Morgunblaðið - 21.05.2003, Qupperneq 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2003 11
ÓVENJUMARGIR flækingsfuglar
hafa sést hér við land í ár en síðast í
fyrradag fannst laufglói á Reyð-
arfirði eftir að hafa flogið á glugga
og vankast. Laufglói er evrópskur
fugl sem á varpstöðvar í Evrópu,
SV-Asíu og á Indlandi en á sumrin
heldur hann til Mið-Afríku. Talið er
að hann hafi níu sinnum sést hér áð-
ur.
Þegar hafa alls sést um 140 teg-
undir fugla í ár og er það líklega met
miðað við árstíma, að sögn Brynjúlfs
Brynjólfssonar, fuglaáhugamanns á
Höfn í Hornafirði. „Hér hefur aldrei
sést til jafnmargra tegunda á þess-
um árstíma og nú og þar hlýtur veð-
urfarið að hafa mikið að segja. Í
fyrra var algert metár en þá höfðu
sést 105 tegundir eftir maímánuð.“
Hann bætir við að vindáttir hafi
verið suðaustlægar í vor en þá villist
gjarnan mikið af flækingum hingað
frá Evrópu. Þá hafi áhugi á fugla-
skoðun aukist gríðarlega á síðustu
tveimur árum og það sé ef til vill ein
ástæða þess að fleiri fuglar sjáist en
áður. Einnig hafi tæknibúnaður eins
og sjónaukar og myndavélar orðið
fullkomnari og flæði upplýsinga
meira, fuglaskoðarar noti Netið
óspart til að skiptast á fréttum.
Ferðast langar leiðir til
að skoða spennandi fugl
Að sögn Brynjúlfs kemst lítið ann-
að að en fuglaskoðunin þegar kemur
að áhugamálum en hann er ásamt
fleirum að vinna að því að koma upp
fuglaathugunarstöð á Höfn í Horna-
firði þar sem hann býr. Hann segir
það mjög skemmtilegt að finna
sjaldgæfan fugl. „Menn ferðast lang-
ar leiðir um landið til að skoða góð-
an fugl. Strákarnir hérna hafa
stundum grínast með að fyrir okkur
sé þetta svipað og fyrir suma að sjá
fallegt kvenfólk, hjartað tekur
snöggan kipp,“ segir hann hlæjandi
og bætir við að hérlendur fugla-
áhugamaður hafi ekið um 20.000
kílómetra í fyrra í fuglaskoð-
unarferðum.
Brynjúlfur telur upp þá sjaldgæfu
flækingsfugla sem þegar hafa sést
hér við land en á meðal þeirra eru
bláheiðir, runntítla, trjámáfur,
hringönd, svartsvanur, bresk mar-
íuerla, hringmáfur, vatnagleða,
þaraþerna, hrókönd, gultittlingur,
lyngstelkur, flóastelkur, lind-
arstelkur, austrænar og vestrænar
margæsir, mandarínönd, amerísk
korpönd, rákönd og sönglævirki.
Óvenju margir flækingar við landið í ár
Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir
Margir hafa komið að skoða laufglóann sem er nú í vörslu Náttúrustofu
Austurlands, en hann var handsamaður á Reyðarfirði.
„Hjartað tekur
snöggan kipp“
TILLÖGUR meirihluta Reykjavík-
urlistans um fjárframlög til einkarek-
inna grunnskóla verða ekki lagðar
fram í fræðsluráði fyrr en 2. júní
næstkomandi. Aðspurð um áhrif þess
að tillagan nái ekki fyrr fram að
ganga segist María Solveig Héðins-
dóttir, skólastjóri Tjarnarskóla, vera
uggandi um framtíð skólans og öll
starfsemi sé í rauninni í biðstöðu. Hún
bætir samt við að hún fagni því að ver-
ið sé að vinna í þessum málum en seg-
ir það bagalegt að málið skuli ekki
hafa verið tekið fyrir eins fljótt og
hægt var úr því sem komið var.
„Enn sem komið er hafa engir
einkaskólar auglýst eftir nemendum
fyrir næsta vetur. Vegna óvissu um
rekstrargrundvöll hefur enn ekki ver-
ið hægt að ákveða skólagjöld og þess
vegna hefur engum nýjum nemend-
um verið veitt skólavist. Þeir einstak-
lingar sem hafa sett sig í samband við
okkur og eru að velta fyrir sér skóla-
vist þurfa því að hafa biðlund. Okkar
nemendur hafa getað endurnýjað um-
sóknir sínar þrátt fyrir að upphæð
skólagjaldanna liggi ekki fyrir. For-
eldrahópurinn sýnir þessu máli mik-
inn áhuga og fylgist með fréttunum
en auðvitað er óvissuþátturinn mjög
slæmur, bæði fyrir nemendur, for-
eldra og starfsfólk skólans,“ leggur
hún áherslu á.
