Morgunblaðið - 21.05.2003, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 21.05.2003, Blaðsíða 33
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2003 33 FRÍÐUR SIGURJÓNSDÓTTIR ljósmóðir, frá Litlulaugum í Reykjadal, lést á Hrafnistu í Reykjavík mánudaginn 5. maí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þórunn Bragadóttir og aðrir ættingjar. Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, SVANBJÖRG JÓNSDÓTTIR, Bárugötu 6, Dalvík, lést á Dalbæ, dvalarheimili aldraðra, sunnu- daginn 18. maí. Jarðarförin fer fram frá Dalvíkurkirkju miðviku- daginn 28. maí og hefst kl. 13.30. Kristinn Þorleifsson, Össur Kristinsson, Berglind Andrésdóttir, Birgir Össurarson, Birna Björnsdóttir, Björg Össurardóttir, Einar Einarsson, Sigrún Össurardóttir, Haraldur Ólafsson og langömmubörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSDÍS JÓNASDÓTTIR frá Efri Kvíhólma, Faxabraut 30, Keflavík, sem lést á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð laugar- daginn 10. maí, verður jarðsett frá Ásólfsskála- kirkju, Eyjafjöllum, laugardaginn 24. maí kl. 14.00. Júlía Sigurgeirsdóttir, Jóhann Sveinsson, Heiðar Baldursson, Ragnheiður Sigurðardóttir, ömmubörn og langömmubörn. Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, JAKOBS JÓNS KRISTJÁNS SNÆLAUGSSONAR, Kirkjubraut 13, Innri-Njarðvík. Guð blessi ykkur öll. Anna Lilja Þorvaldsdóttir, Ólína Margrét Haraldsdóttir, Hermann Borgar Guðjónsson, Snjólaug Kristín Jakobsdóttir, Valdimar Örn Valsson, Jakob Hafsteinn Hermannsson, Laufey Bjarnadóttir, Anna Lilja Hermannsdóttir, Vilhjálmur Sigurðsson, afabörn og langafabörn. Ég vil nota þetta tækifæri til að minnast frænku minnar og góðrar vinkonu, Hall- dóru Haraldsdóttur eða Dóru eins og hún var kölluð. Dóra var dóttir systur minnar, Pál- ínu Kjartansdóttur, og Haraldar Hermannssonar og hef ég því þekkt hana frá fyrsta degi. Í hjarta mér geymi ég fallega og skemmtilega minningu um Dóru þegar hún skottaðist til mín á Lyng- hagann, með náttföt og tannbursta í poka, þá sex ára gömul til að gista hjá mér og börnum mínum. Hún sagðist alltaf vilja vera mér til stuðnings svo ég þyrfti ekki að vera ein á nóttunni þar sem eiginmaður minn var á fótboltaferðalagi erlend- is. Á þessum tíma vorum við orðnar vinkonur, ég nítján ára og hún sex ára. Strax kom í ljós hve mikil kjarnakona Dóra var, hún var alltaf reiðubúin að hjálpa til og eftir að við vorum búnar að hengja bleiur út á snúru settumst við niður og spjöll- uðum. Það voru ófá skiptin sem Dóra birtist og bauð fram aðstoð sína. Í hálfa öld vorum við Dóra nánar vinkonur, já fimmtíu ár er vissulega langur tími en á vináttu okkar bar aldrei skugga, hún var einlæg og sönn. Fátt er manni dýrmætara í líf- inu en að eiga góðan vin. Það má segja að Dóra hafi lifað hratt, hún kom miklu í verk, meira en margir ná að framkvæma á lengri ævi. Það voru ekki margir dagar í lífi Dóru sem hún hafði ekki mikið að gera, hún var sívinnandi og starfandi að ýmsum málum, og mjög listræn kona. Hún var af- burðavel greind og samviskusemi og dugnaður áberandi þættir í fari hennar. Hún var heilsteypt persóna og hafði allt það til brunns að bera sem prýða má nokkurn einstakling. Dóra var fjarri því að vera skaplaus. Þegar hún sá ástæðu til og málefni buðu gat hún látið hvessa og talaði tæpitungulaust. Það urðu