Morgunblaðið - 14.01.2003, Síða 22

Morgunblaðið - 14.01.2003, Síða 22
LANDIÐ 22 ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ Í YFIRLITSSKÝRSLU um sjó- varnir sem út kom í október 2002 frá Siglingastofnun Íslands kemur í ljós að veittar hafa verið 3 millj- ónir króna vegna rannsókna og undirbúnings fyrir hugsanlega grjótvörn utan á flóðvarnargarð í Vík í Mýrdal. Ströndin sunnan við Vík er að langmestu leyti mynduð af sandi sem hefur komið með Kötluhlaupum og á því sjórinn auðvelt með að færa sandinn fram og til baka, það eru aðallega slæm suðvestanveður sem valda land- broti. Í yfirlitsskýrslunni segir að árið 1995 hafi verið gerður flóðvarn- argarður framan við kauptúnið og er garðurinn um 1,6 km að lengd. Garðurinn sjálfur var kostaður af sjóvarna fé en Landgræðslan kost- aði landgræðsluframkvæmdir. En strax þegar þetta var framkvæmt var farið að huga að næsta skrefi ef landbrot héldi áfram og var sett ákveðin viðmiðunarlína fram- an við garðinn. Er línan um 40 m frá varnargarðinum vestast, um 70 m við Víkurá og áfram austur úr að austurgafli húss Vegagerð- arinnar. Byggingarfulltrúi Mýr- dalshrepps hefur mælt ströndina framan við Vík að minnsta kosti einu sinni á ári frá árinu 1994. Nú er svo komið að sjórinn er komin 5–10 m inn fyrir eftirlits- línu á 150–200 m kafla og sjórinn er aðeins í um 60 m fjarlægð frá hesthúsunum og er sjávarkamb- urinn þar svo lágur að sjór flæðir nánast að húsunum við lága sjáv- arstöðu. Ekki er ennþá talin þörf á róttækum aðgerðum en það gæti orðið á næstu fjórum árum ef sjór- inn heldur áfram að færa sandinn. Ef til kæmi að grjótverja þyrfti allan garðinn og líklega lengja hann um rúma 200 m vestast í þorpinu, yrði þetta framkvæmd upp á um 200 til 350 milljónir króna allt eftir því hvað langt þyrfti að sækja grjótið. Að sögn Sveins Pálssonar, sveit- arstjóra Mýrdalshrepps, hvetur sveitarstjórnin til þess að fyrir- hugaðar rannsóknir hefjist nú þegar og að reynt verði að ganga frá sjóvörnum við Vík þannig að land ofan þjóðvegar austan við Vík teljist öruggt byggingarland eins og gert er ráð fyrir í gildandi skipulagsáætlun. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Sjórinn hefur tekið mikið land suður af Vík í Mýrdal. Landbrot í Vík veldur áhyggjum Fagridalur ALLT að þriggja klukkutíma gamlar upplýsingar geta mögulega verið á upp- lýsingaskiltum Vega- gerðarinnar. Þetta get- ur verið bagalegt þar sem þessi upplýsinga- skilti gefa oftast upp- lýsingar um vindátt, vindhraða og eftir at- vikum vindstyrk í mestu hviðum á helstu fjallvegum landsins. Að sögn Gísla M. Auðbergssonar, hér- aðsdómslögmanns á Eskifirði, kom þetta fram þegar hann var að vinna að vörn í máli ákæruvaldsins gegn rútubílstjóra þegar rúta hans fauk út af veginum á Fagradal og valt fyrir nær ári. Nú er nýgenginn héraðsdómur í þessu máli þar sem rútubílstjórinn var sýknaður af ákærunni, meðal annars vegna þess að gamlar upplýs- ingar voru á upplýsingaskilti við vegamót Norðfjarðarvegar þar sem hann liggur upp á Fagradal niður á Reyðarfirði, en á skiltinu stóð að vindhraði á Fagradal væri 12 metrar á sekúndu þegar rútan fór framhjá því skömmu áður en rútan fauk út af veginum, eins og sagt var frá í frétt Morgunblaðsins. Það gefur auga leið að vont er ef upplýsingar á þessum skiltum eru beinlínis rangar og gera bílstjórum ókleift að meta