Morgunblaðið - 05.04.2003, Blaðsíða 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. APRÍL 2003 11
synleg vegna breytinga á framboði
þjónustu og nýrra upplýsinga og t.d.
breytinga á jöklum og árfarvegum.
Hann segir bæði landshlutakortin og
ferðakortið njóta mikilla vinsælda.
Hafi fyrsta landshlutakortið nýja
þegar selst í yfir tvö þúsund eintök-
um.
Ferðakortið segir hann hafa selst í
liðlega 200 þúsund eintökum frá því
það kom fyrst út árið 1982. Því fylgir
nú skrá með yfir þrjú þúsund nöfnum
og tafla yfir nokkrar vegalengdir
þjóðvega. Magnús nefndi einnig
geisladiskana sem Landmælingar
hafa gefið út, þ.e. bæði svonefndan
flugdisk þar sem fara má yfir landið
og skoða það eins og úr flugvél væri
LANDMÆLINGAR Ís-
lands hafa gefið út annað
kortið í flokki þriggja ferða-
korta landsins í mælikvarð-
anum 1:250.000 en fyrsta
kortið kom út á síðasta ári.
Gert er ráð fyrir að þriðja
kortið komi út síðar á þessu
ári en nýja útgáfan nær yfir
landið allt með þremur kort-
um í stað níu korta áður. Þá
hafa Landmælingar gefið út
nýtt heildarkort, ferðakort
af landinu öllu, í mælikvarð-
anum 1:500.000. Siv Frið-
leifsdóttir umhverfisráð-
herra tók á miðvikudag við
fyrstu eintökum kortanna.
Magnús Guðmundsson,
forstjóri Landmælinga Ís-
lands, segir að innan við tvö
ár séu frá því ákveðið var að
gefa út kortin á þremur
blöðum í stað níu áður. Sé
það bæði hagkvæmara og kortin
einnig þægilegri í meðferð. Fyrsta
kortið nær yfir Vestfirði og Norður-
land og það sem nú kemur út yfir
Vesturland og Suðurland. Hann
sagði nýjungar kortanna meðal ann-
ars þær að inná þau væru færðar í
auknum mæli upplýsingar um ýmsa
þjónustu og afþreyingu, svo sem
bensínstöðvar og tilgreint hvort það
eru sumarstöðvar eða heilsársstöðv-
ar, golfvelli, söfn, sundlaugar, tjald-
stæði og fleira.
Örari útgáfa orðin auðveldari
Magnús segir að með því að vinna
kortin á stafrænu formi sé endurút-
gáfa auðveldari en hún sé líka nauð-
og kort í venjulegu plani. Sagði hann
þá báða hafa selst vel, flugdiskinn í
nærri 5 þúsund eintökum. Forstjór-
inn þakkaði að lokum starfsmönnum
Landmælinga fyrir eljusamt starf við
undirbúning útgáfunnar. Meðal sam-
starfsaðila eru Vegagerðin, Örnefna-
nefnd, Þjóðminjasafnið, ferðamála-
samtök og fleiri.
Siv Friðleifsdóttir óskaði Land-
mælingum til hamingju með útgáf-
una og sagði fyrirtækið standa sig
framúrskarandi vel á sviði kortagerð-
ar og sagði geisladiskana skemmti-
lega nýjung.
Almennt verð landshlutakortanna
er 1.290 kr. og ferðakortið af öllu
landinu kostar 980 kr.
Landmælingar Íslands hafa gefið út tvö ný ferðakort
Morgunblaðið/Sverrir
Magnús Guðmundsson, forstjóri Landmælinga Íslands, afhenti Siv Friðleifsdóttur
umhverfisráðherra fyrstu kortin við athöfn þegar útgáfan var kynnt í vikunni.
Annað ferðakortið
af þremur komið út HÆSTIRÉTTUR taldi orðalag í lög-
um um náttúruvernd of almennt og
ekki nægilega ótvírætt eða glöggt til
að uppfylla kröfur um skýrleika rétt-
arheimilda í sýknudómi yfir manni
sem játaði að hafa reist staura í Mið-
húsaeyjum til að koma í veg fyrir arn-
arvarp sumarið 2000 og 2001.
Hæstarétti þótti ekki ljóst hvort sá
staður sem örn kynni að verpa á gæti
fallið undir „lífsvæði dýra“ í ákvæðinu
sem maðurinn sætti ákæru fyrir og
kvað á um að ávallt skyldi „gæta
fyllstu varkárni og nærgætni gagn-
vart villtum dýrum og lífsvæðum
þeirra og forðast óþarfa truflun“. Þá
væri ekki séð að friðlýsing eyjunnar
tæki til friðunar fugla og sérstaks líf-
ríkis þeirra eða búsvæða.
Maðurinn var sakfelldur af Hér-
aðsdómi Vestfjarða og dæmdur til að
borga 80.000 króna sekt í ríkissjóð og
greiða allan sakarkostnað. Hæstirétt-
ur felldi hins vegar allan sakarkostn-
að í héraði og fyrir Hæstarétti á rík-
issjóð, þar með talin 200.000 króna
málsvarnarlaun skipaðs verjanda
mannsins, Magnúsar Thoroddsen hrl.
Bragi Steinarsson, vararíkissaksókn-
ari, sótti málið. Markús Sigurbjörns-
son, Garðar Gíslason og Ingibjörg
Benediktsdóttir dæmdu.
Sýknaður af því að raska arnarhreiðri
Ákvæði í lögunum
of almenn og óskýr
Á FUNDI MS-sjúklinga, sjúklinga í
dagvist MS-félags Íslands í Reykja-
vík og aðstandenda í fyrri viku voru
samþykktar vítur á stjórn MS-félags-
ins og stjórn dagvistar félagsins
vegna ásakana á hendur staðgengli
framkvæmdastjóra í veikindaleyfi og
vegna ráðningar nýs framkvæmda-
stjóra og þess krafist að hann léti af
störfum eins og það var orðað í yf-
irlýsingu fundarins.
Svana Kjartansdóttir, sem er MS-
sjúklingur, segir að órói hafi orðið
fyrr á árinu, þegar staðgengill fram-
kvæmdastjóra hafi verið sakaður um
fjárdrátt og allt bókhald sent til rík-
isendurskoðanda, en komið hafi í ljós
að ekkert óhreint hafi verið í poka-
horninu. Áður hafi verið reynt að gera
starfslokasamning við framkvæmda-
stjóra í veikindaleyfi og þetta hafi
augljóslega verið gert til að formaður
MS-félagsins fengi framkvæmda-
stjórastöðuna, sem hún nú gegni í
óþökk sjúklinganna og aðstandenda
þeirra. Því hafi verið boðað til fundar
og vítur samþykktar á stjórn félags-
ins og stjórn dagvistar félagsins.
Staðgengill framkvæmdastjóra
sagði upp störfum í kjölfar ásakan-
anna. Fundurinn harmaði uppsögn
hennar og krafðist þess að hún yrði
beðin afsökunar auk þess sem allra
leiða yrði leitað til að fá hana til starfa
á ný sem og aðra starfsmenn sem
sögðu upp störfum vegna þessara at-
burða. Svana segir að samþykkt fund-
arins hafi verið send til allra ráðu-
neyta í von um úrbætur.
Sigríður Hrönn Elíasdóttir, for-
maður stjórnar dagvistar MS-félags-
ins, vill ekki tjá sig um deiluna meðan
bókhaldið er til skoðunar hjá ríkis-
endurskoðun.
MS-sjúklingar samþykkja
vítur á stjórn MS-félagsins