Morgunblaðið - 21.05.2003, Qupperneq 42
DAGBÓK
42 MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Dettifoss og Brúarfoss
koma og fara í dag.
Trinket, Silver Pearl,
Mánafoss og Skóg-
arfoss koma í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Ludvik Anderson og
Olshana koma í dag.
Brúarfoss fer í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40.
Handverkssýning verð-
ur föstud. 23., laugard.
24. og mánud. 26. maí
frá kl. 13–17. Veislu-
kaffi alla dagana. Bingó
fellur niður á föstudag.
Árskógar 4. Kl. 9–12
bað og opin handa-
vinnustofa, kl. 13–16.30
opin smíða- og handa-
vinnustofa.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8–13 hárgreiðsla, kl. 8–
12.30 bað, kl. 9–16
handavinna, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 10–10.30
bankinn, kl. 13–16.30
bridge/vist.
Félagsstarfið, Dal-
braut 18–20. Kl. 9 bað,
kl. 10 leikfimi, kl. 14.30
bankaþjónusta, kl.
14.40 ferð í Bónus.
Félagsstarfið, Dal-
braut 27. Kl. 8–16 opin
handavinnustofan, kl. 9
silkimálun, kl. 13–16
körfugerð, kl. 10–13 op-
in verslunin, kl. 11–
11.30 leikfimi, kl. kl.
13.30 bankaþjónsuta.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
postulínsmálun, kl. 13–
16.30 módelteikning, kl.
9–14 hárgreiðsla, kl. 9–
16.30 fótaaðgerð.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 9.30
hjúkrunarfræðingur á
staðnum, kl. 10 hár-
greiðsla, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 13
föndur og handavinna.
Félag eldri borgara,
Kópavogi. Viðtalstími í
Gjábakka í dag kl. 15–
16. Skrifstofan í Gull-
smára 9 opin í dag kl.
16.30–18.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Tréút-
skurður kl. 9, biljard
10.30 línudans kl. 11,
glerlist kl. 13, pílukast
kl. 13.30 og kóræfing
kl. 16.30.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Línudans-
kennsla kl. 19.15.
Söngvaka kl. 20.45, síð-
asta söngvakan á þessu
vori.
Gerðuberg, félagsstarf.
kl 9–16.30 vinnustofur
opnar, kl. 10.30 gamlir
leikir og dansar, frá há-
degi spilasalur opinn kl.
13.30 leggur Gerðu-
bergskórinn af stað í
Bústaðakirkju. Laug-
ard. 24. maí kl. 16 vor-
tónleikar Gerðuberg-
skórs í Fella- og
Hólakirkju.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan op-
in, kl. 9.30 boccia og
glerlist, kl. 13 glerlist
og félagsvist, kl. 17.
bobb. Fimmtudaginn
22. maí kl. 14 kynning á
sumarstarfseminni.
Kynntir verða ferða-
möguleikar sumarsins
og kynning á ferð til
Póllands. Dagskráin
liggur fyrir í næstu
viku.
Gullsmári, Gullsmára
13. Opið frá kl. 9–17,
handavinnustofan opin
frá kl. 13–16.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna, búta-
saumsur, útskurður,
hárgreiðsla og fótaað-
gerð, kl. 11 banki, kl. 13
bridge.
Hvassaleiti 58–60. Kl. 9
föndur, kl. 9 og kl. 10
jóga, kl. 15 teiknun og
málun. Fótaaðgerðir og
hárgreiðsla.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 opin vinnustofa,
kl. 9–12 tréskurður, kl.
9–16 fótaaðgerð, kl. 13–
13.30 banki, kl. 14 fé-
lagsvist.
Vesturgata 7. Kl. 8.25–
10.30 sund, kl. 9–16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9.15–16
myndmennt, kl. 12.15–
14.30 verslunarferð í
Bónus, kl. 13–14 spurt
og spjallað, kl. 13–16
tréskurður.
Vitatorg. Kl. 8. 45
smíði, kl. 9 hárgreiðsla,
kl. 10 fótaaðgerð, bók-
band og bútasaumur,
kl. 13 handmennt og
kóræfing, kl. 13–16
föndur, kl. 13.30 bók-
band, kl. 12.30 versl-
unarferð.
