Morgunblaðið - 21.05.2003, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 21.05.2003, Blaðsíða 23
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2003 23 Gnoðarvogi 44, sími 588 8686 Nú grillum við Glæsilegt úrval af kryddlegnum fiski Tilbúið beint á grillið Skötuselur Steinbítur Keila Lúða Langa Lax Komdu og smakkaðu, erum við grillið í dag frá kl. 15.00—18.00. „PLÓMUR fjalla um rithöfund sem á sér þann draum að verða virtur rit- höfundur. Eina nóttina dreymir hana draum, sem kallar á hana – hana dreymir plómur í New York og túlkar það sem uppskeru. Hún ákveður að skella sér þangað í leit að plómunum, í táknrænni merkingu. Áður en hún leggur af stað hefur hún verið að skrifa leikrit um August Strindberg og er alveg heltekin af honum. Þegar út kemur tekur andi hans sér bólfestu í líkama hennar og hún þarf að berj- ast við hann. Þannig að þetta er mjög líkamlegt stykki líka – en megum við segja nokkuð meir, Hera?“ segir Anna Rósa Sigurðardóttir, höfundur og leikari allra hlutverka í hinu nýja íslenska leikverki Plómur sem frum- sýnt verður í Tjarnarbíói í kvöld, við leikstjóra sinn, Heru Ólafsdóttur. Þær sitja með blaðamanni Morgun- blaðsins og sötra kaffi og vatn. „Ja, við fylgjum hetju verksins, Guðrúnu, inn í hugarheim hennar og hún segir okkur sína sögu,“ svarar Hera. „Það sem er skemmtilegt við þetta leikrit, er að það er svolítið lagskipt, þarna koma fyrir draumar í draumum og veruleiki innan veruleika. Guðrún veltir sér mikið upp úr því hvort hana sé að dreyma eða hvort hún sé vak- andi, hvort um sé að ræða undirmeð- vitundina eða ekki. Hvort hún eigi að þora að hlusta á innri röddina.“ Anna Rósa segist greina ákveðna vakningu í þessa átt hjá fólki nú til dags. „Það eru ekki allir sem þora að hlusta á það sem býr innra með þeim og vera sannir – þess vegna er gaman að pæla í þessu.“ Hún segir verkið vera að nokkru leyti byggt á eigin reynslu, heimspekin þar að baki sé það sem hún trúir á. „En það er auð- vitað ekki hvert einasta orð í verkinu úr mínu eigin lífi, maður tekur auðvit- að inn það sem maður heyrir í kring- um sig. Ég fékk þessa hugmynd í haust og fléttaði hana saman við ann- að leikrit sem ég hafði skrifað og sett upp í Bandaríkjunum áður, sem heitir Scandinavian Abstract Jazz,“ segir Anna Rósa, sem fluttist aftur til Ís- lands fyrir tæpu ári, en hún hefur ver- ið búsett í Bandaríkjunum síðastliðin ár. „Ég var spennt fyrir því þegar ég flutti heim að rekast á fólk og byrja með okkar eigið kompaní. Þá hitti ég Heru, sem einnig var að flytja hingað heim, og við erum búnar að vera að vinna að þessari sýningu síðan í byrj- un mars.“ Saman hafa þær Anna Rósa og Hera stofnað sviðslista- og framleiðslufélagið Íslenska sam- bandið ehf., sem setur upp sýninguna og hefur ýmis verkefni í bígerð. Leikmynda-, ljósa- og búninga- hönnuðir sýningarinnar eru Móeiður Helgadóttir og Egill Ingibergsson, en Rósa Guðmundsdóttir sér um tónlist- arstjórn og flytur frumsamda tónlist. Anna Rósa og Hera lýsa ánægju sinni með fólkið sem vinnur að umgjörð sýningarinnar. „Það er rosalega margt um að vera á sviðinu. Tónlist- arkonan sem við höfum með okkur er ótrúleg – hún spilar á ein fimm hljóð- færi og syngur frumsamin lög, ásamt fleiru. Leikmyndin er líka alveg ein- stök og líklega fyrst sinnar tegundar hér á landi, og þótt víðar væri leitað. Þetta er mjög lifandi sýning og mikil líkamleg tjáning í henni. Ýmislegt er að gerast þó að það sé bara einn leik- ari á sviðinu,“ segja Anna Rósa og Hera og lýsa því hvernig leikkonan er líkamlega aum og sár eftir að æfa átök við anda Strindbergs. Þær stöllur segja marga hafa velt því fyrir sér hvort verkið með sína nánu vísan í sænska leikskáldið Aug- ust Strindberg hljóti ekki að vera þungt og dramatískt. Svo sé þó alls ekki. „Það sem gerist í leikritinu er hreinlega svo skoplegt að sýningin verður aldrei þung. Hún er falleg og skemmtileg, og þetta er sýning sem allir ættu að sjá,“ segja þær Anna Rósa Sigurðardóttir og Hera Ólafs- dóttir að lokum. Plómur verða sýndar fram í júní. Frumsýningin í kvöld hefst kl. 20. Í leit að plómunum Anna Rósa Sigurðardóttir, höfundur og leikari. DILBERT mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.