Morgunblaðið - 21.05.2003, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 21.05.2003, Blaðsíða 15
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2003 15 LÍKUR eru taldar á því að tveir dómarar í hæstarétti Bandaríkj- anna tilkynni í næsta mánuði að þeir hyggist setjast í helgan stein. Verði raunin þessi mun það að öll- um líkindum hafa í för með sér mestu breytingar á réttinum í meira en þrjá áratugi. Níu dómarar sitja í hæstarétti Bandaríkjanna að forseta meðtöld- um. Heimildarmenn segja líklegt að þau Sandra Day O’Connor og William H. Rehnquist, forseti rétt- arins, hyggist láta af störfum. Eink- um er talið líklegt að Rehnquist hyggist draga sig í hlé en menn greinir frekar á um hvort O’Connor hafi hug á að láta af embætti. Þriðji dómarastóllinn kann síðan að losna bráðlega ákveði hinn 83 ára gamli John Paul Stevens að draga sig í hlé. Það er þó talið held- ur ólíklegt. Hætti Rehnquist er talið víst að eftirmaður hans í embætti forseta hæstaréttar verði Antonin Scalia. Scalia er að vísu 67 ára gamall og einhverjar athugasemdir hafa kom- ið fram þess efnis að heppilegra sé að yngri maður taki við. Scalia er hins vegar heilsuhraustur að því að best er vitað og kraftmikill í fram- göngu. Vitað er að íhaldsmenn leggja hart að George W. Bush forseta að skipa Clarence Thomas forseta hæsta- réttar. Hann er 54 ára og skipun hans var á sínum tíma mjög um- deild. Thomas telst til íhaldsmanna og er ljóst að staða hægri aflanna innan hæsta- réttar myndi styrkjast enn frekar yrði hann skipaður forseti réttar- ins. Búa sig undir átök Breytingar hafa ekki verið gerð- ar á hæstarétti Bandaríkjanna í tæp tíu ár. Er það lengsta kyrr- stöðutímabilið í 180 ára sögu rétt- arins. Tvö sæti í réttinum hafa ekki losnað á sama árinu frá 1972 er Richard Nixon fór með húsbónda- vald í Hvíta húsinu. Öflin til vinstri og hægri í banda- rískum stjórnmálum eru tekin að búa sig undir hörð átök vegna endurnýjunar innan réttarins. Almennt er það hald manna að til hennar komi á þessu ári. Ekki þykir ráðlegt að ráðast í slíkar breytingar á kosningaári þar sem staðfestingarferlið er langt og flókið. Að auki er það svo að Bush forseti getur engan veginn talist öruggur um endurkjör þótt staða hans kunni að vera góð í skoðana- könnunum nú um stundir. Þykir því líklegt að þau Rehnquist sem er repúblikani og O’Connor sem er höll undir flokkinn fallist á að draga sig í hlé í ár. Rehnquist hefur verið dómari í réttinum í 31 ár. Á síðustu árum hefur hann iðulega látið að því liggja að hann sé tekinn að þreytast á starfinu. Hann verður áttræður á næsta ári. Sandra Day O’Connor, sem er 73 ára, var skipuð hæsta- réttardómari 1983, fyrst kvenna í Bandaríkjunum. Vinir hennar segja að hún sé enn full áhuga og starfs- orku. Fari svo að íhaldsmaður verði kjörinn forseti réttarins að Rehn- quist gengnum mun það út af fyrir sig ekki breyta miklu. Ákveði Sandra Day O’Connor hins vegar að setjast í helgan stein gæti það skapað íhaldsöflunum sóknarfæri. Atkvæði O’Connor hefur iðulega ráðið úrslitum í mjög umdeildum málum. Traustur íhaldsmaður í hennar stað gæti því treyst mjög tök hægri aflanna innan hæstarétt- ar. Almennt er talið að Bush forseti hyggist nýta tækifærið og skipa fyrsta hæstaréttardómarann af rómönsku bergi brotinn. Er þá einkum horft til Alberto Gonzales sem er 47 ára gamall. Hann er gam- all félagi forsetans og þykir mörg- um sem skipun hans væri snjall pólitískur leikur af hálfu Bush. Skriðþungi kjósenda af rómönskum ættum fer sífellt vaxandi í Banda- ríkjunum. Ýmsir hægri menn eru þó mótfallnir Gonzales og óttast að hann muni ekki reynast tilhlýðilega íhaldssamur, einkum á sviði fóstur- eyðinga og borgararéttinda. Breytingar líklegar í hæstarétti Bandaríkjanna Washington. Newsday. Talið að íhaldsöflin geti styrkst en búist við harkalegum átökum Sandra Day O’Connor William Rehnquist EFTIRLITSMENN Sameinuðu þjóðanna greindu frá því í gær að meira en 230 manns, þar á meðal konur og börn, hefðu fundist látnir á götum Bunia-borgar, höfuðstaðar Ituria-héraðs í norðausturhluta lýð- veldisins Kongó, síðustu 15 daga. Að sögn fulltrúa SÞ fannst 231 óbreyttur borgari, sem hafði verið myrtur frá því 4. maí, á götum Bunia. Aðkoman var hryllileg þar sem sum líkin höfðu legið í sólinni og hitanum á aðra viku. Þá hafði sumt fólkið verið aflimað auk þess sem bú- ið var að fjarlægja hjörtu, lifur og lungu úr öðrum. Eftirlitsmenn SÞ kanna nú fregnir um að mannát hafi átt sér stað meðan á átökum í Bunia stóð. Óttast er að fleiri lík eigi eftir að finnast. Franskir liðsforingjar komu til Bunia-borgar í gær til að undirbúa komu alþjóðlegs herliðs Sameinuðu þjóðanna á staðinn. Franski herinn íhugar enn beiðni Kofi Annans, framkvæmdastjóra SÞ, um að Frakkar stýri herliðinu sem 1.000 menn yrðu í. Herliðið mun leitast við að koma á stöðugleika í Ituri-héraði. Liðsforingjarnir komu til borgarinn- ar degi eftir að SÞ tilkynntu að tveir eftirlitsmanna samtakanna hefðu fundist myrtir í héraðinu en fyrir um viku stóð bardagi um Bunia-borg milli Hema og Lendu-þjóðflokk- anna. Lýðveldið Kongó Aðkoman ljót í Ituri Bunia. AP. AFP. Nýr listi www.freemans.is alltaf á föstudögum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.