Morgunblaðið - 21.05.2003, Blaðsíða 20
SUÐURNES
20 MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
FORMENN nemendaráða grunn-
skólanna í Reykjanesbæ lögðu
fram á fundi bæjarstjórnar í gær
tillögu um að komið verði á fót
unglingaráði Reykjanesbæjar. For-
mennirnir, fjórar stúlkur, mæltu
fyrir tillögunni. Bæjarstjórnin
samþykkti tillöguna einróma, án
umræðna.
Fram kom í ávarpi Hjördísar
Árnadóttur, félagsmálastjóra
Reykjanesbæjar, á fundinum í gær
að tildrög þess að stúlkurnar
fluttu tillöguna í gær er málþing
um lýðræði barna sem þær sóttu á
Þingvöllum í lok mars ásamt
henni, Eiríki Hermannssyni
fræðslustjóra og bæjarfulltrúunum
Sveindísi Valdimarsdóttur og
Kjartani Má Kjartanssyni. Stúlk-
urnar skiptu með sér verkum við
að gera grein fyrir málþinginu og
tillögunni en þær eru Bryndís
Hjálmarsdóttir úr Holtaskóla,
Kristín Helga Magnúsdóttir úr
Myllubakkaskóla, Ingibjörg Ósk
Erlendsdóttir úr Njarðvíkurskóla
og Lilja Karen Steinþórsdóttir úr
Heiðarskóla.
Þarf að gera enn betur
Þær sögðu að sérstök áhersla
hefði verið lögð á það ákvæði
Barnasáttmála Sameinuðu þjóð-
anna þar sem kveðið er á um að
aðildarríkin skuli tryggja barni
sem getur myndað eigin skoðanir
rétt til að láta þær frjálslega í ljós
í öllum málum sem það varða og
skuli tekið réttmætt tillit til skoð-
ana þess í samræmi við aldur þess
og þroska.
Hópurinn sem fór á málþingið
hefur hist, farið yfir stöðuna í
Reykjanesbæ og komist að þeirri
niðurstöðu að þótt í öllum skólum
starfi nemendafélög og síðan ung-
lingaráð á vegum Fjörheima þurfi
að gera enn betur. Þær sögðu að
nemenda- og unglingaráð sæju
fyrst og fremst um að skipuleggja
og annast félagsstarf unglinga en
væru ekki vettvangur til þess að
koma skoðunum barna og ung-
linga á framfæri á lýðræðislegan
hátt um ýmis önnur mál sem
snerta líf þeirra, hagsmuni og
þarfir. Því hafi hópurinn ákveðið
að leggja til að stofnað verði ung-
lingaráð Reykjanesbæjar.
Í samþykkt bæjarstjórnar á til-
lögu stúlknanna felst að komið
verður á fót unglingaráði sem
skipað verður formönnum nem-
endafélaga grunnskólanna, full-
trúa Nemendafélags Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja og fulltrúa
unglinga sem ekki eru í námi.
Miðað er við að unglingaráð
Reykjanesbæjar taki til starfa í
haust. Einnig er ákveðið að nem-
endaráð grunnskólanna verði
framvegis kosin að vori og for-
menn þeirra ráðnir starfsmenn
Vinnuskólans í hlutastarfi svo þeir
geti hafist handa við undirbúning
komandi vetrar.
Í greinargerð með tillögunni
kemur fram það álit að unglinga-
ráð Reykjanesbæjar verði vett-
vangur fyrir unglinga í bæj-
arfélaginu til að koma skoðunum
sínum á framfæri við bæjaryf-
irvöld. Einnig verði mun auðveld-
ara fyrir bæjaryfirvöld að leita
umsagnar fulltrúa barna og ung-
linga á ýmsum málum sem þeim
tengjast. Með þessu sé Reykjanes-
bær að stíga mikilvægt skref í þá
átt að uppfylla 12. grein Barna-
sáttmála Sameinuðu þjóðanna.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu formanna nemendaráða um aukið lýðræði
Koma á fót unglingaráði
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Ingibjörg Ósk Erlendsdóttir les tillögu um aukið lýðræði. Björk Guðjónsdóttir, forseti bæjarstjórnar, fylgist með.
