Morgunblaðið - 21.05.2003, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 21.05.2003, Qupperneq 18
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 18 MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ HESTAMIÐSTÖÐIN Hindisvík í Mosfellsbæ segir sveitarfélagið ívilna öðrum reiðskóla í bænum svo mjög að samkeppnisstaða fyrirtæk- isins sé alvarlega skekkt. Segir mið- stöðin ívilnanirnar m.a. í formi styrks og ókeypis vinnuafls sem bærinn útvegi samkeppnisaðilanum á meðan stuðningur bæjarins við Hindisvík sé enginn. Bæjarstjóri segir mögulegt að með þessu sé sam- keppnisstaða skekkt og málið verði skoðað fyrir næsta starfsár. Í bréfi frá Hindisvík kemur fram að fyrirtækið stendur m.a. fyrir reið- námskeiðum fyrir börn á sumrin líkt og tveir aðrir aðilar í bæjarfélaginu. Mosfellsbær aðstoði hins vegar á ólögmætan hátt annan þeirra, Reið- skóla Harðar, með margvíslegum hætti. Nokkur atriði eru sérstaklega til- greind í þessu sambandi. Í fyrsta lagi styrki bærinn Reiðskóla Harðar um 150 þúsund krónur á hverju sumri til reksturs síns. Þá komi allt aðstoðarfólk skólans úr vinnuskólan- um, honum að kostnaðarlausu. Ókeypis aðstaða Í þriðja lagi telur fyrirtækið að mikill munur sé á kröfum bæjarins til þeirrar aðstöðu sem reiðskólarnir skuli hafa. Þannig sé öll aðstaða fyrir hendi í hestamiðstöð Hindisvíkur; reiðsalur, tvö salerni, sturtur og sér- matsalur fyrir börnin. Tveir full- orðnir og vanir hestamenn séu með hverjum hóp en allt starfsfólk sé kostað af hestamiðstöðinni. Reiðskóli Harðar notist hins vegar við lítinn skúr sem sé í eigu Reykja- lundar. Skúrinn sé nýttur fyrir reið- tygi og annað en þar sé hvorki sal- ernisaðstaða, rennandi vatn né rafmagn. Rekstraraðilinn sé eini starfsmaðurinn sem sé vanur hesta- maður en aðrir starfskraftar komi úr vinnuskólanum eins og fyrr segir. Segir í bréfi Hindisvíkur að sá stuðningur sem samkeppnisaðilinn fái með 150 þúsund króna styrk, fríu vinnuafli og ókeypis aðstöðu án fast- eignagjalda, rafmagns- eða hita- kostnaðar valdi því að hann geti selt sín námskeið langt undir því verði, sem hægt sé að keppa við á frjálsum markaði. Segir fyrirtækið sig aukin- heldur hafa vissu fyrir því að bæj- arskrifstofurnar hafi einungis bent á Reiðskóla Harðar síðastliðið sumar þegar fólk sneri sér þangað eftir upplýsingum um reiðskóla í bæjar- félaginu. Í lok bréfsins bendir fyrirtækið á lagagreinar sem það telur bæinn brjóta með ívilnunum sínum. Er þess krafist að bærinn láti af aðstoðinni svo að hún hamli ekki samkeppnis- stöðu Hindisvíkur á markaðinum. Hluti af samningi við íþróttafélög bæjarins Að sögn Ragnheiðar Ríkharðs- dóttur bæjarstjóra er styrkveitingin til Reiðskóla Harðar komin til með þeim hætti að bæjarfélagið hafi und- anfarin ár gert samstarfssamning við íþróttafélögin í bænum, þar á meðal hestamannafélagið, um að sinna ákveðnu barna og unglinga- starfi. „Reiðskóli Harðar er í raun hluti af því starfi því rekstraraðili skólans vinnur sem verktaki á vegum hesta- mannafélagsins. Þess vegna höfum við styrkt fyrirtækið um 150 þúsund krónur auk þess sem við heimiluðum að tveir unglingar úr vinnuskólanum kæmu inn til aðstoðar,“ segir hún. Hún segir að þegar rekstraraðili Hindisvíkur hafi komið á hennar fund á dögunum vegna málsins hafi honum verið boðið að fá unglinga úr vinnuskólanum til aðstoðar en hann hafi ekki þegið það. Hvað varðar aðstöðumálin segir Ragnheiður að ekki sé verið að bera saman sambærilegan rekstur. „Hindisvík er með stórt og mikið hesthús þar sem einnig er reiðsalur til námskeiðahalds hvort heldur er á vetri eða sumri og við leigjum af hon- um þessa aðstöðu frá 15. desember til 15. maí. Það er að sjálfsögðu gerð krafa um að þar sé hreinlætisað- staða. Reiðskóli Harðar hefur hins vegar aðgengi að salernum í félags- heimili hestamannafélagsins sem er rétt ofan við þetta litla geymsluhús sem hann hefur til afnota.