Hún óttast að fjárhagsvandinn rýri
traust fólks á skólunum og á jafnvel
von á að þess sjái merki í nýskrán-
ingum nemenda. „Foreldrum er auð-
vitað annt um að skólaganga
barnanna þeirra takist sem best og
það að skipta um skóla er stór ákvörð-
un. Enginn tekur þá ákvörðun án
þess að vita að starfs- og rekstrarum-
hverfi skólanna sé tryggt. Biðstaðan
sem nú hefur skapast er því óviðun-
andi, sama hvernig á málið er litið,“
segir María Solveig.
Beðið eftir afgreiðslu
borgaryfirvalda
Að hennar sögn ætla skólastjórar
einkaskólanna að funda í dag og bera
saman bækur sínar. Þá eiga skóla-
stjórar Tjarnarskóla fund með for-
manni fræðsluráðs einnig í dag, auk
þess sem þeir hafa pantað fund með
borgarstjóra. „Síðan er ekkert sem
við getum gert nema að bíða eftir af-
greiðslu borgaryfirvalda. Það verður
ekki fyrr en í fyrsta lagi í byrjun júní
og þá eigum við eftir að meta hvort til-
lögur borgaryfirvalda séu þess eðlis
að rekstri Tjarnarskóla verði haldið
áfram eða hvort 18 ára sögu skólans
lýkur nú í vor,“ segir María Solveig.
Edda Huld Sigurðardóttir, skóla-
stjóri Ísaksskóla, segir að innritun
nemenda fyrir næsta haust sé lokið.
Hún segir aðspurð að umræðan um
fjárhagsstöðu einkaskólanna hafði
haft minni áhrif á aðsókn en hún hafi
átt von á. Hún bætir jafnframt við að
starfsmannamál séu í eðlilegum far-
vegi.
„Við högum allri skipulagningu
eins og venjulega. Tillagan hefur ver-
ið rædd hér í foreldraráði og við bíð-
um átekta. Innskráningar eru mjög
svipaðar og undanfarin ár. Við
skráum mest í 5 ára deild og 1. bekk
og þar er fólk oft búið að skrá inn með
kannski tveggja, þriggja ára fyrir-
vara og því er engin breyting á því.
Við erum ekki búin að senda út bréf
með beiðni um staðfestingu en ég hef
ekki heyrt neitt um neinar breyting-
ar,“ segir Hjalti Þorkelsson, skóla-
stjóri Landakotsskóla.
Óttast að fjárhagsvandinn
rýri traust fólks á skólunum
ÆTTFRÆÐIFÉLAGIÐ hefur
gefið út Manntalið 1910 fyrir
Reykjavík í tveimur bindum og er
hér um að ræða stærsta viðfangs-
efni félagsins í einum áfanga til
þessa. Við hátíðlega athöfn í Þjóð-
skjalasafninu á þriðjudag sagði
Ólafur H. Óskarsson, formaður
Ættfræðifélagsins, að hafist hefði
verið handa við Manntalið 1910 árið
1994 og því væri þetta mikill árang-
ur. Hann sagði það ánægjulegt að
ritið kæmi út þegar 300 ár væru síð-
an manntalið 1703 var gefið út, en
það er elsta manntal í heimi sem
nær til heillrar þjóðar.
Ólafur benti á að Ættfræðifélagið
hefði gefið út fjölda manntala sem
næðu alla leið aftur til ársins 1801,
en fyrir voru fjögur bindi af Mann-
talinu 1910. „Við tökum hverja sýslu
fyrir og núna var Reykjavík tekin
fyrir. Þessi bindi eru að því leytinu
til mikilvægari en hin manntölin
vegna þess að það eru svo margir
Reykvíkingar frá 1910 aðfluttir. Ár-
ið 1910 voru rúmlega 11 þúsund íbú-
ar í Reykjavík og 70–80% þeirra
voru aðfluttir,“ lagði Ólafur áherslu
á og sagði að í ritinu kæmi fram
hvar fólk væri fætt. Hann sagði að
fyrir væru bindi um Skaftafells-
sýslu, Rangárvallasýslu, Vest-
mannaeyjar, Gullbringu- og Kjósar-
sýslu og næst á dagskrá væri
Mýrasýsla. „Við erum að reyna að
kynna þetta og halda upp á þetta því
það er mikill sigur að koma þessu
út, þó svo að fjármálin séu í kalda
koli, en ég vona að úr því rætist. Það
hefur tekið í það minnsta fimm ár að
vinna Reykjavíkurbindin, ef ekki
lengur, en verkið er unnið í sjálf-
boðavinnu,“ sagði hann.
