Morgunblaðið - 22.01.2003, Blaðsíða 44
ÍÞRÓTTIR
44 MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÁSTRALAR voru heldur fljótari
að skora gegn Þjóðverjum í gær en
gegn Íslendingum í fyrradag. Taip
Ramadani, línumaður frá Kjelsås í
Noregi, minnkaði muninn í 4:1 eftir
rúmar 7 mínútur gegn Þýskalandi.
Það tók Ástrala 13 mínútur að skora
gegn Íslandi og þá minnkuðu þeir
muninn í 10:1.
HEINER Brand, þjálfari Þjóð-
verja, var ekki sáttur við sína menn í
síðari hálfleiknum gegn Ástralíu.
Þegar staðan var 34:13 tók hann
leikhlé og hundskammaði sína menn
fyrir kæruleysi.
GRÆNLENDINGAR hafa bæst í
hóp þeirra sem eru ekki ánægðir
með framkvæmd mótsins í Portúgal.
„Portúgal er Evrópuþjóð en samt er
ýmislegt hér ekki eins og við eigum
að venjast. Skipulagið er ekki upp á
það besta og margt virðist handa-
hófskennt,“ skrifaði Kurt Lauritsen,
fararstjóri Grænlendinga, í dagbók
grænlenska landsliðsins á veraldar-
vefnum.
AÐEINS þrír leikmenn græn-
lenska liðsins komust á blað í leikn-
um við Íslendinga í gær. Jakob Lar-
sen, leikmaður GOG í Danmörku,
skoraði 11 mörk, Hans Peter Mots-
feldt, fyrrum leikmaður FH sem
spilar með Gelnhausen í þýsku 2.
deildinni, skoraði 5 og línumaðurinn
Rasmus Larsen skoraði 1.
GUNNAR BERG Viktorsson og
Snorri Steinn Guðjónsson voru ekki
í íslenska leikmannahópnum gegn
Grænlandi í gær. Þeir voru heldur
ekki með gegn Áströlum í fyrradag.
ÍSLAND hefur einu sinni leikið
gegn Portúgal í HM. Það var í
Frakklandi 2001 og fögnuðu Íslend-
ingar þá sigri, 22:19. Af þeim leik-
mönnum sem leika nú á HM, léku
þeir Guðmundur Hrafnkelsson, Ein-
ar Örn Jónsson, Dagur Sigurðsson,
Patrekur Jóhannesson, Ólafur Stef-
ánsson, Aron Kristjánsson, Róbert
Sighvatsson, Gústaf Bjarnason og
Heiðmar Felixson þann leik. Róbert
og Duranona skoruðu flest mörk,
fimm hvor.
LASSE Boesen, landsliðsmaður
Dana í handknattleik og leikmaður
Kolding, hefur aþakkað tilboð frá
spænska liðinu Portland San Anton-
io, sem um þessar mundir er í þriðja
sæti spænsku deildarinnar. Boessen
segir félagið ekki hafa boðið sér
nógu góð laun.
TRYGGVI Guðmundsson tryggði
Stabæk sigur í fyrsta æfingaleik sín-
um á árinu í norsku knattspyrnunni.
Tryggvi skoraði sigurmarkið gegn
1. deildarliði HamKam, 1:0, í gær,
með skalla.
HARALDUR Axel Einarsson,
markahæsti leikmaður Víðis í 2.
deildinni í knattspyrnu síðasta sum-
ar, er genginn til liðs við 1. deildarlið
Keflavíkur.
BRASILÍSKI landsliðsmarkvörð-
urinn Marcos gengur að öllum lík-
indum til liðs við ensku meistarana í
Arsenal í vikunni. Arsenal hefur
boðið 2,4 milljónir punda í leikmann-
inn sem leikur með Palmeiras í
heimalandi sínu.
BOBBY Robson, knattspyrnu-
stjóri Newcastle, sem hefur hug á að
kaupa enska landsliðsmanninn Jon-
athan Woodgate frá Leeds á sjö
millj. punda, er tilbúinn að berjast
við Terry Venables, knattspyrnu-
stjóra Leeds, um kaup á brasilíska
landsliðsmanninum Kleberson, 23
ára, frá Paraneanes.
