Morgunblaðið - 21.05.2003, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 21.05.2003, Qupperneq 10
FRÉTTIR 10 MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÓVENJULEGA stór bleikja veiddist í Hlíðarvatni um helgina. Um var að ræða 5,5 punda tröll, 55 sentimetra spikfeita bleikju sem er langstærsti fiskurinn sem veiðst hefur í vatninu í vor. Bleikjan stóra tók brúnan Vinil grubber kúluhaus númer tíu, sem var „dropper“, en á enda taumsins var Watson-púpa. Veiðimaðurinn, Einar Falur Ing- ólfsson, sagði viðureignina hafa verið snarpa í byrjun, en hún hefði fengið snöggan og óvæntan endi, þegar Watson-púpan hefði krækst í kviðugga bleikjunnar og nánast skellt henni á bakið. „Þetta var furðulegt, fiskurinn var eitthvað að byrja að þreytast, en síðan sneri hann skyndilega kviðnum upp, eins og hann hefði bara gefist upp. Ég dró fiskinn að háfnum og þá kom þetta í ljós, endaflugan hafði krækst í ugg- ann og bleikjan gafst upp þegar hún gat ekki haldið sér á réttum kili,“ sagði Einar. Veiði hefur verið nokkuð góð í Hlíðarvatni síðustu daga, Einar og félagar hans tveir voru með um tuttugu fiska og þrír veiði- menn sem voru á undan þeim skráðu einnig um tuttugu stykki. Mest er um 1–1,5 punda fiska að ræða. Góð skot í Elliðavatni Ölnir Snorrason, eftirlitsmaður við Elliðavatn, sagði að Elliða- vatnið gæfi vel þessa dagana og ýmsir veiðimenn hefðu fengið góð skot. Eru að sögn Ölnis dæmi um að menn hafi fengið milli 30 og 40 fiska á stuttum tíma og fluguveiðin hefur mjög sótt á eftir að beituveiðin var nánast einráð í kuldakastinu um mánaðamótin. Líf í Grenlæk Það berast prýðisfréttir af góðum reytingi í Fitjaflóði og á laugardaginn voru veiðimenn á neðsta svæði Grenlækjar sem fengu fjórtán fiska á bilinu 2 til 5 pund. Boltableikja úr Hlíðarvatni Morgunblaðið/Einar Falur Stórbleikjan úr Hlíðarvatni, 5,5 punda, 55 sentimetra löng. Hinar eru 1 til 1,5 punda, „venjulegar“. ERU ÞEIR AÐ FÁ’ANN? DAVÍÐ Oddsson, forsætisráðherra og formað- ur Sjálfstæðisflokksins, sagði við fréttamenn eftir fund með Ólafi Ragnari Grímssyni, for- seta Íslands, á Bessastöðum í gær að ýmsir þættir varðandi sjávarútvegsmál sem nefndir voru af hálfu stjórnarflokkanna í kosningabar- áttunni myndu skila sér inn í nýjan stjórnar- sáttmála Framsóknarflokks og Sjálfstæðis- flokks. Davíð sagði enn fremur aðspurður að þeir Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknar- flokksins, væru sammála um að þær hugmynd- ir sem ýmsir höfðu viðrað af þeirra hálfu væru til þess fallnar að auka sátt um fiskveiðistjórn- unarkerfið. Hann bætti því þó við að hvorugur þeirra væri „svo skyni skroppinn að ímynda sér“ að hægt yrði einhvern tíma að finna end- anlega sátt um sjávarútveg á Íslandi. Veiðiskyldan aukin Í kosningabaráttunni sagði Davíð að til álita kæmi að kanna hvort unnt væri að gera for- kaupsréttarákvæði sveitarfélaga á kvóta sam- kvæmt lögum virkara en nú er. Hann sagði enn fremur að hann teldi að tillaga landsfundar Sjálfstæðisflokksins um sérstaka ívilnun fyrir dagróðrabáta sem róa með línu ætti að geta komið til framkvæmda með haustinu. Í máli Halldórs í kosningabaráttunni kom fram að hann teldi koma til greina að hækka veiðigjaldið að því tilskildu að sjávarútvegur- inn stæði undir því. Hann sagðist einnig fylgj- andi því að auka veiðiskyldu úr 50% í 75% og takmarka þannig framsal aflaheimilda. Þá samþykkti flokksþing framsóknarmanna, í upphafi kosningabaráttunnar, tillögu um að ákvæði yrði sett í stjórnarskrá Íslands um að fiskistofnarnir væru sameiginleg auðlind allrar þjóðarinnar og sameign hennar. Áherslur í sjávarútvegs- málum skili sér í stjórnar- sáttmálann eigendur til viðbótar hafa óskað eft- ir tengingu. Alfreð Þorsteinsson, stjórn- arformaður OR, setti veituna af stað og sagði að þar með væru menn að taka í notkun eina af stærstu hita- veitum hér á landi í langan tíma. Á veitusvæði Grímsnesveitu eru um 750 sumarhús, skóli, sundlaug, nokkur