Morgunblaðið - 22.01.2003, Síða 10
FRÉTTIR
10 MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
sagði á Alþingi í gær að umfang
fyrirhugaðra stóriðjuframkvæmda
á Austurlandi gæfi tilefni til að
vera vel á varðbergi gegn mögu-
legum þensluáhrifum þeirra á
efnahagslífið. „En það er á hinn
bóginn argasta öfugmælavísa að
tala um að þarna sé á ferðinni ein-
hver sérstakur voði eða vá sem
kalli á skyndiákvarðanir í ríkisfjár-
málum eða við stjórn peningamála
á þessari stundu,“ bætti hann við.
Ráðherra sagði að aðalatriði máls-
ins væri það að ef til þess kæmi að
grípa þyrfti til einhverra sérstakra
aðhaldsaðgerða vegna Kára-
hnjúkavirkjunar og álversins á
Reyðarfirði þá væru slíkar aðgerð-
ir einungis tímabundnar. Ávinn-
ingurinn af fjárfestingunni yrði
hins vegar til langs tíma og að
hann væri verulegur. Hagkerfið
allt myndi styrkjast. Hagvöxtur
yrði meiri en ella, útflutningur yk-
ist, atvinna sömuleiðis, ríkissjóður
styrktist og byggðin á Austfjörðun
efldist til muna. „Lífskjör þjóð-
arinnar batna því óumdeilanlega
og það er ábyrgðarleysi að standa
gegn þessari miklu atvinnuupp-
byggingu sem fram undan er á
Austfjörðum.“
Ummæli þessi féllu í umræðum
utan dagskrár um mótvægisað-
gerðir vegna fyrirhugaðra stór-
iðjuframkvæmda á Austurlandi.
Ögmundur Jónasson, þingflokks-
formaður Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs, var málshefjandi
umræðunnar en Davíð Oddsson
var til andsvara. Ögmundur beindi
nokkrum spurningum til forsætis-
ráðherra, m.a. spurði hann að því
hvort ríkisstjórnin hefði á prjón-
unum mótvægisaðgerðir vegna
framkvæmdanna, t.d. gagnvart
skuldsettum aðilum, þ.e. einstak-
lingum, fjölskyldum og fyrirtækj-
um. Þá spurði hann að því hvernig
ríkisstjórnin hygðist mæta hugs-
anlegum svokölluðum ruðnings-
áhrifum framkvæmdanna á efna-
hagslífið. Vísaði hann þar til
ummæla hagfræðinga um að fram-
kvæmdirnar gætu verið þrándur í
götu annars atvinnureksturs, sér-
staklega smárra og meðalstórra
fyrirtækja sem þyrftu að taka lán
með hærri vöxtum en ella. Í því
sambandi væri talað um ruðn-
ingsáhrif, þar sem þessum fyrir-
tækjum yrði hreinlega rutt úr
vegi.
Engin leið að sjá hvernig
ástandið verður
Forsætisráðherra lagði áherslu
á að meginþungi fyrirhugaðra
framkvæmda yrði á árunum 2005
til 2006. „Það er engin leið að sjá
fyrir með neinni öruggri vissu
hvert ástand efnahagsmála verður
á þeim tíma. Það liggur t.d. ekki
fyrir í dag hver þorskaflinn verður
á árinu 2005, hverjar verða að-
stæður á helstu útflutningsmörk-
uðum okkar árið 2005 eða til dæm-
is hvernig kjarasamningar munu
ganga fyrir sig á næstu misserum.
Allt eru þetta þættir sem miklu
ráða um ganginn í efnahagslífinu.
Það er því engan veginn við hæfi
nú að lýsa því til hvaða aðgerða
eigi að grípa í ríkisfjármálum.
Slíkar ákvarðanir hljóta að verða
teknar við vinnslu fjárlaga á árinu
2004 og á næstu árum þar á eftir.
Sama gildir um aðgerðir í stjórnun
peningamála. Þær hljóta að taka
mið af efnahagsástandinu eins og
það er á hverjum tíma og engan
veginn er hægt að fullyrða um það
hvort þróun vaxta verður okkur
óhagstæð á þessum tíma.“
Nokkrir þingmenn tóku til máls
í umræðunni og mátti finna hörð-
ustu andstæðinga stóriðjufram-
kvæmdanna meðal þingmanna VG.
