Morgunblaðið - 14.01.2003, Side 4
FRÉTTIR
4 ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Sölumenn okkar eru við símann frá kl. 8:00 – 17:00.
Hringdu í síma 520 6666 eða líttu á úrvalið í stórverslun
okkar að Réttarhálsi 2. Opið mán. – fös. 8:00 – 18:00.
SKRIFSTOFUVÖRUR
Vandaður 80 gr fjölnotapappír
500 blöð í búnti
298.-
Geisladiskar CD-R 25 stk
720Mb / 80 mín / 1x - 32x
1.458.-
Bréfabindi A4 7 cm kjölur
Ýmsir litir
138.- stk
Á tilboði núna
PORTÚGAL hefur krafizt trygginga
af hálfu framkvæmdastjórnar Evr-
ópusambandsins, um að jafnvel þótt
eitthvað verði látið undan kröfum Ís-
lands og Noregs um bætur fyrir missi
markaðsaðgangs fyrir sjávarafurðir í
Austur-Evrópuríkjum verði tollar á
þurrkuðum saltfiski ekki lækkaðir
undir neinum kringumstæðum.
Ástæða þessarar kröfu Portúgals er
að þar í landi starfa 2.000 manns við
að þurrka saltfisk og er 3,9% tollur á
honum einkum hugsaður til að vernda
þau störf.
Á ráðherraráðsfundi Evrópusam-
bandsins í Brussel í síðasta mánuði
var samþykkt umboð til fram-
kvæmdastjórnarinnar til samninga
við EFTA-ríkin um aðlögun EES-
samningsins að stækkun ESB. Í
samningsumboðinu er m.a. fjallað um
kröfur Íslands og Noregs um að þeim
verði bætt það upp að fríverzlunar-
samningar þeirra við nýaðildarríki
ESB falla niður þegar ríkin ganga í
sambandið en í staðinn taka gildi
ákvæði bókunar 9 við EES-samning-
inn, þar sem tollar eru á ýmsum sjáv-
arafurðum.
Portúgalski utanríkisráðherrann
lagði fram sérstaka yfirlýsingu við
samþykktina, þar sem segir að Portú-
gal geti því aðeins samþykkt umboðið
að framkvæmdastjórnin ábyrgist að
hugsanlegar uppbætur til Íslands og
Noregs verði aðeins fyrir missi nú-
verandi tollfrelsis í viðskiptum.
„Saltaður, þurrkaður þorskur er
ekki á meðal þeirra tegunda/vara sem
fluttar eru til umsóknarríkjanna og
jafnvel þótt EFTA-ríkin leggi fram
beiðni varðandi saltaðan, þurrkaðan
þorsk, ætti að hafna henni vegna þess
að hann hafi ekki verið fluttur út til
umsóknarríkjanna,“ segir í yfirlýs-
ingunni.
Í skjali, sem samtök í sjávarútvegi
hafa sent utanríkisráðuneytinu vegna
samningaviðræðnanna, kemur fram
að þurrkun á saltfiski hafi verið tals-
verð hér á landi áður fyrr en nú sé
einungis vélþurrkað í mjög litlum
mæli fyrir markaði í Ameríku. Þurrk-
un á saltfiski sé hins vegar mikill iðn-
aður í Portúgal og starfi við hann
a.m.k. 2000 manns. „Í þessu sam-
hengi má geta þess að Portúgal er
langstærsti saltfiskmarkaður heims
og hefur undanfarin ár verið með 40%
af heimsneyzlunni á saltfiski. Allur sá
saltfiskur er seldur þurrkaður,“ segir
í skjalinu.
Portúgal hafnar
lægri tolli á þurrk-
aðan saltfisk
ALÞJÓÐLEGUR gagnabanki með
fingraförum verður tekinn í notkun á
morgun, miðvikudag, í öllum löndum
ESB auk Íslands og Noregs. Eru
þetta þau ríki sem standa að svoköll-
uðu Dublinarsamkomulagi frá 1997.
Að sögn Stefáns Eiríkssonar, skrif-
stofustjóra hjá dómsmálaráðuneyt-
inu, hefur fram til þessa sá vandi
fylgt afgreiðslu hælisbeiðna, að erfitt
hefur reynst að sanna deili á fólki
vegna skilríkjaleysis og þess, að ekki
hefur legið fyrir hvort hælisumsókn
hafi verið lögð inn í öðru ríki á und-
an. Að sögn Stefáns er tilgangurinn
með gagnabankanum því sá að auð-
velda stjórnvöldum að bera kennsl á
hælisleitendur og flýta um leið fyrir
því að þeir fái meðferð í réttu landi.
Með réttu landi er t.d. átt við það
land sem gaf viðkomandi einstak-
lingi vegabréfsáritun, eða þar sem
hann dvalist ólöglega í tiltekinn tíma.
Leiti t.d. útlendingur hingað til lands
eftir hæli eru tekin af honum fingra-
för og upplýsingar úr bankanum
kallaðar fram á grundvelli þeirra.
Komi þá í ljós að honum hefur verið
hafnað í öðru ríki er unnt að vísa
honum strax úr landi. Sé ekkert
skráð um hælisleitanda í bankanum
ber íslenskum stjórnvöldum að fjalla
um hælisumsóknina.
