Morgunblaðið - 21.05.2003, Side 14
ERLENT
14 MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Andstæðingum
evrunnar í Bret-
landi virðist hafa
fjölgað að undan-
förnu, að minnsta
kosti ef marka
má nýja skoðana-
könnun sem birt
var í dagblaðinu
The Guardian í
gær. Sýnir könn-
unin að 45% breskra kjósenda eru
nú staðráðin í því að greiða atkvæði
gegn upptöku evrunnar, sem er
sameiginlegur gjaldmiðill Evrópu-
sambandsríkjanna.
Breski fjármálaráðherrann,
Gordon Brown, sagði um helgina að
ríkisstjórn Verkamannaflokksins
væri í meginatriðum enn þeirrar
skoðunar að Bretland ætti að ger-
ast aðili að Efnahags- og mynt-
bandalagi Evrópu (EMU), og taka
þar með upp evruna. Þetta skref
yrði þó ekki tekið nema menn væru
orðnir sannfærðir um að upptaka
evrunnar hefði jákvæð áhrif á
breskan efnahag.
Er þess nú beðið að breska
stjórnin tilkynni ákvörðun sína um
það hvort hún telji rétt að mæla
með inngöngu í EMU og að tíma-
bært sé orðið að halda þjóðarat-
kvæðagreiðslu um upptöku evrunn-
ar. Ákvörðunin verður kunngerð 9.
júní nk. en undanfarið hefur þó ver-
ið fullyrt í breskum fjölmiðlum að
þeir Brown og Tony Blair forsætis-
ráðherra hafi þegar komist að
þeirri niðurstöðu að rétt sé að bíða
enn um stund.
Telja inngöngu
óhjákvæmilega
Sem fyrr segir hafa 45% breskra
kjósenda þegar gert upp hug sinn
um að greiða atkvæði gegn upptöku
evrunnar, þ.e. ef marka má nið-
urstöður könnunar The Guardian.
14% til viðbótar eru mótfallin því að
taka upp evruna en útiloka þó ekki
að hægt verði að telja þeim hug-
hvarf. Aðeins 19% eru staðráðin í
að samþykkja inngöngu í EMU,
skv. könnuninni, en 9% til viðbótar
segjast hlynnt inngöngu þó að við-
komandi útiloki ekki að þeir skipti
um skoðun hvað það varðar. 13%
hafa ekki gert upp hug sinn.
Vekur hins vegar athygli að
könnunin sýnir að 54% breskra
kjósenda telja óhjákvæmilegt að
innan tíu ára verði Bretland búið að
taka evruna upp sem gjaldmiðil.
Afstaða evru-
andstæðinga
harðnar
London. AFP.
Gordon Brown
LÍKLEGT er að bráðalungnabólgan,
HABL, eigi eftir að verða fleira fólki
að aldurtila síðar á árinu þótt nú virð-
ist sóttin í rénun víðast hvar, að sögn
Tommy Thompsons, heilbrigðismála-
ráðherra Bandaríkjanna. Hann sagð-
ist á blaðamannafundi í Brussel í gær
efast um að Evrópa og Bandaríkin
myndu sleppa við dauðsföll af völdum
veikinnar. „Ég held að það eigi eftir að
gerast,“ sagði ráðherrann. Thompson
sagði að ferðalög milli heimsálfa væru
orðin svo algeng að gera yrði ráð fyrir
því að einhvern tíma bærist nýja veir-
an til Evrópu.
Taívan er eina ríkið þar sem HABL
virðist enn vera að sækja í sig veðrið.
Þar var í gær skýrt frá 39 nýjum til-
fellum og 12 dauðsföllum en alls hafa
þá dáið 52 í eyríkinu. Um 90% tilfell-
anna hafa orðið á sjúkrahúsum þar
sem margt starfsfólk hefur hætt til að
mótmæla því að fá ekki nægilega
vernd gagnvart smiti. Tveimur spítöl-
um var lokað í apríl vegna þess hve
margir reyndust vera smitaðir af nýju
veirunni þar. Stjórnvöld á Taívan hafa
sætt gagnrýni fyrir að framfylgja ekki
af nægilegri hörku reglum um sóttkví.
HABL eða heilkenni alvarlegrar og
bráðrar lungnabólgu, kom fyrst upp í
Guangdong-héraði í sunnanverðu
Kína í nóvember sl. Ekki hefur fundist
neitt lyf gegn sjúkdómnum og heldur
ekki traust aðferð til að greina hann á
frumstigi, jafnvel smitleiðir eru ekki
fyllilega ljósar. Líkur eru samt á því að
veiran berist með svonefndu dropas-
miti milli manna. Efnahagslegar af-
leiðingar sjúkdómsins eru þegar orðn-
ar miklar, einkum hafa flugfélög og
fyrirtæki í ferðaþjónustu orðið illa úti.
