Morgunblaðið - 21.05.2003, Page 1
STOFNAÐ 1913 . TBL. 91. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
„Mannlaus“
bankaútibú
Íslenskt hugvit í dönskum
banka Viðskipti 12
Birgittu Haukdal spáð góðu
gengi í Ríga Sjónvarp 55
Plómur í
New York
Nýtt íslenskt leikrit frumsýnt
í Tjarnarbíói Listir 23
FULLTRÚAR í öryggisráði Samein-
uðu þjóðanna þrýstu á um það á fundi
ráðsins í gær, að Bandaríkjamenn
settu tímamörk á hernám Íraks, áður
en ályktunartillaga þeirra um framtíð
landsins hlyti afgreiðslu í ráðinu.
Á lokuðum fundi öryggisráðsins í
gær, gerði John Negroponte, sendi-
herra Bandaríkjanna hjá SÞ, við-
stöddum grein fyrir því að hann von-
aðist til að tillagan yrði borin undir
atkvæði í dag, miðvikudag. Hann og
brezki sendiherrann Jeremy Green-
stock sögðu síðar að atkvæðagreiðsl-
unni mætti fresta fram á fimmtudag
og að með breytingum á ályktunar-
drögunum verði komið frekar til móts
við athugasemdir annarra við þau.
Tímamörk
sett á her-
nám Íraks?
Sameinuðu þjóðunum. AFP.
Í SJÁVARÚTVEGSKAFLA nýs stjórnarsáttmála
Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks er sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins gert ráð fyrir að
ákvæði um sameign þjóðarinnar á fiskimiðunum
verði sett í stjórnarskrá á kjörtímabilinu. Skoða á
hvernig megi hrinda öðrum tillögum flokkanna um
breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu, sem fram
komu í kosningabaráttunni, í framkvæmd.
Samkvæmt því sem Morgunblaðið kemst næst
verður stefnt að því að taka upp kvótaívilnun fyrir
línubáta. Jafnframt verða skoðaðar leiðir til að
styrkja lagaákvæði um forkaupsrétt sveitarfélaga á
kvóta. Kannaðir verða möguleikar á að auka
byggðakvóta og til að auka veiðiskyldu og takmarka
þannig framsal aflaheimilda.
Verði ákvæði um sameign á fiskimiðunum sett í
stjórnarskrá má gera ráð fyrir að það verði seint á
kjörtímabilinu, þar sem þingkosningar verða að fara
fram strax og stjórnarskránni hefur verið breytt og
nýtt þing þarf einnig að samþykkja breytinguna.
Fallið til þess að auka sátt
Davíð Oddsson forsætisráðherra kynnti í gær
meginatriði nýs stjórnarsáttmála fyrir Ólafi Ragnari
Grímssyni, forseta Íslands, á Bessastöðum. Að fund-
inum loknum sagði Davíð spurður um breytingar í
sjávarútvegsmálum: „Það verða ekki grundvallar-
breytingar á stjórn fiskveiða en það munu ýmsir
þættir koma til sem voru nefndir af hálfu flokkanna í
kosningabaráttunni.“ Hann bætti við að þeir Hall-
dór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins,
væru „sammála um það að þær hugmyndir sem
ýmsir höfðu viðrað af okkar hálfu væru til þess falln-
ar að auka sátt um kerfið, þó að hvorugur okkar sé
svo skyni skroppinn að ímynda sér að við fyndum
einhvern tíma endanlega sátt um sjávarútveg á Ís-
landi“.
Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins mun í
stjórnarsáttmálanum vera komið til móts við stefnu
Framsóknarflokksins um 90% lán til íbúðakaupa. Í
skattamálum liggja tillögur um breytingar á tekju-
skatti nær þeim hugmyndum, sem sjálfstæðismenn
settu fram í þeim efnum.
Sama ráðuneytaskipting um sinn
Davíð Oddsson sagði að loknum fundinum með
forseta að skipting ráðuneyta á milli flokkanna væri
frágengin. Heimildir Morgunblaðsins herma að hún
verði óbreytt um sinn, en breytingar á kjörtíma-
bilinu séu líklegar.
Spurður um breytingar á ríkisstjórninni sagði
Davíð: „Ég held að það verði ýmsar breytingar sem
verða athyglisverðar.“
Í dag fara fram þingflokksfundir stjórnarflokk-
anna, þar sem fjallað verður um stjórnarsáttmálann.
Hann verður á morgun, fimmtudag, borinn undir at-
kvæði í æðstu stofnunum flokkanna, flokksráði
Sjálfstæðisflokksins og miðstjórn Framsóknar-
flokksins. Að þeim fundum loknum er gert ráð fyrir
þingflokksfundum, þar sem gengið verður frá skip-
an í ráðherraembætti.
Stefnt er að því að fráfarandi ríkisstjórn komi
saman á ríkisráðsfundi á Bessastöðum kl. 11 á föstu-
dag og síðar um daginn, kl. 13.30, komi saman ný
ríkisstjórn. Þá hefur verið ákveðið að nýtt Alþingi
komi saman nk. mánudag.
