Morgunblaðið - 04.03.2003, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 2003 43
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
FISKAR
Afmælisbörn dagsins:
Þú átt bæði auðvelt með að
vinna í einrúmi og með öðr-
um þar sem þú býrð yfir
sjálfsaga. Á árinu sem fram-
undan er munt þú taka
ákvarðanir sem gætu breytt
lífi þínu verulega.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Óvenjulegt fólk kann að
stuðla að breytingum á
starfsferli þínum í dag. Þá er
átt við fólk sem hefur öðru
vísi bakgrunn eða er ólíkt
þér.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú vilt gjarnan reyna eitt-
hvað nýtt í dag. Þess vegna
leitar þú uppi óvenjulegar
hugmyndir, trúarkerfi, heim-
speki eða jafnvel forvitnilegt
ókunnugt fólk.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Óvænt happ kann að falla þér
í skaut í dag. Þetta gætu ver-
ið gjafir, fé, greiði eða eitt-
hvað sem þú hefur not fyrir.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú finnur fyrir sjálfstæð-
istilfinningu í dag. Þess
vegna kunna makar eða ást-
vinir að virka heftandi. Þú
vilt frekar frelsið en aga og
röð og reglu.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Spennandi hugmyndir sem
tengjast tækni, Netinu eða
vísindum hafa í för með sér
breytingar á starfsumhverfi
þínu.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú ert með augun opin fyrir
ástarævintýrum eða spenn-
andi dægrastyttingu. Tækni
og Netið gætu átt hlut að
máli.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú ert eirðarlaus og óþol-
inmæðin ræður ríkjum. Dag-
legar venjur fara í taugarnar
á þér. Þú vilt upplifa eitthvað
nýtt.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það er freistandi að eyða
peningum í dag. Þú skalt bú-
ast við að óvenjulegir list-
munir eða tæknileikföng
freisti þín.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Lífið er spennandi í dag. Þú
veist ekki alveg hverju þú átt
von á og því skalt þú búast
við hinu óvænta.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú fyllist óþolinmæði og eirð-
arleysi í dag. Þú vilt hitta
óvenjulegt fólk, fólk sem þú
myndir venjulega sniðganga.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú veist ekki hvort þú ættir
að halda stefnumót við ákveð-
inn hóp eða vin í dag. Þú vilt
ekki festast í sama farinu
heldur öðlast meira frelsi.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Óvæntir atburðir gætu haft
áhrif á frama þinn í dag.
Þetta getur verið jákvætt eða
neyðarlegt.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Íslenskur kveðskapur
Undarleg er íslensk þjóð!
Allt, sem hefur lifað,
hugsun sína og hag í ljóð
hefur hún sett og skrifað.
Hlustir þú og sé þér sögð
samankveðna bagan,
þér er upp í lófa lögð:
landið, þjóðin, sagan.
Stephan G. Stephansson
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
90 ÁRA afmæli.Fimmtudaginn 6.
mars nk. verður níræður
Sigurður Ólafsson, fyrrver-
andi bóndi á Kjarlaks-
völlum, Saurbæ, Dalasýslu.
Í tilefni þess tekur hann á
móti ættingjum og vinum á
afmælisdaginn í Sunnusal
Hótels Sögu frá kl. 17–20.
50 ÁRA afmæli. Í dag,4. mars, er fimmtug
Árþóra Ágústsdóttir,
grunnskólakennari, Lerki-
lundi 29, Akureyri. Árþóra
er að heiman í dag en mun
fagna afmælinu með ætt-
ingjum og vinum síðar á
árinu.
ÞAÐ verður ekki sagt
annað um tromplit suðurs
en að hann sé sæmilega
þéttur – sex efstu áttundu.
En það eru önnur vandamál
sem baga sagnhafa:
Norður gefur; allir í
hættu.
Norður
♠ --
♥ KDG874
♦ KDG64
♣G5
Suður
♠ ÁKDG10962
♥ --
♦ --
♣76432
Vestur Norður Austur Suður
-- 1 hjarta 3 lauf 4 spaðar
Dobl Pass Pass Pass
Vestur leyfir sér að dobla
fjóra spaða, kemur svo út
með spaðaáttu og austur
hendir „látlausum“ laufás í
slaginn, kannski óánægður
með að fá ekki út litinn sinn.
En við vitum skýringuna á
því. Jæja, hvernig á að kom-
ast hjá því að gefa fimm
slagi á lauf?
Enginn vafi leikur á því
að vestur er með rauðu ás-
ana og ekkert lauf. Og þótt
trompið sé þétt, þá er það
ekki svo þétt að ekki megi
gefa slag á litinn. Tvisturinn
er lægsta spilið í stokknum!
