Morgunblaðið - 26.04.2003, Blaðsíða 41
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2003 41
UNDANFARNA daga hefur
skjólstæðingur minn, Þorfinnur Óm-
arsson, fyrrv. forstöðumaður Kvik-
myndamiðstöðvar Íslands, mátt
sæta því að tvær ríkisstofnanir hafa
rekið mál gegn honum í fjölmiðlum.
Hamagangurinn byrjaði á páska-
dag, þegar ráðuneytisstjóri mennta-
málaráðuneytis upplýsti í hádegis-
fréttatíma RÚV, að ráðuneytið hefði
falið Ríkisendurskoðun að kanna út-
hlutun úr Kvikmyndasjóði til fyrir-
tækis Hrafns Gunnlaugssonar.
Atgangurinn hélt áfram þriðju-
daginn eftir páska. Menntamála-
ráðuneytið sendi fjölmiðlum skýrslu
Ríkisendurskoðunar um fimmleytið
og fréttin var í öllum fréttatímum
ljósvakafjölmiðlanna um kvöldið;
„Þorfinnur braut af sér í starfi.“
Hvorki menntamálaráðuneytið né
Ríkisendurskoðun höfðu fyrir því að
kynna Þorfinni skýrsluna.
Sumardaginn fyrsta kom næsta
atlaga, nú í Morgunblaðinu og frá
Ríkisendurskoðun. Fyrirsögnin
„Mál Þorfinns til ríkissaksóknara“.
Þar er sagt frá því að ríkisendur-
skoðun hafi „vísað máli Þorfinns“ til
ríkissaksóknara. Síðar í fréttinni er
svo haft eftir ríkisendurskoðanda
sjálfum, að „í reynd“ hafi ríkissak-
sóknari kallað eftir gögnum málsins
„til þess að skoða þau“, „líkt og það
gerði í máli Guðmundar Magnússon-
ar“. Glöggir lesendur átta sig á því
að hér verður ríkisendurskoðandi
tvísaga. Þá felst í orðum hans að-
dróttun um að mál Þorfinns sé líkt
máli forstjóra Þjóðmenningarhúss
sem ríkisendurskoðandi rannsakaði.
Ekki hafði ríkisendurskoðandi fyrir
því að segja Þorfinni þessi tíðindi,
hvað þá að hann upplýsti hvað hon-
um væri gefið að sök.
Aðfarir þessara tveggja ríkis-
stofnana gagnvart þessum einstak-
lingi eru með ólíkindum og vonandi
einsdæmi.
Upplýsingum er lekið í fjölmiðla,
endurskoðunarskýrsla birt einhliða
og opinberlega án möguleika á and-
mælum. Morgunblaðið notað til að
kynna manninum að „mál“ hans sé
komið til meðferðar hjá ríkissak-
sóknara og gefið í skyn að það sé líkt
öðru mjög alvarlegu máli sem les-
endur þekkja.
Hvers vegna fer menntamálaráðu-
neytið fram með slíku offorsi gegn
Þorfinni Ómarssyni? Hví óskar
ráðuneytið eftir rannsókn endur-
skoðunarstofnunar ríkisins? Ágrein-
ingurinn um þessa úthlutun snýst jú
ekki um annað en lögfræðilega túlk-
un á lögum nr. 137/2001 um Kvik-
myndamiðstöð Íslands og réttar-
stöðu forstöðumanns hennar gagn-
vart menntamálaráðherra.
Það er ekki hlutverk Ríkisendur-
skoðunar samkvæmt lögum um Rík-
isendurskoðun nr. 86/1997, að gefa
út slíkar álitsgerðir. Að auki segir
Ríkisendurskoðun um þetta atriði í
skýrslu sinni bls. 10: „Ríkisendur-
skoðun sér ekki ástæðu til að gera
sérstakar athugasemdir við niður-
stöður lögfræðiálits V.H.V. hrl.“
Niðurstaða þess lögfræðiálits und-
irritaðs var einmitt sú, að samkvæmt
fyrrnefndum lögum um Kvikmynda-
miðstöð Íslands væri forstöðumanni
hennar heimilt að úthluta styrkjum
úr sjóðnum.
