Morgunblaðið - 21.05.2003, Síða 19
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2003 19
Fyrirlestraröð Kvennahlaups ÍSÍ
og samstarfsaðila Ísland á iði
Mataræði, offita og megrun
í kvöld, kl. 20 - 21:30 í fundarsal Íþrótta- og
Ólympíusambands Íslands, Íþróttamiðstöðinni
í Laugardal (3. hæð).
Breytingar á líkamsþyngd Íslendinga
Kynntar verða helstu niðurstöður úr nýrri rannsókn
Hjartaverndar.
Fyrirlesari: Vilmundur Guðnason,
forstöðulæknir Hjartaverndar.
Mataræði og megrun
Lögð er áhersla á heilbrigðan lífsstíl frekar en megrun
eða skyndiáhlaup á þyngdina. Átakskúrar eða einhæfir
megrunarkúrar geta skilað árangri í stuttan tíma, með
miklu erfiði, en um leið og kúrnum sleppir er hætta á
að þyngdin sæki í sama horf.
Fyrirlesari: Laufey Steingrímsdóttir,
næringarfræðingur, forstöðumaður Manneldisráðs.
Umsjón: Unnur Stefánsdóttir, formaður
Kvennahlaupsnefndar ÍSÍ.
Kvennahlaup ÍSÍ fer fram laugardaginn 21. júní á yfir 100 stöðum
hérlendis og erlendis. Nánari upplýsingar um gönguhópa,
fræðslufyrirlestra, myndir o.fl. á www.sjova.is.
TVÖ stærstu hreinlætisvörufyrir-
tæki landsins munu sameinast í eitt
1. júní næstkomandi, en um er að
ræða Mjöll hf. á Akureyri og Sápu-
gerðina Frigg í Garðabæ. Hvort fé-
lag um sig mun eiga helmingshlut í
hinu nýja sameinaða félagi sem hef-
ur fengið nafnið Mjöll-Frigg hf.
Þessi tvö félög eru þau elstu og rót-
grónustu í þessum iðnaði á landinu
og jafnframt hið langstærsta með
veltu upp á 7–800 milljónir króna á
ári og 6–7 milljón lítra framleiðslu á
hreinlætisvörum.
Baldur Guðnason, stjórnarfor-
maður hins nýja fyrirtækis, sagði
markmið sameiningarinnar það að
byggja upp stærsta og öflugasta
þjónustufyrirtæki í hreinlætisiðn-
aði, þ.e. í framleiðslu, sölu og þjón-
ustu fyrir neytenda-, fyrirtækja- og
stofnanamarkað hér á landi auk
þess að sækja inn á nýja markaði.
„Við munum leggja mikla áherslu á
þjónustu við markaðinn, að auka
hana og bæta, en einnig mun sam-
eining fyrirtækjannna bæta sam-
keppnisstöðu okkar gagnvart inn-
fluttum hreinlætisvörum og loks
sjáum við mikla möguleika til hag-
ræðingar á öllum sviðum,“ sagði
Baldur um markmið sameiningar
fyrirtækjanna tveggja.
Mjöll varð til árið 2001 við sam-
einingu þriggja fyrirtækja, hrein-
lætisvörudeildar Sjafnar á Akur-
eyri, Sáms í Kópavogi og Mjallar í
Reykjavík, en öll eiga fyrirtækin
sér langa sögu, Sjöfn var stofnuð
1932, Mjöll árið 1942 og Sámur
1969. Áður hafði Sámur keypt ann-
að fyrirtæki á hreinlætisvörumark-
aði, Hrein. Þannig má segja að nán-
ast öll félög á þessu sviði hér á landi
séu runnin saman í eitt. „Þetta er
ein af forsendum þess að fyrirtækið
geti vaxið og dafnað og tekið með
öflugum hætti þátt í samkeppni við
innfluttar hreinlætisvörur,“ sagði
Baldur.
Mjöll-Frigg verður með starfs-
stöðvar á Akureyri þar sem höf-
uðstöðvar þess verða og á höfuð-
borgarsvæðinu þar sem áhersla
verður einkum lögð á sölu- og
markaðsstarf. Nú eru starfsstöðv-
arnar á fjórum stöðum, þ.e. hvort
fyrirtæki er með rekstur á tveimur
stöðum en Baldur sagði að á næst-
unni yrði farið yfir stöðuna og skoð-
að hvaða starfsemi yrði á hverjum
stað, en ljóst að hún yrði ekki á
fjórum stöðum í framtíðinni.
Starfsmenn fyrirtækisins eru á
bilinu 40 til 50 talsins.
Þá má nefna að félagið, þ.e. Mjöll,
á þriðjungseignarhlut í hreinlætis-
fyrirtækinu P/F Kremilux Industri í
Færeyjum.
Baldur Guðnason, Pálmi Haralds-
son, Einar Þór Sverrisson og Stein-
grímur H. Pétursson sitja í stjórn
félagsins. Dr. Ásbjörn Einarsson
verður framkvæmdastjóri fram-
leiðslu- og tæknisviðs og Ríkarð
Ottó Ríkarðsson framkvæmdastjóri
sölu- og markaðssviðs.
Langstærsta hreinlætisvörufyrirtæki landsins með aðalstöðvar á Akureyri
Mjöll og
Frigg samein-
ast í eitt félag
Morgunblaðið/Kristján
Gömlu keppinautarnir Einar Sæmundsson, stofnandi Mjallar t.v., Gunnar
Friðriksson í Frigg og Aðalsteinn Jónsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri
Sjafnar, voru kampakátir við undirskriftina.
ÚTSKRIFT verður hjá Mennta-
smiðju unga fólksins í dag, miðviku-
dag kl. 11, en þá útskrifast 10
manns, ungt fólk á aldrinum 17 til
24 ára.
