Morgunblaðið - 14.01.2003, Blaðsíða 46
46 ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Miðasala opnar kl. 15.30 HUGSAÐU STÓRT
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
kl. 5.30 og 9.30.
DV
RadíóX
Sýnd kl. 5, og 8. B.i.12.
“Besta Brosnan Bond-myndin”
GH Kvikmyndir.com
i
„Turnarnir gnæfa yfir
bestu myndir ársins“
SV.
MBL
ÓHT Rás 2
Kvikmyndir.com
1/2HK DV
„Besta mynd ársins“
FBL
YFIR 60.000 GESTIR
STÆRSTA BONDMYND
ALLRA TÍMA Á ÍSLANDI
YFIR 70.000 GESTIR
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i.14 ára
FRÁ FRAMLEIÐENDUM
LEON OG LE FEMME NIKITA
Sýnd kl. 6, 8 og10 Sýnd kl. 6 og 11.15. B.i. 16 ára
ÞEKKTUR framleiðandi, Steven
Haft, hefur tekið að sér að framleiða
ásamt Sigurjóni Sighvatssyni kvik-
mynd byggða á skáldsögu Ólafs Jó-
hanns Ólafssonar, Slóð fiðrildanna.
Haft er þekktur framleiðandi en
hann framleiddi m.a. óskarsverð-
launamyndina Dead Poets Society.
Framleiðandi myndarinnar er fyr-
irtæki Sigurjóns Sighvatssonar,
Palomar Pictures. „Ég hef þekkt
Jonna Sighvats lengi. Við þekkjumst
mjög vel,“ segir Haft í samtali við
Morgunblaðið.
Hann rifjar upp eftir örlítið hik að
þeir Sigurjón hafi þekkst frá því um
1980. „Ég þekkti hann áður en hann
og Steve Golin fóru að gera myndir
saman,“ segir hann.
Haft þekkir ennfremur Ólaf Jó-
hann, sem ásamt tengslunum við Sig-
urjón útskýrir af hverju hann ákvað
að koma að myndinni. „Ég hef þekkt
hann í um sex ár. Ég er mikill aðdá-
andi verka hans. Reyndar ber ég
mikla virðingu fyrir því hvernig hann
lifir lífi sínu og hversu miklu hann
hefur komið í verk miðað við okkur
hin, sem erum heppin að hafa hæfi-
leika á einu sviði,“ segir hann.
Haft segir að Ólafur hafi leitað til
sín varðandi Slóð fiðrildanna áður en
hún var gefin út. „Hann lét mig fá
handritið til yfirlestrar. Þetta var vin-
argreiði. Þá var ekkert búið að tala
um kvikmyndun sögunnar,“ segir
hann.
Eftirsótt hlutverk
Hann segist hafa strax frá upphafi
hrifist af aðalsöguhetjunni, Ásdísi
Jónsdóttur. „Þetta er saga nútíma-
konu, saga konu, sem hefur ekki farið
hefðbundar leiðir og er tilbúin til að
taka afleiðingum gjörða sinna,“ út-
skýrir Haft. „Það er auðvelt að sam-
sama sig slíkri persónu.“
„Hún er ekki alltaf samkvæm
sjálfri sér,“ segir hann og bendir á að
það sé ekki í samræmi við hefðbundn-
ar leiðir í Hollywood. Haft segist fast-
lega búast við því að margar leikkon-
ur eigi eftir að sækjast eftir hlutverki
hennar því það sé dýpra en venja sé
til í kvikmyndaborginni.
Unnið með stórstjörnum
Haft hefur um tveggja áratuga
skeið verið meðal mikilvirkustu kvik-
myndaframleiðenda í Hollywood.
Hann hefur unnið með fjölmörgum
stórstjörnum og kunnum leikstjór-
um. Myndir sem hann hefur framleitt
hafa m.a. hlotið sjö tilnefningar til
Óskarsverðlauna og átta tilnefningar
til Emmy-verðlaunanna. Þá hefur
hann hlotið bresku BAFTA-verð-
launin.
Á meðal mynda er hann hefur
framleitt eru Emma með Gwyneth
Paltrow í titilhlutverki, Last Dance
með Sharon Stone og Beyond Ther-
apy, sem Robert Altman leikstýrði.
Þá hefur hann framleitt mynd með
John Huston. Ennfremur lauk nýver-
ið tökum á nýjustu framleiðslu hans,
The Singing Detective, með Mel Gib-
son og Robert Downey Jr.
Liv Ullman leikstýrir
Framleiðsluferlið er einungis á
byrjunarstigi en gengið hefur verið
frá því að Liv Ullman leikstýri mynd-
inni. „Liv ætlar að leikstýra myndinni
og ég get ekki hugsað mér neinn hæf-
ari til verksins,“ segir Haft.
Höfundur handrits er Eileen Atk-
ins og er hún hálfnuð með fyrsta upp-
kast handritsins, að sögn Hafts.
„Hún er búin að skrifa nokkrar sen-
ur, sem hún hefur sýnt okkur Liv,
Ólafi og Jonna,“ segir hann.
Ullmann er líklega þekktust sem
leikstjóri fyrir mynd sína Trolösa en
hún er einnig vel kunn leikkona. Tro-
lösa var valin var besta norræna
mynd ársins á Kvikmyndahátíðinni í
Lübeck 2000, var í aðalkeppninni um
Gullpálmann í Cannes árið 2000 og
var tilnefnd til Evrópsku kvikmynda-
verðlaunanna sama ár.
