Morgunblaðið - 21.05.2003, Blaðsíða 35
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2003 35
ógleymanleg. Ekki lét hún sig muna
um ásamt Emil að halda glæsiboð er
hún var 70 ára.
Elín var glæsileg kona sem alls
staðar vakti athygli á mannfundum
fyrir höfðinglega og fágaða fram-
komu. Hún var trygglynd og mikill
vinur vina sinna. Vinkonur á ég marg-
ar, en engin þeirra var mér kærari en
Elín. Ég sakna hennar meira en orð
fá lýst. Innilegar samúðarkveðjur
sendi ég þér kæri Emil og allri fjöl-
skyldunni.
Sigrún Aspelund.
Mig langar að minnast elskulegrar
vinkonu minnar, hennar Ellu Guðjóns
eins og hún var oftast nefnd.
Það var fyrir allmörgum árum á
kvenfélagsfundi hjá félaginu okkar
sem við hittumst fyrst.
Auðvitað vissi ég hver hún var, ekki
síst vegna sigurs hennar í Pillsbury
Best bökunarkeppninni, sem hún
vann vegna snilldar sinnar í bakstri
tertunnar frægu.
Fljótlega fann ég hve ráðagóð hún
var, sá það þegar við unnum saman
fyrir kvenfélagið og upplifði hennar
miklu hæfileika á öllum sviðum.
Þegar kom að því að Ella fór að
halda námskeið í postulínsmálun fór-
um við að hittast reglulega þar sem ég
sótti tíma hjá henni. Vinátta okkar óx
að sama skapi.
Ferðin til Þýskalands, þegar við
konurnar í postulíninu fórum til að
halda hátíð í tilefni af afmæli Ellu er
mér í fersku minni og hef ég grun um
að svo sé um fleiri. Við vorum einhuga
um að gera ferðina skemmtilega og
þar var Ella í fararbroddi. Ég held að
ég tali fyrir munn okkar 75 kvenna
sem hófum ferðina á fallega heimilinu
hennar og Emils á Laugarásveginum,
að sú ferð verður í minningunni sem
gull.
Ég vil þakka fyrir að hafa fengið
tækifæri til að vera í postulínsmálun
hjá Ellu vinkonu minni. Góð leiðsögn
og andrúmsloftið sem myndaðist var
einstakt. Það var tilhlökkun að hittast
í hverri viku. Við konurnar töluðum
um að þessar stundir okkar væru
ómissandi, enda hlátur og gleði
ríkjandi.
Ég er þakklát henni fyrir öll elsku-
legheitin í minn garð, það var svo gott
að hittast og tala saman.
Síðasta stund okkar var á sjúkra-
stofunni daginn áður en hún kvaddi
sína nánustu. Engu að síður var þrek-
ið það að hún með sinni alkunnu orð-
snilld lét mig ekki fara frá sér án þess
að hún ætti síðasta orðið við mig.
Það er sætt að eiga minninguna um
elskulega vinkonu.
Ég vil votta eiginmanni hennar,
börnunum öllum og fjölskyldum
þeirra mína innilegustu samúð.
Guð blessi Elínu vinkonu mína.
Sesselja Ásgeirsdóttir.
Ég kynntist Elínu Guðjónsdóttur
mjög vel, er hún var í framboði fyrir
Alþýðuflokkinn í borgarstjórnarkosn-
ingunum árið 1970. Hún reyndist góð-
ur frambjóðandi. Hún var hæfileika-
rík og dugleg og hún var mikill
jafnaðarmaður. Það var skemmtilegt
að starfa með Elínu. Hún hafði já-
kvæð áhrif á alla, er störfuðu með
henni. Það geislaði af henni starfs-
gleðin. Hún var alltaf glöð og kát.
Elín starfaði mikið innan Alþýðu-
flokksins. Hún tók virkan þátt í starfi
Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur og
var m.a. í stjórn og skemmtinefnd fé-
lagsins. Hún var varaborgarfulltrúi
og sat í nefndum á vegum Reykjavík-
urborgar.Hún var mjög hugmynda-
rík og hæfileikar hennar nutu sín vel í
félagsstarfi.
Hún var mjög hjálpsöm og vildi
hvers manns vanda leysa.
Elínu var margt til lista lagt.Hún
var fyrst og fremst mjög myndarleg
húsmóðir.En hún skaraði fram úr á
mörgum öðrum sviðum. Hún hafði
listræna hæfileika og var t.d. mjög
fær í postulínsmálun. Hún efndi til
námskeiða á því sviði, sem urðu mjög
vinsæl.Hún starfaði við veisluþjón-
ustu og fórst það mjög vel úr hendi.
