Morgunblaðið - 05.04.2003, Page 65
KVIKMYNDIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. APRÍL 2003 65
stefnuna. Ég dreg því ekki dul á það
að í myndinni er tekin afstaða gegn
þessari nýlendustefnu.
Hin ástæðan fyrir því að ég vildi
gera þessa mynd er sú að í hinum
myndunum hefur hugleysið ætíð ver-
ið klár skýring á því að söguhetjan
Feversham neitaði að taka þátt í
stríðsátökunum. Ég á hinn bóginn lít
ákvörðun hans öðrum augum. Að
neita að taka þátt í stríði og standa
fastur á sinni sannfæringu þrátt fyrir
þrýsting frá samfélaginu, það krefst
mikils hugrekkis. Fyrir mér er hann
hugrakkastur þeirra allra. Ekki ein-
asta fyrir að standa fastur á sínu held-
ur ekki hvað síst fyrir að viðurkenna
að vera hræddur við að deyja á þess-
um tímum, þar sem slíkt þótti ekki
par karlmannlegt, allra síst hjá her-
mönnum. En sá er fífl sem ekkert ótt-
ast, sem fer óhræddur til stríðs. Það
kallaði á ómælt hugrekki fyrir karl-
mann í þessu samfélagi að standa upp
og tilkynna að hann væri hræddur.“
Óttinn við óttann
Kapur segir að vissulega sé þessi
áhugi hans á viðfangsefninu, nýlendu-
hernaði breska heimsveldisins,
tengdur hans eigin uppruna sem Ind-
verja og byggist á fyrirfram ákveð-
inni afstöðu hans gegn henni. „En ég
er líka alltaf á höttunum eftir epísk-
um sögum og mér þótti mjög hentugt
að fjalla um þessi mál á epískan máta,
og segja um leið þroskasögu, frá van-
þroska til vísdóms. Stríð er van-
þroski, friður er vísdómur. Á þeim
nótum get ég allt eins verið að segja
sögu einstaklings en ekki sögulegra
stríðsátaka og fyrir mér er þetta per-
sónusaga en ekki stjórnmálasaga.
Saga af manni sem tekst á við óttann,
óttann við að mistakast, óttann við að
bregðast ástvinum sínum, óttann við
að bregðast þeim og óttann við að
deyja. Að horf-
ast í augu við
þennan ótta og
ná að vinna á
honum bug er
mesta hugrekki
sem nokkur
maður getur
sýnt, að standa
eign óttatilfinn-
ingum á sporði.“
Þeir sem séð
hafa Elísabetu
og Stigadrottn-
inguna ættu að
geta ímyndað
sér af hvílíkri
stærðargráðu
Fjaðrirnar fjórar er. Kapur er maður
epískra stórmynda, þrífst á því að
fjalla um hetjur, sem koma úr öllum
stéttum, og miklar og stórbrotnar
breytingar sem eiga sér stað í lífi
þeirra, breytingar sem gjarnan hafa
áhrif á allt umhverfi þeirra, þjóð eða
jafnvel heila mannkynið. Hann segir
að vissulega megi greina á þessum
epíska stíl sínum sterk áhrif frá ind-
verskri kvikmyndahefð, þar sem
mjög þyki til fyrirmyndar að segja
„miklar“ sögur. „Sá hugsanaháttur er
enn við lýði í heimalandi mínu að
þetta tækifæri, að fá að gera kvik-
mynd, sé það dýrmætt og einstakt að
maður skuli nýta sér það til hins ýtr-
asta, og það sem meira er, til góðs.“
Ledge er vel gefinn
Leikaravalið í Fjórum fjöðrum hef-
ur vakið nokkra athygli því í stað þess
að velja breska eðalleikara með mikla
sviðsreynslu, líkt og hann gerði í El-
ísabetu, kaus Kapur að líta til Holly-
wood og fann þar fjóra leikara sem al-
mennt eru taldir til hinna efnilegustu
þar í borg. Ástralinn Heath Ledge
leikur titilpersónuna Harry Fev-
ersham, heigulinn/hetjuna, Kate
Hudson heitmey hans, Wes Bentley
besta vin hans sem ólíkt honum er
tilbúinn að fylgja málstað fósturjarð-
ar sinnar í blindni og Djimon Ho-
unsou afrískan stríðsmann sem binst
vináttuböndum við Feversham, er
hann ákveður, eftir mikið sálarstríð,
að halda til Afríku til þess að freista
þess að bjarga vinum sínum eftir að
þeir eru komnir á heljarþröm. Ledge
er kannski þeirra kunnastur, hefur
leikið jöfnum höndum í léttari mynd-
um og veigameiri, var í unglinga-
myndinni Tíu hlutir í fari þínu sem ég
þoli ekki (Ten Things I Hate About
You), Föðurlandsvininum (The Pat-
riot) og Riddarasögu (A Knights
Tale) m.a. Kate Hudson sló í gegn
sem grúppía í Næstum frægur (Al-
most Famous) og birtist brátt í gam-
anmyndinni Hvernig hætta á með
gaur á 10 dögum (How to Loose A
Guy in Ten Days). Wes Bentley gat
sér gott orð fyrir hlutverk drengsins
óræða í Amerískri fegurð (American
Beauty) og Hounsou fékk fyrsta stóra
tækifæri sitt í Amistad Stevens Spiel-
bergs.
