Morgunblaðið - 21.05.2003, Page 12
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
12 MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
STJÓRN Landssamtaka lífeyris-
sjóða, LL, hefur nýlega samþykkt
að skipa starfshóp til að skoða
kosti og galla ólíkra réttindakerfa
og hvort hægt væri að vinna að
breytingum án þess að sjóðfélagar
bæru skarðan hlut frá borði. Þórir
Hermannsson, stjórnarformaður
LL, greindi frá þessu á aðalfundi
samtakanna í gær. Hann sagði að
mál þetta væri ekki auðvelt í um-
fjöllun og ljóst að sjónarmið manna
væru töluvert misvísandi, þegar
um það er fjallað. „Ég tel hins veg-
ar mjög brýnt að nýskipaður
starfshópur LL vinni ítarlega í
þessu máli,“ sagði Þórir. „Það eru
margir sem bíða eftir niðurstöðum
hans.“
Þórir sagði að neikvæð ávöxtun
og einnig auknar skuldbindingar
lífeyrissjóðanna vegna áætlana um
lengri lífaldur sjóðfélaga valdi því
að tryggingafræðileg staða flestra
þeirra hafi versnað mjög mikið.
Starfsmenn og stjórnendur sjóð-
anna séu því nú í mjög mörgum til-
vikum að leita hvers kyns leiða
sem rétt geti halla á skuldbind-
ingum þeirra.
Þórir sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær að margir lífeyr-
issjóðir hafi staðið frammi fyrir því
að þurfa að skerða réttindi sjóð-
félaga. Í upphafi þegar almennu líf-
eyrissjóðirnir voru stofnaðir hafi
verið ákveðið að nota svonefnt
stigaávinnslukerfi en í dag sé í vax-
andi mæli farið að skoða það sem
kallað er aldurstengt kerfi. Þeim
sjóðum sem noti aldurstengt kerfi
hafi farið fjölgandi. Í stigakerfinu
eigi sér stað ákveðinn flutningur á
greiðslum frá þeim yngri til þeirra
eldri, því viðkomandi ávinni sér
jöfn réttindi allan tímann. Í aldurs-
tengdu kerfi sé hins vegar mesti
ávinningurinn fyrstu árin. Stjórn
LL hafi því ákveðið vegna ábend-
inga að skoða þessi mál og reyna
að finna kosti og galla þessara
tveggja mismunandi leiða.
Mikill munur á örorkubyrði
Einnig kom fram í máli Þóris á
aðalfundinum í gær að annað stór-
mál sem lífeyrissjóðirnir stæðu
frammi fyrir væri hve verulega
mismikil örorkubyrði þeirra er,
sem hlutfall af heildarlífeyri þeirra.
Hann greindi frá því að þegar 54
lífeyrissjóðir séu reiknaðir út komi
í ljós að meðalbyrði örorkulífeyris
hjá þeim sé um 16%. Séu einstakir
sjóðir hins vegar skoðaðir komi í
ljós að fimm þeirra séu með ör-
orkubyrði á bilinu 40–50% og sjö
sjóðir séu á bilinu 30–40%.
„Það er alveg ljóst að staða þess-
ara sjóða verður jafnan verulega
lakari verði þetta stóra vandamál
ekki leyst með sértækum aðgerð-
um.“
Þórir sagðist telja mjög mikil-
vægt að þetta mál verði skoðað ít-
arlega. Margar leiðir komi til skoð-
unar, þ.á.m. að flytja örorku-
lífeyrinn alfarið til almannatrygg-
inga, stofna sérstaka tryggingar-
einingu lífeyrissjóðanna, sem kosti
lagabreytingu og sé flókið mál, eða
hækka iðgjöld hjá þeim sjóðum
sem hafa óvenjulega háa örorkulíf-
eyrisbyrði. Það verði væntanlega
einungis ákveðið í kjarasamning-
um.
Lífeyrissjóðagreiðslur fram úr
bótum almannatrygginga
Þórir sagði að nú sé svo komið
að greiðslur lífeyrissjóðanna séu
komnar fram úr lífeyrisbótum al-
mannatrygginga og hlutfalla þeirra
sem hafi engar aðrar tekjur en
greiðslur Tryggingastofnunar hafi
lækkað verulega á umliðnum árum.
