Morgunblaðið - 11.04.2003, Síða 47
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 2003 47
Fundur um stöðu jafnréttismála
Femínistafélag Ísland heldur fund
með fulltrúum stórnmálaflokkanna
þar sem rætt verður um stöðu jafn-
réttismála á Íslandi, í dag, föstudag-
inn 11. apríl kl. 8.15–10, á Grandhót-
eli 4. hæð. Fjallað verður um stöðu
kvenna á Íslandi og athyglinni m.a.
beint að: launamisrétti og atvinnu-
stefnu, ofbeldi gegn konum, heilsu
kvenna o.fl. Fulltrúar flokkanna
verða: Björn Ingi Hrafnsson fyrir
Framsóknarflokkinn, Margrét
Sverrisdóttir fyrir Frjálslynda flokk-
inn, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyr-
ir Samfylkinguna, Katrín Fjeldsted
og Guðrún Inga Ingólfsdóttir fyrir
Sjálfstæðisflokkinn og Steingrímur
J. Sigfússon fyrir Vinstrihreyf-
inguna – grænt framboð.
Í DAG
Knattspyrnufélagið Haukar held-
ur upp á að 72 ár eru liðin síðan 13
ungir piltar stofnuðu Knattspyrnu-
félagið Hauka með aðstoð æskulýðs-
leiðtogans sr. Friðriks Friðriks-
sonar. Félagið fagnar þessum
tímamótum í Íþróttamiðstöð félags-
ins á Ásvöllum á morgun, laugardag-
inn 12. apríl, kl. 13. Húsið verður op-
ið öllu Haukafólki og velunnurum
félagsins. Skemmtidagskrá, m.a.
fjöltefli á 20 borðum á 2. hæð. Árshá-
tíð félagsins verður um kvöldið.
Vormót Fjölnis og Hróksins í
Rimaskóla verður haldið á morgun,
laugardaginn 13. apríl. Mæting er kl.
11 en mótið hefst með athöfn kl.
11.30. Mótið er haldið í tilefni þess
að Skákfélagið Hrókurinn og
íþróttafélagið Fjölnir undir forystu
Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, nýs for-
manns félagsins, hafa hafið samstarf
um að efla enn frekar skáklíf í Graf-
arvoginum. Veitt verða verðlaun fyr-
ir fyrsta, annað og þriðja sætið í
flokki drengja og stúlkna. Verð-
launahafar fá einnig páskaegg og
geisladiska. Einnig verður dreginn
út fjöldinn allur af páskaeggjum,
geisladiskum, bolum og bókum og
eiga allir jafna möguleika á að hljóta
vinning. Mótið er ókeypis og opið
krökkum í Grafarvogi í 1. til 6. bekk.
Skráning er á skakskoli@hotmail-
.com. Þau sem ekki hafa aðgang að
Netinu geta skráð sig á keppnisstað.
Eftirtalin fyrirtæki styrkja mótið og
gefa vinninga: Bónus, Skífan, Nói
Síríus og Edda – miðlun.
Íslandsmeistaramót í innan-
húsklifri Klifurhúsið og Íslenski
Alpaklúbburinn kynna Mountain
Dew-mótið – Íslandsmeistaramót
2003 í innanhússklifri, á morgun,
laugardaginn 12. apríl, kl. 12, í húsi
Hjálparsveitar skáta í Reykjavík að
Malarhöfða 6. Keppt er í karla- og
kvennaflokki. Allir velkomnir og að-
gangur er ókeypis. Allar nánari upp-
lýsingar er að finna á www.isalp.is.
Mótmæli gegn stríði Íslenskir frið-
arsinnar koma saman við Stjórn-
arráðið á morgun, laugardaginn 12.
apríl, kl. 14 til að mótmæla stríðs-
rekstri Bandaríkjamanna og Breta í
Írak og stuðningi íslensku rík-
isstjórnarinnar við hann. Ávörp
flytja Stefán Pálsson og Þór Saari.
Einnig verður fluttur leikþátturinn
„Skyldan kallar“ sem sýndur var í
úrslitaviðureign spurningakeppni
framhaldsskólanna. Kaffi og kakó
verða að venju á boðstólum.
Útilífsmótið í kassaklifri verður
haldið á morgun, laugardaginn 12.
apríl, kl. 14, í Smáralindinni. 16 ung-
lingar keppa um Íslandsmeistaratit-
ilinn í kassaklifri. Í tengslum við
mótið verður kynning á unglinga-
starfi björgunarsveita og skáta í
Vetrargarðinum um helgina, m.a.
verður settur upp 6 metra hár klif-
urveggur fyrir gesti og gangandi.
