Morgunblaðið - 21.05.2003, Page 8

Morgunblaðið - 21.05.2003, Page 8
FRÉTTIR 8 MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Hann er að kvelja úr mér líftóruna. Ferðaþjónustubændur horfa fram veginn Markviss vinna til framtíðar FERÐAÞJÓNUSTAbænda stefnir aðþví að vera í farar- broddi í umhverfisvænni ferðaþjónustu á lands- byggðinni og að á allra næstu árum muni allir ferðaþjónustubændur marka sér umhverfisstefnu sem byggist á Staðardag- skrá 21. Sævar Skaptason er framkvæmdastjóri Ferðaþjónustu bænda. – Segðu okkur eitthvað fleira um þessi áform ferða- þjónustubænda? „Við verðum að líta á stöðu okkar í ferðaþjónustu hér á landi. Innan okkar raða eru um 120 aðilar sem búa yfir rúmlega 3.000 gistirýmum. Við erum ein stærstu samtök í gisti- og ferðaþjónustu í landinu. Saga okk- ar er orðin löng hér á landi en um- hverfismál eru farin að skipta svo miklu máli í allri uppbyggingu og markaðssetningu að við verðum að samræma aðgerðir og setja okkur áform til framtíðar.“ – Og hver eru þessi áform? „Á aðalfundi Félags ferðaþjón- ustubænda á Arnarstapa hinn 12. mars 2002 var skrifað undir vilja- yfirlýsingu um að Ferðaþjónusta bænda yrði leiðandi afl í umhverf- ismálum á landsbyggðinni. Mark- miðið er að allir ferðaþjónustu- bændur setji sér umhverfisstefnu byggða á Staðardagskrá 21 á næstu tveimur árum og vinni eftir henni í daglegum rekstri.“ – En vinnan við umhverfisstefn- una er hafin fyrir nokkru, ekki satt? „Jú, það er rétt. Á árinu 2002 voru t.d. haldin níu námskeið víða um land fyrir félagsmenn innan Ferðaþjónustu bænda, en auk þess var ferðamálafulltrúum, forstöðu- mönnum upplýsingamiðstöðva og ferðamálasamtaka boðin þátttaka. Um skipulagningu námskeiðanna sáu Guðrún og Guðlaugur Berg- mann, fulltrúar Ferðaþjónustu bænda, og Elín Berglind Viktors- dóttir, kennari við Hólaskóla. Þessi fundarherferð gekk mjög vel og hefur um helmingur ferðaþjón- ustubænda sem eru innan Ferða- þjónustu bænda mætt á námskeið um umhverfismál og eru þeir nú þegar byrjaðir að vinna eftir um- hverfisstefnu. Það er búið að end- urskoða umhverfisstefnuna og þessa dagana er verið að senda öll- um félagsmönnum vinnuáætlun fyrir þetta ár.“ – Í hverju er þessi umhverfis- vinna fólgin? „Það eru ákveðin atriði sem ferðaþjónustubændur eru hvattir til að hafa í huga og vinna að. Þau eru, að vinna markvisst að því að halda nánasta umhverfi hreinu og aðlaðandi, að stuðla að verndun menningar- og náttúruminja, að draga úr mengun með minni verðmætasóun t.d. með endurnýt- ingu, endurvinnslu, orkusparnaði og notkun á umhverfisvænum efn- um, að tryggja að frá- veitumál hafi ekki spill- andi áhrif á umhverfið, að leitast við að nota endurnýtanlegar auð- lindir við reksturinn, að stunda græn innkaup, að leita sífellt eftir frekari fræðslu um umhverfismál og koma þeim upplýsingum til starfsfólks að virkja gesti til umhverfisverndar með leiðbeiningum og fræðslu, að styrkja samstarfið við sveitarfélag- ið, önnur fyrirtæki og íbúa á svæð- inu, að leitast við að uppfylla ákvæði laga og reglugerða um um- hverfismál og loks að vinna stöðugt að úrbótum í rekstri og þjónustu til að draga úr skaðlegum umhverfis- áhrifum.