Bandaríkjastjórn varar fólk enn við að
ferðast til Kína, Hong Kong og Taív-
an.
Rangar tölur frá Kína?
Rösklega 600 manns hafa nú látist
úr sjúkdómnum í heiminum, langflest-
ir þeirra í Austur-Asíu. Kínverjar
segja að þar í landi hafi alls 294 látið
lífið og í Hong Kong, sem nýtur sjálf-
stjórnar innan Kína, eru dauðsföllin
orðin 253. En jafnt Kínastjórn sem yf-
irvöld í Hong Kong segja að allt bendi
til þess að þau séu að ná stjórn á út-
breiðslunni og í Kína voru aðeins
greind 17 ný tilvik og fimm dauðsföll í
gær.
Embættismenn í höfuðborg Kína,
Peking, segja að nýjum tilfellum hafi
snarfækkað og segja þeir að svo virð-
ist sem sóttkví og aðrar ráðstafanir til
að draga úr smithættu séu nú farnar
að virka.
En fulltrúar Alþjóðaheilbrigðis-
málastofnunarinnar, WHO, hafa látið í
ljós efasemdir og segja þessa þróun í
Kína vera í ósamræmi við það sem
gerst hafi annars staðar. „Sérfræðing-
ar ... hafa áhyggjur af því að hlutfall
nýrra tilfella geti verið talið lágt vegna
þess að ný tilvik séu nú færð ýmist í
undirflokkana líklegt, grunsamlegt
eða til frekari könnunar,“ segir í nýrri
yfirlýsingu frá WHO. Fyrstu mánuð-
ina eftir að veiran fór að herja í Guang-
dong er talið að kínversk stjórnvöld
hafi reynt markvisst að þagga út-
breiðslu sjúkdómsins niður.
Kínverjar segja
HABL í rénun
Sérfræðingar WHO efast um að töl-
urnar um útbreiðslu í Kína séu réttar
Taipei, Brussel. AFP.
KÍNVERSKUR maður flýr úr brennandi leikfanga-
verksmiðju í útjaðri Hangzhou, höfuðborgar Zheji-
ang-héraðs, í gær. Fjöldi verkamanna slasaðist í eld-
inum sem fylgdi í kjölfar mikillar sprengingar sem
varð í verksmiðjunni. Orsök sprengingarinnar er
óþekkt.
Reuters
Á hlaupum undan eldsvoða
ÖRLÖG Yassers Arafats í hlutverki
sínu sem leiðtogi Palestínumanna
virtust í gær hanga á bláþræði eftir að
fimm sjálfsmorðssprengjuárásir
gegn ísraelskum borgurum, sem 17
manns létu lífið í, voru framin á tveim-
ur sólarhringum.
Framtíð Mahmoud Abbas í emb-
ætti forsætisráðherra heimastjórnar
Palestínumanna virtist einnig óljós.
George W. Bush Bandaríkjaforseti
lagði á það áherzlu í fyrsta símasam-
tali sínu við hinn hófsama Abbas, að
hann vænti þess að hann gerði allt
sem í sínu valdi stæði til að hindra
hryðjuverkastarfsemi herskárra
hópa Palestínumanna, sem ábyrgð
bæru á sprengjutilræðum síðustu
daga.
Bush fullvissaði Abbas hins vegar
einnig um stuðning Bandaríkja-
stjórnar við áformin um að koma á
sjálfstæðu ríki Palestínumanna árið
2005. Bush hefur alveg sniðgengið
Arafat, rétt eins og ísraelskir ráða-
menn, vegna ásakana um að hann við-
haldi tengslum við öfgahópa sem beri
ábyrgð á hryðjuverkum.
Í sjónvarpsviðtali lýsti Abbas hins
vegar yfir stuðningi við Arafat sem
lögmætan leiðtoga Palestínumanna
og sakaði Ísraela um að reyna að
ósekju að gera Arafat að blóraböggli.
Einn æðsti talsmaður Sameinuðu
þjóðanna í málefnum Mið-Austur-
landa, Norðmaðurinn Terje Rød-Lar-
sen, sagði á blaðamannafundi í höf-
uðstöðvum samtakanna í New York
að Abbas myndi falla af stalli ef ekki
tekst að binda enda á hryðjuverkaöld-
una og slaki ísraelsk stjórnvöld ekki á
ferðabanninu á íbúa heimastjórnar-
svæðanna. Félli heimastjórnin, sem
var mynduð fyrir aðeins þremur vik-
um, myndi það setja hinn svokallaða
Vegvísi að friði í Mið-Austurlöndum í
uppnám og gera hryðjuverkaölduna
algerlega óviðráðanlega, að sögn
Rød-Larsens.