Jón Bjarnason, þingmaður VG,
sagði m.a. að það væri mat flestra
hagfræðinga sem hefðu tjáð sig
um fyrirhugaðar framkvæmdir að
þær myndu valda gífurlegri þenslu
í efnahagslífinu. Aðrir landshlutar
en Austfirðir og suðvesturhornið
og aðrar atvinnugreinar „myndu
blæða“ vegna hærri vaxta og
hærra gengis krónunnar sem
framkvæmdirnar myndu kalla
fram. Árni Steinar Jóhannsson,
þingmaður VG, lagði m.a. áherslu
á að glæsilegir þjóðgarðar sköp-
uðu líka atvinnu, því eins og menn
vissu væri ferðamannaþjónustan
önnur stærsta atvinnugrein Ís-
lendinga. Árni Steinar taldi líka
ástæðu til að minnast á málflutn-
ing annarra þingmanna í um-
ræðunni. Um það sagði hann:
„Maður undrar sig á málflutningi
allflestra þingmanna hér, sem
virðast greinilega vera komnir á
álvagninn.“
Ýmsir þingmenn höfðu þó, eins
og þingmenn VG, einnig áhyggjur
af áhrifum fyrirhugaðra fram-
kvæmda á efnahagslífið. Svanfríð-
ur Jónasdóttir, þingmaður Sam-
fylkingarinnar, innti ríkisstjórnina
t.d. einnig eftir mótvægisaðgerð-
um vegna umræddra framkvæmda
og taldi að fjölmörg fyrirtæki
myndu ekki ráða við þá gengis-
þróun sem framkvæmdirnar hefðu
þegar kallað fram. Guðjón A.
Kristjánsson, þingmaður Frjáls-
lynda flokksins, sagðist hafa mikl-
ar áhyggjur af sínu kjördæmi, þ.e.
hinu nýja Norðvesturkjördæmi.
Þar væru ekki fyrirhugaðar neinar
sérstakar framkvæmdir til mót-
vægis við framkvæmdirnar á Aust-
fjörðum. Hann kvaðst þó vona að
framkvæmdirnar yrðu öllum til
gæfu og gengis.
Jóhann Ársælsson, þingmaður
Samfylkingarinnar, sagði einnig
fulla ástæðu til að ræða um mót-
vægisaðgerðir vegna umræddra
framkvæmda og benti m.a. á að
ástæða væri til að koma af stað
framkvæmdum í öðrum landshlut-
um en Austurlandi.
Stjórnarþingmenn fögnuðu hins
vegar fyrirhuguðum framkvæmd-
um og benti Hjálmar Árnason,
þingmaður Framsóknarflokksins,
m.a. á að með umræddu verkefni á
Austfjörðum væri lagður enn frek-
ari grunnur að íslensku velferð-
arkerfi. Arnbjörg Sveinsdóttir,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins,
tók í sama streng. „Við erum að
ráðast í framkvæmd sem hefur
góð áhrif á efnahagslífið,“ sagði
hún m.a. „Það er augljóst mál að
ekki yrði ráðist í þessar fram-
kvæmdir nema þær skiluðu arði
fyrir eigendur og þjóðarbúið,“
bætti hún við. Þá sagði Einar K.
Guðfinnsson, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins, að það væri und-
arlegur málflutningur hjá þing-
mönnum VG að tala um að aukin
efnahagsumsvif kölluðu böl yfir
þjóðina.
Forsætisráðherra 2005?
Í lok umræðunnar kom Ög-
mundur Jónasson aftur í pontu og
kvartaði yfir svörum forsætisráð-
herra og sagði að þau hefðu verið
rýr. Þá sagði Ögmundur: „Ég vil
leggja áherslu á að þetta ítalska
fyrirtæki, Impregilo [fyrirtækið
sem var með lægsta tilboðið í gerð
stíflu og aðrennslisganga Kára-
hnjúkavirkjunar] er líka þekkt fyr-
ir hneykslismál. Ég hvet menn til
að fara á Netið og fletta upp Impr-
egilo og scandal. Þá fyllist skjár-
inn einhverra hluta vegna. Þetta
fyrirtæki er þekkt fyrir að bjóða
lágt en keyra síðan kostnaðinn upp
frammi fyrir dómstólum.“ Í ræðu
Ögmundar kom einnig fram að
Impregilo hygðist flytja allt sitt
vinnuafl inn til landsins.
Davíð Oddsson tók síðastur til
máls í umræðunni og ítrekaði m.a.
það sem hann hafði áður sagt.
