Morgunblaðið - 04.03.2003, Side 39

Morgunblaðið - 04.03.2003, Side 39
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 2003 39 BÚNAÐARÞING verður sett í dag, 4. mars nk. kl. 10.00 í Súlna- sal Hótel Sögu. Ari Teitsson, for- maður Bændasamtaka Íslands, flytur setningarræðu og Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra ávarpar þingið. Davíð Gíslason, bóndi á Svaða- stöðum, Árborg í Manitoba verður heiðursgestur við setningu búnað- arþings og flytur ræðu, en hann dvelst nú hér á landi í boði Guðna Ágústssonar, landbúnaðarráð- herra. Landbúnaðarráðherra afhendir landbúnaðarverðlaunin 2003 og Reynir Jónasson flytur tónlist á píanó og harmoniku fyrir og á milli dagskrárliða. Setning búnaðarþings er öllum opin meðan húsrúm leyfir. Búnaðarþing sett í dag Meðhöfund vantaði Í grein í Lesbók síðastliðinn laug- ardag um æskulýðsstarf kirkjunnar kom ekki fram að Pétur Björgvin Þorsteinsson var meðhöfundur að greininni. Beðist er velvirðingar á því. LEIÐRÉTT EFTIRFARANDI yfirlýsing hefur borist frá Sigurði Jónssyni, Selfossi, sem sæti átti í uppstillingarnefnd Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjör- dæmi, vegna ummæla Kristjáns Páls- sonar alþingismanns: „Mögulegt sérframboð Kristjáns Pálssonar alþingismanns hefur tals- vert verið í fréttum og hann haldið því á lofti að uppstillingarnefnd Sjálf- stæðisflokksins í Suðurkjördæmi hafi beitt hann ofbeldi. Í allri sinni um- ræðu gleymir Kristján vísvitandi að- alatriði málsins sem að honum snýr og skilyrðum sem hann setti upp sjálfur. Í undirbúningsvinnu uppstillingar- nefndarinnar var einn þátturinn að fela tveimur mönnum að tala við 4 sitjandi þingmenn en þeir höfðu allir lýst yfir vilja til að leiða listann. Þeir sem fengu þetta hlutverk voru Ellert Eiríksson og ég, Sigurður Jónsson. Þingmenn voru spurðir eftir hvaða sæti þeir sæktust og þeir svöruðu því á greinargóðan hátt og ennfremur því hvaða sæti þeir sættu sig við ef þeir fengju ekki það sem þeir vildu. Þessi svör þingmannanna voru flutt inn á fund uppstillingarnefndarinnar og tekið var eðlilegt tillit til þeirra. Svar Kristjáns er að mínu mati að- alatriði þessa máls og ástæða þess að hann er ekki á listanum. Kristján svaraði því til að hann væri tilbúinn að leiða listann og að hann tæki ekki sæti neðar en í 2. sæti og þá því aðeins að Drífa væri í fyrsta sæti. Sagði hann það eðlilega niðurstöðu út frá stöðu þeirra sem þingmenn flokksins. Þegar niðurstaða uppstillingar- nefndarinnar var sú að Árni Ragnar væri í fyrsta sæti var ljóst að ekki var staða til að bjóða Kristjáni sæti á list- anum miðað við svör hans. Hann mál- aði sig út í horn með yfirlýsingu sinni til uppstillingarnefndarinnar, auk þess sem hann hafði lýst þessu yfir í samtölum við aðra fulltrúa í nefnd- inni. Fyrir alla aðila málsins tel ég nauð- synlegt að þetta meginatriði komi fram. Kristjáni Pálssyni óska ég alls góðs.“ Kristján Pálsson vildi bara 1. sætið SKÁKSKÓLI Hróksins og Eddu mun starfa samhliða Edduskák- mótinu í Borgarleikhúsinu til 5. mars og er opinn öllum börnum. Dagskrá Skákskóla Hróksins og Eddu í Kringlunni er sem hér segir: Þriðju- dagur 4. mars kl. 17.15, skákskóli þriðjudagur 4. mars kl. 18 fjöltefli, miðvikudagur 5. mars kl. 17.15 skák- skóli og miðvikudagur 5. mars kl. 18 fjöltefli. Skákskóli Hróks- ins og Eddu MEÐFYLGJANDI myndir voru nýlega teknar vestur af Blakksnesi á Vest- fjörðum er skipverjar á varðskipinu Tý unnu við að skipta um öldudufl. Duflin hafa þann tilgang að mæla ölduhæð og eru upplýsingar úr þeim sett- ar á heimasíðu Sigl- ingastofnunar þar sem sjómenn geta séð, áður en þeir halda í siglingu, hver ölduhæðin er á þeim haf- svæðum sem duflin eru á. Það er mikið öryggisatriði fyrir sjó- menn að hafa þessar upplýsingar. Skipta þarf duflunum út á nokk- urra mánaða fresti þar sem raf- hlöður þeirra hafa takmarkaðan endingartíma. Landhelgisgæslan sér um að skipta um duflin fyrir Siglingastofnun. Starfsmenn Sigl- ingastofnunar sjá um að yfirfara þau og skipta um rafhlöður í þeim. Komið hefur fyrir að skip sigla á duflin og þau skemmast eða þau týnast. Sem dæmi má nefna að ölduduflið við Garðskaga slitnaði eitt sinn upp og fannst loks á