Morgunblaðið - 14.01.2003, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 14.01.2003, Blaðsíða 14
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 14 ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ Á SÍÐASTA ári voru 40 skip og bátar úr íslenska flotanum seld til út- landa, þar af 26 þilfarsskip og 14 opnir bátar. Þetta er rúmlega helm- ingi fleiri skip en seld voru úr landi árið á undan, en þá voru 19 skip seld til útlanda. Árið 2000 voru 20 skip seld úr landi og 19 skip árið 1999. Siglingastofnun Íslands afskráði alls 116 skip og báta á síðasta ári og var um þriðjungur þeirra seldur úr landi, langflest til Færeyja. Árið 2001 voru afskráð 46 skip og bátar og 70 skip og bátar árið 2000. Sam- kvæmt lögum ber Siglingastofnun að afskrá skip hafi það ekki verið fært til skoðunar í 5 ár ef um opinn bát er að ræða, eða ef það hefur legið ónot- að í höfn eða skipalægi eða staðið á landi í 3 ár samfleytt. Alls voru 28 skip afskráð vegna þess á síðasta ári, aðallega smábátar. Samkvæmt upp- lýsingum frá Siglingastofnun var að- eins 5 skipum og bátum fargað á síð- asta ári. Afleiðing kvótakerfisins Það sem af er ári hafa að minnsta kosti þrjú skip verið seld úr landi, netabáturinn Hraunsvík GK til Suð- ur-Afríku, togarinn Ýmir HF til Rússlands og Suðurey VE til Nor- egs. Skipasalan Álasund ehf. í Reykjanesbæ hefur verið umsvifa- mikil í sölu á skipum að undanförnu. Þórarinn S. Guðbergsson, skipamiðl- ari hjá Álasundi, segir einkum þrjár ástæður liggja að baki söluaukningu á skipum til útlanda og að þær séu afleiðingar af kvótakerfinu. Í fyrsta lagi hafi sameining út- gerðarfyrirtækja þau áhrif að skip- um fækki. Samhliða hagræðingu í rekstri færist kvótinn á færri skip. Við hverja sameiningu verði 1 til 4 skip verkefnalaus. Í öðru lagi hafi skipin stækkað, séu afkastameiri en áður var og þá þurfi að selja minni skip í staðinn. Til dæmis hafi stærsta uppsjávarveiðiskipið árið 1997 verið um 1.500 tonn og fá skip verið stærri en 1.000 tonn. Nú séu mjög fá skip undir 1.000 tonnum og þau stærstu komin vel yfir 2.000 tonn. Í þriðja lagi hafi rækjuveiðarnar dregist mikið saman á undanförnum árum. Verð á rækju hafi verið mjög lágt og því tiltölulega fá útgerðarfyrirtæki sem telji rækjuveiðar arðbærar. Þórarinn segir að verð á skipum hafi lækkað mikið, enda framboð á kvótalausum skipum meira en áður. Útgerðarfyrirtæki vilji ekki liggja með skip sem hafi ekki kvóta. Ljósmynd/Hafþór Hreiðarsson Hraunsvík GK hefur verið seld til Suður-Afríku og fer á túnfiskveiðar. Þriðjungur afskráðra skipa seldur úr landi LEIGUSAMNINGAR verslana í Flugstöð Leifs Eiríkssonar hafa ver- ið framlengdir til 1. október nk. en samningarnir áttu að renna út um síðustu áramót. Höskuldur Ásgeirsson fram- kvæmdastjóri flugstöðvarinnar seg- ir að ástæða framlengingarinnar sé sú að kæra sem lögð var fram af Ís- lenskum markaði hf. til Samkeppn- isstofnunar vegna forvals sem efnt var til sl. haust um val á nýjum rekstraraðilum í Flugstöðina, sé enn í vinnslu hjá Samkeppnisstofnun. „Stjórnin tók þá ákvörðun í haust að fresta úrvinnslu forvalsins þangað til úrskurður Samkeppnisráðs væri kominn en von er á honum nú í lok janúar,“ segir Höskuldur. Logi Úlfarsson framkvæmdastjóri Íslensks markaðar segir að rekstr- araðilar séu í stórum dráttum sáttir við stöðu mála nú þó tímabundinn samningur sé óþægilegur. Menn séu þó tiltölulega sáttir miðað við það hvernig hlutirnir voru að þróast. Leigusamningar í flug- stöðinni framlengdir JÓN Scheving Thorsteinsson, fram- kvæmdastjóri Baugs