Það stafi fyrst og fremst af fjölgun
þeirra sem fái greiðslur frá lífeyr-
issjóðum. Í hlutfalli við landsfram-
leiðslu hafi lífeyrisútgjöld lands-
manna vaxið úr 3,9% á árinu 1990 í
5,6% á árinu 2001. Þessi þróun
muni halda áfram á næstu árum og
áratugum, því enn eigi lífeyrissjóð-
irnir eftir um 15–20 ár þar til þeir
öðlist fulla greiðslugetu eins og til-
greint sé í skuldbindingum þeirra.
Góður árangur í
erlendum samanburði
Þórir greindi frá því að árið 2002
hafi verið íslenskum lífeyrissjóðum
á ýmsan hátt erfitt og þriðja árið í
röð sem meðalávöxtun þeirra var
neikvæð. Hann sagði að þó svo að
meðalávöxtun lífeyrissjóða hafi
orðið neikvæð í fyrra, væntanlega
á bilinu 2–3%, þá standist þeir
fyllilega samanburð við lífeyrissjóði
í öðrum löndum. Hann nefndi sem
dæmi neikvæða raunávöxtun lífeyr-
issjóða í Bretlandi upp á um 17%, í
Japan og Bandaríkjunum um 10%
og Sviss um 9%. Sagði Þórir að ár-
angur íslenskra lífeyrissjóða sé
staðreynd sem eigi að hampa
meira en nú sé gert. Íslenskir líf-
eyrissjóðir hafi raunverulega sýnt
mjög mikla færni og fyrirhyggju í
verðbréfaviðskiptum sínum. Sam-
anburðurinn við lífeyrissjóði í öðr-
um löndum staðfesti það.
Fram kom í máli Þóris að heild-
areignir lífeyrissjóðanna í landinu
um síðustu áramót voru um 677
milljarðar króna. Þar af námu er-
lendar eignir sjóðanna 104 millj-
örðum, eða rúmum 15%, sem er
lækkun frá fyrra ári um 31 millj-
arð, eða 23%. Heildareignir jukust
um 5% á síðasta ári samanborið við
tæp 14% árið áður og rúm 9% á
árinu 2000. Sagði Þórir að aukn-
ingin á síðasta ári hafi verið sú
minnsta sem mælst hefur í meira
en tvo áratugi. Hrein eign lífeyr-
issjóðanna í landinu í árslok 2002
hafi svarað til tæplega 87% af
landsframleiðslu, sem sé nánast
það sama og næstu þrjú árin þar á
undan, en áður hafi hlutfallið verið
stöðugt vaxandi.
Benedikt Jóhannesson, fram-
kvæmdastjóri Talnakönnnar hf., og
Þórólfur Árnason, borgarstjóri í
Reykjavík og fyrrverandi formaður
stjórnar Lífeyrissjóðs verkfræð-
inga, fluttu erindi á aðalfundinum í
gær, og fjölluðu um ímynd og sér-
stöðu íslensku lífeyrissjóðanna.
Benedikt sagðist býsna ánægður
með lífeyrissjóðakerfið hér á landi
svo og lífeyrissjóðina. Mjög mikið
hafi breyst í þessum efnum frá því
við upphaf síðasta áratugar síðustu
aldar. Til að bæta ímynd sjóðanna
þurfi að styrkja stöðu þeirra með
jákvæðri ávöxtun. Þeir verði að
hafa skýra stefnu um fjárfestingar
og aðkomu að stjórnum fyrirtækja.
Þeir eigi að vera virkir en ekki
koma beint að stjórn fyrirtækja.
Þá sagði hann að það verði að
hleypa sjóðfélögum að stjórnum líf-
eyrissjóða þannig að einhverjir
stjórnarmenn séu kosnir beint. Að
endingu nefndi hann að það verði
að leggja af skylduaðild að
ákveðnum lífeyrissjóðum.
Nýr stjórnarformaður
Friðbert Traustason, formaður
Sambands íslenskra bankamanna
og stjórnarmaður í Lífeyrissjóði
bankamanna, var kosinn formaður
stjórnar Landssamtaka lífeyris-
sjóða á aðalfundi samtakanna í
gær. Hann tekur við af Þóri Her-
mannssyni, sem er frá Lífeyris-
sjóðnum Lífiðn. Þórir hefur verið
formaður frá stofnun samtakanna
eða í tæp fjögur og hálft ár en
hann gaf ekki lengur kost á sér til
formennsku.
