Morgunblaðið - 21.05.2003, Blaðsíða 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2003 13
ERLENDIR fjölmiðlar hafa fjallað
um væntanlega yfirtöku Mundar ehf.
á Baugi Group hf., enda er Baugur
orðinn þekktur í viðskiptalífinu ytra
fyrir fjárfestinga í breskum smásölu-
markaði.
Í Daily Telegraph er haft eftir tals-
manni Baugs að lögreglurannsókn á
starfsemi Baugs hafi verið ein af
ástæðum fyrir ákvörðuninni að taka
Baug af markaði. Haft er eftir honum
að Baugur hafi verið dreginn inn í
stjórnmálaumræðu og verið of mikið í
sviðsljósinu. Þá hafi reglur Kauphall-
arinnar, sem kveða á um að birta
verði uppgjör fjórum sinnum á ári,
haft sitt að segja.
Veikur hlutabréfamarkaður
Talsmaðurinn segir þó, að aðal-
ástæðan hafi verið veikur markaður
með íslensk hlutabréf og lítil velta.
Því sé hentugra að Baugur sé ekki á
markaði. Vænta megi samruna á ís-
lenskum markaði, en það breyti ekki
stefnu félagsins í Bretlandi. Ef eitt-
hvað sé muni sú þróun ýta undir frek-
ari fjárfestingar Baugs í Bretlandi,
þar sem lítið sé um vöxt á Íslandi.
Sem kunnugt er á Mundur nú um
67% hlutafjár í Baugi, en félagið
keypti í gær 5,89% til viðbótar við þau
rúmu 61% sem það átti fyrir og hefur
boðið öðrum hluthöfum 10,85 krónur
fyrir hvern hlut. Í Financial Times
segir að það sé lágt yfirverð fyrir hluti
í félaginu, en síðasta viðskiptaverð á
föstudag var 10,8. Vitnað er í ónefnd-
an sérfræðing, sem blaðið segir að
telji fyrirtækið Baug vera 10% of lágt
verðlagt, miðað við yfirtökutilboðið.
Þarf ekki nýtt hlutafé
Þá vitnar FT í Almar Guðmunds-
son, forstöðumann greiningardeildar
Íslandsbanka, sem segir að önnur
matvörufyrirtæki á Íslandi séu ekki
skráð hjá Kauphöllinni, sem hafi þýtt
að Baugur hafi þurft að veita meiri
upplýsingar en keppinautarnir. Þá
segir hann að hagnaður Baugs af við-
skiptum með bréf í Arcadia hafi gert
það að verkum, að félagið þurfi ekki á
nýju hlutafé að halda til að fjármagna
nýjar fjárfestingar.
Yfirtaka
Mundar á
Baugi Group
vekur at-
hygli ytra
55 ERLEND fiskiskip voru að veiðum við
lögsögumörkin á Reykjaneshrygg nú í
upphafi vikunnar, samkvæmt athugun
Landhelgisgæslunnar. Eitt erlent olíuskip
var einnig á svæðinu. Fjögur íslensk út-
hafskarfaveiðiskip voru auk þess að veið-
um rétt innan við lögsögumörkin. Þrettán
erlendu veiðiskipanna eru frá ríkjum sem
eru ekki aðilar að Norðausturatlantshafs-
fiskveiðinefndinni og eru þar af leiðandi
að veiða utan kvóta. Þar af eru fimm skip
frá Litháen, eitt frá Lettlandi, fimm frá
Dóminíska lýðveldinu og tvö frá Belise.
Dræm veiði er á svæðinu. Hjörtur Gísla-
son, einn stjórnenda Ögurvíkur hf. segir
að veiðin hafi verið mjög góð til að byrja
með en síðan hafi hún dottið niður fyrir 12
dögum og ekkert lagazt síðan. Frystitog-
arinn Freri var að koma af Hryggnum
með 850 tonn af karfa upp úr sjó, eða um
21.800 kassa, en það er fullfermi.
Hjörtur segir að markaðurinn fyrir
karfann sé erfiður eins og er. Mikið sé til
af fiski eins og ýsu, ufsa og nú karfa. Hann
gerir þó ráð fyrir því að staðan lagist fljót-
lega eftir sjómannadaginn.
Veiðisvæðið á Reykjaneshrygg. Bláa svæðið er hið svokallaða
NEAFC-svæði, þar sem Norðaustur-Atlantshafsfiskveiði-
nefndin stjórnar veiðunum.
55 erlend skip á
Hryggnum
REKSTRARTAP Sláturfélags Suð-
urlands nam 43 milljónum króna eftir
skatta á fyrsta ársfjórðungi þessa árs.
Árið áður var tapið tæpar 9 milljónir á
sama tímabili. Í tilkynningu frá SS
segir að verri afkoma í ár en í fyrra
stafi fyrst og fremst af minni veltu
vegna offramboðs á kjötmarkaði.
Fjárhagsstaðan er þó sögð traust.
Eigið fé er rúmlega 1.182 milljónir og
eiginfjárhlutfall 42% en það var 40%
ári áður. Arðsemi eigin fjár félagsins
var neikvæð um 14% í ár en neikvæð
um 3% í fyrra.
Rekstrartekjur SS drógust saman
um 11% milli ára, voru 747 milljónir á
fyrstu þremur mánuðum ársins 2003,
en 837 milljónir á sama tímabili í
fyrra. Rekstrargjöld án afskrifta
minnkuðu um 7% milli ára, voru 811
milljónir í fyrra en 751 milljón í ár. Af-
skriftir voru 38 milljónir bæði árin og
rekstrartap án fjármunatekna og
fjármagnsgjalda var 42 milljónir í ár
en 12 milljónir í fyrra.
Fjármunatekjur umfram fjár-
magnsgjöld voru 16 milljónir á fyrstu
þremur mánuðum þessa árs en 12
milljónir á síðasta ári.
Í lok mars síðastliðinn voru heildar-
eignir SS liðlega 2,8 milljarðar króna.
Veltufjárhlutfall var 1,1 í lok mars
2003 en 1,3 árið áður.
Aukið tap
SS vegna
offramboðs
♦ ♦ ♦