Morgunblaðið - 16.02.2003, Síða 51
VATNSBERI
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
Afmælisbörn dagsins:
Þið eruð lífsglöð, jákvæð og
hvatvís og hafið gaman af til-
breytingu. Á þessu ári munu
verða skemmtilegar breyt-
ingar á lífi ykkar.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Það á vel við hrútinn að fullt
tungl skuli vera í ljónsmerk-
inu. Þið neyðist þó til að gera
upp á milli fólks þar sem vinir
ykkar hafa ákveðnar vænt-
ingar til ykkar en börn ykkar
og makar kalla eftir öðru.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Tunglið myndar spennu á milli
ljónsmerkisins og vatnsber-
ans. Þetta hefur einnig áhrif á
merki þitt og veldur spennu í
þér. Reyndu að slaka á.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Farðu sérlega varlega í um-
ferðinni í dag. Óvæntar uppá-
komur geta komið upp í um-
ferðinni, á ferðalögum og í
samskiptum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það er spenna í loftinu varð-
andi peninga og sameig-
inlegar eignir. Reyndu að gefa
eftir og bíða með mikilvægar
ákvarðanir fram á þriðjudag.
Þá munu flest þessara vanda-
mála leysast af sjálfu sér.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það er fullt tungl í ljónsmerk-
inu. Þar sem þetta er eina
fulla tunglið í merki ykkar á
þessu ári eruð þið óvenju
kraftmikil og eirðarlaus. Gerið
ekkert í fljótfærni.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þið gætuð þurft að takast á við
vandamál sem tengjast
sjúkrahúsum, fangelsum eða
stórum stofnunum. Þið verðið
að sætta ykkur við að láta í
minni pokann.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú leggur þig yfirleitt fram
um að halda friðinn en í dag er
ómögulegt að gera öllum til
hæfis. Tunglið er fullt og það
veldur aukinni spennu. Sýndu
þolinmæði.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þið gætuð lent í átökum við
foreldra ykkar eða yfirboðara.
Reynið að sýna þolinmæði
næstu daga. Á þriðjudag mun
allt líta betur út.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Reynið að varast að vera með
yfirgang. Það er ósanngjarnt
að ætlast til þess að allt sé eft-
ir ykkar höfði. Varist að sama
skapi fólk sem sýnir ykkur
virðingarleysi. Farið varlega.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Sýnið varkárni og varist
skuggasund. Það er óvenju-
mikil árásargirni og nei-
kvæðni í loftinu.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Það er hætt við átökum á milli
þín og vinar þíns. Reynið að
sýna skilning og virðingu.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Forðist að lenda í átökum við
foreldra ykkar og yfirboðara.
Varist jafnframt að sýna öðr-
um yfirlæti. Haldið ró ykkar
og látið lítið fyrir ykkur fara.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. FEBRÚAR 2003 51
DAGBÓK
Norðmaðurinn Geir
Helgemo er meðal fjöl-
margra erlendra stórmeist-
ara sem nú spila á bridshátíð
á Hótel Loftleiðum.
Helgemo fæddist í Þránd-
heimi 1970 og er því ungur
maður, aðeins 33 ára gamall.
En þó eru mörg ár síðan
hann lagðist í víking til Vín-
lands, þar sem hann heggur
mann og annan við brids-
borðið bara af því þeir liggja
vel við höggi. Helgemo varð
snemma afburða spilari og
skáld hafa ort um afrek hans
frá því hann var barn að
aldri. Honum svipar því um
margt til Egils Skallagríms-
sonar. Við skulum líta á spil
frá keppni í Bandaríkjunum
1997 þar sem hann krækir
augað úr austri með fádæma
djúpri spilarýni.
Vestur gefur; allir í hættu.
Norður
♠ 974
♥ 9752
♦ K1086
♣92
Vestur Austur
♠ 82 ♠ DG105
♥ KDG83 ♥ Á1064
♦ 5̈ ♦ 3
♣K10654 ♣DG73
Suður
♠ ÁK63
♥ --
♦ ÁDG9742
♣Á8
Þetta spil er að finna í öll-
um bridsbókum sem hafa
verið ritaðar frá 1997. Vestur
vakti á veikum tveimur í
hjarta og austur stökk í fjög-
ur hjörtu. Helgemo varð síð-
an sagnhafi í sex tíglum í
suður.