Ísraelska lögreglan og herinn juku
enn eftirlit í borgum og bæjum lands-
ins og við landamærin í gær. Allt eft-
irlitið dugði þó ekki til að hindra Hiba
Daraghmeh, nítján ára gamla palest-
ínska stúlku, sem var í háskólanámi í
enskum bókmenntum, í að sprengja
sjálfa sig í loft upp í verzlanamiðstöð í
bænum Afula norðarlega í Ísrael á
mánudag. Hún dró þrjá nærstadda
með sér í dauðann.
Bæði Jihad-samtökin og Al-Aqsa-
píslarvottarnir, herská „dóttursam-
tök“ Fatah-hreyfingar Arafats, lýstu
yfir ábyrgð á verknaði stúlkunnar.
Síðustu fjórum tilræðunum á undan
þessu nýjasta lýstu hins vegar Ha-
mas-samtökin á hendur sér.
„Árásaaldan hefur ekki náð há-
marki enn og mun halda áfram,“ lét
háttsettur öryggismálafulltrúi Ísr-
aelsstjórnar hafa eftir sér í útvarpi í
gær.
Þrýst á Arafat og Abbas
Bush Bandaríkjaforseti ræðir í síma
við palestínska forsætisráðherrann
Jerúsalem. AP, AFP.
Reuters
Mahmoud Abbas, hinn nýi forsætis-
ráðherra Palestínumanna.
JAVIER Solana, utanríkismálastjóri
Evrópusambandsins (ESB), segir að
aðildarríkin eigi enn margt ógert á
sviði hermála þótt nú liggi fyrir að
hraðlið sambandsins teljist fært til
að sinna friðargæsluverkefnum, eftir
því sem greint er frá á fréttavef
BBC.
Skýrt var frá því í Brussel á mánu-
dag að 60.000 manna liðsafli þessi
gæti nú látið til sín taka þrátt fyrir
að enn sé mikið starf óunnið áður en
liðsaflinn getur talist raunverulega
vígbúinn. „Enn er mikið starf óunnið
og því þarf að hraða eins og kostur
er,“ sagði Solana í Brussel á mánu-
dag.
Varnarmálaráðherrar Evrópu-
sambandsins eru sagðir sama sinnis.
Nefnt er að enn fari því fjarri að her-
liðið geti látið til sín taka með
skömmum fyrirvara en sú hugsun
liggur til grundvallar stofnun þess.
Þá þykir geta þess til að verjast,
harðni bardagar snögglega þar sem
því hefur verið fengið það hlutverk
að stilla til friðar, afar takmörkuð.
Loks er nefnt að ekki sé unnt að
beita hraðliðinu á tveimur stöðum
samtímis.
Fyrsta hernaðaraðgerðin í nafni
Evrópusambandsins er nú hafin, en
þar ræðir um fámennt friðargæslulið
í Makedóníu. Sambandið vonast
einnig eftir því að taka við friðar-
gæslu í Bosníu á næsta ári.
Almenn sátt ríkir því innan Evr-
ópusambandsins um að aðildarríkin
þurfi að efla hernaðargetu sína. Á
hinn bóginn er deilt um framtíðar-
stefnu sambandsins á vettvangi ör-
yggis- og varnarmála. Nýja hraðliðið
mun eiga náið samstarf við NATO og
tengjast höfuðstöðvum þess.
Evrópska hraðliðið
tilbúið en vanmáttugt
FYRSTA tilfelli kúariðu sem
fundist hefur í Norður-Amer-
íku í áratug greindist í Toronto
í Kanada í gær, að því er þar-
lendir embættismenn tilkynntu
í gær. Bandaríkjastjórn bann-
aði tafarlaust innflutning á
nautgripum, nautakjöti, vörum
sem nautakjöt finnst í og dýra-
fóðri frá Kanada.
Landbúnaðarráðherra Kan-
ada, Lyle Vanclief, greindi frá
því á blaðamannafundi í gær
að kú á bóndabýli í Alberta
hefði verið slátrað hinn 31. jan-
úar sl. vegna gruns um
lungnabólgusmit. Hefðbundn-
ar athuganir gátu hins vegar
ekki útilokað að um kúariðu-
smit hefði verið að ræða og
frekari rannsóknir á Englandi
staðfestu greininguna. „Hjörð-
in hefur verið sett í einangrun
og rakið hvað varð um dýrið.
Það lenti ekki í fæðukeðjunni,“
sagði Vanclief.
Kúariða hefur aldrei komið
upp í bandarískum nautgripum
þrátt fyrir ítarlegar athuganir
og til þess að koma í veg fyrir
slíkt bannar bandaríska ríkis-
stjórnin innflutning á kjöti og
búpeningi frá löndum þar sem
kúariðusmits hefur orðið vart.
Kúariða
greinist í
Kanada
Toronto. AP.