Morgunblaðið - 16.02.2003, Page 1
STOFNAÐ 1913 . TBL. 91. ÁRG. SUNNUDAGUR 16. FEBRÚAR 2003 mbl.is
Alþjóðlegt
dómsvald
Þór Vilhjálmsson hefur látið af
embætti við EFTA-dómstólinn 10
Óumdeildur og
engum líkur
Ólíkindatólið og leikarinn Jack
Nicholson í samtali 12
Sjálfala
allt árið
Kjöt af norsku villifé er
dýrt og ullin sérstök 18
SAMFYLKINGIN nýtur nú stuðn-
ings 40,1% kjósenda og Sjálfstæðis-
flokkurinn er með 35,8% fylgi, sam-
kvæmt skoðanakönnun Félags-
vísindastofnunar Háskóla Íslands,
sem gerð var fyrir Morgunblaðið 6.-
10. febrúar. Miðað við úrslit síðustu
alþingiskosninga tapa allir flokkar
fylgi, nema Samfylkingin sem eykur
við sig 13,3 prósentustigum.
Þetta er veruleg breyting frá síð-
ustu könnun stofnunarinnar frá því í
ágúst sl. þegar fylgi Sjálfstæðis-
flokksins var 41,7% og 27,1% hjá
Samfylkingunni. Nú mælist Fram-
sóknarflokkurinn með 13,5% fylgi,
miðað við þá sem afstöðu tóku, en var
með 17,6% í síðustu könnun og 18,4%
í kosningunum 1999. Fylgi Vinstri
hreyfingarinnar – græns framboðs
fer niður í 7,4%, var 11,7% í síðustu
könnun og 9,1% í kosningunum.
Frjálslyndi flokkurinn fengi 2,9% at-
kvæða, samanborið við 1,6% í síðustu
könnun og 4,2% í kosningunum 1999.
Stofnunin studdist við 1.200
manna slembiúrtak úr þjóðskrá sem
náði til allra landsmanna á aldrinum
18 til 80 ára. Viðtöl voru tekin í síma
og alls svöruðu 813 manns, eða
67,8%, 20% neituðu að svara og 12%
náðist ekki í. Nettósvarhlutfall var
71%.
Spurt var: Ef alþingiskosningar
yrðu haldnar á morgun, hvaða flokk
eða lista heldurðu að þú myndir
kjósa? Ef fólk sagðist ekki vita það
var áfram spurt hvaða flokk eða lista
líklegast væri að það kysi og ef svar
fékkst ekki við því var spurt hvort
líklegra væri að það kysi Sjálfstæð-
isflokkinn eða einhvern annan flokk.
Félagsvísindastofnun greinir nið-
urstöðurnar nánar fyrir Reykjavík-
urkjördæmin, Suðvesturkjördæmi
og þau þrjú kjördæmi saman sem
eftir eru. Samkvæmt því er Samfylk-
ingin stærst í Reykjavík, með 48,4%
fylgi, en Sjálfstæðisflokkurinn 39%.
Í Suðvesturkjördæmi er Sjálfstæð-
isflokkurinn stærstur, með 43,5%
fylgi, og Samfylkingin með 39,2%.
Tveir flokkar með alla
þingmenn Reykjavíkur?
Félagsvísindastofnun segir að
fylgi Sjálfstæðisflokks og Samfylk-
ingar sé það mikið í Reykjavíkur-
kjördæmunum að flokkarnir gætu
fengið flesta eða jafnvel alla þing-
mennina í höfuðborginni. Sam-
kvæmt því er óvíst að Framsóknar-
flokkurinn og Vinstri grænir fái
þingmenn kjörna í Reykjavík. Þá
benda niðurstöðurnar til þess að
Frjálslyndi flokkurinn nái ekki inn
manni á þing.
Skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar HÍ fyrir Morgunblaðið
Samfylkingin með 40,1% –
Sjálfstæðisflokkur 35,8%
Gætu fengið alla/4
BJÖRGÓLFUR Thor Björgólfs-
son, einn eigandi Samsonar ehf.
sem nýlega keypti tæplega helm-
ingshlut ríkisins í Landsbanka Ís-
lands, segist ekki finna fyrir því að
stjórnmálamenn séu að skipta sér
af viðskiptalífinu á Íslandi. „Mér
finnst frekar að fyrirtækin séu að
troða sér inn í pólitíkina og halda
því fram að þau séu skotspónn eða
fórnarlömb stjórnvalda. …Ég er
ekki fyrir svona samsæriskenn-
ingar.“
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, for-
sætisráðherraefni Samfylking-
arinnar, vitnaði í viðtal við Björgólf
Thor þegar hún velti því upp hvort
gagnrýni og eftir atvikum rannsókn
á Baugi, Norðurljósum og Kaup-
þingi byggðist á flokkspólitískum
forsendum. Hafði hún eftir honum
að markaðsöflin væru ekki í háveg-
um höfð hér á landi og hér réði póli-
tíkin.