Útspil vesturs var hjarta-
kóngur. Ef spaðinn er 3-3 má
henda laufi niður í þrettánda
spaðann og trompa lauf í
borði. Og satt að segja virðist
það vera eina vinningsvonin.
En Helgemo þekkti mótherj-
ana vel og vissi að þeir voru
engir galgopar í sögnum.
Hann taldi víst að austur
ætti fjórlit í hjarta, sem
þýddi að vestur hafði opnað á
fimmlit. Og það hefði hann
varla gert nema eiga góða
skiptingu, sennilega 5–5 í
hjarta og laufi. Líkur á 3–3
legu í spaða voru því ekki
miklar.
Helgemo trompaði út-
spilið, tók tígulás, og spilaði
síðan smáum spaða að blind-
um og “svínaði sjöunni.
Áætlunin var sú að fara síðar
af stað með níuna og láta
hana svífa yfir. Austur drap
sjöuna með gosa (tían er
betra spil) og spilaði spaða
um hæl. En Helgemo hélt
sínu striki og hleypti á átt-
una!
Aðeins sannir víkingar
komast upp með slíka spila-
mennsku.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
SKÚLASKEIÐ
Þeir eltu hann á átta hófa hreinum,
og aðra tvenna höfðu þeir til reiðar,
en Skúli gamli sat á Sörla einum,
svo að heldur þótt gott til veiðar.
Meðan allar voru götur greiðar,
gekk ei sundur með þeim og ei saman,
en er tóku holtin við og heiðar,
heldur fór að kárna reiðargaman.
Henti Sörli sig á harða stökki,
hvergi sinnti hann gjótum, hvergi grjóti,
óð svo fram í þykkum moldarmekki,
mylsnu hrauns og dökku sandaróti.
Þynnast bráðum gerði fjanda flokkur,
fimm á Tröllahálsi klárar sprungu,
og í Víðikerum var ei nokkur
vel fær nema Jarpur Sveins í Tungu.
- - -
Grímur Thomsen
LJÓÐABROT
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d3 Rc6
4. g3 g6 5. Bg2 Bg7 6. O-O
Rge7 7. c3 e5 8. a3 O-O 9.
b4 d6 10. Bb2 a6 11. Rbd2
h6 12. Rc4 Be6 13. Re3
Hb8 14. bxc5 dxc5 15. a4 f5
16. c4 f4 17. Rd5 g5 18.
Rd2 a5 19. Bf3 Dd7 20.
Rb6 Dd6 21. Rd5 Rb4 22.
Ha3 Bh3 23. Bg2 Bd7 24.
Bf3 Rg6 25. Bg4 Be8 26.
Rb1 b6 27. Rbc3 Hb7 28.
Rb5 Dd8 29. Ha1 Re7 30.
Bc3 Rec6 31. Kg2 Bg6 32.
Be6+ Kh8 33. g4 f3+ 34.
Kh1 h5 35. Hg1 He8 36.
gxh5 Hxe6 37. hxg6
Df8 38. Hg3 Hxg6
39. Hxf3 Dc8 40.
Hf5 Hh6 41. Df3 g4
42. Dxg4 Re7
Staðan kom upp í
A-flokki alþjóðlega
mótsins í Bermúda
sem lauk fyrir
skömmu. Giovanni
Vescovi (2.592)
hafði hvítt gegn Al-
exander Motylev
(2.640). 43. Rd6! og
svartur gafst upp
enda fátt til varnar
eftir t.d. 43... Hxd6 44.
Rxe7 De8 45. Hh5+ Hh6
46. Bxe5. Lokastaða A-
flokksins varð þessi: 1.
Giovanni Vescovi (2.592) 8
vinninga af 11 mögulegum.
2. Peter Svidler (2.693) 7½
v. 3. Tomasz Markowski
(2.574) 7 v. 4. Alexander
Motylev (2.640) 6 v. 5. Ka-
mil Miton (2.544) 5½ v.