Kapur segist alfarið hafa ráðið leik-
aravalinu og áréttar að það sé í raun
það langt síðan hann réð þau í hlut-
verk að þau hafi ekki verið orðin eins
fræg og þau eru í dag. Hudson, Bentl-
ey og Hounsou hafi öll getið sér orð
fyrir eina mynd og Ledge einungis
búinn að vekja athygli fyrir unglinga-
myndina Tíu hlutir... en átti eftir að
leika í hinum myndunum. „Ég valdi
þessa leikara vegna þess að mér þótti
þeir passa best í hlutverkin, rétt eins
og ég geri alltaf. Í tilfelli Hounsou
þurfti ég einhvern sem liti ekki ein-
asta út eins og maður heldur gæti
einnig virkað á mann sem nokkurs
konar verndarengill, sem hann er Fe-
versham í myndinni. Ég mundi hvað
mér þótti mikil reisn vera yfir þessum
manni í Amistad og vildi nýta mér þá
eiginleika. Bentley á að leika náunga
sem sér lífið í svörtu og hvítu, er
hreinn og beinn. Fer í stríð til að berj-
ast og snýr annaðhvort til baka sem
hetja eða í líkkistu – ekkert þar á
milli. Hinn fullkomni hermaður. En
þegar hann verður blindur má segja
að hann fyrst fái sjónina, fari að sjá líf
sitt í réttu ljósi. Bentley, með sín fag-
urbláu augu, treysti ég manna best til
þess að leika þetta, en ekki bara
blindan mann. Ég var lengi að finna
einhvern til að leika Feversham, ein-
hvern sem væri mjög ungur en byggi
samt yfir mikilli visku. Þetta fannst
mér eiga við Ledge. Hann er mjög vel
gefinn ungur maður og skyldi hlut-
verk sitt um leið.“
Krafturinn í Bollywood
Shekar Kapur nam endurskoðun í
Bretlandi og útskrifaðist sem löggilt-
ur endurskoðandi árið 1970. Ávallt
var hugurinn þó við listina og á end-
anum snéri hann baki við bókhaldinu,
snéri heim til Indlands og gerðist
kvikmyndaleikari. Leiddi það síðan til
þess að hann fór að gera sínar eigin
myndir í Bollywood, indverska Holly-
wood, líkt og nær allir aðrir indversk-
ir kvikmyndagerðarmenn. Blaða-
manni lék því forvitni á að vita hvað
það væri í myndum hans sem greina
mætti sem Bollywood-kvikmynda-
gerð. „Krafturinn. Fögnuður yfir
töfrum kvikmyndanna. Óhefluð frá-
sagnarhefð. Stundum finnst mér frá-
sagnarhefð vestrænna mynda óþarf-
lega rökrétt og hefðbundin, bundin
við einhverjar fyrirfram ákveðnar
reglur, þar sem allar spurningar
krefjast svara. Bollywood-kvik-
myndagerðin forðast heldur ekki
melódramatíkina heldur fagnar
henni, rétt eins og ég gerði í Elísa-
betu. Annað sem er mjög í anda Bol-
lywood í myndum mínum er goðsagn-
irnar en goðsagnir eru mjög áberandi
í Bollywood-myndum.“
Kapur segir fáa vestræna leik-
stjóra hafa náð að tileinka sér þennan
sérstæða stíl en nefnir þó Baz Luhr-
man. „Útgáfa hans á Rómeó og Júlíu
er mjög í anda Bollywood-mynda og
Rauða myllan (Moulin Rouge) jafnvel
enn frekar. Hann er líka yfirlýstur
aðdáandi Bollywood-mynda.“ Kapur
segir það eitt af sínum höfuðmark-
miðum að reyna að brúa bilið milli
Hollywood og Bollywood og fyrr en
síðar muni hann snúa aftur til Bolly-
wood til að gera alþjóðlega kvikmynd.