Smiðjan er tilraunaverkefni
Menntasmiðjunnar á Akureyri.
Nemendurnir hafa stundað nám
síðan 15. janúar, en helstu sam-
starfsaðilar Menntasmiðjunnar eru
fjölskyldudeild Akureyrarbæjar og
Svæðisvinnumiðlun Norðurlands
eystra. Þetta er í annað sinn sem
Menntasmiðja unga fólksins er
haldin, en aðsóknin hefur verið góð
og ekki unnt að taka við öllum þeim
umsóknum sem bárust um þátt-
töku.
Námið er byggt á reynslu úr
Menntasmiðju kvenna og er hug-
myndafræðin svipuð, þ.e. um þrí-
þætt nám er að ræða, sjálfsstyrkj-
andi, hagnýtt og skapandi.
Ungmennin hafa með þessu námi
fengið tækifæri til að staldra við og
skoða stöðu sína í margvíslegu sam-
hengi, fundið styrk sinn í nýjum
hlutum, skilgreint veikleika sína og
skoðað nýja möguleika í lífinu.
Unnið hefur verið að fjölbreyttum
verkefnum, huglægum og verkleg-
um, en eitt þeirra má skoða á suð-
vesturglugga Menntasmiðjunnar á
Glerárgötu 28, myndverk sem þau
unnu sameiginlega undir leiðsögn
myndlistarkennara síns, Joris
Rademaker.
Menntasmiðja
unga fólksins
10 nem-
endur
útskrifast
TRÉVERK ehf. í Dalvíkurbyggð
skrifaði í gær undir samning við
Fasteignir Akureyrarbæjar um
byggingu íþróttahúss og viðbygg-
ingu við Síðuskóla. Alls bárust fjög-
ur tilboð í verkið og voru þau öll yf-
ir kostnaðaráætlun. Tréverk átti
lægsta tilboðið og hljóðaði það upp
á tæpar 333 milljónir króna, eða
101,5% af kostnaðaráætlun. Fyrsta
skóflustunga verksins verður tekin
nk. mánudag og í kjölfarið hefjast
framkvæmdir af fullum krafti.
Eins og áður hefur komið fram,
hafa tilboð í framkvæmdir á vegum
Fasteigna Akureyrarbæjar að und-
anförnu verið yfir kostnaðaráætl-
unum. Björn Friðþjófsson, fram-
kvæmdastjóri Tréverks, sagði að
svo virtist sem verkefnastaða bygg-
ingaverktaka væri góð um þessar
mundir og því hafi einingaverð ver-
ið að hækka. Tréverk var að skila
af sér verki í Sundlaug Akureyrar
og þá er fyrirtækið að hefja fram-
kvæmdir við innhússbreytingar á
gömlu húsum HA á Sólborg. Björn
sagði að um 20 starfsmenn störfuðu
hjá fyrirtækinu en frá miðju ári
1999 hefur um helmingur starfs-
manna verið að vinna við verk á
Akureyri.
Akureyrarbær stóð fyrir lokaðri
samkeppni um íþróttahús og við-
byggingu Síðuskóla og bárust þrjár
tillögur í samkeppnina. Sérstök
matsnefnd valdi tillögu frá Arki-
tekta- og verkfræðistofu Hauks ehf.
en höfundar eru arkitektarnir
Fanney Hauksdóttir, Anna Mar-
grét Hauksdóttir og Friðrik Ó.
Friðriksson og Þráinn Hauksson
landslagsarkitekt hjá Landslagi
ehf.
Tréverk byggir íþróttahús og viðbyggingu Síðuskóla
Fram-
kvæmdir
að hefjast
Morgunblaðið/Kristján
Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, og Björn Friðþjófsson, fram-
kvæmdastjóri Tréverks, undirrituðu verksamninginn. Við hlið þeirra situr
Guðríður Friðriksdóttir, framkvæmdastjóri Fasteigna Akureyrarbæjar.
TÖLUVERT tjón varð í eldsvoða í
Hrísey um hádegisbil í gær. Eldur
kom upp í gamalli fóðurskemmu við
höfnina, þar sem Útgerðarfyrir-
tækið Hvammur er með beitninga-
aðstöðu. Húsið var mannlaust er
eldurinn kom upp. Að sögn Þor-
geirs Jónssonar, slökkviliðsstjóra í
Hrísey, var allt tiltækt lið slökkvi-
liðsins kallað út skömmu eftir kl.
13. Talið er að eldurinn hafi komið
upp á millilofti hússins og var
mestur eldur í þaki hússins og á
millilofti. Þorgeir sagði að nokkuð
erfiðlega hefði gengið að rjúfa þak-
ið en eftir að það tókst hefði gengið
vel að ráða niðurlögum eldsins og
lauk slökkvistarfi um kl. 15.30.
Slökkviliðsmenn þurftu að notast
við reykköfunarbúnað sinn við
slökkvistarfið og einnig fengu þeir
slíkan búnað úr ferjunum Sæfara
og Sævari. Þá var reykköfunar-
maður frá Húsavík staddur í Hrís-
ey í gær og tók hann virkan þátt í
slökkvistarfinu með heimamönnum,
að sögn Þorgeirs. Hann sagði að
vindátt hefði verið hagstæð og önn-
ur hús á svæðinu því ekki verið í
hættu.
Þessa dagana stendur yfir nám-
skeið fyrir slökkviliðsmenn í Hrísey
og eru menn því með hugann enn
frekar við starfið að sögn Þorgeirs
en alls eru 15 menn í slökkviliðinu.
Töluvert
tjón í
eldsvoða
í Hrísey
Ljósmynd/Sigrún Guðlaugsdóttir
Nokkurt tjón varð þegar eldur varð laus í mjölskemmu í Hrísey í gær.