“ Hún segir málið verða athugað nánar hjá bæjarfélaginu. „Það kann vel að vera að strangt til tekið þá skekki þetta samkeppnisstöðu og það er bara eitt af því sem við mun- um skoða. Svona hefur þetta verið undanfarin ár og við einfaldlega héldum áfram á sama hátt. Við mun- um að sjálfsögðu í kjölfar þessa bréfs skoða þetta fyrir næsta starfsár enda teljum við ekki að hægt sé að gera neitt að svo komnu fyrir sum- arið í ár.“ Hestamiðstöðin Hindisvík með erindi til bæjarráðs Segir bæinn skekkja sam- keppnisstöðu reiðskóla Mosfellsbær Morgunblaðið/Arnaldur Rekstraraðili Hestamiðstöðvarinnar Hindisvíkur segir Reiðskóla Harðar geta selt reiðnámskeið sín langt undir því verði sem hægt sé að keppa við á frjálsum markaði vegna aðgerða bæjarins. Myndin tengist ekki málinu. FRESTUR til að skila inn athuga- semdum vegna mats á umhverfis- áhrifum færslu Hringbrautar renn- ur út í dag. Fresturinn átti að renna út hinn 9. maí síðastliðinn en var framlengdur að ósk framkvæmda- raðila. Að sögn Óla Halldórssonar, sviðs- stjóra hjá Skipulagsstofnun, höfðu aðeins þrjú athugasemdabréf borist á hádegi í gær en á bak við þau væru nokkuð fleiri einstaklingar. Hann segir að Vegagerðin og Reykjavík- urborg hafi óskað eftir því að at- hugasemdafrestur yrði framlengdur um tvær vikur, eða til dagsins í dag, þar sem kynningarfundur var hald- inn í síðustu viku. Ákvað Skipulags- stofnun að verða við þeirri ósk. Hægt er að kynna sér efni mats- skýrslunnar á heimasíðu Skipulags- stofnunar, www.skipulag.is og hjá Vegagerðinni en hægt er að skila inn athugasemdum í gegnum tölvupóst til miðnættis í kvöld eða skriflega til Skipulagsstofnunar fyrir lokun í dag. Mat á umhverfisáhrifum færslu Hringbrautar Frestur til að skila athuga- semdum rennur út í dag Hringbraut ÍBÚAR í Túnum í Garðabæ safna þessa dagana undirskriftum til að mótmæla því að hljóðmön verði reist meðfram Silfurtúni sem skerðir út- sýni þeirra í átt að Arnarnesvogi. Þeir segja að ekki hafi verið haft samráð við alla íbúa áður en ráðist var í framkvæmdirnar en langflestir þeirra vilji frekar hafa útsýnið en bætta hljóðvist ef velja þurfi á milli. Um vika er síðan hafist var handa við að byggja hljóðmönina, sem á að varna því að hávaði frá Hafnarfjarð- arvegi fari yfir tilskilin mörk í hverf- inu. Að sögn Birnu Baldursdóttur, sem býr við Aratún, virðast um 80 prósent íbúa í hverfinu hafa skrifað undir mótmæli vegna hljóðmanar- innar enda flestir vægast sagt óhressir með framtakið. „Ég hef haft heilt málverk hér fyr- ir framan mig í 40 ár sem nú er að hverfa. Ég missi allt útsýni og sumir fara hreinlega á kaf því það er bein- línis dimmt inni í fremsta húsinu í götunni.“ „Verulegur yfirgangur“ Þá hafi framkvæmdin verið lítið sem ekkert kynnt íbúum. „Íbúar tveggja fremstu húsanna í hverri götu voru boðaðir til fundar fyrir ári á bæjarskrifstofunum en hinir ekki. Svo bara einn góðan veðurdag var verið að grafa upp úr grunni hér uppi í skóla og jarðveginum dembt hérna fyrir framan okkur. Okkur finnst af- skaplega illa að þessu staðið. Þetta er ekki bara skipulagsbreyting heldur umhverfisspjöll og verulegur yfir- gangur hjá bæjarstjórninni að kynna þetta ekki íbúum. Það er það minnsta sem þeir hefðu getað gert.“ Að mati hennar er ekki þörf á slík- um aðgerðum hávaðans vegna. „Maður vill heldur fá útsýnið. Eflaust er hávaði hérna en það er misjafnt hvað fólk þolir og er vant. Ég er búin að búa hér í 40 ár og hef aldrei kvart- að og sef ágætlega þrátt fyrir hávað- ann.“ Hún telur meirihluta íbúa á sama máli og þeir vilji heldur útsýnið en bætta hljóðvist. Birna á von á að undirskriftirnar verði afhentar á næstu dögum en enn á eftir að ganga í nokkur hús í hverf- inu. Bænum skylt að verja íbúana fyrir hávaðanum Ásdís Halla Bragadóttir, bæjar- stjóri í Garðabæ, segir skiptar skoð- anir meðal íbúanna um hvort mönin sé æskileg eða ekki og margir fagni því að mönin sé loksins komin. „Íbúar í hverfinu hafa á undanförnum árum margir hverjir óskað eftir því að gerð verði hljóðmön. Þær mælingar sem við höfum látið gera í hverfinu og meðfram Hafnarfjarðarveginum sýna að við hluta Silfurtúnsins fer há- vaðinn yfir 65 desibel og samkvæmt lögum og reglugerðum ber okkur að verja íbúana fyrir svo mikilli hljóð- mengun.