Morgunblaðið - 14.01.2003, Qupperneq 33
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 2003 33
Í dag kveðjum við bróður okkar
Eirík Pétursson sem lést í Sjúkra-
húsi Neskaupstaðar þriðjudaginn 7.
jan. sl.
Hugurinn reikar til vorsins 1933.
Faðir okkar hafði þá nýlega keypt
stærri vélbát. Ætlunin var að gera
bátinn út frá Hornafirði á vetrarver-
tíðinni sem byrjaði í febrúar. Eins og
stundum var gert var farinn einn
róður áður en ákvörðun var tekin um
útgerðarstað. Þegar í ljós kom að
reytingsafli fékkst í þessum róðri, en
tregur afli á Hornafirði, ákvað pabbi
að fara annan róður og þá fékkst
einnig ágætur afli. Veðráttan var
hagstæð og róðrum því haldið áfram
heima.
Örlagadagurinn í fjölskyldunni var
26. apríl 1933 en þann dag fórst Pét-
ur með bát sínum í Norðfjarðarflóa.
Hann var formaður á bátnum og með
honum fórust einnig 3 sjómenn. Frá
þeim degi gerðist Eiríkur, þá 15 ára,
fyrirvinna fjölskyldunnar ásamt
tveimur bræðrum næst í aldursröð-
inni 13 og 11 ára. Svo sem kunnugt er
var heimskreppan mikla þá í al-
gleymingi og kom hún mjög hart nið-
ur á sjávarþorpum, fiskverð hrapaði
og söluerfiðleikar fóru vaxandi. Góðir
vinir pabba sáu elstu strákunum
tveimur fyrir vinnu við beitningu og
fiskaðgerð fljótlega eftir slysið. Afla-
brögð voru ágæt. Eiríkur var að
sjálfsögðu fyrirliðinn, öflugur strák-
ur miðað við aldur, þrælaði mest
sjálfur til að hlífa yngri bróður, báðir
kunnu nokkuð til verka. Til að auka
tekjur heimilisins fóru Eiríkur og
næstelsti bróðirinn fljótlega að
stunda kolaveiðar í net í firðinum fyr-
ir og eftir langan vinnudag við beitn-
ingu og fiskaðgerð, sá þriðji í röðinni
11 ára, seldi bæjarbúum aflann og
gerði netin klár fyrir næstu lögn.
Hann kunni líka nokkuð til verka.
Pabbi hafði nýlega búið sig undir
þennan veiðiskap sem aukabúgrein í
kreppunni og kennt elstu strákunum
handtökin. Töluverðar tekjur urðu af
þessum veiðum. Þetta hélt áfram
næstu sumur. Eiríkur var duglegur
að útvega sér meiri vinnu við ferm-
ingu og affermingu flutningaskipa og
ýmislegt fleira. Pabbi hafði komið sér
upp sauðfjárstofni og tvær mjólkandi
kýr voru í fjósi. Eiríkur var hneigður
fyrir búskap, það þurfti að heyja. Ei-
ríkur og mamma sáu um það með
yngri börnunum. Umönnun kind-
anna bættist við önnur störf Eiríks.
Árin liðu, afkoma heimilisins var þol-
anleg. 1941 keyptu elstu bræðurnir
alvöru fiskibát og hófu útgerð á vetr-
arvertíð á Hornafirði og sumarróðra
heima. Nokkrum árum síðar var stór
sænskur síldarbátur keyptur. Svein-
þór bróðir var skipstjórinn. Eiríkur
var við síldveiðarnar næstu ár, sum-
ar og haust, en landróðrar voru
stundaðir á þeim bát frá Hafnarfirði
á vetrum fram til 1952. Þá var bát-
urinn seldur og bræðraútgerðinni
hætt. Eiríkur stundaði áfram sjó-
mennsku á bátum frá Norðfirði til
1960, fór þá að vinna við fiskverkun
ca. 10 ár í Frystihúsi Kaupfélagsins
og síðan hjá Síldarvinnslunni til árs-
EIRÍKUR
PÉTURSSON
✝ Eiríkur Péturs-son fæddist í
Neskaupstað 19. apr-
íl 1918. Hann lést á
Sjúkrahúsi Neskaup-
staðar 7. janúar síð-
astliðinn. Hann var
elstur sjö barna
hjónanna Guðrúnar
Eiríksdóttur, f. 9.9.
1897, d. 5.4. 1994, og
Péturs Sveinbjarnar-
sonar, formanns og
útgerðarmanns í
Neskaupstað, f.
15.12. 1894, d. 26.4.
1933.
Systkini Eiríks eru Ragnar, f.
21.10. 1919, Sveinþór, f. 5.4. 1922,
Hallgrímur, f. 9.11. 1925, Jens
Gunnar, f. 1.1. 1928, d. 17.1. 1998,
Nanna Hlín, f. 4.8. 1930, og Pétur
Ragnar, f. 26.8. 1932.