kaflaskipti í lífi Dóru þegar hún kynntist eftirlifandi eig- inmanni sínum, Ingólfi Arnarsyni, þessum góða manni. Það fór aldrei á milli mála hversu mikils virði þau voru hvort öðru. Ég læt það ógert að minnast á allt það er hún vann dóttur sinni, Ínu Hrund, og dótt- ursyni, Brynjari Inga. Í því ein- kenndist viðmót hennar af sömu al- úð og trúmennsku sem og í öðru. Hún frænka mín var ekta, laus við alla tilgerð, stórskemmtileg og hjartahlý. Hún var ein af þessum konum sem hafði húmor bæði fyrir lífinu og sjálfri sér. Fjörið reið ekki við einteyming, alltaf svolítið ólm og óþolinmóð. Hlutirnir áttu að ganga hratt fyrir sig. Dóra frænka mín var ofar öllu, hún sýndi af sér slíkan dugnað í veikindum sínum að það var ein- stakt. Eiginlega var hún margra manna maki og persónuleiki hennar bar vitni um ómælandi manndóm. Hún var ein mest lifandi manneskja sem ég hef kynnst, svo innilega ótilbúin. Að eiga Dóru frænku að vini var mér ómetanlegt og hvar sem hún kom fylgdi henni hlýja og innileiki. Ég kveð frænku mína og vinkonu með söknuði og þakka mínum sæla fyrir að hafa átt hana að. Guð blessi elsku Dóru og ástvini hennar alla. Þín frænka og vinkona, Sjöfn Kjartansdóttir. „Að gleðjast hefur sinn tíma, og að hryggjast hefur sinn tíma.“ Nú er tími til að hryggjast, Halldóra HALLDÓRA HARALDSDÓTTIR ✝ Halldóra Har-aldsdóttir fædd- ist í Reykjavík 30. sept. 1951. Hún lést á líknardeild Land- spítalans í Kópavogi mánudaginn 12. maí síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Digraneskirkju 16. maí. Haraldsdóttir er látin. Hún var enn í blóma lífsins, aðeins 51 árs, eiginkona, móðir og amma. Einnig harma andlát hennar móðir, systur og bróðir og ótal vinir. Hún var þannig af Guði gerð að vini eignaðist hún en óvini enga. Glaðlyndi og jákvæði voru ríkjandi þættir í skap- höfn hennar. Hún var falleg kona og góðvilj- uð og átti auðvelt með að hrífa fólk með sér. Það var aldrei nein lognmolla í kringum Halldóru. Hún hafði mjög ákveðnar skoðanir og þegar áhugi hennar kviknaði á einhverju beið hún ekki eftir að aðrir gerðu eitt- hvað, heldur hófst handa og hrinti því í framkvæmd sem hugann fang- aði. Þannig var það þegar við, fyrir mörgum árum, unnum saman í stóru fyrirtæki, að henni datt í hug að lækka matarkostnað heimilanna. Hún stofnaði þá það sem var kallað pöntunarfélag þar sem starfsmenn gátu keypt nauðsynjar á lægra verði en almennar verslanir buðu. Áhugi hennar og drifkraftur var slíkur að útilokað var annað en hrífast með. Það voru aldrei vandamál í lífi Hall- dóru, aðeins verkefni að takast á við. Það áhugamál sem átti hug hennar allan síðustu árin var búta- saumur. Þar var hún óðara í for- svari og kom því m.a. til leiðar að út var gefið að nýju Bútasaumsblaðið. Klúbbar voru stofnaðir og hún hreif með sér systur sínar, vinkonur og vinnufélaga. Verkin sem hún vann úr bútum eru mörg og einstaklega falleg og vel unnin. Svo áhugasöm var hún um þessa list að fram til síð- asta dags á Líknardeildinni sat hún og saumaði. Halldóra unni öllu sem fagurt er og þannig breytti hún garðinum við hús þeirra Ingólfs úr órækt í blóm- um skrýddan unaðsreit. Mörgum fleiri kostum var hún búin, það vita þeir, sem þekktu hana best. Því er nú skilið eftir stórt skarð þar sem hún stóð. Halldóra vinkona mín lést hinn 12. maí. Hún fékk dauðadóminn fyr- ir um