næstu mánaðamót.“
Hús með sögu
Fá hús í miðbæ Reykjavíkur geta
státað af jafn merkilegri sögu og
þetta hús. Það var upphaflega reist
árið 1805 fyrir sýslumann Gull-
bringu- og Kjósarsýslu, en húsið var
flutt tilhöggvið frá Svíþjóð og upp-
haflegt nafn, „Svenska húsið“, af því
dregið, en það mun hafa haldizt
nokkuð lengi.
Fyrstur bjó þar H. W. Kofoed
Hansen sýslumaður, tengdasonur
Bjarna riddara Sívertsens, en síðan
áttu húsið hver fram af öðrum ýmsir
mektarmenn í sögu lands og þjóðar.
Í hópi þeirra var Árni Thorsteins-
son, land- og bæjarfógeti. Hann lét
stækka húsið og ræktaði mikinn
skrúðgarð sunnan við það, sem
nefndur var Landfógetagarðurinn.
Þessi garður þótti lengi einn feg-
ursti garðurinn í Reykjavík.
Húsið var í eigu ættmenna Árna
fram yfir 1930, en þá keypti KFUM
það. Árið 1932 hófst rekstur Hress-
ingarskálans og hafði húsinu þá ver-
ið breytt mjög. Síðan var þetta lengi
afar vinsæll veitingastaður, ekki sízt
vegna garðsins, þar sem veitingar
voru bornar fram á góðviðrisdögum.
Eftir gagngerar breytingar á hús-
inu 1985 var tekin upp að nýju veit-
ingasala í garðinum, þegar veður
leyfir en hún hafði lagzt af um hríð.
Margir hafa áhuga
Ólafur B. Blöndal kveðst bjart-
sýnn á að þetta húsnæði leigist fljót-
lega. „Það er strax mikið um fyr-
irspurnir og þá aðallega frá aðilum í
veitingarekstri, en þetta húsnæði
hentar afar vel fyrir þess konar
rekstur,“ sagði Ólafur.
„Annar rekstur kemur líka vissu-
lega til greina og einn aðili hefur
þegar haft samband við mig með
það í huga að setja upp verzlun í
húsnæðinu.“
Að sögn Ólafs er húsnæðið í mjög
góðu ástandi, en síðast var McDon-
alds með húsnæðið á leigu og hafði
látið endurnýja það allt. Garðurinn
bak við húsið er mjög fallegur nú
sem áður og þar eru sólpallar og góð
útiaðstaða í tengslum við veitinga-
reksturinn.
Ólafur tók það fram, að
KFUM&K verður áfram í húsinu
með kaffistofuna Ömmukaffi og
einnig með aðstöðu fyrir æskulýðs-
starf sitt í miðbæ Reykjavíkur.
Stærsti hluti Hressingarskálans
íAusturstræti til leigu
Til leigu hjá fasteign.is er götuhæðin, sem er um 460 ferm. og skiptist í þrjá
veitingasali, það er tvo aðalsali og einn minni, sem er salur til einkasamkvæma.
Auk þess fylgir eldhús og snyrtingar.
2003 ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
SCOTTIE PIPPEN TIL LIÐS VIÐ LOS ANGELES LAKERS? / B4
Íslandsmótið
í golfi fer fram
í Eyjum
ÍSLANDSMÓTIÐ í höggleik í golfi fer fram að
þessu sinni á golfvellinum í Vestmannaeyjum.
Stjórn Golfsambands Íslands og mótshaldarar
í Eyjum hafa ákveðið að færa Íslandsmótið fram
um hálfan mánuð og fer það fram vikuna fyrir
verslunarmannahelgina. Það hefst fimmtudag-
inn 24. júlí og lýkur sunnudaginn 27. júlí.
Eins og undanfarin ár verður keppt í Toyota-
mótaröðinni og verða mótin alls sex. Það fyrsta á
Grafarholtsvelli 24. maí og það síðasta í Hvaleyr-
inni í Hafnarfirði 13. september.
GSÍ og sjónvarpsstöðin Sýn hafa skrifað undir
samning um útsendingar frá mótaröðinni og þar
mun Sýn gera mótunum skil eins og síðustu ár.