Fingraför
hælisleit-
enda sett í
gagnabanka
EYÞÓR Stefánsson myndlistar-
maður hlaut á dögunum önnur
verðlaun í stærstu alþjóðlegu
teiknisamkeppni sem haldin er ár-
lega á vegum stofnunar Aydin Dog-
an, stærstu menningar- og lista-
stofnunar Tyrklands. Fékk Eyþór 5
þúsund dollara í verðlaun auk
styttu. „Ég hef fengið töluvert af
tölvupósti með boðum um þátttöku
í hinum ýmsu sýningum og keppn-
um út um allan heim,“ segir hann
aðspurður um frekari ávinning af
árangrinum.
Að þessu sinni kepptu 1.350
teiknarar frá 90 löndum og var
mynd Tyrkjans Mamet Ates Gulc-
uqil valin besta myndin. Þess má
geta að Eyþór keppti einnig árið
2001 og hlaut þá sérstök velgengn-
isverðlaun. Þema kepninnar að
þessu sinni var hryðjuverk. Verð-
launamynd Eyþórs, túss- og lit-
blýsteikning, sýnir dreng frá Mið-
Austurlöndum í nöturlegu um-
hverfi skoða blað með hríð-
skotabyssum í skini ljóss frá
Coca-Cola-sjálfsala. Birtugjafinn,
gossjálfsalinn, er að sögn Eyþórs
tákn fyrir innihaldsrýra menningu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Eyþór Stefánsson
Vann önnur verðlaun
í teiknisamkeppni
FÉLAGSFUNDUR Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs í Reykjavík samþykkti í gærkvöldi einróma til-
lögu uppstillingarnefndar um framboðslista félagsins
fyrir alþingiskosningarnar í vor. Þar með urðu vinstri-
grænir fyrstir stjórnmálaflokka til að kynna framboðs-
lista í Reykjavík.
Kynjahlutfall á listunum er jafnt og í norðurkjördæmi
skiptast konur og karlar á að taka sæti á listanum, þ.e.
kona er í fyrsta sæti, karlmaður í öðru og svo koll af kolli.
Reykjavík – suður
1. Ögmundur Jónasson alþingismaður.
2. Álfheiður Ingadóttir líffræðingur.
3. Kristín Njálsdóttir félagsráðgjafi.
4. Guðmundur Magnússon leikari.
5. Katrín Jakobsdóttir, formaður ungra vinstri-grænna.
6. Steingrímur Ólafsson rekstrarfræðingur.
7. Ásdís Sigmundsdóttir kennari.
8. Þorleifur Gunnlaugsson dúkalagningameistari.
9. Rósa Björk Brynjólfsdóttir fjölmiðlakona.
10. Pétur Tyrfingsson sálfræðingur.
11. Erla Björg Sigurðardóttir félagsráðgjafi.
Reykjavík – norður
1. Kolbrún Halldórsdóttir alþingismaður.
2. Atli Gíslason lögmaður.
3. Drífa Snædal háskólanemi.
4. Grímur Atlason, verkefnisstjóri Félagsþjónustu
Reykjavíkurborgar.
5. Guðrún Kr. Óladóttir, starfsmaður Eflingar, stéttar-
félags.
6. Óskar Dýrmundur Ólafsson forstöðumaður.
7. Guðlaug Teitsdóttir kennari.
8. Ármann Jakobsson íslenskufræðingur.
9. Eyrún Eyþórsdóttir nemi.
10. Tryggvi Friðjónsson, framkvæmdastjóri Sjálfsbjarg-
arheimilisins.
11. Kolbrá Höskuldsdóttir búfræðingur.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sveinn Rúnar Hauksson og Ögmundur Jónasson alþingismaður spá í spilin á félagsfundi vinstri-grænna.
Framboðslistar VG í Reykjavíkurkjördæmunum
Ögmundur og Kolbrún
skipa efstu sætin
GERT er ráð fyrir að deild fyrir
heilabilaða verði opnuð á ný á Land-
spítala – háskólasjúkrahúsi á Landa-
koti í næsta mánuði en deildinni var
lokað í sumar sem leið, þar sem
rekstrarfé vantaði, og sjúklingar
með heilabilun fluttir á aðrar deildir.
Til stóð að opna deildina á ný 6.
janúar, en það frestaðist um óákveð-
inn tíma, þar sem til athugunar var
að flytja húðdeild, sem hefur verið á
Vífilsstöðum, í húsnæði deildarinnar
á Landakoti. Í gær var hins vegar
ákveðið að hætta við flutning húð-
deildarinnar og opna heilabilunar-
deildina aftur.
Jón Snædal, yfirlæknir heilabilun-
ardeildar, segir að opnun deildarinn-
ar hafi verið vel rökstudd, en þar
sem deildin hafi verið lokuð lengi sé
allt starfsfólkið farið annað og því
þurfi einhvern tíma, nokkrar vikur,
til að koma deildinni í gang á ný.
Að sögn Jóns liggur ekki fyrir
hvað allt sviðið fær af fjármagni en
aðalatriðið sé að sviðsstjórnin geti
stjórnað sjálf hvernig því verði varið
og hægt sé að skipuleggja hvernig
þjónustan verði.
Stefnt er að því að opna deildina
með 18 rúmum með allt að 20 starfs-
mönnum.
Deild fyrir heilabilaða
opnuð í næsta mánuði