Á bak við þær standa Lilja Karen Steinþórsdóttir, Bryndís Hjálmarsdóttir og Kristín Helga Magnúsdóttir.
Reykjanesbær
YFIRMAÐUR flotastöðvar varn-
arliðsins, Dean Kiyohara kafteinn,
tók í gær við fyrstu íbúðinni af 88 í
svokölluðum SP-húsum á Keflavík-
urflugvelli sem verið er að endur-
nýja. Er þetta þriggja ára verkefni
sem Íslenskir aðalverktakar annast
og kostar um 1,5 milljarða króna.
SP-húsin voru fyrstu íbúðarhús-
in sem reist voru á Keflavíkurflug-
velli yfir starfsmenn bandaríska
verktakafyrirtækisins sem rak
Keflavíkurflugvöll í umboði ís-
lensku og bandarísku ríkisstjórn-
arinnar á árunum 1947–1951, og ís-
lenska ríkisstarfsmenn á
flugvellinum. Samkvæmt upplýs-
ingum Friðþórs Eydal, upplýsinga-
fulltrúa varnarliðsins, lét fyrirtæk-
ið einnig reisa gömlu flugstöðina og
fleiri hús á þessu tímabili. Húsin
voru í upphafi reist hálfvegis til
bráðabirgða, þau voru gerð til að
standa í 25 ár með viðeigandi við-
haldi.
Skipt um alla innviði
Um er að ræða 15 tveggja hæða
hús með 88 íbúðum alls og eru hús-
in nú endurnýjuð að öllu leyti nema
hvað burðarvirki og útveggir
standa. Skipt er um alla innviði,
lagnir og innréttingar, en húsin
voru öll einangruð og klædd að ut-
an fyrir fjórum árum. Áætlað er að
Íslenskir aðalverktakar ljúki vek-
efninu á árinu 2005.
Við sérstaka athöfn sem efnt var
til í gær vegna afhendingar fyrsta
hússins skoðuðu yfirmenn varnar-
liðsins, forsvarsmenn ÍAV og
starfslið framkvæmdirnar. Klippt
var á borða í fyrstu íbúðinni sem
verktakinn afhenti.
Húsnæðisdeild varnarliðsins
hefur umsjón með þessum
byggingum. Hún rekur alls 973
íbúðir í 88 fjölbýlishúsum fyrir
samtals um 3.000 manns sem eru
liðsmenn varnarliðsins og fjöl-
skyldur þeirra sem dvelja á
Keflavíkurflugvelli í 2–3 ár en það
eru þrír fjórðu hlutar þeirra sem
varnarliðið sér fyrir húsnæði. Níu
Íslendingar og sjö Bandaríkja-
menn starfa hjá húsnæðisdeildinni
og er árlegur kostnaður við rekst-
urinn tæpar 900 milljónir króna, en
öll viðhaldsvinna á húsnæðinu er
unnin af íslenskum verktökum.
Elstu íbúðar-
húsin endur-
nýjuð fyrir
1,5 milljarða
Ljósmynd/Hilmar Bragi
Guðmundur Geir Jónsson, framkvæmdastjóri hjá Íslenskum aðalverktök-
um, aðstoðar Lynn Swisher, framkvæmdastjóra húsnæðisdeildar varn-
arliðsins, við að klippa á borða í tilefni af því að fyrsta SP-húsið er tekið í
notkun að nýju. Dean Kiyohara, yfirmaður flotastöðvarinnar, og Catherine
Ballinger, yfirmaður verkfræðideildar varnarliðsins, fylgjast með.
Keflavíkurflugvöllur
Ljósmynd/Hilmar Bragi
Verið er að endurbyggja elstu íbúðarhúsin á Keflavíkurflugvelli.
BLÁA lóns hlaupið verður haldið
næstkomandi laugardag. Boðið verð-
ur upp á 6 og 12 km hlaup ásamt 3,5
km skemmtiskokki.