Ríkisendurskoðun kemst svo að
þveröfugri niðurstöðu í áliti sínu og
telur menntamálaráðherra geta gef-
ið forstöðumanninum „bindandi fyr-
irmæli“ m.ö.o. úthlutað úr Kvik-
myndasjóði. Sú niðurstaða er
lögfræðilega ekki rétt eins og Jón
Steinar Gunnlaugsson bendir rétti-
lega á í Morgunblaðinu á sumardag-
inn fyrsta.
Hver er ástæðan fyrir þessari fjöl-
miðlaherferð? Eiga ráðuneytið og
Ríkisendurskoðun harma að hefna
frá síðasta hausti?
Þá vék ráðherra Þorfinni úr emb-
ætti á grundvelli ávirðinga í bréfi
ríkisendurskoðanda. Sérstök nefnd,
sem var skipuð Björgu Thorarensen
prófessor, Brynhildi G. Flóvenz lög-
fræðingi og Gesti Jónssyni hæsta-
réttarlögmanni, komst að því að ekki
hefði verið rétt að veita Þorfinni
lausn frá embætti.
Í þessari vönduðu álitsgerð nefnd-
arinnar eru meintar ávirðingar Þor-
finns afgreiddar ein af annarri.
Skýrsla Ríkisendurskoðunar og
brottvikningin fær þessa ádrepu:
„Liggur ljóst fyrir að honum (Þor-
finni) gafst ekki tækifæri til að tjá
sig um þær alvarlegu ávirðingar sem
reifaðar voru í bréfi ríkisendurskoð-
anda og ráðuneytið reisti ákvörðun
sína á. Nefndin er þeirrar skoðunar
að þar sé kveðið mun fastar að orði
heldur en gert er í sjálfri endurskoð-
unarskýrslunni þar sem tæplega er
hægt að tala um alvarlegar ávirðing-
ar en ástandi mála er lýst og ýmsar
athugasemdir eru gerðar.“ Með öðr-
um orðum: Þær alvarlegu ásakanir
sem ríkisendurskoðandi setti fram í
bréfi sínu og menntamálaráðherra
byggði á áttu ekki við nein rök að
styðjast. Þær var jafnvel ekki að
finna í endurskoðunarskýrslu Ríkis-
endurskoðunar.
Getur verið að þessar tvær stofn-
anir séu nú að freista þess að ná því
fram með málarekstri í fjölmiðlum
sem þeim tókst ekki fyrir nefnd
þriggja hlutlausra og hæfra lögfræð-
inga, sem kröfðust sannana, ekki
bara órökstuddra fullyrðinga eins og
nú er kastað fram með aðstoð fjöl-
miðla?
Ég vona að fólk sjái í gegnum
þennan leikþátt svo sýningin falli,
eins og sú fyrri.
Án dóms og laga
Eftir Vilhjálm H.
Vilhjálmsson
Höfundur er hæstaréttarlögmaður.
„Ég vona að
fólk sjái í
gegnum
þennan leik-
þátt svo sýn-
ingin falli, eins og sú
fyrri.“
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Neskirkja
Aðalsafnaðarfundur
Aðalsafnaðarfundur Nessóknar verður haldinn
sunnudaginn 4. maí í safnaðarheimili kirkjunnar
að lokinni messu sem hefst kl. 11.00.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál.
Sóknarnefnd.
Samtök lungnasjúklinga
Aðalfundur
Samtaka lungnasjúklinga verður haldinn
8. maí nk. kl. 20 í SÍBS-húsinu, Síðumúla
6, Reykjavík.
Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál.
Vinsamlega mætið sem flest á fundinn.
Stjórnin.
Aðalsafnaðarfundur
Árbæjarsóknar
Aðalfundur Árbæjarsóknar verður haldinn
sunnudaginn 4. maí 2003 og hefst kl. 12.15 að
aflokinni messu sem hefst kl. kl. 11.00.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál.
