Morgunblaðið - 05.04.2003, Page 60
ÉG var að lesa Dagskrá
vikunnar 5. tbl., nánar til-
tekið bls. 54. Þar er brand-
ari sem er á þessa leið:
„Hjónabandinu fylgja
margar sorgir, einlífinu
engin gleði.“
Þetta fannst mér leiðin-
leg lesning því ég er nú sjálf
búin að vera einhleyp í 25 ár
og hef upplifað marga góða
tíma. Sem dæmi get ég tek-
ið ferð sem ég fór í með föð-
ur mínum til Svíþjóðar fyrir
nokkrum árum. Veðrið var
gott og við skoðuðum margt
skemmtilegt. Eins hef ég
planað mjög spennandi
ferðalag í sumar sem ég
mun fara í með bróður mín-
um. Ég er nú ekki viss um
að allir giftir geti státað af
því að vera að fara í sam-
bærilegt frí.
Ég vil bara koma á fram-
færi að hinir einhleypu geta
alveg notið lífsins og langar
mig í því sambandi að minn-
ast á ungan mann sem ég sá
ganga niður Stórholtið kl.
16.30 hinn 7. mars. Hann
var í brúnum flauelsbuxum
og blárri úlpu með rauðum
röndum og það bókstaflega
geislaði af honum því hann
brosti svo breitt á göngu-
túrnum sínum. Hann var
glaður þrátt fyrir að vera
einn sem á að vera svo öm-
urlegt, samkvæmt Dagskrá
vikunnar. Mér finnst að fólk
ætti að taka menn eins og
hann til fyrirmyndar, byrja
að brosa og bara sleppa því
að lesa Dagskrá vikunnar.
Elísabet Ólafsdóttir,
rithöfundur.
Gjald á kattaeigendur
HVERNIG er það? Á ekki
að fara að setja gjald á
kattaeigendur eins og á
hundaeigendur? Ég tel að
það sé mun meiri sóðaskap-
ur af köttum heldur en
hundum.
Ég bý í Kópavogi og fer
oft út að labba með minn
hund og ef hann gerir þarfir
sínar á óheppilegum stað er
ég alltaf með poka til að
þrífa það upp en það er ann-
að upp á teningnum með
ketti, þeir fara í sandkassa
þar sem börn eru að leika
sér og það er ekki skylda,
svo ég viti, að láta orma-
hreinsa þá eða sprauta
gegn veikindum og ekki
haft neitt eftirlit með þeim.
Ég hef aldrei séð á mín-
um göngutúrum neitt eftir
hunda en hef heyrt sögur
frá fólki sem vinnur á leik-
skólum og í skólum að
kattaskítur sé þar víða. Ég
bara bið viðkomandi aðila
að athuga þetta mál og
skylda fólk sem er með
ketti að láta skrá þá og láta
það borga gjald fyrir þá.
Það kannski minnkar gjald
fyrir besta vin mannsins,
þ.e. hundinn. Gjaldið er
fáránlega hátt.
Með von um skjót við-
brögð.
Hundavinur.
Messuvín, glært
og rautt?
ANNA hafði samband við
Velvakanda og vildi hún fá
að vita hvort til væri tvenns
konar messuvín, glært og
rautt. Segir hún að í fyrra
hafi hún fengið glært vín í
altarisgöngu um páskana.
Gleymdist messan?
ÉG hugðist hlusta á guðs-
þjónustu mér til sáluhjálpar
sunnudagsmorguninn 30.
mars. Stillti ég á gufuna.
Eftir að hafa hlustað á söng
Bubba var ég viss um að
þetta væri ekki messa held-
ur væri Bubbi að syngja á
fundi umhverfissinna. Það
sem á eftir kom minnti
mest á pólitíkus sem „akit-
eraði“ fyrir flokkinn sinn.
Og þá er það spurningin:
Gleymdist messan?
211123-7619.
Tapað/fundið
Grár Nokia týndist
GRÁR Nokia 3210 týndist
nálægt íþróttahúsinu í
Kópavogi eða við Berg-
staðastræti í miðbænum.
Skilvís finnandi hafi sam-
band í síma 552 4456.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Ósmekklegur
brandari
Morgunblaðið/Þorkell
DAGBÓK
60 LAUGARDAGUR 5. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI ætlar að vera hrein-skilinn. Víkverji ætlar að ljóstra
því upp að hann hefur alltaf verið
mjög nýjungagjarn, nokkuð sem
menn jafnan þvertaka fyrir að vera.