“ Hún segir málið hafa átt sér tölu- verðan aðdraganda. „Við gerðum okkur grein fyrir því að það væru skiptar skoðanir meðal íbúanna og ég skil mjög vel að ákveðnir íbúar skuli vera ósáttir vegna þess að útsýni þeirra skerðist.“ Hún bendir þó á að mönin muni einungis standa við hluta Silfurtúnsins en ekki meðfram því öllu eins og sumir virðist halda. Þá verði hún einnig lægri fullfrágengin en hún er nú þar sem jarðvegurinn í henni eigi eftir að þjappast. Varðandi kynningu á hljóðmöninni segir Ásdís að farið hafi verið yfir málið með íbúum tveggja fremstu húsaraðanna meðfram Silfurtúninu. – En var það fullnægjandi að kalla aðeins íbúa tveggja neðstu húsarað- anna til fundarins? „Samkvæmt því umhverfi sem við höfum starfað í til þessa hafa hljóð- manir í eldri hverfum ekki farið í deiliskipulagsvinnu og það er alveg ljóst að þetta þarf ekki að fara í um- hverfismat eða neitt slíkt,“ segir Ás- dís. „Það sem við ætlum að gera núna er að boða til annars opins fundar þar sem við förum nákvæmlega yfir það hvernig mönin verður, hvernig hún mun liggja í landinu, hæð hennar og lengd og það ætlum við að gera á næstu dögum.“ Íbúar í Túnum mótmæla nýrri hljóðmön við Silfurtún Vilja fremur útsýni en bætta hljóðvist Morgunblaðið/Arnaldur Íbúar sem hafa mótmælt vilja fremur útsýnið en bætta hljóðvist. Bæj- arstjóri segir hins vegar marga íbúa fagna því að mönin sé nú komin. Garðabær BÆJARYFIRVÖLD í Garðabæ hafa ákveðið að setja upp skilti við allar aðkomuleiðir að Vífils- staðavatni til að hnykkja á því að umferð hunda við vatnið er bönnuð. Þrátt fyrir að um vatnsvernd- arsvæði sé að ræða hafa hundeig- endur talsvert komið með hunda sína að vatninu. Að sögn Erlu Biljar Bjarnadótt- ur, garðyrkjustjóra í Garðabæ, er stórt skilti við aðalhliðið að vatns- bólinu sem gefur til kynna að hundar séu bannaðir við vatnið. Hins vegar séu aðkomuleiðir að vatninu orðnar þrjár og því ekki alltaf sem fólk reki augun í þessi skilaboð þegar það leggi leið sína þangað. „Það er ekki gert ráð fyrir að hundar séu þarna, hvorki í bandi né lausir. Það er vegna vatnsvernd- arsjónarmiða og ekki síst af því að þetta er perla fuglanna og mikið varpland,“ segir hún. Engu að síður er talsvert um að fólk komi með hunda sína á svæðið. „Umferðin er líka orðin meiri með bættu aðgengi og stígurinn um- hverfis vatnið er mjög vinsæll,“ segir Erla Bil. „Hundafólk verður hins vegar að skilja að það verður að vera einhvers staðar annars staðar með hundana og umhverf- isnefnd vill hnykkja á því að þau skilaboð verði sett skýrar upp við vatnið og jafnvel með myndskýr- ingum.“ Hnykkt á banni við hunda- umferð Morgunblaðið/Arnaldur Einn og annar hvutti á það til að sækja Vífilsstaðavatn heim þótt umferð þeirra sé stranglega bönn- uð eins og skilti við aðkomuna að vatnsbólinu gefur til kynna. Garðabær Ný skilti sett upp við Vífilsstaðavatn ÞRÍR aðilar, Nýsir hf., Fjarðarmót ehf. og ÓB ráðgjöf ehf., munu að lík- indum taka þátt í útboði vegna rekst- urs leikskóla á Sjálandi í Garðabæ en bæjarráð samþykkti á síðasta fundi sínum að bjóða þeim þátttöku í út- boðinu. Eins og Morgunblaðið hefur greint frá er ekki um einkafram- kvæmd að ræða heldur er það ætlun bæjaryfirvalda að fá einkaaðila til að byggja og reka leikskólann sam- kvæmt samningi við Garðabæ. Samningurinn fæli í sér að bærinn borgaði fyrir börnin í skólanum líkt og gert hefur verið í öðrum einka- reknum leikskóla í bænum. Þetta er þó í fyrsta sinn sem bæjaryfirvöld fara þá leið að auglýsa sérstaklega eftir aðilum til að taka slíkt verkefni að sér. Fyrirtækin þrjú tóku þátt í forvali eftir auglýsinguna og hafa fulltrúar þeirra átt viðræður við bæjarverk- fræðing að undanförnu vegna máls- ins. Niðurstaða viðræðnanna er sem fyrr segir að gefa öllum þremur kost á að bjóða í verkefnið. Bryggjuhverfið Sjáland Þrír vilja byggja og reka leikskóla Garðabær

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.