Það var sama hvað hún tók sér fyrir
hendur. Hún vann allt vel, svo eftir
var tekið.
Elín var vel gerð og glæsileg kona.
Hún var tvígift. Fyrri maður hennar
var Guðmundur heitinn Kristjánsson
kaupmaður. Síðari maður hennar var
Emil Hjartarson iðnrekandi og hús-
gagnakaupmaður.
Ég votta börnum Elínar og eftirlif-
andi eiginmanni hennar innilega sam-
úð mína vegna fráfalls hennar. Drott-
inn blessi minningu hennar.
Björgvin Guðmundsson.
Í bernsku var ég þess fullviss að
Ella amma í Básenda væri drottning,
þrátt fyrir að ég kæmi aldrei auga á
kórónuna. Mér fannst það mikið
óréttlæti að Guðmundur Rúnar,
frændi minn og barnabarn Elínar,
væri einn um að kalla þessa drottn-
ingu ömmu sína. Því komst ég að sam-
komulagi við hann um að mega kalla
hana ömmu mína. Eftir að hann gaf
mér leyfi til þess fannst mér ég ákaf-
lega rík.
Amma í Bás eins og við kölluðum
hana framan af var ákaflega glæsileg
kona sem geislaði af fegurð og hlýju.
Höllin hennar í Básenda var eitt það
fallegasta heimili sem ég hef séð, þar
sem smekkvísi hennar réð ríkjum.
Þrátt fyrir alla fallegu postulíns-
munina leið öllum vel hjá henni, bæði
stórum og smáum. Minningarnar um
heimsóknirnar í Básendann eru
sveipaðar sannkölluðum ævintýra-
ljóma.
Um svipað leyti og ég fluttist til
Reykjavíkur flutti amma í Bás á
Laugarásveginn sem var nú ekki
minni höll í barnshuganum en það
reyndist erfitt að kalla hana áfram
ömmu í Bás. Eftir flutninginn fór ég
því að kalla hana Ellu ömmu um leið
og ég kættist yfir flutningnum því nú
var stutt fyrir mig að skreppa til
hennar, alein. Í hvert skipti sem ég
bankaði upp á tók hlýr faðmur Elínar
á móti mér, hún smellti á mig kossi og
dró mig inn í eldhús, þótt hún væri
upptekin. Mér var gefið að drekka,
borða og við spjölluðum saman, og
stundum fékk ég að sitja við hlið
hennar tímum saman og fylgjast með
henni mála á postulín.
Á síðustu árum hafði samveru-
stundunum fækkað, en hlýi faðmur-
inn tók alltaf fagnandi á móti mér,
hvenær sem við sáumst. Ég vissi að
Ella amma var að berjast við erfiðan
óvin sem vinnur marga sigrana. Hún
barðist hetjulega allan tímann eins og
sannkallaðri drottningu sæmir.
Nú er drottningin horfin af sjónar-
sviðinu. Eftir standa minningarnar
um fallegu konuna án kórónu, en með
gullhjarta.
Ég votta öllum ástvinum Elínar
mína dýpstu samúð.
Margrét Valgerður Helgadóttir.
Þegar þú ert sorgmæddur,
skoðaðu þá aftur huga þinn,
og þú munt sjá að þú grætur vegna þess,
sem var gleði þín.
(Kahil Gibran.)
Kæra svilkona.
Okkur svilkonurnar langar að
senda þér nokkur þakkarorð að lok-
inni lífsgöngu þinni.
Guð gaf þér í vöggugjöf meira en
flestum öðrum, góðar gáfur, list-
hneigð, sem þú miðlaðir öðrum af
kunnáttu, einstaka smekkvísi, sem
heimili þitt bar vott um, og glæsilegt
útlit. En stærsta gjöfin var kærleik-
urinn, sem þú miðlaðir okkur hinum
af.
Minningarnar eru margar, bæði í
gleði og sorg. Að eiga góðan vin er
það dýrmætasta sem okkur getur
hlotnast í þessu lífi.
Þú fékkst þinn skammt af sorginni,
fyrst þegar fyrri maður þinn, Guð-
mundur Kristjánsson, lést langt fyrir
aldur fram og þegar elsku sonur þinn,
Barði Guðmundsson, lést af slysför-
um í blóma lífsins. Þetta voru þér
þung högg. En þú stóst teinrétt og
hélst áfram að umvefja börnin þín,
tengdabörn og ömmubörn. En öll él
styttir upp um síðir. Þú hélst áfram
lífsgöngunni og eignaðist annan eig-
inmann, Emil Hjartarson, sem var
þér góður förunautur í mörg ár.