Þessi nýjungagirni er reyndar svo
til aðeins tengd matvörum, enda
Víkverji alltaf verið matgæðingur
mikill. Þetta lýsir sér þannig að í
hvert sinn sem Víkverji kaupir inn
og sér einhverja nýja matvöru á
boðstólum stenst hann ekki mátið
og verður að kaupa hana, svona til
þess að smakka að minnsta kosti
einu sinni. Sem getur verið gott því
ef hún bragðast illa hverfur löng-
unin alfarið til að kaupa hana. Ekki
langaði Víkverja t.d. aftur í Súkkó
eftir að hafa bragðað þennan ís-
lenska súkkulaðigosdrykk einu
sinni. Ekki var áhuginn meiri á að
kaupa kirsuberjakók oftar en einu
sinni, þegar það fékkst hér á landi
til skamms tíma á níunda áratugn-
um. Sömu sögu er af segja af nýja
vanillukókinu, Pepsí Twist og syk-
ursnauðu kóki með sítrónubragði.
En alltaf verður Víkverji að kaupa
þessar vörur einu sinni, bara til að
smakka. Á yngri árum beindist
þessi nýjungagirni auðvitað að sæl-
gætinu fyrst og fremst. Þannig var
ekkert indælla en að smakka eitt-
hvað nýtt
nammi, ein-
hverja nýja
tegund af
dönskum pip-
arbrjóstsykri,
helst með
dufti inní.
Með árunum
hefur með-
tekinn þroski síðan beint áhersl-
unum að einhverju leyti frá sælgæt-
inu að öðru góðgæti og öllu
„menntaðra“, ostum og jafnvel létt-
víni. Samt á Víkverji enn bágt með
sig er hann sér einhverja nýja sæl-
gætistegund í búðarhillunni, tala nú
ekki um ef hún er íslensk. Nóa-
bombur. Uss, alltof góðar. En auð-
vitað er það oftar sem kötturinn er
keyptur í sekknum. Auðvitað þurfti
Víkverji að prófa Prins Póló með
kókosbragði og gott ef ekki hnetum
einnig. Þvílíkt og annað eins! Hvern
langar ekki í kirsuberjakók og kók-
osprins?
Svo hefur Víkverji náttúrlega fall-
ið fyrir öllum tilraunum landans til
að framleiða snakk. Það sleppur
þetta sem nú er fáanlegt, enda
froðusnakkið að mestu horfið, þetta
sem bólgnaði út á tungunni á manni,
svo kraumaði í rétt eins og verið
væri að steikja tunguna á pönnu. Og
hver man ekki eftir fiskisnakkinu?
Ekkert slorbragð. Einmitt það já.
Og harðfiskurinn með allskonar
bragðtegundum? Nei takk, meira að
segja hinir nýjungagjörnu kjósa
þennan gamla góða, alveg eins og
hann er, með harðfisksbragði.
Þær eru tvær vörutegundir sem
Víkverji prófaði nýverið í fyrsta
sinn og féll fyrir. Annars vegar
Breakfast in a Bottle frá Chiquita,
ávaxtasafi og trefjar saman í flösku,
morgunmatur í flösku. Ekki hægt
að vera án hans eftir að hafa prófað
hann einu sinni og það komið frá
manni sem hingað til hefur hvorki
getað borðað vott né þurft í morg-
unsárið. Hin varan er Gunnars tóm-
atsósa, miklu betri en þessi erlenda,
alvöru tómatbragð, minnir svolítið á
gömlu Vals tómatsósuna, þessa með
öllu eplamaukinu í. Pylsusalar not-
uðu hana líka mikið, en hún hvar úr
búðarhillunum. Rétt eins og þessi
nýja Gunnars tómatsósan, hún fæst
hvergi orðið. Hvar er hún?
Namm, kirsu-
berjakók. Nú
vantar bara
kókosprinsið.
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Hvidbjörnen og Lóm-
ur koma í dag. Eldborg
fer í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Fornax, Gemini og
Mánaberg fóru í gær.
Mannamót
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Bilj-
ardáhugafólk, fundur
um biljardmál á mið-
vikudag kl. 10.30, mæt-
ið til að finna ykkur
spilafélaga. Áhugafólk
um boccia, skráning í
bocciaklúbb, í Hraun-
seli, sími 555 0142. Fé-
lagsheimilið er opið
alla virka daga frá kl.
13–17. Kaffi á könnuni
kl. 15–16:30.
