Morgunblaðið - 21.05.2003, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 21.05.2003, Blaðsíða 43
Bústaðakirkja. Opið hús fyrir aldraða í dag kl. 13–16.30. Handavinna, spilað, föndrað. Vetur kvaddur. Bílaþjónusta í símum 553 8500, 553 0448 og 864 1448. Dómkirkjan. Hádegisbænir kl. 12.10. Léttur málsverður á eftir. Prestarnir taka við fyrirbænum í síma 520 9700. Krakkaklúbbar í safnaðarheimilinu: 9– 10 ára börn kl. 16–17 og 11–12 ára kl. 17.30–18.50. www.domkirkjan.is. Grensáskirkja. Samvera aldraðra kl. 14. Biblíulestur, bænagjörð, kaffi og spjall. Hallgrímskirkja. Morgunmessa kl. 8. Hugleiðing, altarisganga, léttur morg- unverður. Opið hús fyrir foreldra ungra barna kl. 10–12. Fræðsla: Vellíðan mæðra í nútímaþjóðfélagi. Brynja Ör- lygsdóttir hjúkrunarfræðingur. Háteigskirkja. Bænaguðsþjónusta kl. 11. Kvöldbænir kl. 18. Langholtskirkja. Kl. 12.10 bænagjörð. Allir velkomnir. Kl. 12.30 súpa og brauð (300 kr.). Starf eldri borgara. Far- ið verðu í rútuferð til Þingvalla kl. 13 og komið heim um kl. 17. Rútuferðin sjálf er ókeypis en þátttakendur greiða sjálf- ir kostnað við kaffið á Þingvöllum. Þátt- taka tilkynnist í síma 520-1300 frá kl. 10–12. Síðasta hádegisbænagjörð kl. 12.10 var miðvikudaginn 14. maí og hefjast þær á ný í byrjun september. Laugarneskirkja. Kl. 10.30 gönguhóp- urinn Sólarmegin alla mið. og föst. kl. 10.30. Neskirkja. Fyrirbænamessa kl. 18. Prestur sr. Frank M. Halldórsson. Seltjarnarneskirkja. Kyrrðarstund kl. 12. Léttur hádegisverður eftir stund- ina. Árbæjarkirkja. Kl. 12 kyrrðarstund í há- degi. Orgeltónlist, altarisganga, fyrir- bænir og íhugun. Kl. 13–16 opið hús. Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund í dag kl. 12.10. Tónlist, altarisganga, fyrirbæn- ir. Léttur málsverður í safnaðarheim- ilinu eftir stundina. Kirkjuprakkarar. Starf fyrir 7–9 ára börn kl. 16.30. TTT- starf fyrir 10–12 ára kl. 17.30. Grafarvogskirkja. Helgistund í hádegi kl. 12. Altarisganga og fyrirbænir. Boð- ið er upp á léttan hádegisverð á vægu verði að lokinni stundinni. Prestar safn- aðarins þjóna fyrir altari, orgelleikari Hörður Bragason. Allir velkomnir. Hjallakirkja: Fjölskyldumorgnar kl. 10. Tólf spora námskeið kl. 20. Kópavogskirkja: Starf með 8–9 ára börnum í dag kl. 16.45–17.45 í safn- aðarheimilinu Borgum. Starf með 10– 12 ára börnum TTT, á sama stað kl. 17.45–18.45. Seljakirkja: Kyrrðar- og bænastund í dag kl. 18. Beðið fyrir sjúkum. Allir hjartanlega velkomnir. Tekið á móti fyr- irbænaefnun í kirkjunni í síma 567- 0110. Æskulýðsfundur fyrir unglinga 14–15 ára kl. 20. Bessastaðasókn. Dagur kirkjunnar í Haukshúsum í boði Bessastaðasókn- ar. Foreldramorgnar, starf fyrir foreldra ungra barna kl. 10–12. Heitt á könn- unni. Fjölmennum. Opið hús fyrir eldri borgara kl. 13–16 í samstarfi við Félag eldri borgara á Álftanesi. Notalegar samverustundir með fræðslu, leik, söng og kaffi. Auður eða Erlendur sjá um akstur á undan og eftir. Vídalínskirkja. Foreldramorgnar í safn- aðarheimilinu Kirkjuhvoli kl. 10–12. Hittumst og spjöllum. Heitt á könnunni og djús fyrir börnin. Allir foreldrar vel- komnir með eða án barna. Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12, íhugun, altarisganga, fyrirbænir. Léttur hádegisverður kl. 13 í Ljósbroti Strandbergs. Víðistaðakirkja. Kyrrðar- og fyrirbæna- stund í dag kl. 12. Boðið er upp á súpu og brauð í safnaðarheimilinu á eftir. Hægt er að koma fyrirbænaefnum til sóknarprests eða kirkjuvarðar. Opið hús fyrir eldri borgara í dag kl. 13. Gott tækifæri til að hittast, spjalla saman, spila og njóta góðra veitinga. Verð vel- komin. Þorlákskirkja. Barna- og foreldra- morgnar í dag kl. 10–12. Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 11. Helgistund á Hraunbúðum. Kl. 20. Opið hús í KFUM&K heimilinu. Lágafellskirkja. Foreldramorgnar í safnaðarheimili kirkjunnar í Þverholti 3, 3. hæð, frá kl. 10–12. Umsjón hafa Arndís L. Bernharðsdóttir og Þuríður D. Hjaltadóttir. AA-fundur kl. 20.30 í Lága- fellskirkju. Unnið í 12 sporunum. Njarðvíkurkirkja (Innri-Njarðvík) Foreldramorgunn í Safnaðarheimilinu miðvikudaginn 21. maí kl. 10.30. í umsjá Jónínu, Kötlu og Petrínu. Kletturinn, kristið samfélag. Kl. 20.30 bænahópar í heimahúsum. Upplýsing- ar í síma 565 3987. Fíladelfía. Mömmumorgun kl.10. Bibl- íulestur kl. 20. Umsjón Hafliði Kristins- son. Kefas. Samverustund unga fólksins kl. 20.30. Lofgjörð, lestur orðsins, fróð- leikur og samvera. Allt ungt fólk vel- komið. Kristniboðssalurinn, Háaleitisbraut 58. Samkoma í kvöld kl. 20. „Legg þú á djúpið“. Lúk. 5.1–11. Ræðumaður Guðlaugur Gunnarsson. Kaffiveitingar eftir samkomuna. Allir velkomnir. Sauðárkrókskirkja. Kyrrðarstund kl. 21. Akureyrarkirkja. Mömmumorgunn kl. 10–12. Síðasta samverustund vetrar- ins í kirkjunni. Opið hús, kaffi og spjall. Safi fyrir börnin. Safnaðarstarf DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2003 43                                     STJÖRNUSPÁ Frances Drake TVÍBURAR Afmælisbörn dagsins: Þú hefur næmt auga fyrir formum og litum, en lætur aðra stundum hafa of mikil áhrif á þig. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Notfærðu þér þann byr sem þú hefur nú í seglin. Það er aldrei að vita hvenær hann skiptir um átt og þá er far- sælast að vera kominn sem lengst. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þú þarft að leysa fjárhags- legt vandamál sem upp hef- ur komið. Skoðaðu málið vandlega svo þú fáir stöðuna á hreint. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þótt þú heyrir eitthvað sem þér fellur miður skaltu láta það hafa sem minnst áhrif á þig. Þetta tal segir mest um þá sem það stunda. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Mundu að það er ekki allt gull sem glóir og að lífsham- ingjan felst ekki bara í efn- islegum gæðum þótt gagn- leg séu. Auðgaðu því anda þinn. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Láttu hrokann ekki ná yf- irhöndinni í samskiptum þín- um við aðra. Leyfðu öðrum að láta ljós sitt skína og þá fer allt miklu betur. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þú hefur ofgert þér að und- anförnu svo nú er komið að því að þú gefir þér tíma til hvíldar og einveru. Sjáðu til þess að svo geti orðið. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Liggðu ekki á skoðunum þínum heldur láttu þær í ljósi því það auðveldar lífið að hafa allt á hreinu. Hlust- aðu á hjarta þitt því þar er svörin að finna. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Það er heillaráð að leggja á ráðin um framtíðina. Vertu raunsær og varastu að láta óskhyggjuna taka öll völd. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þú leggur þig allan fram í starfi og það vekur almenna hrifningu yfirmanna þinna. Búðu þig undir að kynna þeim hugmyndir þínar. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Viljirðu ná einhverjum ár- angri skaltu gera hlutina sjálfur því það tekur svo langan tíma að kenna öðrum ný vinnubrögð. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þú verður fyrir miklum von- brigðum í samskiptum við aðra og skalt gefa þér tíma til að hugsa málin af skyn- semi frekar en segja það sem þú sérð eftir. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Það getur verið nauðsynlegt að hafa öll smáatriðin á hreinu en stundum er líka nauðsynlegt að gefa sér tóm til að virða fyrir sér heild- armyndina. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. ÁRNAÐ HEILLA 30 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 21. maí, er þrítugur Aðalsteinn Ingi Jónsson, sölustjóri hjá JAK, til heimils á Hjalla- braut 43, Hafnarfirði. Að- alsteinn verður að heiman í dag. 1. e4 c5 2. c3 e6 3. d4 d5 4. exd5 Dxd5 5. Rf3 Rf6 6. Be3 cxd4 7. cxd4 Rc6 8. Rc3 Bb4 9. Bd3 O-O 10. O-O Da5 11. Dc2 h6 12. a3 Bxc3 13. bxc3 e5 14. Rxe5 Rxe5 15. dxe5 Dxe5 16. Bd4 Dd6 17. Had1 Dc6 18. a4 a6 19. a5 He8 20. Hb1 Rd5 21. Bh7+ Kf8 22. f3 Re3 23. Df2 Bf5 24. Hb6 Dd5 25. Bxe3 Bxh7 26. Bc5+ Kg8 27. Dd4 Da2 28. Dg4 He5 29. Db4 Bd3 30. Hd1 Be2 31. Hb1 Staðan kom upp í bresku deildakeppninni sem lauk fyrir skemmstu. Daniel Gor- mally (2496) hafði svart gegn Kanwal Bhatia (2047). 31... Bxf3! 32. Hb2 hvítur hefði orðið mát eftir 32. gxf3 Hg5+ 33. Kf1 Dg2+ 34. Ke1 He8+ 35. Kd1 He2. Í framhaldinu tap- ar hvítur peði bótalaust. 32... Da1+ 33. Hb1 He1+ 34. Kf2 Hxb1 35. Dxb1 Dxa5 36. Bd4 Bc6 37. Dc2 He8 38. Hb2 Dd5 39. Kg1 He1+ 40. Kf2 Hh1 og hvítur gafst upp. SKÁK Helgi Áss Grétarsson Svartur á leik. NÚ ER SUMAR Nú er sumar, gleðjist gumar, gaman er í dag. Brosir veröld víða, veðurlagsins blíða eykur yndishag. Látum spretta, spori létta, spræka fáka nú. Eftir sitji engi, örvar víf og drengi sumarskemmtun sú. Tíminn líður, tíminn býður sælan sólskinsdag. Yndi er úti á grundum, yndi, heim þá skundum seint um sólarlag. Steingrímur Thorsteinsson LJÓÐABROT TUTTUGU og sjö IMPar ultu á túlkun Pólverjans Krzysztofs Jassems á slaga- fylgju makkers. Talning eða hliðarkall? Það var efinn. Suður gefur; NS á hættu. Norður ♠ 85 ♥ KD95 ♦ KG87 ♣ÁK4 Vestur Austur ♠ KG632 ♠ Á1074 ♥ G10764 ♥ Á832 ♦ 432 ♦ 106 ♣-- ♣932 Suður ♠ D9 ♥ -- ♦ ÁD95 ♣DG108765 Jassem og Piotr Gawrys voru í AV gegn Alan Sontag og Peter Weichsel. Þetta var í sveitakeppni Cavend- ish-mótsins í Las Vegas. Vestur Norður Austur Suður Jassem Weichsel Gawrys Sontag -- -- -- 2 lauf Pass 2 tíglar * Pass 2 spaðar * Dobl 3 tíglar * 3 spaðar 4 lauf 4 spaðar 6 lauf Dobl Pass Pass Pass Eftir langan aðskilnað hafa hinir fornu félagar, Sontag og Weichsel, rifjað upp kynnin við spilaborðið og slá þá auðvitað á gamla „Power-strengi“ (en þeir eru sem kunnugt er höf- undar Power Precisoion kerfisins, sem var mjög vin- sælt fyrir um það bil 20 ár- um). Opnun Sontags lofar 11-15 punktum og lauflit og svarið á tveimur tíglum er spurning. Sontag segist eiga lágmark með tveimur spöð- um og þá kemst Jassem inn í sagnir með dobli. Weichsel spyr um grandfyrirstöður með þremur tíglum, en nú blandar Gawrys sér í málið og spilið tekur „tilfinn- ingalega“ stefnu upp frá því. Dobl Gawrys á slemmunni í lokin er fyrst og fremst ábending til makkers um að vanda vel útspilið. Og það gerði Jassem. Hann kom út með spaða- kónginn til að halda slagn- um. Gawrys lét fjarkann. Með því vildi hann sýna fjór- lit (talning), en Jassem var ekki viss um að það væri rétt túlkun. Makker átti augljóslega ás til hliðar, svo það var ekki síður möguleiki að spaðafjarkinn væri hlið- arkall og bæði um tígul. Eft- ir miklar sálarkvalir ákvað Jassem að túlka fjarkann sem kall í tígli og spilaði þeim lit. Sontag fékk þá tólf slagi með því að trompsvína fyrir hjartaásinn: 1510 í NS. Á hinu borðinu spiluðu NS fimm lauf dobluð og unnu þau slétt: 750. Með því að taka sex lauf einn niður hefðu Pólverjarnir grætt 14 IMPa, en þess í stað töpuðu þeir 13. Sannarlega mikið undir í einum slag. BRIDS Guðmundur Páll Arnarsson HLUTAVELTA Morgunblaðið/Ragnhildur Þessar brosmildu stúlkur, Anna Margrét Ólafsdóttir, Haf- dís Ýr Hafþórsdóttir, Ásdís Sigurbergsdóttir og Eva Ásdís Ögmundsdóttir, héldu hlutaveltu til styrktar Rauða krossi Íslands, þær söfnuðu 5.290 krónum. MEÐ MORGUNKAFFINU Ég get bara ekki beðið með að skoða þetta myndband heima í stofu! Og nú látum við þau fá eitt þungarokkslag…! KIRKJUSTARF Morgunblaðið/Jim Smart Bústaðakirkja
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.