Bókmenntaklúbbur
Hana-nú. Fundur í
kvöld kl. 20 á Bókasafni
Kópavogs. Skráning
fyrir vorferðina 28. maí.
Barðstrendinga-
félagið, félagsvist í
kvöld kl. 20.30 í Konna-
koti, Hverfisgötu 105.
ITC deildin Fífa. Fund-
ur í kvöld kl. 20.10 í
Safnaðarheimili Hjalla-
kirkju, Álfaheiði 17.
Kópavogi. Uppl í s.
554 2045.
ITC deildin Korpa
Mosfellsbæ heldur
lokafund vetrarins í
kvöld klukkan 20 í Hlé-
garði, Mosfellsbæ.
Ættfræðifélagið.
Fundur húsi Þjóð-
skjalasafnsins að
Laugavegi 162, 3.h.
fimmtud. 22. maí kl.
20.30. Guðmundur S.
Jóhannsson ættfræð-
ingur heldur erindi.
Manntal 1910 selt á
fundinum.
Í dag er miðvikudagur 21. maí,
141. dagur ársins 2003. Orð
dagsins: Því að í voninni erum
vér hólpnir orðnir. Von, er sést, er
ekki von, því að hver vonar það,
sem hann sér?
(Rómv. 8, 24.)
Á kratavefnum Kreml.iseru formanni Sam-
fylkingarinnar, Össuri
Skarphéðinssyni, ekki
vandaðar kveðjurnar
þessa dagana.
Eftir yfirlýsingar Öss-urar Skarphéð-
inssonar, sem sá ástæðu
til að ítreka umboð sitt
sem formanns og þannig
benda á stöðuleysi Ingi-
bjargar Sólrúnar, urðu
margir hvumsa. Eig-
inlega bara öskuillir,“
skrifar Anna Sigrún
Baldursdóttir á Kreml.
„Ólátabelgir voru beðnir
að sitja á strák sínum
fram yfir stjórnarmynd-
unarviðræður og urðu
flestir við því. Það er eig-
inlega stórmerkilegt í
ljósi þess hver hóf um-
ræðuna. Össur mátti vita
að við þessu yrði brugðist
en þegar ljóst var hvert
umræðan stefndi var vís-
að til viðkvæmra tíma í
ljósi stjórnarmynd-
unarviðræða. Nú er þeim
hins vegar lokið og full
ástæða fyrir Samfylk-
inguna og formann henn-
ar að líta yfir völlinn.“
Anna segir athyglisvert
að varla einu orði úr
stjórnarmyndunarvið-
ræðunum hafi verið lekið
í fréttamenn.
„Fjölmiðlum var þó séð
fyrir efni og gátu dundað
sér við að birta yfirlýs-
ingar Össurar um eigin
stöðu, að Ingibjörg Sól-
rún væri nú ekki lengur
neitt forsætisráð-
herraefni, að Össur hefði
hringt í Halldór, að Hall-
dóri hefði verið boðinn
forsætisráðherrastóllinn
o.s.frv. Hálfgert eftir-
kosninga-raunveruleika-
sjónvarp.“
Áfram heldur Anna Sig-ríður: „Menn gönt-
uðust með að ekkert hafi
mátt ræða á stjórn-
arfundum í tíð rík-
isstjórnar Sjálfstæð-
isflokks og Alþýðuflokks
án þess að það hafi birst í
blöðum daginn eftir.
Nema að málið væri
merkt „trúnaðarmál“, þá
var það komið í hádeg-
isfréttirnar sama dag.
Getur verið að Samfylk-
ingin hafi fengið laus-
mælgina í arf eftir Al-
þýðuflokkinn og er útspil
formannsins e.t.v. ein
birtingarmynd þess?