Sameiginlegt átak
Þótt útgáfan á Manntalinu 1910
sé eignuð Ættfræðifélaginu er hún
sameiginlegt átak þess, Þjóðskjala-
safns Íslands, sem lagði til handritið
og erfðafræðinefndar Háskóla Ís-
lands sem lagði til tölvuútskrift af
grunnhandritinu. Ættfræðifélagið
lét síðan yfirfara það og bera saman
við kirkjubækur og leiðrétti og lag-
færði eftir bestu getu.
Að sögn Ólafs er Ættfræðifélagið
áhugamannafélag, stofnað árið
1945. Félagið lítur á sig sem þjón-
ustustofnun og er tilgangurinn að
koma út merkilegum heimildum um
ættfræði, enda er það skráð í lög fé-
lagsins. Félagsmenn eru um 800
talsins og gefur félagið út veglegt
fréttabréf fjórum sinnum á ári. Fé-
lagið gerðist fullgildur aðili að Nor-
rænu samstarfsnefndinni í ættfræði
(NORDGEN) fyrir mánuði síðan.
Ættfræðifélagið gefur út
Manntal 1910 fyrir Reykjavík
Ljósmynd/Eddi
Ólafur H. Óskarsson, formaður Ættfræðifélagsins, afhendir Ólafi Ás-
geirssyni þjóðskjalaverði Manntalið árið 1910 fyrir Reykjavík.
BÚIÐ er að fara yfir umsóknir þeirra
sem sóttu um störf hjá ítalska verk-
takafyrirtækinu Impregilo vegna
framkvæmda við Kárahnjúkavirkjun
en eins og fram hefur komið bárust
2.762 umsóknir um þau 200 störf sem
í boði eru. Enn er verið að meta um-
sækjendur og verður fljótlega haft
samband við þá sem til greina koma,
að sögn Öglu Sigríðar Björnsdóttur,
ráðningarstjóra hjá vinnu.is., sem
vinnur úr umsóknum ásamt Mannafli.
Aðallega er um að ræða störf við
stjórnun vinnuvéla sem krefjast
vinnuvélaréttinda og störf sem ekki
krefjast fagmenntunar en Agla segir
að umsækjendur komi úr öllum stétt-
um samfélagsins, þarna sé um að
ræða háskólamenntað fólk, iðnmennt-
að og ófaglært. „Hér er fólk á öllum
aldri, úr öllum stéttum og með mis-
mikla reynslu,“ segir Agla en bætir
þó við að meirihluti umsækjenda sé
karlar. Hún segir marga umsækjend-
anna þegar vera í föstum störfum og
vilji greinilega breyta til.
Fólk úr öll-
um stéttum
sækir um
Störf hjá Impregilo
TILLÖGU Sjálfstæðisflokks vegna
fjárframlags til nemenda í einka-
reknum skólum var frestað á
borgarráðsfundi í gær. Sjálfstæðis-
menn lögðu þar til að Reykjavík-
urborg samþykkti að greiða sam-
bærilegt fjármagn með hverjum
reykvískum nemanda óháð því hvort
hann gangi í einkarekinn skóla eða
borgarrekinn með þeim rökum að
þannig væri jafnræði með nemend-
um tryggt og tekið tillit til þess að
rekstrarþarfir skólanna væru mis-
jafnar.
Sjálfstæðismenn gagnrýndu jafn-
framt aðgerðaleysi R-listans gagn-
vart einkareknum grunnskólum í
Reykjavík. Sögðu þeir það bera vott
um einstakt ráðaleysi að fulltrúar R-
listans hefðu vísað frá tillögu full-
trúa Sjálfstæðisflokksins í fræðslu-
ráði 19. maí um fjárframlag til
einkarekinna grunnskóla án þess að
geta sjálfir gert tillögu til lausnar á
fjárhagsvanda skólanna. Sögðu þeir
að með töfum og vandræðagangi
skapaði R-listinn óvissu og kvíða
meðal foreldra, nemenda og starfs-
fólks skólanna.
Tillaga ekki í takt
við veruleikann
Borgarráðsfulltrúar Reykjavíkur-
listans lögðu fram bókun þar sem
þeir sögðu að sú ógn og skelfing sem
lýst væri í tillögu Sjálfstæðisflokks
ætti sér enga samsvörum í þeim
veruleika sem blasti við þeim sem
átt hafa í viðræðum við forsvars-
menn skólanna.
Margoft hefði komið fram að ekki
stæði hugur til annars hjá meirihlut-
anum en að tryggja betur þá einka-
skóla sem nú starfa í borginni.
Fundað með forystu-
mönnum skólanna
Jafnframt var vísað í bókun meiri-
hlutans á fundi fræðsluráðs á mánu-
dag þar sem meðal annars kom fram
að fundað hafði verið með forsvars-
mönnum skólanna og óskað eftir til-
lögum og yrði niðurstaða þeirra
funda sem og tillögur skólanna
kynntar á næsta fundi fræðsluráðs.
Rætt um einkarekna
skóla í borgarráði
Tillögu
um fjár-
framlag
frestað