það bil ári og var þá strax staðráðin í að nýta þá daga sem hún ætti eftir til að sinna áhugamálum sínum og njóta hverrar stundar með þeim sem hún elskaði. Halldóra var þakklát fyrir lífið og þau spil sem hún hafði á hendi. Hún talaði oft um þá sem hefðu veikst af sama sjúk- dómi en nytu ekki sömu aðstöðu. Hún var þakklát Ingólfi, eiginmanni sínum, sem stóð eins og klettur við hlið hennar uns yfir lauk. Hún var þakklát fyrir dóttur sína Ínu Hrund og sólargeislann Brynjar Inga. Halldóra vinkona mín „bognaði aldrei, en brotnaði í bylnum stóra seinast“. Við hefðum viljað hafa hana hjá okkur lengur, en því fengum við ekki ráðið. Þótt sorg og söknuður búi við hjartarætur og tár hrynji af auga er þakkað af heilum hug og öllu hjarta. Það var öllum til góðs að komast í snertingu við mannbætandi per- sónutöfra hennar. Erfiða sjúkdómslegu og þjáning- arfulla baráttu við ólæknandi sjúk- dóm bar Halldóra með sama æðru- leysi og einkenndi líf hennar. Öll hugsun hennar snerist um velferð ástvina hennar en ekki um eigin þjáningu. Ég mat Halldóru mjög mikils og dáði mannkosti hennar og þótti því meira til hennar koma sem ég þekkti hana lengur og tel mér sæmdarauka af að hafa eignast traust hennar og vináttu. Af kynn- um okkar finn ég nú, er við skiljum að sinni, að ég er sú sem mest hefi grætt. Elsku Ingólfur, Pálína, Ína Hrund, litli Brynjar Ingi og aðrir ástvinir. Sá einn missir mikið, sem mikið hefur átt. Ekkert vildi ég fremur en að geta tekið frá ykkur sársauka sorgarinn- ar en það er þrautin þyngri því að allt hefur sinn tíma, að syrgja hefur sinn tíma og sorgin nístir líka mitt eigið hjarta. Eitt þykist ég þó vita að milda muni söknuðinn og veita huggun. Það eru ljúfar minningar frá liðnum samverustundum sem munu ylja og fylgja þeim sem eftir lifa fram eftir veginum eins og lýs- andi stjörnur og breyta smám sam- an harmi og sorg í ljúfsára gleði og þakklæti fyrir að hafa fengið að njóta samvistanna. Guð geymi elsku vinkonu mína. Vilhelmína Þór. Kveðja frá Íslenska bútasaumsfélaginu Halldóra Haraldsdóttir var fremst í flokki þeirra sem stofnuðu Íslenska bútasaumsfélagið fyrir þremur árum og ritari í fyrstu stjórn þess. Hún var drífandi og dugleg og vildi veg félagsins sem mestan og bestan. Við þökkum samfylgdina og send- um ástvinum hennar hugheilar sam- úðarkveðjur. Þau ljós sem skærast lýsa, þau ljós sem skína glaðast þau bera mesta birtu en brenna líka hraðast og fyrr en okkur uggir fer um þau harður bylur er dauðans dómur fellur og dóm þann enginn skilur. En skinið logaskæra sem skamma stund oss gladdi það kveikti ást og yndi með öllum sem það kvaddi. Þótt burt úr heimi hörðum nú hverfi ljósið bjarta þá situr eftir ylur í okkar mædda hjarta. (Friðrik Guðni Þórleifsson.) Elsku Halldóra mín, síðastliðið ár var þér mjög erfitt, en þú hefur staðið þig eins og hetja, meðan þú barðist við þennan illvíga sjúkdóm sem svo marga leggur að velli. Þú varst alltaf hress og bjartsýn þegar þú birtist í búðinni hjá okkur í Virku, en bútasaumur átti hug þinn allan. Þú byrjaðir í bútasaumi fyrir u.