Vafalaust er talsverður
fælingarmáttur í slíkri
arfleið.“
Í öðrum pistli á Kremlfjallar Svanborg Sig-
marsdóttir um áð-
urnefnda yfirlýsingu Öss-
urar um að hann verði
áfram formaður Samfylk-
ingarinnar, með stuðn-
ingi Ingibjargar Sól-
rúnar: „Margir hafa
undrast þessa yfirlýsingu
formanns Samfylking-
arinnar, sérstaklega í
ljósi þess að flokkurinn
mun ekki kjósa sér for-
mann fyrr en á landsfundi
seint í haust og því er
þessi yfirlýsing Össurar
gjörsamlega ótímabær –
nema ef það var ætlun
hans að kljúfa flokkinn
sinn og skapa úlfúð og ill-
indi sem myndu standa í
marga mánuði.“
STAKSTEINAR
Kremlverjar skjóta á
Össur
Víkverji skrifar...
Á HAGYRÐINGAKVÖLDI íKelduhverfi sem haldið var á
dögunum voru veitt verðlaun fyrir
besta botn við fyrripart. Verðlaunin
fékk Elísabet Ingólfsdóttir frá
Mörk í Kelduhverfi, en hún á ekki
langt að sækja hagmælskuna. Hún
er bróðurdóttir Þorfinns Jónssonar,
sem tróð upp á mótinu, og hún, Ósk
Þorkelsdóttir og Ingibjörg Gísla-
dóttir, sem einnig komu fram, eru
systkinabörn. Fyrriparturinn og
verðlaunabotninn voru svohljóð-
andi:
Kosningarnar koma brátt
kjósendurnir velja.
Allir flokkar hafa hátt
himnesk loforð selja.
x x x
Á HAGYRÐINGAKVÖLDINUsöfnuðust 400 þúsund kr. sem
renna til viðhalds á félagsheimilinu
Skúlagarði, en það er menningar-
hús Keldhverfinga. Á hagyrð-
ingakvöldinu komu einnig fram
þingmennirnir Jón Kristjánsson,
Steingrímur J. Sigfússon og Hall-
dór Blöndal. Af því tilefni orti Þor-
finnur:
Kjarkurinn dvínar af kvíða ég brenn
á knattvelli ljóðastandsins,
þeir eru allir atvinnumenn
frá aðalspaugstofu landsins.
x x x
ÞAÐ virðist vinsælt umræðuefnihver verður forsætisráðherra í
næstu ríkisstjórn. Það var raunar
kosningamál, án þess að kosið væri
um það, því að Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir tilnefndi sig „forsætis-
ráðherraefni“ í kosningabaráttunni.
Hjálmar Freysteinsson, læknir á
Akureyri, orti að afloknum kosn-
ingum:
Það er margt sem miður fer
og margra strembinn vandi.
Af forsætisráðherraefnum er
ofgnótt hér á landi.
x x x
HJÁLMAR varð sextugur 18. maísíðastliðinn, sama dag varð
bróðir hans Egill 45 ára og faðir
þeirra Freysteinn Jónsson í Vagn-
brekku átti aldarafmæli daginn áð-
ur eða 17. maí. Stefán Vilhjálmsson
sendi Hjálmari kveðju í tilefni dags-
ins, eftir að hafa séð og heyrt ágætt
viðtal við Freystein föður hans, og
hafði orð á því að langlífi virtist í
ættinni:
Freysteinn Jónsson gleður geð,
glettnin rík þó sölni hárin
og soninn uppi sit ég með
sjálfsagt næstu 40 árin.
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Afmælisbarnið Freysteinn Jónsson
í Vagnbrekku.
Leitum að
ódýrum lyfjum
ÉG vil fyrir hönd Lands-
samtaka hjartasjúklinga
taka undir með „Eldri borg-
ara í Reykjavík“ í Velvak-
anda fimmtudaginn 15. maí
sl. Við höfum hvatt fé-
lagsmenn okkar, sem flestir
eru hjartasjúklingar og
nota lyf að staðaldri, að leita
tilboða í t.d. mánaðar-
skammtinn og spyrjast fyr-
ir í öðrum apótekum um
verð ef grunur leikur á að
lyf sé óeðlilega dýrt, eða
selt með litlum afslætti.