Ákvæði um sameign á
fiskimiðum í stjórnarskrá
Morgunblaðið/Arnaldur
Davíð Oddsson greindi Ólafi Ragnari Grímssyni
frá gangi stjórnarmyndunar á Bessastöðum í gær.
Stefnt að breytingum á fiskveiðistjórnunarkerfinu í nýjum stjórnarsáttmála
Boðar pólitískar breytingar/10
Örninn var merktur sem ungi í
hreiðri í Borgarfirði á sínum tíma
en lífsbaráttan hefur verið hörð
hjá honum því að þetta er í annað
sinn sem honum er bjargað við
dauðans dyr. Að sögn Kristins
Skarphéðinssonar er um að ræða
fjögurra ára gamlan fugl en ernir
verða fullorðnir 5–6 ára. Hann
fannst fyrst illa á sig kominn fyrir
tveimur og hálfu ári og var honum
sleppt í Grafarvogi að lokinni vel
heppnaðri endurhæfingu. Ekki er
óalgengt að Náttúrufræðistofnun
taki slappa erni í sína umsjá og
hressi þá við.
flökkufugla á þeim slóðum.
Böðvar og félagar tilkynntu
fundinn til lögreglunnar í Borg-
arnesi, sem aftur hafði samband
við Náttúrufræðistofnun. Kristinn
Skarphéðinsson fuglafræðingur
kom síðan og flutti örninn á Nátt-
úrufræðistofnun við Hlemm þar
sem hann mun dvelja uns hann hef-
ur náð kröftum á ný. Við skoðun
hjá dýralækni kom í ljós gamall
áverki sem örninn fékk einu sinni á
öxl. Talið er að það sé sársauka-
fullt fyrir hann að fljúga og því
eigi hann til að hlífa sér með því að
setjast og halda kyrru fyrir.
„HANN seig svolítið í þegar haldið
var á honum því að það var ógreitt
um fjöruna,“ segir Böðvar Þor-
steinsson á Þyrli, sem fann merkt-
an haförn í Þyrilsnesi í fyrradag.
Böðvar var ásamt ábúendum á
Þyrli að gá að fuglalífi og varpi
þegar hundurinn hans fór að ólm-
ast í fjörunni. Böðvar hélt að þarna
væri jafnvel minkur á ferð. Í ljós
kom að þarna lá konungur
fuglanna á bakinu milli steina, út-
ataður í grút og örþreyttur.
„Ég fleygði flík yfir hausinn á
honum, bar hann upp úr fjörunni
og setti hann í geymslu í skothúsi í
Mjóanesi uns hann var sóttur tveim
tímum síðar. Hann var horaður og
hálfkraftlaus og barðist því ósköp
lítið um þegar hann var tekinn
upp. Hann setti klóna utan um
handlegginn á mér en var ósköp
kraftlítill.“
Böðvar bar örninn á annað
hundrað metra yfir í skothúsið,
sem annars er notað fyrir refa-
skyttur. „Þegar um er að ræða villt
dýr í náttúrunni er um að gera að
hylja höfuðið á þeim ef nauðsyn-
legt er að taka þau upp því að þá
reyna þau miklu síður að brölta,“
segir hann. Böðvar segir marga
áratugi síðan örn verpti í Hvalfirð-
inum en eitthvað hefur þó verið um
Morgunblaðið/Kristinn
Kristinn Skarphéðinsson tók örninn að sér í gær og mun hlúa að honum á
Náttúrufræðistofnun. Á minni myndinni situr konungur fuglanna harla
meinleysislegur í fangi bjargvættar síns, Böðvars Þorsteinssonar.
Haförn í
„endur-
hæfingu“
STJÓRNVÖLD í Bandaríkjunum,
Bretlandi og Þýzkalandi ákváðu í gær
að loka tímabundið sendiráðum og
ræðisskrifstofum í Sádi-Arabíu eftir
að bandaríska leyniþjónustan upp-
lýsti að fleiri hryðjuverkaárásir af
hálfu al-Qaeda-samtakanna væru yf-
irvofandi þar í landi.
Stjórnvöld í Sádi-Arabíu sögðu að
þau væru að gera allt sem í þeirra
valdi stæði til að bægja frá hættunni á
frekari hryðjuverkum og tilkynntu
um handtöku þriggja meintra al-
Qaeda-liða. Þeir hefðu verið teknir í
borginni Jedda á mánudag. Sádísk yf-
irvöld höfðu þegar í haldi fjóra menn,
sem þau telja tengjast al-Qaeda og
sjálfsmorðsárásum í Riyadh 12. maí
sl., sem kostaði 34 manns lífið.
Fleiri árás-
ir sagðar
yfirvofandi
Riyadh. AP, AFP.
Segja Bush/16
♦ ♦ ♦
Birgitta
stefnir hátt