Næst er það Mandela
Stigadrottningin (Bandit Queen) er
einhver umdeildasta mynd sem gerð
hefur verið á Indlandi en hún fjallar
um glæpakvendið Phoolan Devi sem
indverska pressan gerði að píslar-
vætti. Myndin markaði ákveðin tíma-
mót í Bollywood því hún þótti raun-
særri en aðrar myndir sem þar höfðu
verið gerðar um langa hríð, nokkuð
sem Kapur segir að menn séu nú
farnir að leika eftir honum, en síðustu
árin hefur gerð raunsærri mynda
færst mjög í aukana í Indlandi. Í
Stigadrottningunni gagnrýnir Kapur
indversk yfirvöld og segist hann
vissulega enn eiga sína óvildarmenn í
heimalandinu vegna myndarinnar.
Menn hefðu þó mildast eitthvað þeg-
ar þeir sáu að hann var tilbúinn til að
gagnrýna önnur samfélög, er hann
gerði Elísabetu. Mætti hann líka tölu-
verðri mótspyrnu í Bretlandi er hann
gerði þá mynd enda voru margir
hneykslaðir, eins og t.a.m. götublöðin,
að indverskur leikstjóri væri að fást
við eins heilagt viðfangsefni og
jómfrúardrottninguna. „Ekki bætti
úr skák þegar myndin gekk út á að
sýna að hún hafi ekki verið jómfrú í
alvöru,“ segir Kapur.
Og fróðlegt verður að sjá hvernig
Shekar Kapur tekur á ævi næsta
stórmennis sem hann gerir mynd um.
Hann hefur nefnilega þegar hafist
handa við gerð myndar um ævi Nel-
sons Mandela, sem leikinn verður af
Morgan Freeman. „Það er snúið
verkefni enda ekki hlaupið að því að
rekja svo stórbrotna ævi á tveimur og
hálfri stundu. Vandinn hefur ekki
snúist um það sem við segjum frá,
heldur fremur það sem við segjum
ekki frá, hverju á eiginlega að
sleppa.“
Hetja eða heigull. Heath Ledge ríður feitum hesti í hlutverki breska hermannsins Harry Feversham.
Shekar Kapur í leikstjórastólnum á tökustað í eyðimörk
Marokkó. Fúlskeggjaður Heath Ledge fyrir aftan hann.
Fjórar fjaðrir er sýnd í
Regnboganum.
skarpi@mbl.is
Heath Ledge og Kate Hudson eru meðal efnilegustu leikara í Hollywood
um þessar mundir.
Bjóðum stutt námskeið í páskafríinu:
Talnareikningur - grunnurinn
Algebra I og II; Prósentur; Rúmfræði;
Notkun vasareiknis og vinnubrögð;
Þung dæmi og þrautir - fyrir sterka námsmenn
Nánari upplýsingar á vefsíðu okkar: www.simnet.is/talnatok
Stærðfræðiskólinn Talnatök talnatok@simnet.is, sími 899 2123
Samræmt próf í stærðfræði?
STÆRÐFRÆÐISKÓLINN TALNATÖK
Hátíðarfatnaður
íslenskra karlmanna
Hátíðarfatnaður íslenskra
karlmanna hefur notið mikilla
vinsælda frá því farið
var að framleiða hann.
Færst hefur í vöxt að íslenskir
karlmenn óski að klæðast
búningnum á tyllidögum, svo
sem við útskriftir, giftingar,
á 17. júní, við opinberar
athafnir hérlendis og erlendis
og við öll önnur
hátíðleg tækifæri.
Herradeild Laugavegi, sími 511 1718.
Herradeild Kringlunni, sími 568 9017.
P
ó
st
se
n
d
u
m
Hátíðarföt
með vesti
100% ull
skyrta, klútur og næla
kr. 36.900
Allar stærðir til
46— 64
98—114
25— 28