Morgunblaðið - 21.05.2003, Qupperneq 6
FRÉTTIR
6 MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Söluskrifstofan er á
Suðurlandsbraut 24
Opið alla virka daga 9-17.
Þjónustuverið er opið virka daga 9-17, laugardaga 10-16 og sunnudaga 11-15,
sími 5 500 600. Þú getur einnig skoðað og bókað á IcelandExpress.is.
Lág fargjöld. Enginn bókunarfyrirvari. Engin lágmarksdvöl og engin hámarksdvöl.
Söluskrifstofa Suðurlandsbraut 24, opið 9-17 virka daga I Sími 5 500 600 I www.IcelandExpress.is
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
HVERNIG kemst pínulítill hænu-
ungi fyrir inni í eggi og hvað verð-
ur um hann þegar hann vex úr
grasi? Stækka hænueggin meðan
unginn er inni í þeim?
Þetta er meðal spurninga sem
Helga Bogadóttir, umsjónarkenn-
ari 4-D í Rimaskóla, hefur fengið
frá nemendum sínum en undan-
farnar þrjár vikur, og rétt rúmlega,
hefur bekkurinn fylgst náið með
hænueggjum í útungunarvél í
kennslustofunni og loks því þegar
sjö litlir ungar komu í heiminn.
Helga segir að útungun í
kennslustofunni sé gömul hugmynd
sem hún hafi loks látið verða að
veruleika. Hún er sjálf úr sveit og
fékk lánaða útungunarvél og
frjóvguð hænuegg úr íslenskum
hænum.
Bræðurnir James Bond
og Hnoðri sprækir
Ungarnir eru því marglitir og
engir tveir eins. Krakkarnir eru
þegar búnir að nefna nokkra þeirra
og heitir einn í höfuðið á hörkutól-
inu James Bond. Öllu meira viðeig-
andi er nafnið Hnoðri sem annar
þeirra fékk. Allir eru ungarnir
sprækir og virðast við góða heilsu.
„Þetta hefur verið mjög gaman
og krakkarnir voru spenntir allan
tímann,“ segir Helga. Hún segir
þau hafa furðað sig á því hversu
langan tíma ungarnir eru í eggjun-
um en auðvitað hafa þau núna lært í
gegnum þetta skemmtilega verk-
efni allt um þroska hænuunga í
eggi. Helga segir þau hafa farið
mjög varlega í kringum útung-
unarvélina og verið afskaplega
glöð þegar fyrsti unginn kom úr
eggi.
Núna er búið að setja ungana sjö
í glerbúr fram á gang svo að fleiri
nemendur fái notið þeirra. En börn-
in í 4-D þekkja þá auðvitað lang-
best. Þau voru líka mjög fegin að
heyra að þeir fara að viku liðinni í
sveitina, eins og öll góð börn.
Morgunblaðið/Kristinn
Unguðu út hænu-
eggjum í skólanum
ÞRÍR fulltrúar á vegum íslenska
orkufyrirtækisins Enex halda utan á
föstudag til Írans þar sem þeir munu
kanna hvernig Íslendingar geti að-
stoðað þarlend stjórnvöld við að
beisla jarðhita. Að sögn Kristins
Ingasonar, verkfræðings hjá VGK-
verkfræðistofu munu íslensku full-
trúarnir eiga fundi með fulltrúum frá
ráðuneyti orkumála í Íran og stofn-
unar á sviði endurnýtanlegrar orku
auk þess sem þeir hitta að máli full-
trúa frá verkfræðistofum þar í landi.
Auk Kristins fara utan Ásgrímur
Guðmundsson, jarðfræðingur hjá
Orkustofnun, og írönsk kona, Ma-
ryam Khodayar, sem starfað hefur
hjá Orkustofnun.
Að sögn Kristins gera þarlend lög
ráð fyrir að innlendir aðilar séu þátt-
takendur í verkefnum sem erlend
fyrirtæki koma að þar í landi.
Ferðast verður til jarðhitasvæða í
Azarbaijan í norðvesturhluta lands-
ins en þar er þegar byrjað að bora
rannsóknarholur. Kristinn segir
óljóst hversu mikið jarðhitinn hefur
verið rannsakaður, í hvaða magni
hann er og hversu heitur hann er.
Verkefni íslenska hópsins sé að
rannsaka þessa þætti nánar.
Tilsögn um klæðaburð
og framkomu
En hvernig leggst það í hópinn að
halda til Írans í ljósi aðstæðna í
grannríkinu Írak? „Menn voru svo-
lítið órólegir fyrst því þá stóð til að
fara í janúar. Ég held að við séum
hins vegar sæmilega afslöppuð
núna.“ Þess má geta að Íslending-
arnir tveir hafa notið tilsagnar ír-
anska fulltrúans í hópnum varðandi
klæðaburð og framkomu. Að ýmsu
ber að huga því t.d. er ekki leyfilegt
að heilsa konum í Íran. Þá er illa séð
að menn klæðist öðru en langerma
fatnaði og síðum buxum.