Nú er komin hugmynd að
áætlun. Suður tekur fjóra
slagi á tromp og læðir síðan
út spaðatvistinum:
Norður
♠ --
♥ KDG874
♦ KDG64
♣G5
Vestur Austur
♠ 87543 ♠ --
♥ Á1096 ♥ 532
♦ Á1092 ♦ 8753
♣-- ♣ÁKD1098
Suður
♠ ÁKDG10962
♥ --
♦ --
♣76432
Vestur fær slaginn á
fimmta trompið, en fyllist þó
engri ofurgleði. Ef hann
leggur niður rauðan ás, fær
hann að eiga þann slag. Og
líka á hinn ásinn. Síðan sér
blindur um afganginn. Sem
sagt: Vestur fær þrjá slagi:
einn á tromp, og á rauðu ás-
ana, en austur engan á lauf-
ið sitt.
Skrítið spil, brids.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
70 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 4.
mars, er sjötugur Ásgeir
Hólm Jónsson, Dalsgerði
2e, Akureyri.
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5
e6 4. Bxc6 bxc6 5. d3 Rf6
6. e5 Rd5 7. c4 Rc7 8. Bg5
f6 9. exf6 gxf6
Hvítur á leik
040303
Staðan kom upp í
fyrstu deild Íslandsmóts
skákfélaga sem lauk um
síðustu helgi í Mennta-
skólanum í Hamrahlíð.
Tékkneski stórmeistarinn
Tomas Oral (2550) hafði
hvítt gegn Þorvaldi Loga-
syni (2085). 10.
Re5! Ke7? Ekki
gekk að taka bisk-
upinn þar sem eft-
ir 10...fxg5 11. Df3!
De7 12. Dh5+ Kd8
13. Rf7+ Ke8 14.
Rxh8+ er fátt um
fína drætti hjá
svörtum. 10...h5!
var eini leikurinn
til að halda taflinu
gangandi þar sem
eftir textaleikinn
situr svartur uppi
með koltapað tafl.
11. Dh5 De8 12. Bxf6+!
Kxf6 13. Rg4+ Ke7 14.
Dg5+ Kf7 og svartur
gafst upp áður en hvítur
náði að máta hann með
15. Re5#. Lokastaðan í 1.
deild varð þessi: 1. Hrók-
urinn 45 v. 2. Hellir-a 39½
v. 3. TR-a 36½ v. 4. SA-a
29 v. 5. TR-b 22 v. 6. Hell-
ir-b 20 v. 7. SA-b 18 v. 8.
Bolungarvík 14 v. 4.-6.
umferð í Edduskák-
mótinu, minningarmóti
Guðmundar Jaka fara
fram í Borgarleikhúsinu í
dag milli 17.00-21.00.
Áhorfendur eru hjartan-
lega velkomnir að fylgjast
með mörgum af sterkustu
skákmönnum heims.
Skák
Umsjón Helgi Áss Grét-
arsson
Hvítur á leik.
85 ÁRA afmæli. Í gær,mánudaginn 3. mars,
varð 85 ára Björg Þorkels-
dóttir húsmóðir, litlu
Grund, Hringbraut 50,
Reykjavík.
Vegna mistaka birtist
þessi tilkynning ekki í
blaðinu í gær, 3. mars. Beð-
ist er velvirðingar á því.
Sko mína! Þá er
hún til í allt.
Ungbarnanudd fyrir barnið þitt
Heilsusetur Þórgunnu
Skipholti 50c • s. 562 4745 – 896 9653.
Dagskrá:
1. Skattamálin - Pétur Blöndal.
2. Kosning fulltrúa á 35. landsfund.
3. Önnur mál.
Stjórnin
Félag Sjálfstæðismanna
Smáíbúða-, Bústaða-
og Fossvogshverfi
Hvernig ætlar ríkisstjórnin að lækka skatta?
Fundur miðvikudaginn
5. mars kl. 18.00 í Valhöll
Aðalfundur Kaupþings banka hf. árið 2003 verður
haldinn í Salnum í Tónlistarhúsi Kópavogs,
Hamraborg 6, miðvikudaginn 12. mars 2003 og
hefst hann kl. 17.00.
Eftirtalin mál eru á dagskrá fundarins
1. Skýrsla stjórnar um starfsemi bankans
síðastliðið starfsár.
2. Ársreikningur fyrir liðið starfsár ásamt skýrslu
endurskoðenda lagður fram til staðfestingar.
3. Breytingar á samþykktum sem leiða af nýrri
löggjöf um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002.
4. Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð
hagnaðar á síðastliðnu reikningsári.
5. Stjórnarkjör.
6. Ákvörðun stjórnarlauna.
7. Kosning endurskoðenda.
8. Tillaga um heimild bankans til kaupa
á eigin hlutabréfum.
9. Önnur mál.
Fundurinn fer fram á ensku.
Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent
við innganginn í upphafi fundar.
Stjórn Kaupþings banka hf.
Nánari upplýsingar veitir Guðrún I. Ingólfsdóttir,
fjárfestatengsl, sími 515 1552.
Aðalfundur
Kaupþings banka hf.
Kaupþing banki hf.
Ármúla 13 • 108 Reykjavík
sími 515 1500 • fax 515 1509
www.kaupthing.is
Ertu ófrísk?
Hómópatiumeðferð á meðgöngu.
Auðveld - örugg
Upplýsingar í síma 588 3077