“ – Þetta hlýtur að kosta mikið? „Fjöldi bænda sem eru í þessari starfsemi treysta mjög á hana. Sumir hafa viðurværi sitt alfarið af ferðaþjónustu og hjá öðrum er þetta hliðarbúskapur sem skiptir sköpum. Í því samhengi frábiðja ferðaþjónustubændur sér þá gagn- rýni samkeppnisaðila að hér sé ekki um alvöruferðaþjónustu að ræða og bændur hafi ekki reynslu af slíku. Ég bendi á að ferðaþjón- ustubændur eru með opið allan ársins hring á meðan fjöldi hótela í dreifbýlinu er aðeins með opið á sumrin, svo dæmi sé tekið. Þetta sýnir að hér er um alvörustarfsemi að ræða, atvinnusköpun sem stuðl- ar að því að viðhalda búsetu í hin- um dreifðu byggðum. Þessu gera bændur sér grein fyrir og verða því að bregðast við þróuninni. Fyrir tíu árum hefði verið úti- lokað að marka svona stefnu, fyrir fimm árum erfitt, en í dag er það miklu auðveldara vegna breyttra viðhorfa til umhverfismála. Þetta mun kosta bændur fé, mismikið fé eftir því hvað þarf að gera í ein- stökum tilvikum. En það er frjálst val þeirra sem að þessu koma hvað þeir leggja í þetta. Við erum á byrj- unarreit í þessum efnum og hvert skref sem stigið er fram veginn skiptir máli. Fyrstu skrefin kosta lítið og með þeim nálgast menn markmiðin. En lokatak- markið gæti verið að sem flestir gengjust undir gæðavottun Green Globe 21, sem eru alþjóðleg gæðavottunarsamtök fyrir aðila í ferðaþjónustu. Það er nauðsynlegt að óháður aðili staðfesti að verið sé að vinna rétt að hlutunum. Ferða- þjónustan á Hellnum á Snæfells- nesi og almenningsflutningar Guð- mundar Tyrfingssonar hafa gengið á undan og fengið fulla vottun. Aðr- ir eru á leiðinni.“ Sævar Skaptason  Sævar Skaptason er fæddur 18. janúar 1958 í Reykjavík. Hann er lærður prentari og starfaði á árum áður í Steindórs- prenti, til 1986, og samhliða því sem skálavörður í Þórsmörk í sex sumur. Lærði síðan þýsku ytra og starfaði sem leið- sögumaður erlendra ferðamanna á Íslandi á sumrin, og seinna í Þýskalandi á stórri ferðaskrif- stofu sem seldi m.a. ferðir til Ís- lands. 1987 hóf hann störf við innra eftirlit vínbúða hjá ÁTVR, en 1998 gerðist hann fram- kvæmdastjóri Ferðaþjónustu bænda. Sævar er kvæntur Bryn- dísi Óladóttur. Hliðar- búskapur sem skiptir sköpum FerðalögFimmtudaginn . maí fylgir Morgunblaðinu blaðauki um29 Meðal annars verður fjallað um: • gönguferðir • tjaldsvæði landsins • ferðalög á hálendið • nestið í ferðalagið • viðburði og uppákomur vítt og breitt um landið í sumar • óviðjafnanlegar náttúruperlur • nýjungar í afþreyingu • nýja gististaði og veitingahús • leiki og skemmtun fyrir börnin í aftursætinu. Blaðið verður í nýju broti, þverformi 25x19 sm, heftað og prentað á 60 gr pappír. Pöntunarfrestur auglýsinga er til kl. 16 föstudaginn 23. maí. Skilafrestur er til kl. 12 mánudaginn 26. maí. Hafið samband við auglýsingadeild Morgunblaðsins í síma 569 1111 eða á augl@mbl.is Sundlaugarrennibrautinni í Laugardalslaug var lokað á sunnudagskvöld í kjölfar óhapps sem varð þar þegar drengur meiddi sig á fótum í brautinni og var fluttur á slysadeild með sjúkrabifreið. Talið er að hann hafi rekið fæt- urna í klæðningu ofan við barma brautarinnar. Strax var hafist handa við að laga klæðninguna og er gert ráð fyrir að opna brautina aftur nú í vikunni. Fjarlægt var stykki úr glerkúpli brautarinnar vegna við- gerðarinnar. Að sögn Kristjáns Ögmundsson- ar, forstöðumanns Laugardals- laugar, er brautin 14 ára gömul en hún var opnuð um miðjan apríl eftir gagngerar endurbætur. Rennibraut lokað í kjölfar slyss

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.