Kæra vinkona, við svilin, eins og við
kölluðum okkur, tókum upp þann sið
fyrir allmörgum árum að gefa okkur
einn dag á ári saman, því okkur fannst
líða of langt á milli samverustunda á
síðustu árum, þetta voru okkur ómet-
anlegar stundir til að vera saman í
gleði, njóta þess að vera til og rifja
upp liðna tíð.
Elsku Ella, hjartans þakkir fyrir
samleiðina.
Við biðjum algóðan guð að styrkja
eiginmann þinn, börnin þín, tengda-
börn og barnabörn á þessum erfiða
tíma. Far þú í friði.
Sigrún, Svana og Erla svil.
Þei þei og ró.
Þögn breiðist yfir allt.
Hnigin er sól í sjó.
Sof þú í blíðri ró.
Við höfum vakað nóg.
Værðar þú njóta skalt.
Þei þei og ró.
Þögn breiðist yfir allt.
(Jóh. Jónsson.)
Yndisleg, falleg og góð kona er dá-
in. Þrátt fyrir óbilandi kjark og bar-
áttuþrek varð hún að lúta í lægra
haldi fyrir erfiðum sjúkdómi.
Við sem köllum okkur „Morgun-
frúrnar“ þökkum henni áratuga langa
tryggð, hjálpsemi og ást.
Minningarnar um fullkomna vin-
konu sem alltaf var tilbúin að hjálpa
og hlúa að þeim sem á vegi hennar
urðu gefa lífinu gildi.
Guð geymi þig elsku Ella og alla
ástvini þína.
Anna Gabríella, Gróa,
Sigríður, Guðrún, Margrét,
Sigríður S. og Sigrún.
LEGSTEINAR
Mikið úrval af legsteinum
og fylgihlutum
Sendum myndalista
MOSAIK
Hamarshöfði 4, 110 Reykjavík, sími 587 1960
Marmari
Granít
Blágrýti
Gabbró
Líparít
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
SVANLAUG RÓSA VILHJÁLMSDÓTTIR,
áður til heimilis
á Flókagötu 63,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík
fimmtudaginn 22. maí kl. 13.30.
Hjördís Sigurðardóttir, Ásgeir Hjörleifsson,
Þrúður G. Sigurðardóttir, Björn H. Jóhannsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Yndisleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
HALLDÓRA HALLDÓRSDÓTTIR
fyrrv. húsfreyja á Sveinsstöðum,
dvalarheimili aldraðra,
Hlaðhömrum, Mosfellsbæ,
verður jarðsungin frá Lágafellskirkju föstu-
daginn 23. maí kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeir, sem vilja minnast
hennar, láti Blindrafélagið njóta þess.
Börn, tengdabörn, ömmubörn,
langömmubörn og langalangömmubörn.
Við viljum þakka auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför elskulegrar eiginkonu
minnar, móður, dóttur, tengdamóður, ömmu
og systur,
SIGURBORGAR INGIMUNDARDÓTTUR,
Brekku,
Aðaldal.
Reynir Baldur Ingvason,
Stella Rut Axelsdóttir, Ívar Sæmundsson,
Sandra Björg Axelsdóttir, Halldór Kristinsson,
Ágúst Ingi Axelsson, Halla Hrund Skúladóttir,
Sigurður Eyvald Reynisson,
Stella Eymundsdóttir,
barnabörn, systkini
og aðrir aðstandendur hinnar látnu.
Ástkær eiginmaður minn,
ÁSGEIR J. SANDHOLT
bakarameistari,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Eir mánudaginn
19. maí.
Jarðarförin auglýst síðar.
Fyrir hönd vandamanna,
Þóra K. Sandholt.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
samúð, vináttu og hlýhug vegna andláts elsku-
legrar eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
RAGNHILDAR KRISTÍNAR
MAGNÚSDÓTTUR,
Bröttuhlíð 17,
Hveragerði.
Björn Gunnlaugsson,
Magnús Björnsson, Margrét Ósk Vífilsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg fósturdóttir okkar, dóttir og sambýlis-
kona mín,
SIGRÍÐUR FRÍMANNSDÓTTIR
frá Siglufirði,
sem lést á heimili sínu, Hásteinsvegi 48, Vest-
mannaeyjum, laugardaginn 17. maí, verður
jarðsungin frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn
24. maí kl. 14.00.
Fyrir hönd annarra ættingja og ástvina,
Hrefna Einarsdóttir, Friðrik Stefánsson,
Sigrún Friðriksdóttir,
Frímann Ingimundarson,
Sigurjón Júlíusson.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
ANDRÉS MAGNÚSSON,
Heiðmörk 18,
Hveragerði,
lést á Landspítala Hringbraut mánudaginn
19. maí.
Anna Guðröðsdóttir,
börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.