Myndin var valin meðal tíu bestu
kvikmynda ársins 2001 í ýmsum fjöl-
miðlum vestra, þar á meðal New
York Times og Time.
Næsta skref um páskana
Haft telur að nokkurra mánaða
vinna sé framundan áður en næsta
skref verði tekið. Hann segir að það
megi búast við því að fyrsta uppkast-
ið að handritinu verði tilbúið um
páskana og þangað til verði unnið að
frekari undirbúningi myndarinnar.
„Eftir það tekur Liv við og má bú-
ast við því að þá verði farið að ráða í
hlutverk og frekari framkvæmdir,“
segir Haft, sem minnist á það undir
lokin að hann sé að læra íslensku.
„Ólafur er að kenna mér,“ segir hann.
Handritshöfundurinn Atkins skrif-
aði einnig handritið að Mrs. Dalloway
með óskarsverðlaunahafanum Van-
essu Redgrave í aðalhlutverki en
myndin er byggð á skáldsögu Virg-
iniu Wolf.
Hún er ennfremur þekkt fyrir feril
sinn sem leikkona og var á meðal
upphafsmanna að sjónvarpsþáttaröð-
inni vinsælu Húsbændur og hjú.
Slóð fiðrildanna kallast The Journ-
ey Home á ensku og kom fyrst út hjá
Vöku-Helgafelli árið 1999. Bókin hef-
ur notið mikilla vinsælda síðan og
hefur útgáfurétturinn verið seldur til
ellefu landa.
Steven Haft framleiðir kvikmyndagerð Slóðar fiðrildanna
Frá tökum á kvikmyndinni Last Dance frá árinu 1996 en þarna má sjá leik-
konuna Sharon Stone ásamt framleiðandanum Steven Haft.
Hefur staðið að gerð
óskarsverðlaunamynda
EIN sögufrægasta hljómsveit
rokksins, The Yardbirds, er
væntanleg til Íslands og heldur
eina tónleika á Broadway
fimmtudagskvöldið 20. mars. The
Yardbirds var stofnuð árið 1963
og var í upphafi í fararbroddi
bresku blúsbylgjunnar, ásamt
hljómsveitum eins og The Rolling
Stones og náði heimsfrægð með
sérstæðum vinsældasmellum á
borð við „For Your Love“ og
„Heart Full of Soul“, en markaði
síðan tímamót er þeir þróuðu
svokallað sýrurokk eða „psych-
edelic“ rokk með t.d. „Shape of
Things“ og sömdu popp undir
áhrifum gregoríansks munka-
söngs með „Still I’m Sad“.
Af þeim þremur stofnendum
The Yardbirds sem störfuðu með
hljómsveitinni þar til hún hætti
árið 1968 er einn látinn, Keith
Relf söngvari, en hinir tveir, gít-
arleikarinn Chris Dreja og
trommuleikarinn og söngvarinn
Jim McCarty fara enn fyrir sveit-
inni sem þeir endurreistu á síð-
asta áratug eftir að hún var inn-
vígð í Frægðarhöll rokksins (The
Rock and Roll Hall of Fame).
The Yardbirds var á 7. ára-
tugnum uppeldisstöð fyrir helstu
gítarhetjur rokksögunnar. Eric
Clapton, Jeff Beck og Jimmy
Page léku til skiptis með sveit-
inni, þar til sá síðastnefndi stofn-
aði Led Zeppelin, sem upphaflega
hét The New Yardbirds. Aðalgít-
arleikari The Yardbirds núna er
Gypie Mayo, sem var gítaristi og
einn helsti lagahöfundur hljóm-
sveitarinnar dr. Feelgood. Aðrir
liðsmenn The Yardbirds, sem
hingað koma, eru bassaleikarinn
og söngvarinn John Idan og
munnhörpu- og ásláttarleikarinn
Alan Glen, sem starfað hefur með
ýmsum helstu blússveitum Breta
undanfarin ár og var tilnefndur
besti blúsmunnhörpuleikari Bret-
lands árið 2001.
Friðrik Þór Friðriksson leik-
stjóri er einn þeirra sem stendur
að innflutningi sveitarinnar.
Hann segir enga sérstaka ástæðu
fyrir því að hann lagði í þetta
verkefni, aðra en þá að hann er
mikil aðdáandi sveitarinnar.
„Þegar ég var barn að aldri fór
ég í sveit með plötuspilara sem
gekk fyrir rafhlöðum og 45 snún-
inga plötu með Yardbirds. Þar
voru lögin „Heart Full of Soul“
og „Steeled Blues“ og þetta spil-
aði ég í gegn.“
Þess má að lokum geta að í lok
apríl kemur út ný hljómplata frá
The Yardbirds, sú fyrsta í 35 ár.
Hún mun heita Birdland, verður
með bæði nýju og klassísku efni
og leikur fjöldi frægra gestaspil-
ara með sveitinni, eins og Jeff
Beck, Brian May, Steve Vai,
Slash, Jeff „Skunk“ Baxter o.fl. Á
tónleikunum á Broadway munu
The Yardbirds bæði flytja sígilda
smelli sína og efni af nýju plöt-
unni. Forsala aðgöngumiða hefst
í dag á Broadway.
The Yardbirds heldur tónleika á Broadway í mars
Uppeldisstöð helstu gít-
arhetja rokksögunnar
Rokkhetjur spila á Íslandi: The Yardbirds eins og hljómsveitin er nú skipuð.