ID og jafn- framt stjórnarmaður í Bonus Stores í Bandaríkjunum, segir að tekið hafi lengri tíma en gert hafi verið ráð fyr- ir að snúa við rekstri Bonus Stores. Félagið rekur um 350 lágvöruverðs- verslanir og var rekið með 892 millj- óna króna tapi á fyrstu 9 mánuðum yfirstandandi rekstrarárs. Jón segir að búið sé að gera margt til að laga reksturinn. Nýr fram- kvæmdastjóri, Jack Koegel, hafi tek- ið til starfa í nóvember. Búið sé að loka verri verslunum keðjunnar og það skýri afkomuna að hluta til, enda sé allur lokunarkostnaður verslana gjaldfærður þegar í stað í Bandaríkj- unum. Þá hafi birgðir verið færðar niður bæði í öðrum og þriðja fjórð- ungi ársins og það komi niður á af- komunni. Vægi matvöru hafi verið aukið og verslanirnar séu ekki leng- ur dollarabúðir sem þýði að meira svigrúm sé í verðlagningu. Að mörgu leyti sé verið að nýta þá þekkingu sem Baugur Group hafi aflað sér með rekstri Bónusverslana hér á landi og í Færeyjum og því séu að nást meiri samlegðaráhrif innan fyr- irtækisins. Jón segir að það sé stórt og erfitt verkefni að snúa við rekstrinum, en það sé ánægjulegt og unnið sé að því á kerfisbundinn hátt eins og öðrum verkefnum innan Baugs Group. Sjá megi að afkoma fyrir afskriftir hafi batnað og áætlanir stjórnenda geri ráð fyrir áframhaldandi bata þeirrar stærðar. Sala hafi jafnframt aukist, en gert sé ráð fyrir litlum vexti vegna efnahagsástands í Bandaríkj- unum, þótt það sé almennt svo að erfitt efnahagsástand hjálpi lágvöru- verðsverslunum. Jón segir að það sé tímafrekt verkefni að koma verslunarfyrir- tækjum á góðan skrið og því sé enn tap af rekstrinum, en stefnt sé að því að Bonus Stores verði reknar með hagnaði á næsta rekstrarári, sem hefst í byrjun maí. Spurður að því hvort rætt hafi ver- ið um að Baugur selji verslanirnar í Bandaríkjunum, segir Jón að ekki sé verið að hugsa um það nú að selja. Nýbúið sé að setja inn nýtt hlutafé og endurfjármagna félagið. Nú sé unnið mjög náið með stjórnendum að endurskipulagningu félagsins. Lögð sé áhersla á að auka veltuhraða birgða og handbært fé frá rekstri. Verslanir Baugs í Bandaríkjunum Tekur tíma að bæta reksturinn TILBOÐSSTRÍÐ er hafið í Bret- landi um stórmarkaðskeðjuna Safe- way en að minnsta kosti þrjár stór- markaðskeðjur; Sainsbury, WM Morrisson og ASDA, sem er í eigu stærstu stórmarkaðskeðju í heimi Wal Mart, eru byrjaðar að bjóða eða hafa hug á tilboði í keðjuna, að því að fullyrt er í breskum fjölmiðum. WM Morrisson, fimmta stærsta stórmarkaðskeðja Bretlands, hefur lagt fram tilboð upp á 2,65 milljarða sterlingspunda, og Sainsbury, önnur stærsta stórmarkaðskeðja landsins, er sagt hafa í hyggju að bjóða rúma 3 milljarða sterlingspunda, eða meira en 300 pens á hlut. Þessu til viðbóðar er talið að ASDA leggi fram tilboð síðar í vikunni, en ASDA og Sains- bury ræddu saman í fyrra um að kaupa Safeway í sameiningu. Á vef BBC er jafnframt sagt frá því að von sé á enn einu tilboði frá ótilgreindu félagi sem hafi í hyggju að skipta Safeway upp og selja í bút- um til nokkurra stórmarkaðskeðja. Mikil samlegðaráhrif „Við erum mjög áfram um þetta tilboð.Við ætlum að fara fram á nán- ari upplýsingar frá Safeway til að mögulegt verði fyrir okkur að skoða hvar er hægt að spara og hve mikil samlegðaráhrif nást,“ sagði Sir Pet- er Davis, forstjóri Sainsbury, á vef- miðlinum FT.com. Þegar WM Morrisson tilkynnti um tilboð sitt í síðustu viku sagði Sir Ken Morrisson, stjórnarformaður félagsins, að samlegðaráhrif yrðu 250 milljónir punda árlega á næstu þremur árum yrði af