Breiðafirði. Samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Siglingastofnunar er hæð öldu mæld frá öldudal að næsta öldutoppi. Notuð eru tvö gildi fyrir öldu, kennialda sem er 2,7 m. og meðaltalssveiflutími í sek. Öldudufl eru við Garðskaga, Blakksnes, Straumnes, Malarhorn, Grímseyjarsund, Hornafjörð, Surts- ey, Grindavík og Kögur. Varðskipsmenn skipta um öldudufl HELGIN var annasöm hjá lögreglunni í Reykja- vík og nokkuð var um ölv- un og ryskingar. Tilkynnt var um 35 umferðaróhöpp, 60 öku- menn voru teknir fyrir of hraðan akstur, 15 voru grunaðir um ölvun við akstur og sex óku yfir á rauðu ljósi. Á föstudagsmorgun var ökumaður tekinn á Víkurvegi á 84 km hraða þar sem leyfilegur hámarkshraði er 50 km og um hádegisbilið var tilkynnt um harðan árekstur í austurborginni. Reyndist ökumaður undir áhrifum áfengis og var hann færður á lög- reglustöð. Um fjögurleytið á föstudag var ökumaður stöðvaður grunaður m.a. um ölvun við akstur. Tekið var eftir ökumanninum því hann hafði ekki ekið samkvæmt umferðarreglum. Talaði hann í farsíma við aksturinn og notaði ekki öryggisbelti. Aðfara- nótt laugardags var bifreið ekið inn í bakgarð í vesturbænum, flytja þurfti ökumann á sjúkrahús, en nokkrar skemmdir urðu á grindverki, trjá- gróðri og grasflöt. Bifreiðin var fjar- lægð með kranabíl. Tilkynnt var um 17 innbrot um helgina. Rétt fyrir miðnætti aðfaranótt laugardags óskaði næturvörður að- stoðar vegna manns í annarlegu ástandi utandyra. Reyndist þarna vera um mann að ræða nýkominn úr fíkniefnameðferð, ölvaður og talinn undir áhrifum fíkniefna. Var maður- inn handtekinn og færður í fanga- móttöku. Um kaffileytið á laugardag var til- kynnt um innbrot í heimahús í mið- borginni. Þar hafði verið farið inn af vinnupöllum á annarri hæð og inn um glugga sem var opinn. Stolið var verðmætum fyrir fleiri hundruð þús- und. Má þar nefna sjónvarp, leikja- tölvu, DVD spilari, fartölvu og staf- rænni upptökuvél. Síðdegis á sunnudag var lögregl- unni í Kópavogi tilkynnt um þjófnað á eftirlitsmyndavélum úr tveimur fjölbýlishúsum. Í báðum tilvikum var eftirlitsmyndavélunum stolið úr and- dyrum húsanna og er málið í rann- sókn. Fara verður varlega í skíðalyftum Á laugardaginn var tilkynnt að barn væri fast í lyftu í Skálafelli. Sjúkrabíll, neyðarbíll og lögregla voru send á staðinn. Barnið hafði fest húfuna sína með einhverju móti í lyft- unni. Hún var í stólalyftunni með vin- konu sinni. Á miðri leið veitti starfs- maður á svæðinu því athygli að önnur stúlkan hékk á hettunni á fótstiginu. Hún hafði verið með rennt niður á úlpunni þannig að átakið kom undir handarkrikann en ekki á hálsinn. Stúlkan mun hafa hangið þarna í nokkrar mínútur áður en hún var los- uð. Hún reyndist vera ómeidd en var flutt með sjúkrabíl á slysadeild til að- hlynningar. Daginn eftir var tilkynnt um aðra stúlku sem slasaðist á skíðasvæðinu er hún féll af snjóbretti og hand- leggsbrotnaði á hægri framhandlegg og var flutt á slysadeild. Lögregla vill minna skíðamenn á að fara varlega á skíðasvæðunum: Festa húfur og setja hárið í tagl til að forðast að festast í lyftunum. Þá eru skíðamenn minntir á að þeir séu ekki einir í brekkunum og að allt brun er bannað. Úr dagbók lögreglunnar 28.2. til 3.3. Hraðakstur algeng- ur í blíðviðrinu Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Össur Skarphéðinsson og Ellert B. Schram boða til funda í Húnaþingi, Skagafirði og á Siglufirði sem hér segir: pólitísk aðalatriði Sauðárkrókur: Vinnustaðafundir. Opinn fundur á Kaffi Krók kl. 20:00. Ávörp: Össur Skarphéðinsson, Ellert B. Schram og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Þriðjudagur 4. mars Miðvikudagur 5. mars Sauðárkrókur, Hofsós og Siglufjörður: Vinnustaðafundir. Siglufjörður: Opinn fundur í Bíókaffi kl. 20:00. Ávörp: Össur Skarphéðinsson, Ellert B. Schram og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Fimmtudagur 6. mars: Hvammstangi: Vinnustaðafundir og opinn fundur í Gunnukaffi kl. 12:00. Blönduós: Vinnustaðafundir og opinn fundur í félagsheimilinu kl. 20:00. Ávörp: Ellert B. Schram og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Fundir um          

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.