Morgunblaðið - 21.05.2003, Page 2

Morgunblaðið - 21.05.2003, Page 2
FRÉTTIR 2 MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÁKVÆÐI UM SAMEIGN Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins er gert ráð fyrir að í sjáv- arútvegskafla nýs stjórnarsáttmála Sjálfstæðisflokksins og Framsókn- arflokksins verði ákvæði um að sam- eign þjóðarinnar á fiskimiðunum skuli sett í stjórnarskrá á kjör- tímabilinu. Skoða kosti og galla Stjórn Landssamtaka lífeyr- issjóða hefur samþykkt að skipa starfshóp til að skoða kosti og galla réttindakerfa og hvort unnt sé að vinna að breytingum án þess að það komi niður á sjóðfélögum. Starfsemin í biðstöðu Skólastjóri Tjarnarskóla segist vera uggandi um framtíð skólans enda sé öll starfsemi í rauninni í bið- stöðu þar sem tillögur meirihluta Reykjavíkurlistans hafi ekki enn verið kynntar. Jarðgöng um Almannaskarð Stefnt er að því að hefja fram- kvæmdir við jarðgöng undir Al- mannaskarð austan Hafnar í Horna- firði um næstu áramót en undirbúningur er nú í fullum gangi. Sáu ekki él vegna myrkurs Ekkert óeðlilegt hefur komið í ljós varðandi hreyfil eða stjórntæki flug- vélarinnar sem brotlenti í Hvalfjarð- arsveit í lok mars. Vegna myrkurs sáu flugkennari og nemandi hans ekki él sem nálgaðist og brotlenti vélin örstuttu síðar. Árásir sagðar yfirvofandi Stjórnvöld í Bandaríkjunum, Bretlandi og Þýskalandi loka tíma- bundið sendiráðum og ræðisskrif- stofum í Sádi-Arabíu vegna fyr- irliggjandi leyniþjónustuupplýsinga um að nýjar hryðjuverkaárásir af hálfu al-Qaeda-liða séu yfirvofandi í landinu. Bush þrýstir á Abbas George W. Bush Bandaríkja- forseti ræddi í gær í síma við Mahmoud Abbas, forsætisráðherra nýrrar heimastjórnar Palestínu- manna. Var þetta í fyrsta sinn sem Bush á bein samskipti við palest- ínskan leiðtoga, þar sem hann hefur kosið að sniðganga Yasser Arafat.  AUDI A4 AVANT  RALL OG ENDURO  FRÁ POBEDA TIL BMW EÐALVAGNAÞJÓNUSTA  RÚNAR SNÝR AFTUR  NÁM Í BÍLIÐNUM  BUICK SUPER ’58 MEÐ PLÖTUSPILARA OG SAUÐARGÆRU FLATAHRAUNI 31 • HAFNARFIRÐI SÍMI 555 6025 • www.kia.is K IA ÍSLAND Bílar sem borga sig! S u ð u r l a n d s b r a u t 2 2 S í m i 5 4 0 1 5 0 0 w w w. l y s i n g . i s LÝSING Alhliða lausn í bílafjármögnun Dúndrandi! af bassakeilum, bassaboxum og mögnurum í eina viku. 25% afsláttur Yf ir l i t Í dag Sigmund 8 Viðhorf 32 Viðskipti 12/13 Minningar 32/37 Erlent 14/17 Bréf 40 Höfuðborgin 18 Staksteinar 42 Akureyri 19 Dagbók 42/43 Suðurnes 20 Kirkjustarf 43 Landið 21 Fólk 48/53 Listir 22/25 Bíó 50/53 Umræðan 26/27 Ljósvakamiðlar 54 Forystugrein 28 Veður 55 * * * Júróbíll LAND ROVER DISCOVERY 09/99. Ekinn 78 þ. km. Vél 2500 cc dísel. Sjálfskiptur. Verð 2.790 þ. kr. www.toyota.is „You gotta speed it up. You gotta turn it on.“ Kauptu Júróbíl fyrir 24. maí. Þú gætir unnið bíl til ókeypis afnota í heilt ár! VATNSYFIRBORÐ Kleifarvatns hefur hækkað lítillega frá því sem minnst var en yfirborð vatns- ins lækkaði mikið í kjölfar jarð- skjálftanna á Suðurlandi árið 2000. Vatnamælingar Orkustofnunar Íslands, OÍ, fylgjast grannt með vatninu en stafrænn síriti er stað- settur úti í vatninu sem stöðugt mælir vatnsborðið. Í gærkvöldi voru starfsmenn Vatnamælinga að taka saman gögn úr síritanum og er nið- urstaðna að vænta í dag. Þær upplýsingar fengust frá Vatna- mælingum að úrkoma í seinni hluta mars og í byrjun apríl ylli því að yfirborðið hefði hækkað lítið eitt að nýju. Í júlí árið 2001 var vatnsborðið það lægsta sem mælst hafði frá því mælingar með sírita hófust árið 1967. Vatnsborð vatnsins hafði þá lækkað um 4 metra frá því í júní árið 2000. Segir á vef- síðu