býli og heilsárshús. Búið er að leggja dreifikerfi frá Öndverð- arnesi um sumarhúsabyggðir og upp með Soginu að Ljósafossi og Efri-Brú. Alfreð sagði í samtali við Morg- Á BILINU 500 til 600 sumarhús í Grímsnesi verða orðin tengd hita- veitu í lok þessa árs með tilkomu Grímsnesveitu í Öndverðarnesi en hún var formlega tekin í notkun fyr- ir helgina enda stærstum hluta framkvæmdanna nú lokið. Heild- arkostnaður við veituna er áætlaður um 500 milljónir króna. Grímsnes- veita, sem er í eigu Orkuveitu Reykjavíkur (OR) og Hitaveitu Þor- lákshafnar, er ein af stærstu hita- veituframkvæmdum á Íslandi hin síðari ár. Þegar er búið tengja um 200 sumarhús veitunni og um 300 unblaðið að staðreyndin væri sú að töluvert væri leitað til Orkuveit- unnar af aðilum utan höfuðborg- arinnar til þess að fá OR að svona verkefnum. „Sannleikurinn er sá að menn vilja gjarnan að það séu vanir aðilar sem sjá um rekstur á svona hitaveitum. Til margra ára hefur það verið þannig að duglegir ein- staklingar eða félagasamtök hafa komið upp litlum hitaveitum en þeg- ar aldurinn færist yfir menn verður erfiðara að sjá um rekstur og menn vilja fá ábyrgan aðila til þess að sjá um hann,“ sagði hann. Yfir 500 sumarhús í Grímsnesi tengd hitaveitu á árinu Morgunblaðið/Árni Torfason Á veitusvæði Grímsnesveitu eru um 750 sumarhús. Þegar er búið að tengja um 200 sumarhús við nýju veituna. DAVÍÐ Oddsson, forsætisráðherra og formað- ur Sjálfstæðisflokksins, sagði eftir fund sem hann átti með Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, á Bessastöðum skömmu eftir hádegi í gær að það yrðu örugglega pólitískar breyt- ingar á högum sínum á kjörtímabilinu. Davíð sagði að búið væri að ganga frá skiptingu ráðu- neyta milli Framsóknarflokksins og Sjálfstæð- isflokksins en ákvörðun um hverjir skipa ráð- herraembættin yrði ekki tekin fyrr en síðla á fimmtudag, eftir þingflokksfundi og flokksráðs- fundi. Þegar hann var spurður að því hvort ein- hverjar breytingar yrðu á ríkisstjórninni frá því sem nú er sagði Davíð: „Ég held að það verði ýmsar breytingar sem verða athyglisverðar.“ Að öðru leyti vildi hann ekki tjá sig um það mál. Stefnt er að því að fráfarandi ríkisstjórn komi saman á ríkisráðsfundi kl. 11 á föstudag og síð- ar um daginn, kl. 13.30, komi saman ný rík- isstjórn. Þá hefur verið ákveðið að nýtt Alþingi komi saman nk. mánudag. Þingið verður stutt og er m.a. ætlunin að kjósa í forsætisnefnd og í fastanefndir þingsins, þannig að þingið verði starfhæft. Loforð setja svip á sáttmálann Davíð hitti Ólaf Ragnar á Bessastöðum kl. 11.30 í gær og gerði honum grein fyrir stöðu mála í stjórnarmyndunarviðræðunum. Fundur- inn stóð yfir í um einn og hálfan tíma. Að honum loknum ræddi Davíð við fréttamenn. „Ég gerði forseta Íslands grein fyrir stöðu mála, bæði meginefni væntanlegs stjórnarsáttamála og öðrum þeim breytingum sem kunna að verða.“ Davíð sagði að nýjum þingflokki sjálfstæðis- manna yrði gerð grein fyrir stöðu mála í dag. Þegar Davíð var spurður að því hvort hann hygðist hætta á kjörtímabilinu sagði hann: „Ekki skal ég segja um það hvort ég hætti í stjórnmálum á kjörtímabilinu eða hvort ég verði í framboði eftir fjögur ár, það veit Guð einn, en það verða breytingar örugglega á mín- um högum, pólitískar breytingar, á kjörtíma- bilinu.“ Davíð var einnig spurður um innihald nýs stjórnarsáttmála en vildi sem minnst um hann segja áður en hann yrði kynntur þing- flokkunum. Davíð sagði þó að niðurstöður kosn- inganna og kosningaloforð stjórnarflokkanna, t.d. í skattamálum og sjávarútvegsmálum, myndu setja svip á stjórnarsáttmálann. Davíð Oddsson gerir forseta Íslands grein fyrir nýjum stjórnarsáttmála Boðar pólitískar breyt- ingar á högum sínum Morgunblaðið/Arnaldur Ólafur Ragnar Grímsson og Davíð Oddsson ræðast við á Bessastöðum. Segir að athyglis- verðar breytingar verði á ríkisstjórninni

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.