Þetta er í annað sinn sem Bláa
lóns hlaupið fer fram en hlaupið, sem
er samvinnuverkefni Bláa lónsins og
Grindavíkurbæjar, mun einnig leysa
af hólmi hið árlega víðavangshlaup
Grindavíkurbæjar.
Skráning fer fram á www.blue-
lagoon.is og www.grindavik.is/hlaup.
Einnig verður hægt að skrá sig sam-
dægurs á baðstaðnum.
Að skráningu lokinni verður þátt-
takendum í skemmtiskokki og 6 km
hlaupi ekið með Þingvallaleið áleiðis
til Grindavíkur þar sem hlaupið hefst
kl. 11. Hlaupið endar við Bláa lónið.
Verðlaun verða veitt fyrir fyrsta til
þriðja sæti í hverjum aldursflokki.
Aðalverðlaun hlaupsins eru útdrátt-
arverðlaun sem eru ferð fyrir tvo að
eigin vali til einhvers af áfangastöð-
um Icelandair í Evrópu ásamt öðrum
útdráttarverðlaunum sem eru í boði
fyrirtækja í Grindavík.
Einnig verður keppt í 6 og 12 kíló-
metra hlaupum karla og kvenna og
eru þau aldursskipt.
Bláa lóns
hlaupið um
helgina
Grindavík
UM 375 unglingar hafa sótt um starf
í Vinnuskóla Reykjanesbæjar í sum-
ar. Er það svipaður fjöldi og var í
Vinnuskólanum á síðasta sumri.
Allir fjórtán, fimmtán og sextán
ára unglingar í Reykjanesbæ sem
sækja um í Vinnuskólanum fá þar
störf. Fyrstu hóparnir hefja störf 10.
júní. Fjórtán ára unglingarnir fá
vinnu hálfan daginn í fimm vikur en
þeir eldri fá vinnu allan daginn í sjö
vikur.
Ragnar Örn Pétursson, forvarnar-
og æskulýðsfulltrúi, segir að launin
séu ágæt miðað við það sem þekkist
annars staðar. Þannig fái 16 ára ung-
lingarnir tæpar 100 þúsund krónur
fyrir tímabilið. Segir hann að tíma-
kaupið sé ekki mikið lakara en hjá
unglingum sem fái störf á almennum
vinnumarkaði.
Helstu verkefni vinnuskólans eru
almenn hreinsun á opnum svæðum,
tyrfing, rakstur, málningarvinna,
tjáplöntun og sláttur í görðum ellilíf-
eyrisþega og öryrkja. Þá segir
Ragnar Örn að þau elstu og reynd-
ustu fái ýmis sérverkefni, til dæmis
að aðstoða við íþrótta- og leikjanám-
skeið, golfvöllinn og sundnámskeið.
Ragnar Örn leggur áherslu á að
vinna í skólanum sé allt í senn, upp-
eldi, afþreying og tekjuöflun fyrir
unglingana. Þar stígi þeir sín fyrstu
spor í atvinnulífinu án handleiðslu
foreldra. Unglingunum sé kennt að
umgangast verkefni sín af virðingu,
hvernig eigi að meðhöndla verkfæri
og bera virðingu fyrir samstarfs-
fólki. Í skólanum eru gerðar
ákveðnar kröfur til starfsmanna,
eins og að vinna samviskusamlega
þau verk sem þeim eru falin og sýna
kurteisi í samskiptum við stjórnend-
ur skólans og bæjarbúa.
Að sögn Ragnars Arnar verða
ráðnir 27 flokksstjórar í Vinnuskól-
ann. munu þeir sitja tveggja vikna
námskeið þar sem meðal annars
verður fjallað um einelti, misþroska
og ofvirkni. Einnig fá þeir þjálfun í
vinnubrögðum, skyndihjálp og fleiru
sem varðar starfið í sumar.
375 ung-
menni fá
starf í
Vinnu-
skólanum
Reykjanesbær
♦ ♦ ♦