EYJÓLFUR Sverrisson, knatt-
spyrnumaður hjá þýska liðinu
Hertha Berlín, segist ekki vera
búinn að gera upp hug sinn hvort
hann leiki hér á landi í sumar en
farsælunum ferli Eyjólfs með liði
Herthu lýkur í vor. Vitað er að
Fylkir og Grindavík hafa verið í
sambandi við Eyjólf með það fyr-
ir augum að fá hann til liðs við
sig rétt eins og fyrir síðustu leik-
tíð en þá ákvað hann að láta und-
an þrýstingi forráðamanna
Herthu Berlín og framlengja
samning sinn um eitt ár sem lýk-
ur í lok maí.
„Ég hef ekki ákveðið eitt né
neitt og ekki einu sinni hvort ég
yfir höfuð spili eftir að ég flyt
heim. Ég ætla að taka mér tíma í
að ákveða þessi mál en ég hef
ekki verið í neinum samninga-
viðræðum við lið heima. Ég veit
af áhuga hjá Fylki og Grindavík
alveg eins og í fyrra en fyrst af
öllu þarf ég að gera það upp við
mig hvort ég ætli að spila og í
hvernig formi ég verð í vor,“
sagði Eyjólfur í samtali við
Morgunblaðið.
Eyjólfur er ásamt félögum sín-
um í Tyrklandi en þangað komu
þeir á sunnudag og verða þar í
æfingabúðum í vikutíma og spila
æfingaleiki við þýsk og tyrknesk
lið.
ÓLÖF María Jónsdóttir, kylfingur
úr Keili, tók í gær á móti viðurkenn-
ingu sem kylfingur ársins en und-
anfarin ár hefur GSÍ í samvinnu við
Sjóvá-Almennar staðið að útnefning-
unni. Ólöf fékk gullhúðaðan pútter í
viðurkenningarskyni en hún átti sér-
lega góðu gengi að fagna á síðast-
liðnu ári. Hún varð Íslandsmeistari í
höggleik og náði þeim frábæra ár-
angri að tryggja sér þátttöku í Fut-
ure-mótaröðinni í Bandaríkjunum
þar sem hún er búsett og er hún
fyrsta íslenska konan sem reynir
fyrir sér sem atvinnumaður sem
keppandi.
Ólöf María hélt til Bandaríkjanna í
gær en í marsmánuði hefur hún
keppni á Future-mótaröðinni og með
þátttöku á þeim mótum stefnir hún
að því að öðlast keppnisrétt á LPGA-
mótaröðinni, sem er sterkasta móta-
röð kvenna í heiminum, en þar er
keppt um háar verðlaunafjárhæðir.
„Það eru mjög spennandi tímar
fram undan hjá mér. Ég tel mig vera
tilbúna að takast á við þetta verkefni
og tel raunhæfa möguleika á að kom-
ast inn á LPGA-mótaröðina. Það
verður auðvitað gríðarlega erfitt en
ég kem til með að undirbúa mig og
taka þátt á minni mótum áður en
stóra keppnin fer af stað. Atvinnu-
mennskan hefur heillað mig og nú er
sá draumur að rætast,“ sagði Ólöf
María í samtali við Morgunblaðið í
gær á blaðamannafundi sem Golf-
samband Íslands efndi til í gær.
Á fundinum skrifaði Ólöf María
undir styrktarsamning við Búnaðar-
bankann sem kemur til með að
hjálpa henni að fjármagna keppnis-
haldið.
„Þetta er mjög kostnaðarsamt og
mér reiknast til að heildarkostnaður-
inn við að taka þátt í Future-móta-
röðinni í tvö ár verði í kringum 10
milljónir króna. Það er því mjög mik-
ilvægt að fá styrktarsamning eins og
þennan við Búnaðarbankann og
hann gerir mér kleift að taka fyrstu
skrefin. Ég hef notið velvilja hjá fyr-
irtækjum og eins heppnaðist vel
kvennakvöld sem haldið var fyrir
mig,“ segir Ólöf.
Ólöf mun eingöngu einbeita sér að
golfinu í Bandaríkjunum en hún er
búsett í Austin í Texas. Hún útskrif-
aðist með B.Sc. próf í heilbrigðisvís-
indum frá Háskólanum í Arkansas í
Little Rock í Bandaríkjunum í maí
síðastliðnum og hún reiknar með að
taka þátt í yfir 20 mótum á komandi
ári.