Enex aðstoðar við
jarðhitaleit í Íran
MÁLEFNI Orkuveitu Reykjavíkur,
OR, komu til umræðu á borgarráðs-
fundi í gær en þá var lagt fram bréf
ritara stjórnar OR um meðferð fund-
argerða gagnvart borgarráði. Sjálf-
stæðismenn létu bóka að þeir teldu
nauðsynlegt að málefni Línu.nets,
Tetra Íslands og Rafmagnslínu yrðu
tekin til umræðu á vettvangi borg-
arstjórnar vegna veikrar fjárhags-
stöðu fyrirtækjanna. Fulltrúar R-
lista létu þá bóka að fjárhagsstaða
OR og dótturfyrirtækja væri afar
sterk um þessar mundir og hagnað-
ur fyrirtækjanna yfir þrír milljarðar
króna, samkvæmt ársreikningi fyrir
árið 2002. Áhyggjur borgarráðsfull-
trúa D-lista væru því ástæðulausar.
Dótturfyrirtæki
Orkuveitunnar
Sjálfstæðis-
menn segja
stöðuna veika
UM 70% nemenda sem útskrifast
hafa frá Viðskiptaháskólanum á Bif-
röst undanfarin fimm ár vinna sem
stjórnendur. 80% nýútskrifaðra voru
búin að fá vinnu strax við útskrift eða
innan mánaðar frá henni.
Þetta eru m.a. niðurstöður könn-
unar sem Viðskiptaháskólinn á Bif-
röst hefur látið gera á stöðu og hög-
um nýútskrifaðra nemenda skólans.
Könnunin var gerð í gegnum síma og
hringt var í alla útskrifaða nemendur
sl. fimm ára. Svarhlutfall var 68,2%.
Í niðurstöðum kemur ennfremur
fram að laun nemenda hækka veru-
lega eftir útskrift. Fyrir nám var
81% nemenda með laun undir 200
þúsundum og 15% voru með laun á
bilinu 200–300 þúsund. Eftir nám
eru um 4% með laun undir 200 þús-
undum, 47% með laun á bilinu 200–
300 þúsund , 41% með mánaðarlaun
á bilinu 300–450 þúsund og 7% með
laun yfir 450 þúsund. Enginn að-
spurðra var atvinnulaus.
Í frétt frá háskólanum segir að
túlka megi niðurstöður könnunar-
innar á þann hátt að skólinn hafi náð
því markmiði sínu að mennta stjórn-
endur fyrir atvinnulíf og samfélag.
„Þá er ljóst að launahækkun sú
sem nemendur fá með sínu námi á
Bifröst dugar til að greiða upp skóla-
gjöld þeirra fyrir 3 ára nám á fyrsta
starfsári eftir útskrift og er sú nið-
urstaða einnig athyglisverð í ljósi ný-
legrar umræðu um skólagjöld á há-
skólastigi,“ segir í fréttinni.
Nemendur frá Bifröst
Veruleg
launahækk-
un eftir
útskrift
♦ ♦ ♦
UM 20 grömm af amfetamíni og
nokkurt magn af smygluðu áfengi og
sígarettum fundust við húsleit í sölu-
turninum Draumnum við Rauðarár-
stíg í fyrrakvöld. Tveir menn voru
yfirheyrðir vegna málsins í gær en
síðan sleppt og er rannsókn lokið.
Ásgeir Karlsson, yfirmaður fíkni-
efnadeildar lögreglunnar í Reykja-
vík, vill ekkert tjá sig um hvort grun-
ur leiki á því að fíkniefni hafi verið
seld í söluturninum.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins höfðu íbúar í nágrenninu
kvartað undan ónæði frá viðskipta-
vinum söluturnsins og lýst grun-
semdum sínum um að þar færi fram
fíkniefnasala.
Eftirlitsdeild tollstjórans í
Reykjavík gerði húsleit í söluturn-
inum vegna gruns um að þar væri
selt smyglað áfengi og tóbak. Sig-
urður Skúli Bergsson, forstöðumað-
ur tollgæslusviðs tollstjórans í
Reykjavík, segir að við leitina hafi
fundist efni sem talið var fíkniefni og
því var fíkniefnadeild lögreglunnar í
Reykjavík kölluð til. Auk amfeta-
mínsins var eining lagt hald á nokkra
lítra af sterku áfengi og sígarettum.
Eftir er að ganga úr skugga um
hvort þetta sé allt smyglvarningur.
Tollgæslan hefur einu sinni áður
leitað í söluturninum og einnig þá
fundið smyglað áfengi, að sögn Sig-
urðar Skúla.
Spurður segir hann það heyra til
algjörra undantekninga að tollgæsl-
an leggi hald á smyglvarning í versl-
unum eða veitingastöðum.
Húsleit í söluturni við Rauðarárstíg
Amfetamín, smyglað
áfengi og sígarettur