Útför Eiríks verður gerð frá
Norðfjarðarkirkju í dag og hefst
athöfnin kl. 14.
ins 1996. Þá hætti hann
að vinna 78 ára. Árið
1998 flutti hann á Elli-
heimilið í Neskaupstað.
Eiríkur söng í kirkju-
kór Norðfjarðarkirkju
og samkór Neskaup-
staðar yfir 40 ár. Söng-
ur var hans áhugamál.
Aðstandendur senda
læknum og öðru starfs-
liði Sjúkrahússins og
Elliheimilisins alúðar-
kveðjur og þakkir fyrir
frábæra umönnun og
vinsemd sýnda Eiríki.
Að leiðarlokum
kveðjum við systkinin góðan bróður
og þökkum honum samfylgdina.
Nanna Hlín, Ragnar, Svein-
þór, Hallgrímur, Pétur.
Kæri mágur.
Mig langar að kveðja þig með
nokkrum orðum og minningabrotum.
Margt hefur drifið á dagana í þessi
38, ár sem við höfum þekkst.
Vel tókst þú á móti mér þegar við
Jens bróðir þinn hófum búskap og
vorum í kjallaranum á Kvíabóli
ásamt þér. Þá komst ég að því hve
mikið ljúfmenni þú varst og snyrti-
menni.
Svo þegar sonur okkar fæddist
gekst þú svo hljóðlega um til að vekja
ekki barnið. Mikið varst þú nú barn-
góður Eiki minn, þú ljómaðir alveg
þegar ég kom svo heim með dóttur
okkar og sagðir að nú væri ég rík og
var það orð að sönnu. Því nú eru
börnin sem þú sást ekki sólina fyrir
vaxin úr grasi og bæði búsett á er-
lendri grund.
En svo stór þáttur varst þú í lífi
þeirra að þau spurðu alltaf hvernig
þú hefðir það þegar þau töluðu við
mig í síma og báðu að heilsa þér.
Mikið var ég glöð þegar þú baðst
mig einu sinni að koma með þér að
vitja um kolanetin var vel í netunum
og ýmislegt fleira en átti að vera,
verst fannst þér að fá þarann. Svo
var róið í land og hluti af aflanum
settur í damm og svo farið með heim í
soðið.
Drjúgur varst þú við kartöflu-
ræktina, var gaman að sjá hvað þú
varst ákveðinn og formfastur hvern-
ig ætti að setja niður svo vel væri.
Þegar tekið var upp á haustin var
uppskeran borin saman úr görðunum
okkar og var mér mikið í mun hvað
þú segðir um árangurinn.
Mikill vinnuþjarkur hefur þú verið
á þinni lífsleið og mörg voru störfin,
sjómennska, verkamaður við erfið
störf, margan kolapokann barst þú á
bakinu upp bryggjuna frá skipshlið
upp í pakkhús.
Ófáir eru fiskarnir sem þú flakaðir
í þinni íshúsvinnu og síðast varst þú í
saltfiskinum til 78 ára aldurs.
Varst þú þá búin að skila löngum
og ströngum vinnudögum.
En nú er komð að leiðarlokum
kæri vinur, þakka ég þér samfylgd-
ina og um leið og ég votta systkinum
þínum og þeirra vandamönnum sam-
úð mína bið ég guð að vera með þér
Þín mágkona
Alfa.
Eiki frændi á Kvíabóli er dáinn.
Horfinn er yfir móðuna miklu sér-
stakur öðlingur.Við áttum margt
sameiginlegt. Báðir hétum við eftir
afa okkar Eiríki. Báðir fæddumst við
í Neskaupstað og báðir vorum við
elstir í systkinahópunum.
Eiki var sérstakur, indæll maður.
Síðast þegar ég hitti hann, var hann
orðinn lúinn, eldri maður, sem þurfti
að nota heyrnartæki og átti því í erf-
iðleikum með að ná tali manna. Þetta
gerði hann leiðan, en hann kvartaði
samt ekki fremur en áður. Alla tíð
var hann einhleypur. Eiki var með-
almaður á hæð, nokkuð þunnhærður,
kraftalegur, handstór og handhlýr og
með afskaplega góðlegt bros og kím-
in augu. Hlátur hans og talandi var
mildur og af honum geislaði góðvild-
in. Hann mátti ekkert aumt sjá.
Hann var afskaplega hlédrægur og
feiminn. Þessi frændi minn gekk göt-
ur sínar hægt og frekar örðulaust.
Lítið lagðist hann í ferðalög. Hann
barst lítið á og var því nægjusamur á
veraldlegan auð og dvaldi nær alla tíð
sína á heimaslóðum.Vegna hógværð-
ar sinnar náði hann ekki fram til met-
orða, enda var það ekki hans vani að
trana sér fram. Fyrir mér gæti hann
verið fyrirmynd þeirra, sem fundu
upp heitið drengur góður. Mér þótti
alltaf vænt um þennan frænda minn.