kaupunum. Greinendur á markaði telja að samruni Safeway og Sainsbury komi til með að hafa mun meiri samlegð- aráhrif í för með sér, eða á milli 300 og 400 milljónir punda. Að því gefnu er talið að Sainsbury sé tilbúið að borga töluvert meira en 300 pens á hlut, jafnvel allt að 400 pens, þar sem sameining félaganna kæmi nær örugglega til kasta samkeppnisyfir- valda, á meðan Morrison-tilboðið er talið verða samþykkt af samkeppn- isyfirvöldum með kröfu um lág- marksfækkun búða. Sir Peter Davis hefur þegar lýst því yfir að komi til samruna Sains- bury og Safeway þyrfti að fækka búðum Safeway um allt að 90 vegna samkeppnissjónarmiða, en í Bret- landi er miðað við að markaðshlut- deild yfir 25% teljist markaðsráð- andi. Samanlögð markaðshlutdeild þessara tveggja keðja er í dag 29%. Ef af samruna Morrison og Safe- way yrði, yrði til fyrirtæki sem réði yfir 598 verslunum um allt Bretland og 16,1% markaðshlutdeild, eða sömu hlutdeild og ASDA, sem í dag er þriðja stærsta matvöruverslana- keðja Bretlands. Tilboðsstríð um Safeway STEVE Case, stjórnarformaður AOL Time Warner, stærsta fjöl- miðlafyrirtækis í heimi, mun hætta störfum sem stjórnarformaður í kjölfar hluthafafundar í maí næst- komandi. Í til- kynningu frá fyr- irtækinu segir að hann muni starfa áfram sem einn af framkvæmda- stjórum þess. Frá því var greint í frétt á BBC í gær að Case hafi átt stór- an þátt í sameiningu netþjónustufyr- irtækisins America Online og fjöl- miðlarisans Time Warner. Þá segir að erfiðleikar fyrirtækisins hafi verið miklir eftir samrunann og að hluta- bréf félagsins hafi fallið mikið í verði. Bæði stjórn félagsins og ýmsir hlut- hafar telji að Case eigi stóran þátt í því hve slæm staða fyrirtækisins sé. Flestir æðstu stjórnendur AOL Time Warner, sem komu frá AOL, hafa hætt störfum. Case er þar á meðal en hann var stjórnarformaður AOL þegar fyrirtækið sameinaðist Time Warner. Ýmsir af stærstu hluthöfum AOL Time Warner hafa lagt að Case að hætta. Í netútgáfu Financial Times í gær sagði að þrýstingur á Case um að hætta hafi stöðugt aukist. AOL Time Warner Stjórnar- formaður hættir Steve Case REBEKAH Wade var í gær skipuð ritstjóri breska dag- blaðsins The Sun. Hún er fyrsta konan til að gegna því starfi og tekur við því í dag af David Yelland, sem hefur verið ritstjóri blaðsins frá árinu 1998. Wade, sem er 34 ára, var áð- ur aðstoðarritsjóri The Sun, og þar með aðstoðarmaður Yell- and, þar til hún tók við starfi ritstjóra News of the World í maí árið 2000. Frá því var greint á vefsíðu breska blaðsins Independent í gær að Wade sé eina konan sem gegni starfi ritstjóra á bresku dagblaði. Tilkynnt með tölvupósti The Sun er í eigu News Int- ernational sem á einnig blöðin The Times og The Sunday Tim- es og sjónvarpsstöðina Sky. Frá því var greint á vefsíðu breska blaðsins Telegraph í gær, að Les Hamilton, stjórn- arformaður News Internation- al, hefði um hádegisbilið í gær tilkynnt starfsmönnum The Sun í tölvupósti að Yelland hefði sagt upp starfi sínu sem ritstjóri The Sun. Þá sagði Hamilton í tölvupóstinum að Yelland myndi verða í fram- kvæmdastjórn blaðsins auk þess sem hann myndi setjast á skólabekk og nema viðskipta- fræði í Bandaríkjunum. The Sun hefur, að því er Telegraph segir, verið prentað í svipuðu upplagi undanfarin ár, eða í um 3,5 milljónum ein- taka. Rebekah Wade á þekktan eiginmann en hún er gift leik- aranum Ross Kemp, sem lék í sjónvarpsþáttunum East End- ers fyrir nokkrum árum. Fyrsta konan ritstjóri The Sun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.