Draumur að rætast hjá Ólöfu
Morgunblaðið/RAX
Ólöf María Jónsdóttir með hinn gullhúðaða pútter sem hún fékk.
GORDON Taylor, for-
maður samtaka at-
vinnuknattspyrnu-
manna á Englandi.
biður Eið Smára Guð-
johnsen, landsliðsmann
Íslands í knattspyrnu
og leikmann með enska
liðinu Chelsea, að leita
sér hjálpar vegna spila-
fíknar hans.
Eiður Smári opin-
beraði sem kunnugt er í
blaðaviðtali við enska
blaðið The People um helgina spila-
fíkn sína og sagðist hafa tapað 52
milljónum króna á fimm mánuðum.
Viðtalið hefur vakið
mikla athygli á Bret-
landseyjum og víða.
„Spilafíkn og veðmál
er vanmetið vandamál.
Fólk ræðir um alkahól-
isma og fíkniefna-
vanda, en spilafíknin
gleymist. Það er er
auðvelt að missa tökin
á henni,“ segir Taylor,
en samtök atvinnu-
knattspyrnumanna á
Englandi hafa iðulega
reynt að veita leikmönnum aðstoð
sem hafa misstigið sig utan knatt-
spyrnuvallarins.
Biður Eið að
leita sér hjálpar
Eiður Smári
Eyjólfur ekki búinn að
gera upp hug sinn
KRISTJÁN Halldórsson hand-
knattleiksþjálfari hefur fengið
frest fram í næstu viku til að
svara þeim tilboðum sem hann
er með. Karlalið Haslum í Nor-
egi vill halda honum og kvenna-
lið Skovbakken/Brabrand í
Danmörku og Bækkelaget í
Noregi vilja fá hann til sín. „Ég
fer um helgina ásamt fjölskyld-
unni til Danmerkur til að skoða
aðstæður hjá Skovbakken/
Brabrand og ætla að gera upp
hug minn í framhaldi af því.“
Kristján
seinkar
ákvörðun
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 30
Viðskipti 14 Hestar 36
Erlent 15/17 Umræðan 25/30
Höfuðborgin 18 Minningar 31/35
Akureyri 20 Bréf 40
Suðurnes 21 Dagbók 42/43
Landið 22 Fólk 44/49
Neytendur 23 Bíó 46/49
Listir 23/24 Ljósvakar 50
Forystugrein 26 Veður 51
* * *
myndarleg sumarhús, sem leigð eru
út til ferðamanna í Eyjum. Almenn
ánægja er með það í Vestmanna-
eyjum að þessir öflugu útgerð-
armenn hafa lagt sig fram um að
efla atvinnuuppbyggingu í Vest-
mannaeyjum þegar á brattann hefur
verið að sækja í atvinnulífinu þar og
á landsbyggðinni almennt. Í samtali
við Morgunblaðið sagði Gísli Valur
það hafa tekið skamman tíma að
ganga frá kaupunum á gistihús-
unum og Hótel Þórshamri. Fjöl-
skyldan stendur saman að kaup-
unum og mun sonur þeirra, sem búið
hefur á höfuðborgarsvæðinu, flytj-
ast aftur til Eyja ásamt fjölskyldu
sinni til að taka þátt í rekstrinum.
Þess má geta að dóttir þeirra, Helga
Dís, er að ljúka námi í ferða-
málafræði á þessu vori á Hólum.
Með 87 gistirými
Á hótelinu og í gistihúsunum er
samtals um að ræða gistingu fyrir 87
manns og er fjölskyldan með mest
gistirými allra í Vestmannaeyjum.
Hótel Þórshamar er 18 herbergja
hótel, 16 tveggja manna herbergi og
tvö eins manns herbergi. Hamar,
sem áður var hótel Bræðraborg, er
búið 14 tveggja manna herbergjum
og á Sunnuhóli eru 8 tveggja til sex
manna herbergi.