6.–8. Bartlomiej Macieja
(2.629), Sergei Movsesjan
(2.663) og Andrei Volokitin
(2.565) 5 v. 9.–10. Alik
Gershon (2.571) og Alex-
ander Shabalov (2.613) 4½
v. 11.–12. Larry Christian-
sen (2.562) og Mohamad
Al-Modiahki (2.571).
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
ÁRNAÐ HEILLA
80 ÁRA afmæli. Ídag, sunnu-
daginn 16. febrúar,
verður áttræð Kristín
Þórlindsdóttir,
Skólavegi 67, Fá-
skrúðsfirði. 6. janúar
sl. varð eiginmaður
hennar, Skafti Þór-
oddsson, áttræður.
Þau eru stödd á Kan-
aríeyjum.
70 ÁRA afmæli. Í dag,sunnudaginn 16.
febrúar, verður sjötugur
Númi Ólafsson Fjeldsted,
Ljósheimum 10, Reykjavík.
Eiginkona hans er Ásta
Þórðardóttir Fjeldsted. Þau
verða að heiman í dag.
MEÐ MORGUNKAFFINU
alltaf á föstudögum
Námskeið um meðvirkni, samskipti,
tjáskipti og tilfinningar verður haldið
föstudagskvöldið 28. febrúar og
laugardaginn 1. mars í kórkjallara
Hallgrímskirkju.
Nánari upplýsingar og skráning
í síma 553 8800.
Taktu mér eins og ég er, svo ég geti lært hvað ég get orðið
Meðvirkni
Stefán Jóhannsson,
MA, fjölskylduráðgjafi
CRANIO-NÁM • 2003-2004
A stig 22.-27. febrúar
Námsefni á íslensku, íslenskir leiðbeinendur.
Upplýsingar og skráning hjá Gunnari í síma 564 1803 og 699 8064.
C.C.S.T College of Cranio-Sacral Therapy. www.cranio.cc
NÁMSAÐSTOÐ
grunnskóli - framhaldsskóli - háskóli
íslenska - stærðfræði - enska - danska - spænska - þýska
- franska - eðlisfræði - efnafræði - bókfærsla o.fl.
www.namsadstod.is
Innritun í síma 557 9233 kl. 17-19 virka daga
50% afsláttur af útsaumsmynstrum og eldri tímaritum
Síðumúla 35, s. 553 3770. Opið mán.-fös. kl. 10-18, lau. kl.11-14.
BÚTASAUMARAR
Vikuna 17.—22. febrúar
verður 25% afsláttur af bókum
og sniðum fyrir bútasaum.
Ný sending af töskum
Laugavegi 58 — Smáralind,
sími 551 3311 — 528 8800
Laugavegur
Gott verð
Nýtt kortatímabil
Smáralind
Daniel Ray
Örfá pláss laus sumarið 2003 í sumarbúðum erlendis
fyrir 11 ára drengi, 14 ára drengi og stúlkur.
Nánari upplýsingar veita Arna Gunnarsdóttir í síma 554 6815
og 898 6815 og Hildisif Björgvinsdóttir í síma 554 0712.
Við bendum einnig á heimasíðu félagsins www.cisv.is þar sem
nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð er að finna.
ALÞJÓÐLEGAR SUMARBÚÐIR BARNA Á ÍSLANDI
Pósthólf 8002 - 128 Reykjavík
ALÞJÓÐLEGAR
SUMARBÚÐIR
BARNA
ÖLDUVINNA (wave work)
Öldutæknin er ótrúlega áhrifarík og einföld aðferð til að fást við umbreytingu
tilfinninga. Á því lærum við stöðugt að sjá ótæmandi möguleika okkar,
öðlumst stöðugt dýpri sjálfsþekkingu og skilning sem gerir okkur færari
að takast á við okkar daglega líf.
Helgarnámskeið 21.-23. febrúar. Kvöldnámskeið og einkatímar.
Nánari upplýsingar og skráning í síma 562 0037 og 869 9293.
Hómópatar og heilsulausnir - Ármúla 17 - s. 588 8188.
Guðfinna S.
Svavarsdóttir,
ölduv. og kripalu-
jóga-
kennari.