Sóknarnefnd.
Fuglaskoðun
Skógræktarfélag Reykjavíkur stend-
ur fyrir fuglaskoðun við Elliðavatn
og í Heiðmörk sunnudaginn
27. apríl.
Farið verður frá áningarstaðnum
við Helluvatn kl. 14.00.
Allir velkomnir.
Gott að hafa sjónauka meðferðis.
Skógræktarfélag Reykjavíkur
www.skograekt.is
Fæðuofnæmi
Fræðsludagur á vegum Astma- og
ofnæmisfélagsins í dag, laugardag-
inn 26. apríl, kl. 10—12 í Múlalundi,
Hátúni 10c
Dagskrá:
Kl. 10.00—10.15
Fæðuofnæmi á Íslandi. Sjúkdómur, ein-
kenni, bráðaeinkenni og tíðni. Ari Axelsson
læknir.
Kl. 10.20—10.35
Reynsla af fæðuofnæmi. Rósa Karlsdóttir,
móðir 3ja barna.
Kl. 10.40—10.55
Fæðuofnæmi. Borghildur Sigurbergsdóttir,
næringarráðgjafi.
Kl. 11.00—11.15
Fæðuofnæmi í leikskóla Valentina Björns-
dóttir, fulltrúi frá leikskólanum Laufásborg.
Kl. 11.20—11.35
Innihaldslýsingar. Svafa Líf Eggertsdóttir,
fulltrúi frá hverfisstofnun.
Kaffihlé
Kl. 11.40—12.00
Pallborðsumræður.
Umræður og fyrirspurnir frá sal.
Fundurinn er opinn öllum sem áhuga
hafa á ofnæmi.
NAUÐUNGARSALA
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir:
Gildrumelur 2, Stöðvarfirði , þingl. eig. Hafsteinn Kristinsson og
Fossafélagið Vatnsfall ehf., gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og
sýslumaðurinn í Hafnarfirði, miðvikudaginn 30. apríl 2003 kl. 14.40.
Hafnargata 29, Fáskrúðsfirði , þingl. eig. Austfjarðamarkaðurinn
hf., gerðarbeiðandi Byggðastofnun, miðvikudaginn 30. apríl 2003
kl. 14.00.
Skáli, Djúpavogshreppi , þingl. eig. Ólafur Stefán Hjaltason, gerðar-
beiðendur Djúpavogshreppur, Íbúðalánasjóður, Landsbanki Íslands
hf., útibú og Lánasjóður landbúnaðarins, miðvikudaginn 30. apríl
2003 kl. 16.00.
Sýslumaðurinn á Eskifirði,
25. apríl 2003.
TIL SÖLU
Lagersala á skóm
Höfum opnað aftur!
í Askalind 5, Kópavogi, að ofanverðu.
Opið frá kl. 13—17.
Munið! Tökum engin kort.
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
www.fi.is
27. apríl — Fornar hafnir á
Suðvesturlandi IV
Fararstjóri Magnús Karel Hann-
esson. Lagt verður af stað kl.
10.00 frá BSÍ með viðkomu í
Mörkinni 6. Verð kr. 1.600/1.900.
27. apríl. Strandgangan (S-8).
Grindavík - Mölvík. Fararstjóri
Gunnar H. Hjálmarsson. Brottför
frá BSÍ kl. 10.30. Verð kr. 1.700/
1.900.
30. apríl. Útivistarræktin.
Kerhólakambur í Esju (851 m).
Brottför frá Sprengisandi kl.
18.30.
1.-5. maí. Skíðaganga um
Drangajökul og Strandir. Örfá
sæti laus í þessa ferð. Fararstjóri
Jón Björnsson.
Nánari upplýsingar á www.uti-
vist.is
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaði
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050
Mörkinni 3, sími 588 0640.
Opið mán-fös kl.11-18 - lau kl. 11-15
Brúðkaupsgjafir
Br
úð
ar
gj
af
al
is
ta
r
GENGI GJALDMIÐLA
mbl.is