Verri staða lífeyrissjóða rædd á aðalfundi Landssamtaka lífeyrissjóða
Neikvæðri ávöxtun
verði snúið við
Morgunblaðið/Arnaldur
Borgarstjórinn í Reykjavík, Þórólfur Árnason, ásamt Hrafni Magnússyni,
framkvæmdastjóra Landssamtaka lífeyrissjóða, og Þóri Hermannssyni,
fráfarandi formanni stjórnar samtakanna.
rænna viðskipta við tryggingafélög, ferðaskrif-
stofur og önnur gagnvirk þjónustufyrirtæki, að
því er fram kemur í fréttatilkynningu sem gefin
var út á fundinum.
Þjónustufulltrúinn í myndsíma
Á meðal nýjunga sem felast í Albankanum er
að hægt er að komast í beint myndsímasamband
við þjónustufulltrúann sinn í bankanum. Ef þörf
er á þjónustufulltrúa er hægt að styðja á hnapp
og hringja í nafngreindan fulltrúa og tala við
hann í gegnum myndsíma, en á skjánum birtist
mynd í rauntíma af þjónustufulltrúanum og hann
sér einnig viðskiptavininn þar sem hann stendur í
skjástandinum.
Einar S. Einarsson segir að þessi lausn, að gera
þjónustufulltrúa og viðskiptavini kleift að horfast
í augu yfir Internetið, færi hin mannlegu tengsl
aftur inn í bankaviðskiptin, en fjármálastofnanir
hafa að hans sögn bent á að með aukinni notkun
netbanka hafi þær misst sjónar af mörgum við-
skiptavinum, en með gagnvirku myndsímum
Í GÆR tók danski bankinn Andelskassen í gagnið
nýja gerð þjónustuskjástanda, nokkurs konar
mannlaus bankaútibú, sem byggjast á íslensku
hugviti og tæknilausnum frá íslensk-bandaríska
fyrirtækinu, Allbank International á Íslandi.
Skjástandarnir sem kallast Albankar og eru net-
tengdir tölvuturnar búnir snertiskjá, myndsíma,
posa, prentara og öðrum búnaði, eru alls tíu tals-
ins, staðsettir í Grindsen og Öse á Jótlandi.
Einar S. Einarsson, starfandi stjórnarformað-
ur Allbank, sagði á blaðamannafundi sem hald-
inn var í tilefni opnunarinnar að Allbank hyggist
selja Albankana sem víðast og hafa þeir verið
kynntir hér heima og erlendis. Hann sagði að við-
tökur hefðu verið góðar og samningaviðræður
stæðu yfir við stóra aðila erlendis um kaup á
lausninni, auk þess sem íslenskir bankar hefðu
sýnt áhuga.
Í skjástöndunum getur fólk tengst sínum við-
skiptabanka á Netinu, sama hvaða banki það er,
og gert sín viðskipti í gegnum hann. Jafnframt
getur standurinn nýst til upplýsingaleitar og raf-
Albankans verði þeir aftur „sýnilegir“.
Hann sagði að Albankinn væri einkar hentug
lausn til að setja upp í nágrenni við stóra vinnu-
staði, þjónustumiðstöðvar, verslunarkjarna, há-
hýsi og smærri sveitarfélög, eða á stöðum þar
sem fólk hefði ekki aðgang að heimabanka í
gegnum einkatölvuna. Hann sagði að standurinn
leiddi til minni fjarvista fólks frá vinnu, aukins
hagræðis, öryggis og til mikils tímasparnaðar
fyrir alla.
Að sögn Einars er á döfinni að setja upp þrjá
þjónustustanda hér á landi; í Landspítalanum,
hjá Íslenskri erfðagreiningu og í Vöruhóteli Eim-
skips í Sundahöfn, allt fjölmennum vinnustöðum.
Einar sagði að fyrirtækið og framleiðslan
hingað til hefði eingöngu verið fjármögnuð af
eigin fé sem einkaaðilar hefðu lagt til, fyrir utan
40% sem væru í eigu C-target, hugbúnaðarfyr-
irtækis í eigu tæknilegs framkvæmdastjóra All-
bank, Gunnlaugs Jósefssonar, en C-target er
einnig samstarfsaðili Allbank við gerð
Albankans.