Félag aldraðra í Mos-
fellsbæ og nágrenni
minnir á gönguhópinn
sem fer frá Hlégarði
kl. 11. Komið verður til
baka eftir um klukku-
stundar göngu. Allir
velkomnir, ungir sem
gamlir.
Félagsstarf eldri borg-
ara í Mosfellsbæ, Kjós
og á Kjalarnesi. Fé-
lagsstarfið opið mánu-
og fimmtudaga. Bók-
band í dag kl. 10–12.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Á þriðjudög-
um kl. 13 boccia, mið-
vikudögum kl. 10.30
gamlir leikir og dans-
ar, fimmtudögum kl. 13
glermálun. Allar upp-
lýsingar um starfsem-
ina á staðnum og í síma
575 7720.
Gönguklúbbur Hana-
nú. Morgunganga kl.
10 laugardagsmorgna
frá Gjábakka.
Krummakaffi kl. 9.
Gigtarfélagið. Leik-
fimi alla daga vik-
unnar. Létt leikfimi,
bakleikfimi karla,
vefjagigtarhópar, jóga,
vatnsþjálfun. Einn
ókeypis prufutími fyrir
þá sem vilja. Uppl. á
skrifstofu GÍ, s.
530 3600.
Stuðningsfundir fyrr-
verandi reykingafólks.
Fólk sem sótt hefur
námskeið gegn reyk-
ingum í Heilsustofnun
NLFÍ í Hveragerði,
fundur í Gerðubergi á
þriðjud. kl. 17.30.
GA-fundir spilafíkla,
kl. 18.15 á mánudögum
í Seltjarnarneskirkju
(kjallara) kl. 20.30 á
fimmtudögum í
fræðsludeild SÁA,
Síðumúla 3–5, og í
Kirkju Óháða safn-
aðarins við Háteigsveg
á laugardögum kl.
10.30.
Samtök þolenda kyn-
ferðislegs ofbeldis,
fundir mánudaga kl. 20
á Sólvallagötu 12.
Stuðst er við 12 spora
kerfi AA-samtakanna.
Ásatrúarfélagið,
Grandagarði 8. Opið
hús alla laugardaga frá
kl. 14.
Kattholt. Flóamark-
aður í Kattholti, Stang-
arhyl 2, er opinn
þriðjud. og fimmtud.
frá kl. 14–17. Leið 10
og 110 ganga að Katt-
holti.
Lífeyrisdeild Lands-
sambands lögreglu-
manna. Sunnudags-
fundur deildarinnar
verður á morgun,
sunnudaginn 2. mars, í
félagsheimili LR í
Brautarholti 30 og
hefst kl. 10. Félagar,
fjölmennið.
Styrkur, samtök
krabbameinssjúklinga
og aðstandenda þeirra.
Opið hús verður
þriðjudaginn 8. apríl
kl. 20. Sigurður Böðv-
arsson krabbameins-
læknir flytur fræðslu-
erindi um
lungnakrabbamein.
Allir velkomnir.
Minningarkort
Slysavarnafélagið
Landsbjörg, Stang-
arhyl 1, 110 Reykjavík.
S. 570 5900. Fax: 570
5901. Netfang: slysa-
varnafelagid@lands-
bjorg.is
Minningarkort Rauða
kross Íslands eru seld í
sölubúðum kvenna-
deildar RRKÍ á
sjúkrahúsum og á
skrifstofu Reykjavík-
urdeildar, Fákafeni 11,
s. 568 8188.
Minningarkort Hvíta-
bandsins fást í Kirkju-
húsinu, Laugavegi 31,
s. 562 1581, og hjá
Kristínu Gísladóttur, s.
551 7193, og Elínu
Snorradóttur, s. 561
5622.
Minningarkort
Sjúkraliðafélags Ís-
lands eru send frá
skrifstofunni, Grens-
ásvegi 16, Reykjavík.
Opið virka daga kl. 9–
17. S. 553 9494.
Minningarkort Vina-
félags Sjúkrahúss
Reykjavíkur eru af-
greidd í síma 525 1000
gegn heimsendingu
gíróseðils.
Minningakort Breið-
firðingafélagsins eru
til sölu hjá Sveini Sig-
urjónssyni, s. 555 0383,
eða s. 899 1161.
Minningarkort Kven-
félagsins Hringsins í
Hafnarfirði. Minning-
arsjóður í vörslu kven-
félagsins Hringsins í
Hafnarfirði.
Minningarkortin fást
nú í Lyfjum og heilsu,
verslunarmiðstöðinni
Firði í Hafnarfirði.
Kortið kostar kr. 500.