MATTHEW Upson, varnarmaður
Arsenal, er aftur kominn til Birm-
ingham til æfinga, en hann neitaði að
fara til liðsins á dögunum, eftir að
Arsenal var búið að semja við Birm-
ingham um sölu upp á þrjár millj.
punda. Upson mun ræða nánar við
Steve Bruce, knattspyrnustjóra
Birmingham.
LEEDS hefur sýnt Upson áhuga
og er tilbúið að kaupa hann, ef Jon-
athan Woodgate verður seldur til
Newcastle.
FÓLK
GUÐMUNDUR Þórður Guð-
mundsson, landsliðsþjálfari hand-
knattleiksliðsins, segir að allt
gangi samkvæmt áætlun hjá sín-
um mönnum en nú fari virkilega
að reyna á liðið enda fram undan
mjög erfiður leikur á móti heima-
mönnum í Portúgal annað kvöld í
Viseu.
„Það má segja að fyrsta hluta
verkefnisins sé lokið hjá okkur.
Við erum búnir að spila við and-
stæðinga sem voru miklu slakari
en við en ég er ánægður með
hvernig strákarnir afgreiddu þá
leiki. Við ætluðum okkur að kom-
ast fljótt í þá stöðu í leikjunum að
geta hvílt lykilmenn og spilað á
mörgum mönnum og það gekk
allt saman eftir. Leikurinn í
kvöld við Grænlendinga var
kannski enginn glansleikur af
okkar hálfu en við unnum hann
með 13 marka mun og ég get í
raun ekkert beðið um meira. Það
örlaði á smá einbeitingarleysi af
og til en það er bara hlutur sem
alltaf má reikna með í ójöfnum
leikjum,“ sagði Guðmundur við
Morgunblaðið.
Guðmundur sá Portúgalana
sigra Katarmenn með tíu marka
mun í gærkvöld og hann segist
reikna með hörkuleik gegn þeim
á fimmtudagskvöldið.
„Portúgalarnir voru í strögli
framan af en þeir sigldu svo
hægt og bítandi fram úr. Við bú-
um okkur undir mjög erfiðan leik
enda Portúgalarnir með mjög
sterkt lið. Vörn þeirra og mark-
varsla er mjög góð, hraðaupp-
hlaupin skæð og í þeirra röðum
eru hörkugóðar skyttur. Ég tel
hins vegar að ef við spilum vel og
náum að laða fram það besta í
leik okkar þá eigum við góða
möguleika á að leggja þá að velli.
Ég kem til með að undirbúa
strákana mjög vel og ætla að fara
yfir leiki portúgalska liðsins frá
a-ö með þeim þannig að það verði
ekkert sem komi þeim á óvart.
Portúgalarnir eru reynslumikið
lið sem náði mjög góðum árangri
á EM í fyrra. Það lenti í 9. sæti
og ég veit að það er til mikils
ætlast af þeim á heimavelli í þess-
ari keppni svo það verður hart
tekist á.“
Að sögn Guðmundar eru allir
íslensku leikmennirnir heilir
heilsu og ef eitthvað er þá eru
þeir sem áttu við smá hnjask að
stríða búnir að hrista það af sér í
fyrstu tveimur leikjunum.
Guðmundur Þ. Guðmunds-
son landsliðsþjálfari.
Allt á áætlun hjá Guðmundi
HEIMSMEISTARAKEPPNIN í
handknattleik er hafin í Portúgal
með ýmsum flugeldasýningum,
eins og ótrúlegum tölum úr leik
Íslands og Ástralíu, 55:15!
Það vissu allir, sem þekkja til,
að boðið yrði upp á ýmsar uppá-
komur á HM, þar sem mörg
landslið, sem taka þátt í keppn-
inni, eiga langt frá því heima í
hópi þeirra bestu. Sitt sýnist þó
hverjum – til dæmis mátti heyra
sjónvarpsmenn hrósa leik Ástr-
ala. Ekki virðist þekkingin á
íþróttinni mikil þar á bæ.
Þegar HM fór fram í Frakk-
landi fyrir tveimur árum vökn-
uðu menn upp við vondan draum
– voru óhressir með hve mikið
var um miðlungsleiki og leiki þar
sem mikill munur var á liðum.