„Ég var að tala um annað og eng-
ar forsendur fyrir því að útleggja
orð mín þannig að verið sé að ráð-
ast á einhver þrjú fyrirtæki sem
hún nafngreinir,“ segir Björgólfur
Thor. „Þetta er eitthvað persónu-
legt á milli hennar og Davíðs.“
Hann segist ekki halda að um
pólitísk afskipti af fyrirtækjum hafi
verið að ræða. „Mér finnst þau hafa
lent í sínum málum og sagt síðan að
það hafi verið pólitík. Og núna er
það gripið á lofti fyrir kosningar.“
Björgólfur Thor og meðeigendur
hans í eignarhaldsfélaginu Samson,
þeir Björgólfur Guðmundsson og
Magnús Þorsteinsson, munu í fram-
tíðinni skipta með sér verkum í
auknum mæli eftir kaupin í Lands-
banka Íslands. Björgólfur Guð-
mundsson snýr sér aðallega að
bankamálum, Björgólfur Thor er
mest í lyfjageiranum og Magnús sér
um rekstur í Rússlandi.
Rætt er við Magnús og feðgana
Björgólf og Björgólf Thor í Morg-
unblaðinu í dag.
Björgólfur Guðmundsson, sem á
aðalfundi Landsbankans á föstudag
var kjörinn formaður bankaráðs
bankans, segir í viðtalinu að hann
sjái fyrir sér að bankinn fylgist bet-
ur með stöðu fyrirtækja í við-
skiptum við hann þannig að unnt sé
að veita ráðgjöf í tæka tíð og sjá erf-
iðleika einstakra fyrirtækja fyrir.
Þá sé hægt að koma með lausn sem
tryggi að þau geti haldið áfram en
þurfi ekki að lenda í vandræðum og
gjaldþroti sem skaði alla.
Björgólfur segir að nýir eigendur
muni leggja bankanum til sýn við-
skiptamannsins. „Við fyrstu sýn er
okkar hugsun að styrkja viðskipta-
bankastarfsemina, þar með talið úti-
búanetið, og einfalda þjónustuna.“
Fyrirtæki troða
sér inn í pólitík
Björgólfur/Sunnudagur 1–9
LÆKNIR í Indónesíu sleppir hvítri friðardúfu við sendi-
ráð Ástralíu í Jakarta í gær en þar var haldinn mót-
mælafundur vegna hugsanlegs stríðs gegn Írak. Skipu-
lagðir voru fjölmennir mótmælafundir gegn stríði í
helstu borgum heims í gær, þ. á m. í New York, London,
París, Moskvu og Tókýó. Búist var við að hálf til ein
milljón manna tæki þátt í aðgerðunum í Bretlandi.
Tony Blair forsætisráðherra ávarpaði flokksmenn
sína í Glasgow í gær og sagði þá að vopnaeftirlitsmenn
Sameinuðu þjóðanna myndu fá lengri tíma til að sinna
starfi sínu í Írak og ganga úr skugga um það hvort
Saddam Hussein Íraksforseti hlítti ályktunum SÞ.
Reuters
Boða frið en ekki stríð
ALLS hafa 210 þúsund kvíaeldislax-
ar sloppið úr norskum sjókvíum í
tveimur óhöppum það sem af er
árinu og kemur það í kjölfar „versta
ársins í sögu norska fiskeldisins“ er
630 þúsund laxar sluppu. Laxafjöld-
inn í óhöppunum tveimur á þessu ári
samsvarar sjöfaldri ársveiði í ís-
lenskum laxveiðiám.
Frétt þessi var send út af póst-
þjónustu Stangaveiðifélags Reykja-
víkur og er þar vitnað í vefsíðu Int-
raFish og viðtal þar við Asle
Guneriussen, ráðgjafa hjá Akvaplan
Niva. Er haft eftir Asle að í öðru til-
vikinu hafi 120 þúsund stórir laxar
sloppið og í hinu tilvikinu 90 þúsund
smálaxar. Í öðru tilvikinu hafi botn-
lína í eldiskví gefið sig er viðgerð fór
fram, en í hinu tilvikinu hafi rifnað
stórt gat á nótina neðan sjávarlínu.
Er ennfremur haft eftir Gunerius-
sen að hann óttist að vegna „þeirrar
kreppu sem er í norsku laxeldi nú um
stundir reyni eldisfyrirtækin að
spara með því að nota gamlar kvíar
og gamlar nætur í stað þess að end-
urnýja búnaðinn reglulega.“
Tvö óhöpp í
norsku fiskeldi
210 þúsund
eldislaxar
sluppu úr
sjókvíum
Eldislaxar/53