Í dag er laugardagur 5. apríl, 95.
dagur ársins 2003.
Orð dagsins: Sækist eins og ný-
fædd börn eftir hinni andlegu,
ósviknu mjólk, til þess að þér af
henni getið dafnað til hjálpræðis.
(1 Pt. 2, 2.)
Stjórnmálasamtökum,sem vilja gera at-
lögu að „Fjórflokknum“
og hyggja á framboð
fjölgar enn.
Nýjustu samtökinkalla sig „Nýtt afl“
og hyggja á framboð í
Reykjavíkurkjördæm-
unum báðum í hið
minnsta.
Samtökin ætla að
berjast fyrir því að „gef-
ið verði upp á nýtt“,
sem er væntanlega til-
vísun í stefnu Franklins
D. Roosevelt Banda-
ríkjaforseta á kreppuár-
unum og að auki berjast
gegn „spillingarstefnu
stjórnvalda“.
Á fundi þar sem sam-tökin kynntu stefnu-
mál sín sagði talsmaður
þeirra meðal annars:
„Við sem að þessum
samtökum stöndum er-
um gríðarlega óánægð
með þá öfugþróun sem
hefur orðið í þjóðfélag-
inu á undanförnum
misserum og við viljum
reyna að knýja stjórnar-
og stjórnmálaflokkana
til þess að beina um-
ræðunni nú á meðan
menn lifa í landi loforð-
anna inn á þau atriði
sem við teljum að knýj-
andi sé að ræða. Við
teljum að ríkisstjórnin
hafi gersamlega brugð-
ist í að gæta hagsmuna
almennings, við teljum
að forgangsröðunin og
áherslurnar í þjóðfélag-
inu séu algerlega rang-
ar. Þær einkennist
miklu frekar af nokkurs
konar minnisvarða-
pólitík heldur en því að
taka mið af hagsmunum
og lífshamingju fólksins
í landinu.“
Miðað við þá svörtumynd sem þarna er
dregin upp er erfitt að
sjá að fulltrúar Nýs afls
hafi dvalið mikið á Ís-
landi undanfarin ár.
Það sem einkenndi
síðastliðinn áratug var
eitthvert mesta hag-
sældarskeið Íslandssög-
unnar. Þegar því lauk
tókst að lenda efnahags-
lífinu mjúklega og nú
bendir allt til að nýtt
hagvaxtarskeið sé í upp-
siglingu. Kaupmáttur
launa hefur aukist um
tugi prósenta á und-
anförnum árum. Skattar
á einstaklinga og fyr-
irtæki hafa verið lækk-
aðir og starfsumhverfi
fyrirtækja verið fært í
betra horf með ýmsum
hætti. Ljóst er að á
næstu árum mun gefast
svigrúm til verulegra
lækkana á sköttum ein-
staklinga því til við-
bótar. Samt er meiri
fjármunum varið í heil-
brigðis- og menntamál
en nokkurn tímann fyrr.
Samið hefur verið um
stóriðjuframkvæmdir á
Austurlandi er munu
hleypa nýju lífi í þann
landshluta jafnt sem
efnahagslífið í heild.
Er þetta „minn-
isvarðapólitík“ og „al-
gjörlega röng“ for-
gangsröðun? Ef svo er
myndu líklega flestir
kjósa meira af því sama
í stað þess að láta gefa
upp á nýtt.
STAKSTEINAR
Röng forgangsröðun?
LÁRÉTT
1 agn, 4 tannstæði, 7
blóm, 8 slagbrandurinn,
9 bragðvísan mann, 11
trassi, 13 karlfugl, 14 slá,
15 lipur, 17 skríls, 20
gruna, 22 að baki, 23
aumingja, 24 mannsnafn,
25 ákveð.
LÓÐRÉTT
1 skinnpoka, 2 illska,
3 óhreinkar, 4 íþrótt,
5 saur, 6 landrimi,
10 gufa, 12 vond,
13 húð, 15 þrúga,
16 spilið, 18 vargur,
19 dáið, 20 ofnar,
21 nabbi.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 fannfergi, 8 tærar, 9 dynur, 10 róa, 11 lúlla,
13 reisn, 15 legil, 8 skáld, 21 oft, 22 áfátt, 23 arinn,
24 kinnungur.
Lóðrétt: 2 apríl, 3 narra, 4 endar, 5 gengi, 6 stél,
7 grun, 12 lúi, 14 eik, 15 ljár, 16 grámi, 17 lotin,
18 stafn, 19 álitu, 20 dáni.
Krossgáta
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16