Það er ótrúlegt að með í loka-
keppni HM séu þjóðir, sem ekki
eru með deildakeppni í sínu landi
– handknattleikur er þar aðeins
skólaíþrótt. Hávær orðrómur
hefur verið uppi um að sumar
Arabaþjóðir hafi „keypt“ HM-
sæti með því að bera fé á dómara
og aðra.
Það vita allir, sem vilja hand-
knattleiknum vel, að það er orðið
löngu tímabært að fækka föstum
sætum hjá álfunum fyrir utan
Evrópu úr þremur í tvö. Menn
eru sammála um að það þurfi að
gera eitthvað róttækt til að
hressa HM við, ef keppnin á ekki
að falla í skuggann af sterkri
Evrópukeppni, eins og hún var í
Svíþjóð í fyrra, með sextán sterk-
ustu landsliðum álfunnar og um
leið heims.
Það verða leiknir 60 leikir í
riðlakeppninni í Portúgal og það
er vitað að aðeins örfáir þeirra,
tólf til fimmtán, verða athygl-
isverðir. Áhorfendur fjölmenna
ekki á leiki á HM og sérstaklega
ekki á mót, sem er illa skipulagt
og óaðlaðandi.
HM í Portúgal stendur yfir í tíu
daga – frá mánudeginum 20. jan-
úar til miðvikudagsins 29. janúar,
áður en alvaran hefst og loka-
spennan stendur stutt yfir. Þá
leika þær átta þjóðir, sem komast
lengst, fjóra leiki á fimm dögum!
Eitthvað hljóta tölur um frétta-
menn á HM að vera ofreiknaðar,
enda ótrúlegt að um hundrað
fréttamenn séu mættir á staðinn
frá Þýskalandi. Þeir hafa þá ver-
ið fleiri en áhorfendur á leik
Þýskalands og Katar, sem voru
vel undir 100. Flestir áhorfendur
sáu leik Portúgals og Grænlands
– um 400, en á öðrum keppn-
isstöðum í Portúgal var fátt um
manninn. Tómahljóð heyrðist í
keppnishöllum.
Gárungar sögðu að þegar Ís-
land vann Ástralíu 55:15 hefði
verið skorað eitt mark fyrir
hvern áhorfanda sem var á leikn-
um!
Sagt er að um 700 fréttamenn
séu á staðnum. Ef svo er þá er lít-
ið gert til að þjónusta þá. Upplýs-
ingaflæði á HM er afar lélegt,
enda endurspeglar framkvæmdin
vinnubrögð alþjóða handknatt-
leikssambandsins, IHF, sem er
áratugum á eftir handknattleiks-
sambandi Evrópu, EHF, í hugs-
unarhætti og vinnubrögðum. Það
geta menn best séð með því að
fara inn á heimasíður sam-
bandanna á Netinu. Það er sorg-
legt að bera saman heimasíðu
HM í Portúgal og heimasíðurnar
um EM á Ítalíu 1998, EM í Króat-
íu 2000 og EM í Svíþjóð 2002.
Þjónusta er lítil og nær eingöngu
frá B-riðlinum, sem heimamenn
leika í ásamt Íslandi, Þýskalandi,
Katar, Ástralíu og Grænlandi.
Sigmundur Ó. Steinarsson
HM-tómahljóð
Það tók Grænlendingana munskemmri tíma en Ástrala að
finna netmöskvana hjá Íslendingum.
Ólafur Stefánsson skoraði tvö fyrstu
mörk íslenska liðsins en Grænlend-
ingar jöfnuðu í bæði skiptin og stað-
an eftir tveggja mínútna leik, 2:2.
Patrekur Jóhannesson tók þá til
sinna ráða. Hann skoraði 5 mörk í
röð og Sigfús Sigurðsson eitt og
staðan breyttist í 8:2 þegar rúmar
áttu mínútur voru liðnar af leiknum.
Grænlendingar létu ekki bugast og
með stórskyttuna Jakob Larsen í
broddi fylkingar náðu þeir að halda í
horfinu en átta mörk skildu lið þegar
egypska dómaraparið flautaði til
leikhlés.