Íslensk „mannlaus“
bankaútibú í Danmörku
KAUPHÖLLIN í Svíþjóð, OM, hefur
keypt Hex, sem rekur kauphallir í
Finnlandi, Eistlandi og Lettlandi.
Ætlunin er að sameina fyrirtækin
undir nafninu OM Hex og úr verður
sjöunda stærsta kauphöll Evrópu
mælt í veltu, að því er fram kemur í
sænska dagblaðinu Dagens Industri.
Greiðslan fer fram með hlutafé í OM
og munu eigendur OM eiga um 71% í
sameinuðu fyrirtæki, en 29% koma í
hlut eigenda Hex.
Þórður Friðjónsson, forstjóri
Kauphallar Íslands, segir að þetta
skref sem kauphallirnar tvær eru að
taka sé gríðarlega mikilvægt þegar
litið sé til framtíðar. Þetta sé fyrirboði
þess sem eigi eftir að verða í framtíð-
inni því framundan sé samrunaþróun
og aukin samvinna kauphalla. Hann
leggur áherslu á mikilvægi þess fyrir
Ísland að hafa aðgang að stærra
markaðssvæði í gegnum þessa sam-
vinnu norrænu kauphallanna.
Kauphöll Íslands er aðili að
NOREX-samstarfinu ásamt OM og
fleiri kauphöllum á Norðurlöndum,
en finnska kauphöllin hefur ekki verið
þátttakandi í því samstarfi. Þórður
segir að þegar sé farið að íhuga frek-
ari þróun þessa samstarfs. Þeir sem
vilji ganga lengst vilji sameiningu
allra kauphalla Norðurlanda og
Eystrasaltslanda, en aðrir vilji
byggja á NOREX-samstarfinu og
tryggja þannig að þetta markaðs-
svæði verði ein heild.
Þórður segir að Kauphöll Íslands
hafi haft skýra afstöðu til þessa, hún
hafi viljað að svæðið allt væri einn
markaður en að kauphallirnar séu að
öðru leyti sjálfstæðar. Ekki sé þó loku
fyrir það skotið að þessi afstaða kunni
að breytast, því hún sé meðal annars
háð því hver þróunin verði.
Dagens Industri hefur eftir Magn-
us Böcker, sem verður framkvæmda-
stjóri sameinaðs félags en er nú að-
stoðarframkvæmdastjóri OM, að
miklu skipti að sameinaðar verði
kauphallirnar mun eftirsóknarverð-
ari samstarfsaðili fyrir aðrar kaup-
hallir, bæði í og utan Evrópu. Þá er
haft eftir Böcker að umtalsverð sam-
legðaráhrif séu fyrir hendi og að sam-
einuð kauphöll verði eftirsóknarverð-
ari markaður fyrir skráð fyrirtæki og
muni eiga auðveldara með að afla
nýrra skráninga.
Í Financial Times kemur fram að
árlegur sparnaður vegna samruna
þessara tveggja stærstu kauphalla á
Norðurlöndum sé áætlaður um þriðj-
ungur af rekstrarkostnaði Hex, en
kostnaður vegna samrunans nemi um
tvöföldum árlegum sparnaði.
Kaupþing banki hf. er skráður í
OM-kauphöllinni, jafnframt skrán-
ingu félagsins í Kauphöll Íslands.
Sænska og
finnska
kauphöllin
sameinast
HAGNAÐUR Orkuveitu
Reykjavíkur, OR, á fyrstu
þremur mánuðum þessa árs
nam 1.094 milljónum króna.
Tekjur námu alls 3.110 millj-
ónum, sem er 11% aukning frá
sama tímabili í fyrra.
Rekstrarhagnaður Orkuveit-
unnar fyrir afskriftir og fjár-
magnsliði (EBITDA) var 1.067
milljónir og veltufé frá rekstri
var 921 milljón.
Eigið fé Orkuveitunnar 31.
mars síðastliðinn var 39,1
milljón króna og eiginfjárhlut-
fall 60,5%.
Hagnaður
OR tæpur
1,1 millj-
arður