Gísli Valur segist bjartsýnn á
framtíðina, fjölskyldan hafi kosið að
nota krafta sína heima í Eyjum, þar
sem þörf væri á öflugri uppbygg-
ingu og jákvæðu viðhorfi til fram-
tíðar, í stað þess að fara með af-
rakstur útgerðarinnar í uppbygg-
ingu á Reykjavíkursvæðinu. Hann
segist ekki sjá eftir útgerðinni. „Sá
þáttur er að baki og ekki þarf lengur
að svekkja sig á misvitrum fiski-
fræðingum, framtíðin er í ferðamál-
unum,“ segir hinn nýkrýndi hótel-
konungur Eyjanna.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Hjónin Gísli Valur Einarsson og Björg Guðjónsdóttir, nýbakaðir eigendur
Hótels Þórshamars og tengdra gistihúsa í Vestmannaeyjum.
Úr út-
gerð í
ferða-
þjónustu
Vestmannaeyjum. Morgunblaðið.
HJÓNIN Gísli Valur Einarsson og
Björg Guðjónsdóttir ásamt fjöl-
skyldu hafa keypt Hótel Þórshamar,
Gistihúsið Hamar og Gistiheimilið
Sunnuhól í Vestmannaeyjum, en
hjóninvoru áður í útgerð.
Gengið var frá kaupunum um
helgina en þau taka við rekstrinum
miðað við áramót. Hjónin áttu áður
útgerðarfélagið Údínu, sem gerði út
togbátinn Björgu VE til fjölda ára.
Félagið var sameinað Vinnslustöð
Vestmannaeyja nýlega og Björg VE
var seld frá Eyjum.
Gísli Valur og Björg eru ekki þau
fyrstu sem söðla um og hætta útgerð
en helga sig ferðamálum í Vest-
mannaeyjum í staðinn. Áður höfðu
útgerðarmenn Emmu VE selt út-
gerð sína, en þeir hösluðu sér völl og
efldu ferðamannaþjónustuna í Vest-
mannaeyjum, annar keypti Flug-
félag Vestmannaeyja en hinn reisti
OFFITA eykst og kostnaður heil-
brigðiskerfisins vegna hennar hefur
margfaldast. Meðferðarúrræði eru fá
hér á landi og langtímaárangur er lít-
ill. Samfélagið er neysluhvetjandi,
framboð á mat í vestrænum ríkjum
hefur aldrei verið meira, pakkningar
stækka og fólk er einfaldlega farið að
borða meira og hreyfa sig minna í
daglega lífinu. Lífsstílsbreyting er
eina lausnin sem gæti skilað varan-
legum árangri.
Þetta var meðal þess sem fram
kom á málþingi um offitu á Lækna-
dögum sem nú standa yfir. „Á sama
tíma og fituinnihald fæðunnar hefur
minnkað og æ fleiri stunda líkams-
rækt í frístundum hefur stjórnun
þyngdar raskast hjá mörgum á und-
anförnum árum,“ sagði Laufey Stein-
grímsdóttir, næringarfræðingur hjá
Manneldisráði, á málþinginu. Sagði
hún því vandamálið liggja í því að fólk
væri farið að borða meira og nefndi
máli sínu til stuðnings að þvermál
matardiska hefði aukist. Tiltók hún
ótal dæmi um að stærð pakkninga
hefur aukist, t.d. á gosdrykkjum og
súkkulaðistykkjum. „Stóra Prins-
pólóið er ekki lengur stórt því það er
komið ennþá stærra Prinspóló á
markaðinn.“ Þá væri hvatt til meiri
neyslu með því að bjóða afslætti og
tilboð ef keypt er t.d. stærri pitsa eða
fleiri gosflöskur í einu.
Árangur sjaldnast
langvarandi
Laufey sagði að það þyrfti mikla
staðfestu til að grennast en það væri
þó barnaleikur borið saman við það
að halda þyngdinni í skefjum til fram-
búðar. Kom þetta sjónarmið fram í
máli fleiri fyrirlesara á málþinginu. Í
máli Laufeyjar, Emils L. Sigurðsson-
ar heimilislæknis og Guðlaugs Birg-
issonar sjúkraþjálfara kom fram að
þó að aðeins sé um 5% þyngdartap að
ræða geti það bætt lífsgæði verulega
og minnkað hættuna á sjúkdómum,
t.d. sykursýki, um allt að 60%.