Hnökrar komu fram
Í síðari hálfleik fór að bera tals-
vert á værukærð í herbúðum Íslend-
inga. Sóknarfeilarnir ágerðust og
talsverðir hnökrar komu fram á leik
liðsins. Mönnum var tíðrætt um góða
einbeitingu íslensku leikmannanna í
leiknum við Ástralíu en það sama var
ekki uppi á teningnum í gær. Mark-
tækifærin voru illa nýtt og leikmenn
á borð við Ólaf Stefánsson og Patrek
Jóhannesson gerðu sig seka um
klaufaleg mistök. Eðlilegar skýring-
ar á einbeitingarleysi kunna ein-
hverjir að segja enda íslenska liðið
að mæta annan daginn í röð veikum
andstæðingum og ekkert skrýtið að í
undirmeðvitundinni væru menn
komnir með hugann við næsta verk-
efni – leik við Portúgala annað kvöld.
Grænlendingar bitu lengi vel frá sér
í síðari hálfleiknum. Þeir náðu að
halda muninum í 8–10 mörkum en
góður endasprettur Íslendinga, þar
sem Sigurður Bjarnason skoraði 3 af
síðustu fimm mörkunum, tryggðu 13
marka sigur í leik sem fullur var af
mistökum, einkum í síðari hálfleik.
Líkt og í leiknum við Ástrala verð-
ur íslenska liðið ekki dæmt af
frammistöðu sinni. Til þess var getu-
munur liðanna of mikill og erfitt að
draga einhverja leikmenn út úr sem
léku betur en aðrir. Patrekur átti
ágætan kafla í fyrri hálfleik, skoraði
sex af níu fyrstu mörkunum og virk-
aði mjög sprækur en þegar líða tók á
leikinn átti hann ótímabær skot og
gerðist á kafla full kærulaus. Ólafur
Stefánsson var ekki nema skugginn
af sjálfum sér. Bæði átti hann slök
skot og missti knöttinn klaufalega
frá sér í sókninni. Ólafur fékk góða
hvíld og verður því vonandi búinn að
safna bæði þreki og kröftum fyrir
baráttuna sem fram undan er enda
lykilatriði fyrir íslenska liðið að hann
nái sér á strik.
Þrír leikmenn sáu um að skora öll
mörk Grænlendinga. Jakob Larsen,
Hans Peter Motzfeld og Rasmuss
Larsen. Sá fyrstnefndi fór þar
fremstur í flokki, skoraði 11 mörk og
áttu íslensku varnarmennirnir í
stökustu vandræðum með að stöðva
hann.
Þýðingarmikill leikur
gegn Portúgal
Nú má segja að „grínið“ sé að baki
hjá íslenska liðinu og við tekur alvar-
an. Leikurinn við Portúgala annað
kvöld er geysilega þýðingarmikill og
lykilleikur upp á framhaldið í keppn-
inni – mjög þýðingarmikið er fyrir
Ísland að ná sigri. Veganestið sem
fara með í þann leik er vissulega gott
en gefur þó ekkert þegar út í barátt-
una við heimamenn er komið.
Öruggir sigrar Íslendinga í tveimur fyrstu leikjunum á heimsmeistaramótinu
Nú tekur alvaran
við í Portúgal
ÍSLENDINGAR létu sér nægja 13 marka sigur, 30:17, gegn grönnum
sínum frá Grænlandi á heimsmeistaramótinu í handknattleik í Vis-
eu Portúgal í gær. Eins og vænta mátti höfðu Íslendingar tögl og
hagldir í leiknum en mesti móðurinn var þó runninn af íslensku leik-
mönnunum eftir heimsmetið sem þeir settu með sigrinum á Áströl-
um í fyrrakvöld. Mistökunum í sókninni fjölgaði til muna, einbeit-
ingin var ekki sú sama og fyrir vikið var leikurinn ekkert augnayndi
af hálfu okkar manna.
5/! & ! !5/! & ! !
"!
#$
"#
"
"$
%
%
&
#
'
(
(
&)*+ ,-*)*+
$
(
(
$
"
)*.&/01
,2.*34501
)6)377%)37
0*
*)
18
(