Ef til vill voru það nafntengslin, sem
gerðu okkur nána, því báðir vildum
við líkjast afa okkar, þó hvor á sinn
hátt, en þráðurinn var sterkur og
þrátt fyrir fjarlægðina milli okkar
var hann óslitinn. Síðari árin var Eiki
hálflasinn. Elliþreytan sótti á hann.
Hann kvaddi fremur skyndilega, en
hægt, þegar blæðingin hafði tært úr
honum síðasta lífsneistann. Hans
verður líklega ekki minnst í bókum.
Samt var hann einn þeirra manna,
sem hafa gert landinu okkar hvað
mest gagn, án þess að nokkur hafi
tekið eftir. Slíkir menn eru vand-
fundnir en mikil gersemi. Allir
mættu vera stoltir af að eiga slíkan
frænda.
Megi hann hvíla í guðs friði.
Eiríkur Páll Sveinsson.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
HARALDUR STEINGRÍMSSON
húsasmíðameistari,
Fífuseli 10,
Reykjavík,
sem lést föstudaginn 10. janúar, verður jarð-
sunginn frá Grafarvogskirkju mánudaginn
20. janúar kl. 13.30.
Jóna Ólafsdóttir, Þorvaldur Kristjánsson,
Ástríður Haraldsdóttir,
Steingrímur Haraldsson, Þóra Pétursdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Útför
GESTS ÞORGRÍMSSONAR
myndhöggvara,
verður gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstu-
daginn 17. janúar kl. 13.30.
Sigrún Guðjónsdóttir,
Þorgrímur Gestsson, Guðbjörg Árnadóttir
Ragnheiður Gestsdóttir, Björn Þór Sigurbjörnsson,
Guðjón Ingi Gestsson, Auður Óskarsdóttir Vatnsdal,
Ingibjörg Þóra Gestsdóttir, Gylfi Björn Hvannberg,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, sonur,
tengdasonur, bróðir, mágur og svili,
BJARNI ÞRÖSTUR LÁRUSSON,
Skien,
Noregi,
verður jarðsunginn frá Langholtskirkju föstu-
daginn 17. janúar kl. 13.30.
Halla Jörundardóttir,
Lárus Bjarnason,
Einar Bjarnason,
Guðlaug Guðjónsdóttir, Margrét Einarsdóttir,
Þuríður Lárusdóttir, Ari Leifsson,
Þórdís Lárusdóttir, Rúnar Lárusson,
Erla Lárusdóttir,
Jóhannes Lárusson, Guðrún Reynisdóttir,
Sveinbjörn Lárusson Arnfríður Guðnadóttir,
Hildur Jörundsdóttir, Stefán Þór Þórsson,
Helga Jörundsdóttir, Kristján Guðmundsson,
Einar Jörundsson, Guðríður Haraldsdóttir,
Sveinn Jörundsson, Gro Helen Aalgaard.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
INGVARS INGVARSSONAR,
elliheimilinu Grund,
áður Safamýri 25.
Guðni Þór Ingvarsson, Matthildur Hjartardóttir,
Sigurjón Ingvarsson,
Magnús Þór Jónsson, Aðalheiður Gústafsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
Þökkum hlýhug og vinsemd við fráfall föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
LARS TRANBERGS JAKOBSSONAR.
Árni Jakob Larsson, Guðbjörg Magnúsdóttir,
Sveinn Björgvin Larsson, Þórunn Hjartardóttir,
Gunnar Larsson,
Valdís Sigrún Larsdóttir, Valgeir Berg Steindórsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær bróðir okkar og frændi,
KARL GEORG GUÐMUNDSSON
frá Svarthamri,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði
mánudaginn 13. janúar.
Stella Guðmundsdóttir,
Andrea Guðmundsdóttir,
Ingimar Guðmundsson,
Aðalheiður Guðmundsdóttir,
Ásta Guðmundsdóttir,
Viktoría Guðmundsdóttir
og frændsystkin.
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma, lang-
amma, systir og mágkona,
GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR,
Melahvarfi 6,
Kópavogi,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Skjóli laugar-
daginn 11. janúar.
Auður Pedersen, Valdimar K. Jónsson,
Gunnar Valdimarsson,
Anna María Valdimarsdóttir, Bjarni Brandsson,
Sigrún Valdimarsdóttir, Þórir Ásmundsson,
Guðrún Valdimarsdóttir, Hörður Harðarson,
Jón Valdimarsson, Guðrún Indriðadóttir,
Valdimar Valdimarsson, Ólöf Jóhannsdóttir,
langömmubörn,
Ágústa Jónsdóttir, Kristinn Óskarsson.