Ludvig Guðmundsson, læknir á
offitusviði á Reykjalundi, sagði að þar
væru fimm pláss fyrir offitusjúklinga
í fimm vikna atferlismeðferð. Það
þýddi að um 50 sjúklingar geti komið
á Reykjalund á hverju ári en árlega
berast um 100–150 beiðnir um með-
ferð. Því annaði Reykjalundur ekki
eftirspurn. Ludvig sagði að fáar
rannsóknir væru til á árangri atferl-
ismeðferðar. „Árangur af atferlis-
meðferð líkt og flestum öðrum með-
ferðarleiðum við offitu getur þó ekki
talist góður. Flestir hafa ríka til-
hneigingu til að sækja í gamla farið
aftur.“
Skurðaðgerð neyðarúrræði
Ýmsar tegundir skurðaðgerða
hafa verið prófaðar við offitu. Í dag er
framkvæmd á Landspítalanum
magaminnkunaraðgerð þar sem
tengt er framhjá yfir 80% magans.
Aðgerðin er nokkuð örugg og hafa yf-
ir 100 sjúklingar gengist undir hana á
undanförnum árum. Árangurinn er
góður að sögn Hjartar G. Gíslasonar
skurðlæknis. Sjúklingar léttast um
10–20 kíló á mánuði fyrstu fimm mán-
uðina eftir aðgerð en svo hægir á
þyngdartapinu. Flestir losna við um
80% af umframþyngd og er árang-
urinn varanlegur. Ýmsir fylgikvillar
geta fylgt slíkum aðgerðum og eru
þær aðeins neyðarúrræði þegar aðr-
ar meðferðir hafa verið fullreyndar.
Allir fyrirlesarar voru sammála um
að lífsstílsbreyting væri óumflýjanleg
vildum við ná tökum á offituvandan-
um. „Vandamálið er ekki læknis-
fræðilegt, það er þjóðfélagslegt,“
sagði Ragnar Bjarnason, læknir á
Barnaspítala Hringsins. Benti hann á
að hreyfing í daglega lífinu væri orðin
sáralítil hjá fólki og undir orð hans
tóku aðrir fyrirlesarar. Laufey benti
á í erindi sínu og undir orð hennar tók
Guðlaugur sjúkraþjálfari að mikil
hreyfing væri ein aðalforsenda þess
að fólk viðhéldi þyngd sinni. Tæknin,
t.d. tölvur, lyftur og farartæki, hefði
gert það að verkum að fólk sparaði
orku, skrefin væru færri, húsin hlýrri
og sömuleiðis fötin. Hreyfingarleysi
væri versti óvinurinn og því allt eins
hægt að skella skuldinni á tölvuna
eins og skyndibitastaðina.
Morgunblaðið/Kristinn
Málþing um offitu var vel sótt en Læknadagar standa yfir fram á föstudag.
Aukinn kostnað-
ur vegna offitu
Breyttur lífsstíll talinn eina lausnin
sem skilað gæti varanlegum árangri
KÚFISKSKIPIÐ Fossá frá Þórs-
höfn fékk breskt tundurdufl úr seinna
stríðinu í skelfiskplóg sinn er það var
að veiðum síðdegis á sunnudag á
Vöðlavík. Voru sprengjusérfræðingar
Landhelgisgæslunnar kallaðir á vett-
vang til að gera duflið óvirkt.
„Við vorum að toga inni á Vöðlavík í
fyrsta sinn eftir að varðskipsmenn
höfðu komið um borð til eftirlits hjá
okkur og höfðum því strax samband
við þá er duflið kom upp,“ sagði Þor-
steinn Þorbjörnsson, skipstjóri á
Fossá, við Morgunblaðið
„Þeir settu sig í samband við
sprengjusérfræðing sem mat eftir
okkar lýsingum að þarna gæti verið
um virka sprengju að ræða. Þetta var
um fimmleytið í gær [fyrradag] og við
sigldum inn á Norðfjörð til móts við
sprengjufræðinginn í [gær]morgun
og afhentum honum duflið með því að
hífa það um borð í léttabát. Sigldum
við svo beint heim til Þórshafnar þar
sem við erum að landa fullfermi, 125
tonnum af skel, en við fórum út á mið-
nætti á laugardagskvöld.“
Sprengjufræðingar Gæslunnar
héldu austur á land í gærmorgun og
eyddu duflinu en í því voru um 130
kíló af sprengiefni sem var óskemmt
eftir rúma hálfa öld í sjónum.
Fengu 130 kg af
sprengiefni í netin