OÍ að líklegt sé að sprungur í vatnsbotninum hafi opnast í Suðurlandsskjálftunum í júní árið 2000 og valdið auknum leka úr vatninu. Flatarmál Kleifarvatns hefur einnig minnkað um 20% á þessum tíma og er sandur og leir sem áð- ur var undir vatnsborði nú á þurru. Botn vatnsins mun með tímanum þéttast á ný með leir og öðru seti og vatnsborð hækka. Það mun þó taka Kleifarvatn ár eða áratugi að ná þeirri vatns- hæð sem var fyrir Suðurlands- skjálftana í júní árið 2000 sam- kvæmt vefsíðu OÍ. Morgunblaðið/Jim Smart Starfsmenn Vatnamælinga, Snorri Zóphoníasson og Kristjana G. Eyþórsdóttir, við mælingar á Kleifarvatni í gær. Yfirborð Kleifar- vatns hækkar á ný TENGLAR ..................................................... www.os.is SÖLUVIRÐI seldra hlutabréfa rík- issjóðs við einkavæðingu á síðasta kjörtímabili nam rúmlega 54,6 millj- örðum króna, að því er fram kemur í nýrri skýrslu framkvæmdanefndar um einkavæðingu. Tekjur af sölu hlutabréfa ríkissjóðs á kjörtíma- bilinu nema 54,6 milljörðum króna, á verðlagi ársins 2003. Í skýrslunni segir að þessum tekjum hafi að mestu verið ráð- stafað til að greiða niður skuldir, þ.á m. að bæta erlenda stöðu rík- isins, og til verkefna á sviði sam- göngu- og fjarskiptamála. Stærsta salan á tímabilinu var í Landsbanka Íslands hf., samtals fyrir rúmlega 22,4 milljarða króna, Búnaðarbanka Íslands hf., fyrir tæplega 17 millj- arða og Fjárfestingarbanka at- vinnulífsins hf., fyrir rúma 11 millj- arða. Heildarkostnaður við einkavæð- ingu á kjörtímabilinu nam tæplega 479 milljónum króna. Þar af var sölutengdur kostnaður, á borð við söluþóknun, tæpar 444 milljónir króna. Annar kostnaður var 35 milljónir. Kostnaður undir 1% Í skýrslu nefndarinnar segir, um kostnað við einkavæðingu á tíma- bilinu: „Stærstur hluti kostnaðar af hálfu nefndarinnar er tengdur ár- angri í tengslum við tilgreind verk- efni. Munar þar mest um söluþókn- un sem yfirleitt er að stærstum hluta árangurstengd þó að í flestum tilfellum sé um einhvern fastan kostnað að ræða. Áhugavert er að bera saman kostnað af einkavæðingu annars vegar og heildartekjur af einka- væðingu til að fá raunhæfan sam- anburð við það sem eðlilegt má telj- ast á almennum markaði. Á almennum markaði er ekki óal- gengt að við útboð eða sölu á mark- aðsbréfum sé gert ráð fyrir 1–3% kostnaði. Hins vegar hefur þessi kostnaður einkavæðingarnefndar verið undir 1% í flestum verkefnum sem verður að teljast vel viðun- andi.“ Þá segir að grundvöllur þess að tekist hefur að halda kostnaðinum eins lágum og raun ber vitni hafi verið sú aðferðafræði sem beitt hef- ur verið við val á sérfræðingum til vinnu fyrir nefndina. Tilboða leitað „Umsjónaraðilar sölu og aðrir ráðgjafar hafa iðulega verið valdir með útboðum þar sem leitað hefur verið til verðbréfafyrirtækja eða ráðgjafarfyrirtækja um tilboð í til- tekin verkefni. Óhætt er að segja að þetta hafi skilað góðum árangri enda hefur verið lögð áhersla á í slíkum útboðum að gengið verði að því tilboði sem er hagkvæmast með tilliti til kostnaðar, reynslu tilboðs- gjafa og lýsingar á því hvernig við- komandi hyggist takast á við verk- efnið,“ segir m.a. í skýrslunni. Skýrsla einkavæðingarnefndar um sölu hlutabréfa ríkissjóðs Einkavætt fyrir 55 millj- arða á síðasta kjörtímabili                                     !        !"         #   $%                             "  & ''()) *+()) +))()) +'()) +'()) ,,()) *+()) ''()) ,(-. ')(++ ,)()) +)(/. /*(0) /*(0) ,(*) .(++ '.(0-              ! ! 1 2  " % ,))' 3  4 Heildarkostnaður tæplega 479 milljónir króna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.