Þegar Davíð hafði lokið máli sínu
kallaði Ögmundur úr sæti sínu:
„Hvernig væri að svara spurning-
unum?“
Þessu svaraði Davíð með því að
segja: „Ég skal gera það sem for-
sætisráðherra hérna 2005,“ og
uppskar við það mikinn hlátur
þingmanna.
Utandagskrárumræða á Alþingi um mótvægisaðgerðir vegna stóriðjuframkvæmda á Austurlandi
Ávinningur af fjárfest-
ingunni er til langs tíma
segir forsætisráðherra
Morgunblaðið/Golli
Ögmundur Jónasson alþingismaður vildi fá svör frá Davíð Oddssyni um til
hvaða ráðstafanir yrði gripið til að draga úr neikvæðum skammtíma-
áhrifum álvers- og virkjanaframkvæmda á efnahagslífið. Forsætisráð-
herra taldi ótímabært að svara því og benti á að óvissa ríkti um stöðu efna-
hagsmála á árunum 2005–2006, s.s. um fiskverð, kjarasamninga og fleira.
Þingmenn hófu fyrsta þingfund Alþingis í gær, eftir jólahlé, á um-
ræðum um fyrirhugaðar stóriðjuframkvæmdir á Austurlandi. Málið
var rætt utan dagskrár samkvæmt beiðni þingflokks Vinstri grænna.
Arna Schram fylgdist með umræðunum. Það sama gerðu fjölmargir
andstæðingar Kárahnjúkavirkjunar, á þingpöllum Alþingis.
arna@mbl.is
ADOLF H. Berndsen tók sæti á
Alþingi við upphaf þingfundar á
Alþingi í gær. Hann tók sæti Vil-
hjálms Egilssonar, þingmanns
sjálfstæðismanna í Norðurlandi
vestra, sem afsalaði sér þing-
mennsku hinn 16. janúar sl. Adolf
verður fjórði þingmaður Norður-
lands vestra en Sigríður Ingv-
arsdóttir, þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins, verður við þessar
breytingar fyrsti þingmaður Norð-
urlands vestra.
Í bréfi til þingsins sem forseti
Alþingis, Halldór Blöndal, las upp
á þingfundi í gær, þakkaði Vil-
hjálmur Egils-
son þingforseta
og þingmönnum
samstarfið á
liðnum árum.
„Ég óska ykkur
öllum farsældar
í störfum ykkar í
framtíðinni,“
sagði Vilhjálmur
ennfremur í
bréfi sínu. For-
seti þingsins bauð nýjan þingmann
velkominn til starfa og óskaði Vil-
hjálmi allra heilla á nýjum starfs-
vettvangi.
Nokkrar breytingar verða á
skipan sjálfstæðismanna í þing-
nefndum þingsins í kjölfar þess að
Vilhjálmur hefur sagt af sér þing-
mennsku og Adolf hefur komið í
hans stað. Einar K. Guðfinnsson
hefur sagt af sér formennsku í
sjávarútvegsnefnd þingsins og mun
í stað Vilhjálms taka við for-
mennsku í efnahags- og viðskipta-
nefnd þingsins. Árni R. Árnason
hefur verið kjörinn formaður sjáv-
arútvegsnefndar í stað Einars. Þá
mun Gunnar I. Birgisson taka sæti
Vilhjálms sem varamanns í utan-
ríkismálanefnd þingsins.
Adolf tekur sæti á þingi
Adolf H.
Berndsen
BJÖRGVIN G. Sigurðs-
son, annar varaþingmað-
ur Samfylkingarinnar í
Suðurlandskjördæmi,
tók sæti á Alþingi í gær í
fjarveru Margrétar Frí-
mannsdóttur, en hún er í
veikindaleyfi um óákveð-
inn tíma. Björgvin hefur
áður tekið sæti á Al-
þingi.
Samkvæmt tilkynn-
ingu frá Samfylkingunni greind-
ist Margrét nýlega með
brjóstakrabbamein. Hún
gekkst á föstudag undir
aðgerð á Landspítala –
háskólasjúkrahúsi. Sam-
kvæmt upplýsingum
Samfylkingarinnar tókst
aðgerðin vel.
Forseti þingsins, Hall-
dór Blöndal, sendi í gær
kveðju til Margrétar
með góðum óskum um
skjótan bata.
Margrét Frímanns-
dóttir í veikindaleyfi
Margrét
Frímannsdóttir
ÞINGFUNDUR Alþingis hefst
kl. 13.30 í dag. Að loknum at-
kvæðagreiðslum eru fyrir-
spurnir til ráðherra.