Einnig verður lengsta innanhúss
svifbraut sem sett hefur verið upp á
Íslandi o.fl., segir í fréttatilkynn-
ingu. Bandalag íslenskra skáta
ásamt Landsbjörg stendur að Úti-
lífsmótinu í kassaklifri en styrkt-
araðili keppninnar er Útilíf. Nánari
upplýsingar á www.kassaklifur.com.
Á MORGUN
Samfylkingin í Suðvesturkjör-
dæmi opnar nýja kosningamið-
stöð í Hamraborg 20, Kópavogi, á
morgun, laugardaginn 12. apríl, kl.
11. Frambjóðendur taka á móti gest-
um, tónlistaratriði og uppákomur
fyrir börnin. Boðið verður upp á há-
degisverð. Kl. 13 sama dag er opið
hús þar sem foreldrar eru boðnir vel-
komnir til að ræða við frambjóðendur
um lífskjör og framtíð barna okkar.
Kosningamiðstöðin verður opin alla
virka daga kl. 10–22 og kl. 10–16 um
helgar.
Samfylkingin á Sauðárkróki opn-
ar kosningamiðstöð á morgun,
laugardaginn 12. apríl, kl. 14, í Villa
Nova, Aðalgötu 23. Frambjóðend-
urnir Anna Kristín Gunnarsdóttir og
Gísli S. Einarsson kynna „Nýja tíma“
– stefnuáherslur Samfylkingarinnar
fyrir kosningarnar 2003. Myndlist-
armaðurinn Ágúst B. Eiðsson opnar
myndlistarsýningu. Skemmtidagskrá
og veitingar fyrir börn og fullorðna.
Kosningamiðstöðin er opin kl. 16–21
virka daga, 10–16 á laugardögum.
Vinstrihreyfingin – grænt framboð
á Akureyri heldur fund á morgun,
laugardaginn 12. apríl kl. 11, í kosn-
ingamiðstöð VG í Hafnarstræti 94.
Gestur fundarins er Stefán Tryggva-
son bóndi, sem ræðir um stöðu ís-
lensks landbúnaðar, möguleika og
framtíðarsýn.
Kvennakvöld hjá VG Vinstrihreyf-
ingin – grænt framboð í Suðvestur-
kjördæmi heldur kvennakvöld, í
kvöld, föstudaginn 11. apríl, kl. 20.30,
í kosningamiðstöðinni í Bæjarlind 12,
Kópavogi.
STJÓRNMÁL
VÆNN hluti Steinsmýrarvatna sem
er í leigu Hilmars Hanssonar verður
ekki opnaður fyrr en um miðjan maí
en Hilmar fór á vísindaveiðar um síð-
ustu helgi ásamt nokkrum félögum
sínum til að athuga með fiskafjöld og
veiðistaði til að vísa á þegar vertíðin
hefst. Veiði gekk vel og lofar svæðið
góðu að sögn Hilmars.
„Við fengum tíu fiska, mest sjó-
birting og staðbundna urriða, en
einnig gullfallega 3 punda bleikju.
Birtingarnir voru upp í 3–4 pund og
mest fengum við þetta á straumflug-
ur, Nobblera og Dentist númer 6 og
8. Þarna virðist vera talsvert af
fiski,“ sagði Hilmar Hansson.
Lax-á bætir við sig
Stangaveiðifélagið Lax-á hefur
bætt enn einu veiðisvæðinu á fram-
boðslista sinn. Um er að ræða
Varmá/Þorleifslæk í Ölfusi, sem um
árabil hefur verið í umsjá skrifstofu
Landssambands veiðifélaga. Þarna
er að finna mikla veiðisæld og lands-
ins mestu blöndu fisktegunda, því
auk urriða, sjóbirtings, bleikju og
stöku lax, veiðist þarna talsvert af
regnbogasilungi og síðustu árin eru
menn jafnvel í færi við flundrur,
kolategund sem gengur orðið reglu-
lega í Ölfusá og upp í ár og læki í Ölf-
usi!
Skráning afla hefur lengi verið í
molum í ánni, en til stendur að kippa
því í liðinn. Alls er veitt á sex stangir
frá 1. apríl og til 20. október.
Bjarni Brynjólfsson með 3 punda birting úr Steinsmýrarvötnum.
Steinsmýrar-
vötnin lofa góðu
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
IS200
LEXUS ST YRKIR S INFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
LE
X
2
08
66
04
/2
00
3
LEXUS N†B†LAVEGI 6 SÍMI 570 5400 WWW.LEXUS.IS
CASTA DIVA
ÓPERUTÓNLEIKAR SINFÓNÍUHLJÓMSVEITAR ÍSLANDS
L i p i n g Z h a n g , s ó p r a n , í H á s k ó l a b í ó i f ö s t u d a g i n n 1 1 . a p r í l k l . 1 9 . 3 0 - M i › a p a n t a n i r o g s í m a s a l a í s í m a 5 4 5 2 5 0 0 .