Þá er rétt að benda öllum
sjúklingum sem þurfa að
nota mikið af lyfjum til að fá
hjá apótekum sínum heild-
arútskrift af árslyfjanotkun
í trausti þess að tekið sé til-
lit til þess sem frádráttar á
skattskýrslu. Einn félagi
okkar fékk t.d. 6.000 kr.
bensínstyrk hjá Trygginga-
stofnun vegna þess hve erf-
itt hann átti með gang.
Skilaboð Landssamtaka
hjartasjúklinga til sjúklinga
eru alveg skýr: „Leitið til-
boða í lyfjapakkann.“
Ásgeir Þór Árnason,
framkvæmdastjóri
Landssamtaka hjarta-
sjúklinga.
Kaldhæðni
ÞAÐ er með ólíkindum að
ríkið hafi einkasölurétt á
áfengi og sígarettum. Á
sama tíma og ríkið veitir
umtalsverðar fjárhæðir í
forvarnir, bæði gegn reyk-
ingum og áfengi, fær það
miklar tekjur vegna sölu á
þessum vörum. Þetta er
kaldhæðni sem ekki ætti að
viðgangast.
Laufey.
Dýrahald
Pínulítil og yndisleg
VEGNA ofnæmis heimilis-
manns vantar kisuna Esju
nýtt heimili. Hún er 10
mánaða gömul, hreinleg,
gulbröndótt og alveg yndis-
leg. Sá sem getur tekið
hana að sér hringi í Katrínu
í síma 567 6439 eða
824 6439.
Sérstakur köttur
VEGNA sérstakra að-
stæðna óskast gott heimili
fyrir afar sérstakan fress-
kött.
Kötturinn er 1 árs gam-
all, geldur, hvítur með
svarta rófu og svört eyru.
Upplýsingar í síma
823 9398, 587 2474.
Afródíta er týnd
LÍTIL læða, svört með
hvíta bringu og hvítar lopp-
ur, týndist fyrir stuttu. Hún
er eflaust Kópavogsmegin í
Fossvogsdalnum og ratar
ekki heim. Hún er eyrna-
merkt: Y3011.
Þeir sem kunna að hafa
einhverja vitneskju um
ferðir læðunnar Afródítu
eru vinsamlegast beðnir um
að hafa samband í síma
848 2850.
Brand vantar heimili
BRANDUR er sex mánaða
gamall norskur skógarkött-
ur. Vegna ofnæmis heimil-
ismanna leitar hann nú log-
andi ljósi að nýjum
samastað. Góðhjartað fólk
sem er tilbúið að taka kett-
linginn að sér má hafa sam-
band í síma 554 3087 eða
693 7907.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
LÁRÉTT
1 málæðið, 8 nemum, 9
áleit, 10 dveljast, 11 opn-
ar formlega, 13 landrimi,
15 kvæðis, 18 spjör, 21
kaðall, 22 tæla, 23 kurr,
24 kroppinbak.
LÓÐRÉTT
2 rask, 3 lærir, 4 geðrík-
ar, 5 gersamlegan, 6 asi,
7 velgja, 12 ótta, 14 reið,
15 naut, 16 nói, 17 bala,
18 broddgöltur, 19 skurð-
brúnin, 20 hluta.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 prútt, 4 fámál, 7 labba, 9 merki, 9 nem, 11 rótt,
13 bani, 14 ætlar, 15 sjór, 17 áman, 20 eða, 22 grugg, 23
urgur, 24 rotta, 25 terta.
Lóðrétt: 1 pólar, 2 úrbót, 3 tían, 4 fimm, 5 marra, 6 leiti,
10 eðlið, 12 tær, 13 brá, 15 sogar, 16 ótukt, 18 mögur, 19
norpa, 20 egna, 21 autt.
Krossgáta 6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
MYNDIRNAR munu hafa verið í eigu
konu sem bjó í Reykjavík u.þ.b. á ár-
unum 1915–1945 og var ættuð úr Land-
sveit í Rangárvallasýslu. Ef einhver
þekkir fólkið þá vinsamlegast komið
upplýsingum til Gunnars Guðmunds-
sonar, Freyvangi 15, 850 Hellu. Sími
487 5098.
Kannast einhver við fólkið á myndunum?