aðstæður á vegum sem þeir ætla að fara að aka um, sér- staklega þar sem veðrabrigði eru skörp ein og títt er um fjallvegi á Ís- landi. Að sögn Gísla voru það 35 mínútna gamlar upplýsingar frá því klukkan 18.30 sem rútubílstjórinn las af skilt- inu þegar hann fór fram hjá því klukkan 19.05. Gísli segir að samkvæmt upplýs- ingum frá Vegagerðinni þá var hringt í veðurstöðina 35 míútum yfir heila tímann og fengnar upplýsingar um veður á veðurstöðinni fimm mínútum fyrr og þremur mínútum seinna eru upplýsingarnar komnar á skiltið. Hins vegar mælir veðurstöðin veðrið á tíu mínútna fresti en þær upplýsingar fara bara í gagnasafn Vegagerðarinnar. Standi hins vegar sömu upplýsingar á skiltinu vegna þess að ekki næst í veðurstöðina vegna tilfallandi aðstæðna, birtist að- vörunin bilun á skiltinu eftir 3 klukkutíma, svo allt að þriggja klukkustunda upplýsingar geta verið á skiltinu en það mun vera mjög fátítt að þess háttar bilanir verði. Hringt á klukkutíma fresti Að sögn Nicolai Jónassonar hjá Vegagerðinni rekur Vegagerðin um 50 veðurstöðvar meðfram þjóðvegum landsins. Hringt er í allar veðurstöðv- ar á klukkutíma fresti og upplýsingar frá þeim settar á skiltin. Nicolai stað- festi að framkomnar upplýsingar væru réttar en sagði að unnið væri að því að uppfæra skiltin oftar. Veðurgögnunum er safnað á tíu mínútna fresti af veðurstöðvunum og gefa upplýsingarnar vitneskju um meðalveður hverjar tíu mínútur. Þegar hringt er í veðurstöðvarnar fást sex tíu mínútna pakkar frá við- komandi veðurstöð að sögn Nicolai. Upplýsingaskilti Vegagerðarinnar Allt að þriggja tíma gamlar upplýsingar Norður-Hérað Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteins NÝLEGA tók Magnús B. Jónsson rektor við lyklum að nýjum nem- endagörðum úr hendi Péturs Jóns- sonar, húsasmíðameistara og verk- taka. Verkið hófst við skólaslit landbún- aðarháskólans í vor og núna er verið að afhenda fyrri hluta þess, það er að segja, tólf litlar íbúðir og eina stærri. Byggingin er í heild 1.092 fermetrar að stærð og í seinni hlutanum verða sex stærri íbúðir og geymslur fyrir allar íbúðirnar. Húsið og íbúðirnar er glæsilegar og frágangur og smíðavinna eru til fyrirmyndar enda voru lokaorð í út- tektarskýrslu íbúðalánasjóðs þessi: „Verkgæði og frágangur eru mjög góð og til sóma fyrir þá sem verkið unnu.“ Áætlað er að heildarkostnaður vegna byggingar nemendagarðanna muni verða nálægt 150 milljónum króna. Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri Afhend- ing nem- enda- garða Morgunblaðið/Davíð Pétursson Frá vinstri: Jón Ágúst Guðmundsson verkfræðingur, Magnús B. Jónsson, rektor LBH, Pétur Jónsson verktaki, Svava S. Kristjánsdóttir, eiginkona Péturs, og Magnús H. Ólafsson arkitekt. Skorradalur SALA hreindýra- veiðileyfa fer vel af stað að sögn Kar- enar Erlu Erlings- dóttur sem sér um sölu leyfanna. Fyrstu fjóra dagana sem leyfin hafa verið til sölu hafa selst 200 af 800 leyfum, eða um fjórðung- ur þeirra leyfa sem í boði eru. Karen segir að þetta sé mun meiri sala fyrstu dagana en á síðasta ári, að vísu hafi leyfin verið meira auglýst núna en í fyrra. „Mér sýnist leyfin ætla að seljast fljótt upp,“ sagði Karen. Sölu hreindýraveiðileyfa lýkur hinn 15. febrúar. Sala hrein- dýraveiði- leyfa fer vel af stað Norður-Hérað Karen Erla Erlingsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.