þ.b. sex árum, og þú varst strax heilluð af honum, og saumaðir mörg falleg teppi, sem koma til með að ylja fjölskyldu þinni um ókomin ár. Það verður mikill söknuður hjá okk- ur að sjá þig ekki birtast, þvílíkum krafti og áhuga í einni konu hef ég ekki kynnst fyrr, þú varst virk í öllu sem við gerðum í Virku, þú varst þátttakandi í Thimbleberries klúbbnum hjá okkur og komst með marga nýja félaga, og marga kon- una hefur þú smitað af áhuga þín- um. Þínar yndislegu systur, Sig- rúnu, Bergþóru og Herdísi, leiddir þú inn á braut bútasaumsins og haf- ið þið átt ómældar ánægjustundir saman við saumaskapinn og hafa þær reynst þér ómetanlega í gegn- um veikindi þín. Elsku Halldóra, þú ætlaðir ekki að gefast upp, síðast- liðið fimmtudagskvöld vorum við með klúbb, þú hringdir í mig rétt áður, þar sem þú treystir þér ekki til að koma, en vildir samt fá sendar pakkningar. Á fundinn mætti Berg- þóra systir þín, með mjög fallegt englateppi sem þú varst að ljúka við að sauma, og þótti mér vænt um að fá að sýna konunum þetta, þar sem þú hefur alltaf verið algjör engill sjálf. Elsku Halldóra, þakka þér fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman, þín er sárt saknað. Ég votta Ingólfi, Ínu Hrund, Brynjari Inga, móður þinni og systkinum þínum mína dýpstu samúð. Guð veri með ykkur öllum. Guðfinna Helgadóttir. Látin er, langt um aldur fram, fyrrverandi samstarfsmaður og kær vinur Halldóra Haraldsdóttir. Ég kynntist Halldóru þegar hún hóf störf hjá Eimskip sem ritari með mér. Í fjórtán ár var hún minn nánasti samstarfsmaður þar til við fórum bæði til annarra starfa fyrir tveimur árum. Í okkar nána sam- starfi gengum við í gegnum súrt og sætt og tókumst saman á við mörg skemmtileg verkefni. Hún var glað- lynd, jákvæð og elskuleg í samstarfi og góður félagi. Í okkar daglega spjalli deildum við sögum af fjöl- skyldu, ferðalögum og öðrum at- burðum sem lífið bar á borð á hverj- um tíma. Starf á stórum vinnustað byggist á nánu samstarfi, og þegar gefur á í örri uppbyggingu og breytingum, ræðst árangurinn og starfsánægjan af því að allir leggist saman á árarn- ar og mönnum takist að halda byr og sigla skútunni áfram af festu. Á slíkum tímum var Halldóra öflugur liðsmaður sem hafði hæfileika til að ljúka vandasömum verkum skjótt og vel. Hún hafði einstakt lag á að fá menn til að vinna þau verk sem til þeirra heyrðu þannig að mál fengju farsæla niðurstöðu. Ósjaldan skipu- lagði hún, stjórnaði og framkvæmdi af slíkum krafti að þeirri spurningu laust í hugann hvort þörf væri fyrir okkur hin í brúnni, því málin voru í farsælum höndum hjá henni. Hún var atkvæðamikil í mörgu sem sneri að félagsmálum starfs- manna og hellti sér af krafti í rekst- ur starfsmannaverslunar, starfsemi bútasaumsklúbbs og annars í því lit- ríka félagslífi sem fram fór meðal okkar starfsmannanna. Menn skynja og meta sjaldan til fulls hversu gjöfult samband verður til milli náinna starfsfélaga á góðum vinnustað. Gagnkvæm virðing og traust byggist upp í daglegum sam- skiptum og við úrlausn mála, en það sem gefur mest er þegar menn taka þátt í lífi, gleði og sorgum sinna nánustu samstarfsmanna. Samvera með Halldóru í þann tíma sem við störfuðum saman gerði mig ríkari af lífsþrótti og heilbrigðri lífssýn. En þó samstarfið sé gefandi, þá er sigling lífsins ekki alltaf á lygnum sjó. Af krafti, æðruleysi og hugrekki háði Halldóra baráttu við óvæginn sjúkdóm. Nú er við kveðjum hana votta ég Ingólfi, Ínu, Brynjari og öðrum aðstandendum innilega sam- úð. Guð blessi minningu Halldóru. Þórður Sverrisson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.